Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 24
menntun 24 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Iðn- og starfsmenntuðum ein-staklingum með frumgreina-próf vegnar vel í námi í tækni-og verkfræði við Háskólann í Reykjavík samanborið við aðra nem- endur. Viðhorf þeirra er auk þess já- kvæðara en viðhorf nemenda með stúdentspróf þegar kemur að mati á nýtingu fyrra náms og gildi iðn- menntunar fyrir nám í tækni- og verkfræði. Frumgreinapróf er loka- próf af frumgreinasviði, en þar er boðið upp á sértækt undirbúnings- nám fyrir nám í Tækni- og verk- fræðideild HR. Þetta eru megin niðurstöður ný- legrar könnunar á gengi iðnlærðra með frumgreinapróf. „Könnunin, sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Iðnskólafélaginu, var gerð til að beina sjónum að mikilvægi iðnmenntunar og í stuttu máli má segja að allar niðurstöður séu mjög hagstæðar. Það er því ljóst að iðn- nám er góður grunnur fyrir nám í tækni- og verkfræði og nemendum finnst þeir hafa forskot hvað verk- kunnáttu varðar fram yfir nemendur með stúdentspróf. Nauðsynlegt er að leita leiða, sem beina sjónum að mik- ilvægi iðnmenntunar, sem hefur átt undir högg að sækja þar sem mikill meirihluti ungmenna sækir í bók- námsbrautir framhaldsskólanna,“ segir Málfríður Þórarinsdóttir, sviðsstjóri frumgreinasviðs Háskól- ans í Reykjavík. Athugað var hvernig iðn- og starfsnámsnemendum með frum- greinapróf vegnaði í námi við Tækni- og verkfræðideild HR samanborið við nemendur með stúdentspróf af bóknámsbrautum. Spurningalisti var sendur 146 þátt- takendum í pósti og var svarhlutfall 70,5%. Þátttakendum var skipt upp í tvo hópa, annars vegar iðn- og starfs- menntaða einstaklinga með frum- greinapróf og hins vegar einstaklinga með stúdentspróf. Spurt var um gildi iðn- og starfsnáms og starfsreynslu fyrir nám í tækni- og verkfræði, en einnig var athugað hvernig einstakar greinar úr framhaldsskóla eða á frumgreinasviði hefðu nýst í námi við tækni- og verkfræðideild HR. Loks voru þátttakendur spurðir hvað þeim hefði þótt auðveldast og erfiðast við að hefja háskólanám. Nýttist iðnmenntuðum betur Niðurstöður sýna að iðnmenntaðir nemendur með frumgreinapróf í tækni- og verkfræði telja fyrra nám sitt hafa nýst betur en nemendur með stúdentspróf. Þeir fyrrnefndu telja almennt að starfsreynslan hafi nýst þeim betur en nemendum með stúd- entspróf. Marktækur munur kom fram á viðhorfum nemenda til þess hvernig starfsreynsla nýtist við bók- lega námið, t.d. stærðfræði, eðlis- fræði og við burðarþols- og raf- magnsfræði. Niðurstöður sýna enn fremur að iðnmenntaðir telja að fyrra tungu- málanám hafi nýst sér betur en stúd- entar auk þess sem nemendur af frumgreinasviði voru líklegri en stúd- entar að svara því játandi að fyrra raungreinanám hefði nýst vel í tækni- og verkfræðináminu. Þegar nemendur í þessum tveimur hópum voru spurðir að því hvernig námið í heild hefði nýst þeim í tækni- og verkfræði kom fram marktækur munur á svörum hópanna. 98% nem- enda með frumgreinapróf svöruðu því til að námið hefði nýst vel eða mjög vel en 75% nemenda með stúd- entspróf töldu svo vera. Iðnmenntaðir jákvæðari en stúdentar í garð fyrra náms Iðnmenntaðir Nemendur á frumgreinasviði hafa jákvætt viðhorf til fyrra náms í tækni- og verkfræðigreinum. Í HNOTSKURN »Iðnmenntaðir nemendurmeð frumgreinapróf í tækni- og verkfræði töldu fyrra nám sitt hafa nýst bet- ur en nemendur með stúd- entspróf. »Frumgreinapróf er loka-próf af frumgreinasviði þar sem boðið er upp á sér- tækt undirbúningsnám fyrir Tækni- og verkfræðideild HR. »Marktækur munur komfram á viðhorfum nem- enda til þess hvernig starfs- reynsla nýtist við bóklega námið, t.d. stærðfræði, eðlis- fræði og við burðarþols- og rafmagnsfræði. Það er því ljóst að iðnnám er góður grunnur fyrir nám í tækni- og verkfræði og nemendum finnst þeir hafa forskot hvað verk- kunnáttu varðar fram yfir nemendur með stúdents- próf. Börnin erfa jú landið – þaðvitum við – og reyndar alltsem því fylgir hvort semum er að ræða gróður- húsaáhrif eða grunnvatnsmengun. Það er því ekki nóg að fullorðna fólkið flokki sorp, spari akstur og sniðgangi eiturefni – ekki veitir af því að virkja krakka landsins í umhverfismálunum og því fyrr, því betra. Á heimasíðu Landverndar, undir verkefninu Vistvernd í verki, er að finna uppástungur að því hvernig ná megi til barna og kenna þeim að ganga vel um framtíðarlandið sitt. Tiltölulega einfalt er að virkja börnin til að taka þátt í flokkun sorps á heim- ilinu. Það liggur beint við að ræða flokkunina við þau og hvert hver hlut- ur á að fara sem og að endurskoða það sem fer í ruslið. Er t.d. hægt að nýta hlutinn í stað þess að henda hon- um? Kannski hafa börnin gaman af því að föndra úr dótinu sem til fellur og þar með er hugmyndaflug þeirra örvað um leið. Börnin geta líka passað upp á ljósin á heimilinu, að slökkva á eftir sér og fara vel með vatn. Þegar út í búð er komið geta þau tekið að sér að hafa uppi á umhverfismerktum vörum. Spennandi tölvuleikir Þá hefur Umhverfisstofnun Evr- ópu látið búa til tölvuleik fyrir börn átta ára og eldri. Leikurinn er m.a. á íslensku og er að finna á Netinu. Í honum hafa ákvarðanir barnanna áhrif á daglegt líf á eyjunni Honoloko, sem leikurinn er nefndur eftir. Í lokin fá börnin svo stig eftir því hversu um- hverfisvænar og heilsusamlegar ákvarðanir þeirra eru. Námsgagnastofnun og Umhverf- isstofnun hafa líka sett upp vef sem nefnist Heimurinn minn þar sem er að finna sögur, leiki, verkefni og fróð- leik um umhverfismál fyrir börn. Þar er hægt að kynnast því hvernig vatnsrof verður, sjá eldgos, sjá hve langan tíma það tekur fyrir hjólför í móum að gróa og spreyta sig á sorp- flokkun svo eitthvað sé nefnt. Sorpa hefur líka sett upp umhverfistengdan leikjavef fyrir börn á vefsetri sínu auk þess sem fyrirtækið hefur gefið út fræðslu-, lita- og þrautabók þar sem þemað er úrgangur, flokkun og end- urvinnsla. Þó að krakkar maldi stundum í mó- inn er til stendur að fara í göngutúra eða ferðalög út á land er fátt meira virði í umhverfisuppeldi en að drífa börnin út í náttúruna. Reynslan sýnir að smám saman fara þau að njóta hennar og kunna að meta hana sem er dýrmætt veganesti út í lífið. Að kenna krökkum um umhverfið Morgunblaðið/Golli Endurvinnsla Börnin hafa sjálf heilmiklar hugmyndir um umhverfismál eins og þetta listaverk eftir Aðalbjörgu Halldórsdóttur ber með sér. Morgunblaðið/Sverrir Tölvur Hægt er að nálgast nokkra tölvuleiki ókeypis á netinu þar sem börnin læra um um- hverfismál um leið og þau leika sér. Morgunblaðið/Árni Torfason Flokkun Upplagt er að virkja börnin með í sorpflokkun á heim- ilinu enda sýnir reynslan að þau eru góðir eftirlitsmenn þegar kemur að því að setja ruslið í viðeigandi koppa og kirnur. www.honoloko.com www.heimurinnminn.is www.sorpa.is/leikir www.landvernd.is/vistvernd vistvænt Hvers kyns meðhöndlun vill sjúk- lingur fá sem getur ekki lengur gert sig skiljanlegan? Ný rannsókn bendir til þess að tölvuforrit geti komist nær óskum sjúklingsins en nánustu aðstandendur hans að því er forskning.no greinir frá. Forritið er matað á upplýsingum um heilsufar sjúklingsins sem og persónuupplýsingum, s.s. aldri, kyni og félagslegri stöðu. Á grund- velli þessara upplýsinga getur for- ritið veitt svar um hvers kyns með- höndlun sjúklingurinn myndi óska sér. Það var David Wendler og koll- egar hans við US National In- stitutes of Health sem þróuðu for- ritið en jafnvel einföld frumgerð þess komst jafnnálægt óskum sjúk- lingsins og nánustu aðstandendur hans. Vísindamennirnir eru ekki í vafa um að forritið muni verða betra en aðstandendur til að finna út óskir sjúklingsins eftir frekari þróun. Þar sem tilraunin var háð því að komast að því hverjar óskir sjúklinganna voru í raun voru frísk- ir þátttakendur notaðir í tilrauninni og þeir spurðir fræðilegra spurn- ing, s.s.: „þú hefur fengið slag og lendir í dásvefni sem ólíklegt er að þú vaknir upp af. Viltu að gerðar verði lífgunartilraunir ef hjarta þitt stoppar?“ Vísindamennirnir greindu svör 16 einstaklinga og komust að því að nánustu aðstandendur þeirra höfðu rétt fyrir sér í 68% tilfella. Frum- gerð tölvuforritsins náði sömu pró- sentutölu. Engu að síður benda vísindamennirnir á að prósentutal- an sé ekki það eina sem ætti að stýra ákvörðun lækna. Þannig geti skipt meira máli hver taki ákvörð- unina en hvaða ákvörðun sé tekin. Aðstoð við erfiðar ákvarðanir heilsa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.