Morgunblaðið - 20.03.2007, Page 23

Morgunblaðið - 20.03.2007, Page 23
heilsa MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 23 Þeim einstaklingum, semhaldnir eru fullkomnunar-áráttu, hættir frekar en öðrum til að þróa með sér maga- bólgur og heilkenni ristilertingar í kjölfar sýkinga, að því er segir í nýlegri frétt á netmiðli BBC. Vís- indamenn við Southampton- háskóla spurðu 620 einstaklinga, sem glímdu við magabólgur og iðraverki, út í stress- og sjúk- dómsþætti til að komast að því hverjir ættu helst á hættu að fá sjúkdóminn, sem á ensku er skammstafaður IBS og stendur fyrir Irritable Bowel Syndrome. Í ljós kom að þeir, sem keyra sig áfram í átt að fullkomnun, eru stressaðir að eðlisfari og hafa sí- felldar áhyggjur af smáatriðum eru veikari fyrir en hinir, en um 5% af Bretum hafa þróað með sér heilkenni ristilertingar og eru konur líklegri til að fá sjúkdóminn en karlar. Að sögn dr. Ronu Moss- Morris, sem leiddi rannsóknina, hafði fólkið stöðugar áhyggjur af einkennum sínum og var fjarri því að vera ímyndunarveikt. „Þetta er nefnilega fólkið, sem heldur að það sé alltaf á réttri braut og það að taka veikindafrí frá vinnu gengur auðvitað þvert á þá trú. Þetta fólk heldur sér gangandi þangað til það hrynur niður þar sem það hefur háar hugmyndir um sjálft sig.“ Að mati Roberts Spiller, sér- fræðings við háskólasjúkrahúsið í Nottingham, er án efa flókið ferli hér að verki sem hugsanlega má rekja til tveggja hugsanlegra skýringa. Annars vegar að streita og áhyggjur hafi áhrif á ónæm- iskerfið og hinsvegar kalli ónóg hvíld á meiri skaða. Kviðverkir og hægðatregða Ekki er vitað með vissu hvað orsakar sjúkdóminn eða heil- kennið, en talið er að orsakavald- urinn sé óþekktur sýkill. Sjúklingar fá truflun í ónæmis- kerfið, en ekki er vitað hvort hún er orsök eða afleiðing sjúkdóms- ins. Sjúkdómurinn leggst einkum á smáþarmana en nær stundum niður í ristil. Sjúkdómseinkennin eru aðallega kviðverkir, oft neð- arlega hægra megin, og nið- urgangur eða hægðatregða. Stundum kemur blóð með hægð- um og einnig geta þyngdartap og sótthiti fylgt sjúkdómnum. Lang- varandi blæðing frá þörmum getur leitt til blóðleysis. Um er að ræða langvarandi, ólæknandi sjúkdóm, sem stundum hverfur, en getur komið aftur hvenær sem er ævinn- ar. Þeir, sem hafa greinst með sjúkdóminn, geta gert ráð fyrir að þeir þurfi læknismeðferð í langan tíma. Engin lækning er þekkt en meðferðin hefur það takmark að lagfæra skort á næringarefnum, halda bólgubreytingum í skefjum, gera sjúklinginn verkjalausan og stöðva blæðingu. Engar algildar reglur eru til um mataræði en sumum versnar af mjólk, áfengi, kryddi, steiktum mat og trefjum. Stórir skammtar af vítamínum eru gagnslausir og geta jafnvel verið skaðlegir. Flestum sjúklingum batnar af bólgueyðandi lyfjum, sýklalyfjum eða sterum, en algengasti fylgi- kvilli sjúkdómsins er garnastífla, sem verður vegna þess hve þarmaveggirnir þykkna mikið. Iðraverkirnir fylgifiskur full- komnunaráráttu Reuters Streita Þeir sem keyra sig áfram í átt að fullkomnun, eru stressaðir að eðl- isfari og hafa sífelldar áhyggjur eru veikari fyrir en hinir                       VÍÐSJÁ kl. 17.03 virka daga www.ruv.is Útvarpið - eini munaður íslenskrar alþýðu AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200 www.iav.is H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA SÓLTÚN – REYKJAVÍK Kynning á húsi í byggingu Sóltún 8–12 Nú er hafin sala á íbúðum í húsum númer 8–12 í Sóltúni en afhending þeirra er í nóvember 2007. Að því tilefni verðum við með til sýnis sambærilega, fullkláraða íbúð 106 í Sóltúni 18, í dag og á morgun milli 16 og 18. Verið velkomin – sjón er sögu ríkari Nr. 8 Nr. 10 Nr. 12 Nr. 14 Nr. 16 Nr. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.