Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 15
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
KLERKASTJÓRNIN í Íran hefur
lengi haft illan bifur á öllum tilraun-
um kvenna til að tryggja jafnrétti en
þær hafa áratugum saman reynt að
vekja athygli á kröfum sínum á al-
þjóðlegum baráttudegi kvenna, 8.
mars. Svo fór einnig á þessu ári.
Sunnudaginn fyrir kvennadaginn
voru 33 konur fangelsaðar fyrir að
efna til fundar við þinghúsið í Teher-
an en öryggislögregla braut mót-
mælin á bak aftur af mikilli hörku.
Þær voru þó flestar látnar lausar
daginn fyrir kvennadaginn gegn lof-
orði um að þær myndu ekki taka þátt
í mótmælum daginn eftir.
Mikill viðbúnaður var af hálfu lög-
reglu á kvennadeginum og götum að
Byltingartorginu lokað. Þrátt fyrir
það tókst um 300 konum og kenn-
urum, sem oft hafa líka notað daginn
til að mótmæla mannréttindabrot-
um, að safnast saman á Baharestan-
torgi í Teheran og lesa upphátt mót-
mælayfirlýsingu. Lögreglan réðst á
hópinn og barði suma, þ.á m. Maraz-
ieh Mortazi og Fatemeh Govarai
sem báðar eru virkar í femínistabar-
áttu stúdenta.
Friðarverðlaunahafinn Shirin
Ebadi var verjandi kvenna sem tóku
þátt í mótmælum 2006 gegn lögum
er skerða réttindi kvenna. Hún sagði
mannréttindasamtökunum Human
Rights Watch að konurnar hefðu í
engu brotið stjórnarskrárákvæði um
fundahöld en hópnum hefði verið
sundrað með kylfuhöggum og úðað
yfir þær pipargasi og málningu.
Það er því á brattann að sækja hjá
írönskum konum enda þótt þær taki
á margan hátt meiri þátt í stjórn-
málum en reyndin er í mörgum öðr-
um grannríkjum þar sem íslam er
ráðandi. Þær eru öflugar í háskólum,
hafa atkvæðisrétt eins og aðrir borg-
arar og nýta hann, nokkrar konur
sitja á þingi. En þingið hefur ekki
síðasta orðið heldur sérstakt 12
manna ráð klerka og lögfræðinga úr
röðum harðlínumanna. Ráðið hefur
neitunarvald gagnvart allri löggjöf
og árið 2003 hafnaði það alþjóðlegum
sáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem
þingið hafði samþykkt, um að berj-
ast skuli gegn misrétti kynjanna.
Umbótasinnar andæfa þó stund-
um. Nýlega viðraði ríkisstjórnin
hugmyndir um að setja takmörk við
fjölda kvenna í háskólanámi. Helsta
umbótahreyfingin, Íslamski þátt-
tökuflokkurinn, gagnrýndi af því til-
efni stjórnvöld fyrir að hafa ekki
gert neitt til að bæta stöðu kvenna.
„Öðru nær, hún hefur gert nýjar
áætlanir um að minnka þátt kvenna í
samfélaginu,“ sagði hreyfingin.
Konur í Íran byggja baráttu sína á
gömlum grunni. Fatemeh Baraghani
varð fyrir rúmlega 150 árum fyrst
kvenna í múslímalandi til að ögra
hefðum og taka af sér slæðuna á op-
inberum vettvangi. Hún var síðar
tekin af lífi og núverandi stjórnvöld
gæta þess vel að hampa ekki þessari
formóður kvennabaráttunnar í Íran.
Íranskar konur enn
í miklum baráttuhug
Klerkastjórnin ber harkalega niður öll mótmæli gegn
misrétti og vill nú takmarka fjölda kvenna í háskólanámi
Reuters
Gegn kynjamisrétti Lögreglumenn beittu hörku 8. mars til að stöðva mót-
mæli kvenna úr röðum kennara við þinghúsið í Teheran.
Í HNOTSKURN
»Íranskir embættismennsegja gjarnan að bar-
áttukonurnar séu leiguþý
vestrænna ríkisstjórna.
»Við skilnað fær íranskurfaðir forræði drengja yfir
tveggja ára aldri og stúlkna
yfir sjö ára aldri.
Bangkok. AP. | Það er líklega ástæða
fyrir fjársterka sælkera til að
merkja dagsetninguna 12. desember
2008 strax í dagatalið sitt. Þá verður
efnt til sannkallaðrar veislu með
allra færustu kokkum veraldar en
menn munu þurfa að punga út allt að
tíu þúsund dollurum fyrir máltíðina,
eða tæplega 700.000 íslenskum krón-
um. Vettvangur kvöldverðarins
verður ekki af verra taginu, sjálfir
pýramídarnir í Giza í Egyptalandi.
Deepak Ohri, framkvæmdastjóri
Lebua-hótelsins í Bangkok, skipu-
leggur þennan viðburð en í febrúar
sl. var Mezzaluna, veitingastaður á
Lebua-hótelinu, einmitt vettvangur
sambærilegrar sælkeraveislu; nema
hvað málsverðurinn þá kostaði enn
meira, eða 25.000 dollara. Sex kokk-
ar, sem allir hafa hlotið þrjár stjörn-
ur í Michelin-veitingastaðabókunum
frægu, elduðu þá matinn. Alls kom-
ust fjörutíu í málsverðinn. Ekki hef-
ur fengist upp gefið hverjir mættu
en vitað er að sterkefnaðir sælkerar
komu úr flestum heimsálfum til að
gæða sér á kræsingunum.
Deepak Ohri segir að þó að mat-
urinn muni kosta umtalsvert minna í
Egyptalandi þá verði um enn glæsi-
legri veislu að ræða. „Sem fyrr er
þetta fyrir milljónamæringa en að
þessu sinni munu margir milljóna-
mæringar geta tekið þátt,“ segir
hann en gert er ráð fyrir að fimm
hundruð aðgöngumiðar verði seldir
á viðburðinn. Áætlanir gera ráð fyrir
að þrjátíu þriggja stjörnu Michelin-
kokkar muni nú koma að matseld-
inni en hver og einn fær það verkefni
að elda ofan í sautján manns eða svo.
Eins kílómetra löngu eldhúsi
verður komið fyrir í Giza, með pýra-
mídana sögufrægu í baksýn, að sögn
Ohri. Maturinn verður ekki bundinn
einum skóla matseldarinnar, ólíkt
veislunni í Bangkok í febrúar en hún
var tileinkuð franskri matargerðar-
list, auk þess sem fágæt frönsk vín
voru á boðstólum. Eftir er að semja
um hversu nálægt pýramídunum
gestirnir fá að sitja, en Ohri segir
koma til greina að heita því að láta
gróða af ævintýrinu renna til varð-
veislu pýramídanna, sem taldir eru
meðal sjö undra veraldar.
Ágóði af málsverðinum í Bangkok
mun renna til tvennra góðgerðar-
samtaka, Lækna án landamæra og
Chaipattana-sjóðsins sem settur var
á laggirnar til að styðja við íbúa
dreifbýlisins í Taílandi.
Milljónamæringamáltíð
við pýramídana í Giza
Reuters
Sælkeramáltíð Franski kokkurinn Marc Meneau í eldhúsinu á veitinga-
staðnum Mezzaluna á Lebua-hótelinu í Bangkok 9. febrúar sl.
Áhugasamir þurfa að
greiða 10.000 dollara
fyrir málsverðinn