Morgunblaðið - 20.03.2007, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Salvör Jak-obsdóttir fædd-
ist í Vopnafirði 29.
ágúst 1920. Hún
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
11. mars sl. For-
eldrar hennar voru
Jakob Benedikts-
son, f. 27.6. 1886, d.
19.7. 1971, og Jón-
ína Jónsdóttir, f.
6.6. 1887, d. 23.1.
1963.
Systkini Salvar-
ar: Stefán, f. 27.10
1916, d. 30.7. 1981, Stefanína f.
9.4. 1918, d. 27.4. 1988, Sigrún, f.
17.10. 1922, Ingibjörg, f. 13.8.
1924, d. 6.4. 1997, Geirlaug Val-
gerður, f. 15.6. 1928.
Eiginmaður Salvarar var Guð-
mundur Viðar Guðsteinsson, f.
30.11. 1924, d. 18.5. 1988. Þau
giftust 26.10. 1951. Börn þeirra
eru 1) Nína, f. 24.12. 1951, maki
Grétar Örn Júlíusson, börn
þeirra Grétar Viðar, f. 23.3.
1972, dóttir hans Nína Björk.
Örn Viðar, f. 9.9. 1976. Jakob
Viðar, f. 10.4. 1982, sonur hans
Valgeir Viðar. Sallý f. 17.3. 1988.
2) Jakob Viðar, f. 7.1. 1956, maki
Kristín Helgadóttir,
sonur þeirra Sturla
Viðar, f. 22.2. 1986.
Sonur Jakobs og
Guðrúnar Láru
Halldórsdóttur er
Halldór Viðar, f.
22.11. 1973, synir
hans eru Dagur
Sölvi, Viktor Logi
og Brynjar Jökull.
3) Kolbrún, f. 21.7.
1960, dætur hennar
og Gunnars Steins
Almarssonar (þau
slitu samvistir) eru
Brynja Björk, f. 21.10. 1981, son-
ur hennar Andri Steinn. Alma, f.
19.9. 1990. 4) Halla, f. 7.10. 1962,
maki Kjartan Kjartansson, dætur
þeirra Inga Kristín, f. 14.1. 1984.
Sandra Salvör, f. 24.12. 1987. 5)
Ingibjörg, f. 6.7. 1964, sambýlis-
maður Gunnar Örn Angantýsson,
sonur þeirra Steindór Örn. Synir
Ingibjargar og Baldurs G. Þórð-
arsonar eru Arnór Viðar, f. 16.3.
1986, Kristbjörn Viðar, f. 27.10.
1991. Dætur Gunnars Anita Rut
og Agnes Lóa.
Útför Salvarar fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 20.
mars. Hefst athöfnin kl. 13.00.
Elsku mamma mín er látin.
Mig langar að minnast hennar
með örfáum orðum.
Við systkinin vorum svo heppin
að mamma vann heima þegar við
vorum að alast upp. Það var alltaf
gott að geta komið heim og
mamma var alltaf til staðar, tilbúin
að segja okkur sögur, syngja fyrir
okkur og taka okkur í faðminn. Ég
minnist allra ferðalagana um land-
ið og hversu gaman þú hafðir af
því. Þegar við fluttum í Efstasund
þá gat mamma stundað sitt aðal-
áhugamál, sem var garðrækt. Allt-
af í garðinum, moldug upp fyrir
haus. Það eru ótal minningar sem
ég á um þig, elsku mamma. Ég vil
þakka þér fyrir allt sem þú varst
mér og minni fjölskyldu. Minn-
ingin um þig mun ávallt lifa í
hjarta mér.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
mér í huga skín
bjarmi þinna bæna,
blessuð versin þín.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best
hjartað blíða, heita – hjarta,
er sakna’ ég mest.
(Sumarliði Halldórsson)
Þín dóttir,
Ingibjörg.
Elsku mamma, takk fyrir allt og
allt.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Saknaðarkveðja.
Þín dóttir,
Kolbrún.
Það vantaði góða konu til að sjá
um rósirnar í himnaríki. Þess
vegna þurfti mín ástkæra tengda-
móðir að kveðja okkur og fara og
taka það að sér. Enda fáir betur til
þess fallnir en Sallý. Garðurinn
hennar í Efstasundi ber þess
glöggt merki að um hann var
hugsað af alúð. Þar gat Sallý dval-
ið frá morgni til kvölds og alltaf
haft nóg fyrir stafni. Það verður
skrýtið að geta ekki lengur sest á
pallinn hjá henni til að fá kaffi og
spjalla.
Sallý var alltaf áhugasöm um
fólkið sitt og lagði mikla rækt við
það, eins og blómin. Alveg frá upp-
hafi fann ég mig velkomna í fjöl-
skylduna og það var skemmtilegt
hlutverk að vera eina tengdadótt-
irin.
Og þótt við værum ekki alltaf
sammála vorum við alltaf vinir.
Fyrir það vil ég þakka.
Far þú í friði friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Kveðja,
Kristín Helgadóttir.
Elsku amma Sallý.
Nú ertu farin til afa, sem hefur
tekið vel á móti þér. Ég er svo rík
að hafa átt þig sem ömmu. Þær
eru svo margar minningarnar sem
ég á um þig, alveg óteljandi, og
aldrei mun ég gleyma þeim. Alltaf
var jafn æðislegt að koma niður í
Efstó og á maður svo sannarlega
eftir að sakna þeirra stunda.
Ég er svo ánægð yfir að þú hafir
fengið að kynnast Andra Steini, þú
hafðir svo gaman af honum, ég
mun kenna honum þessa bæn sem
þú kenndir mér þegar ég var lítil:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Það er mjög sárt að kveðja þig,
elsku besta amma mín. Ég þakka
þér fyrir allt og allt. Hvíl í friði.
Þín,
Brynja Björk.
Hún elsku amma Sallý er dáin.
Það er mér einstaklega erfitt á
þessari stundu að venja mig við þá
tilhugsun að hún amma sé ekki
lengur með okkur í lifanda lífi.
Minningarnar hrannast upp í huga
mínum og langar mig að minnast
hennar í nokkrum orðum.
Mínar allra fyrstu minningar
sem barn eru úr Ljósheimunum
þar sem amma Sallý og afi Gummi
bjuggu. Þegar ég var um fimm ára
fluttu þau svo í Efstasund 67 þar
sem ég varði stórum hluta æsku
minnar en það var sá staður sem
ég vildi helst vera á öllum stund-
um, enda kom ég við hvert tæki-
færi. Það var sama hvort það var
páska-, jóla-, sumar- eða helgarfrí,
alltaf var ég hjá ykkur og ég man
svo skýrt hvað ég fann fyrir mikilli
ástúð og öryggi í hvert skipti sem
ég kom og hvað þið voruð alltaf
ánægð að sjá mig og ég ykkur.
Flesta föstudaga eftir skóla tók ég
strætó niður á Suðurlandsbraut og
hljóp beina leið yfir Laugardalinn
og beint heim í Efstó og man ég að
á sunnudagskvöldum þegar þið afi
keyrðuð mig heim hugsaði ég að
það væru bara fimm dagar þangað
til ég kæmi til ykkar næst. A
sumrin ferðuðumst ég, amma og
afi víða og er mér mjög minn-
isstæður minn fyrsti hringur um-
hverfis landið eftir að við vorum
búin að vera á ættarmóti á Vopna-
firði. Ég var að sjálfsögðu ekki
eina barnabarnið ykkar sem vildi
vera hjá ykkur öllum stundum og
það kom ekki sú helgi að eitthvert
okkar væri ekki hjá ykkur og oft
vorum við fleiri en eitt og krakkar
eins og Grétar Viðar og seinna
Brynja Björk voru oft líkari
systkinum mínum en frændsystk-
inum.
Amma Sallý vildi alltaf allt fyrir
mig gera og ég man hvað mér
þótti skemmtilegt þegar hún las
fyrir mig og ósjaldan spiluðum við
ólsen ólsen og veiðimann tímunum
saman. Þetta var yndislegur tími.
Þegar ég var átján ára bauð
amma mér að búa uppi á lofti í
Efstasundinu og bjó ég hjá henni
á fimmta ár eða þar til ég gat
keypt mér mína fyrstu íbúð.
Stuðningur ömmu minnar við mig
í gegnum tíðina er mér ómetan-
legur.
Elsku amma, kveðjustundin er
okkur öllum erfið og ég fæ ekki
með orðum lýst hvers virði þú ert
mér og þú munt alla tíð eiga stór-
an hluta úr mínu hjarta. Megirðu
hvíla í friði við hlið afa Gumma
um ókomna tíð.
Halldór Viðar og fjölskylda.
Elsku amma Sallý, við munum
sakna þín voða mikið og við mun-
um sakna þess að koma ekki niður
í Efstó með pabba, mömmu eða
ömmu Nínu til að hitta þig og
spila á spil því alltaf hafðir þú
tíma til að spila við okkur. Núna
ertu komin til afa Gumma og þar
mun þér líða vel. Bless elsku
besta langamma okkar og takk
fyrir allt og allt.
Þín,
Nína Björk og Valgeir Viðar.
Elsku amma mín, þetta er það
erfiðasta sem ég hef gert, að
kveðja þig. Elsku amma mín, það
er með miklum söknuði og í mik-
illi sorg sem ég skrifa þessi orð,
orð sem segja svo lítið um hvað
mér þótti vænt um þig, hvað ég
elskaði þig mikið, þú varst mér
alltaf svo góð. Ég vona svo inni-
lega að við eigum eftir að hittast
aftur. Ég get ekki hugsað til þess
að ég muni aldrei heyra rödd þína
aftur eða hlátur þinn eða bara
njóta samverustunda okkar. Það
voru ekki svo fá kvöldin þegar ég
bjó hjá þér sem við sátum og
horfðum á einhvern þátt eða
mynd í sjónvarpinu. Við töluðum
alltaf um myndina á meðan henni
stóð og þér fannst ég svo glúrinn
að giska á hvernig þátturinn eða
myndin myndi enda. Ég mun aldr-
ei gleyma því hvað þú varst
ánægð þegar ég loksins náði þeim
áfanga að verða stúdent eða hvað
þér fannst fyndið þegar við vorum
að ræða um Ísland og fáviska mín
um íslenska landafræði kom í ljós,
því þar varst þú á heimavelli.
Elsku amma Sallý, ég man svo vel
þegar ég var hjá ykkur afa
Gumma í Efstó. Ég og Halldór að
leika saman úti í garði og þú hjá
okkur, því það var nú þannig að á
hverju vori og langt fram á haust
þá varst þú þar að dytta að blóm-
unum þínum og trjám eða reyta
arfa. Ég man hvað þú varst alltaf
stolt af rósunum þínum í gróð-
urhúsinu. Ég man þegar ég kom
til þín á sólríkum sumardegi og
við sátum úti í garði og þú varst
að segja mér hvað hin og þessi
blóm eða tré heita. Elsku amma
mín, ég á eftir að sakna þess svo
mikið að koma ekki niður í Efstó
og hitta þig. Ég man líka hvað þú
varst ánægð þegar elsku stelpan
mín hún Nína Björk fæddist. Ég
man hvað þér þótti gaman í brúð-
kaupi mínu og Þóru. Ég man hvað
þér þótti gaman þegar við Þóra
komum í heimsókn með hana Nínu
Björk okkar. Elsku amma Sallý,
takk fyrir allar samverustundirnar
okkar, ég sakna þín svo mikið. Nú
ertu hjá afa Gumma eins og þú
talaðir um, að fylgjast með okkur
sem elskuðum þig. Ég gefst upp
og segi „Sé þig í næsta lífi“ eða
bara eins og afi sagði „Þú vannst,
þú hafðir rétt fyrir þér“. Bæ,
elsku amma Sallý, bæ í bili,
sjáumst seinna.
Þinn,
Grétar Viðar.
Allt er á hverfanda hveli,
Hugur, máttur og ást.
En ætíð að enduðu éli,
aftur þó fagrahvel sást.
(Hannes Hafstein, úr „Ljóðmæli“)
Elsku amma Sallý er dáin, í
huga okkar ríkir sorg.
Við getum yljað okkur við allar
góðu minningarnar sem við eigum
um hana. Það var alltaf gaman að
koma í „Efstó“ til þín, það voru
ófáar næturnar sem við gistum
hjá þér. Þú elskaðir að vera í
garðinum þínum og við hjálpuðum
þér oft við að slá blettinn og ým-
islegt annað sem til féll þar. Við
minnumst allra jólanna hjá þér,
þar sem öll fjölskyldan kom sam-
an. Það voru góðar stundir. Það
eru svo margar minningar sem
koma upp í hugann á svona
stundu. Elsku amma Sallý, nú ert
þú komin til afa Gumma og við
viljum trúa því að þú sért sátt og
að ykkur líði vel saman.
Kallið er komið,
Komin er nú stundin,
Vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
Vininn sinn látna,
Er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
Margt er hér að þakka.
Guð sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
Margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Elsku amma Sallý, við viljum að
lokum þakka þér fyrir alla hlýjuna
og ástina.
Þínir ömmustrákar.
Arnór Viðar, Kristbjörn
Viðar og Steindór Örn.
Elsku amma mín, verstu fréttir
lífs míns bárust mér fyrir
skömmu, elskuleg amma mín var
mikið veik og stuttu síðar látin.
Fyrir stuttu sagðir þú mér að þig
langaði að breyta í garðinum
næsta sumar og ég sagðist mundu
hjálpa þér, ég var farin að hlakka
til þess tíma sem við gætum átt
saman þar. Við eyddum mörgum
stundum í spil í gegnum tíðina og
skemmtum okkur konunglega, ég
heyri ennþá hláturinn þinn þegar
við hlógum að því hvor hefði rétt
fyrir sér í stigagjöf í Scrabble, ég
eða þú.
Ég vona svo innilega að þér líði
vel núna, að þú sért búin að hitta
afa aftur og að þið séuð að bæta
upp fyrir þann tíma sem þið voruð
hvort á sínum stað. Þú ert eflaust
líka að spila við hann eða leggja
kapal því spil voru þitt einkenn-
ismerki. Imba, Kiddi, Pollý og
Salvör Jakobsdóttir
✝
Eiginmaður minn,
INGÓLFUR A.GUÐNASON
frá Hvammstanga,
síðast til heimilis á
Laugateigi 7,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 14. mars.
Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 22. mars kl. 15:00.
Anna Guðmundsdóttir og fjölskylda.
✝
ÁRNI BREIÐFJÖRÐ GUÐJÓNSSON
frá Hofstöðum, Helgafellssveit,
Fannafold 157,
Reykjavík,
sem andaðist á dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
þriðjudaginn 13. mars, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 23. mars kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Gunnar Guðjónsson,
Kristrún Guðjónsdóttir
og frændsystkini hins látna.
✝
Ástkær sonur okkar og bróðir,
SIGURGEIR NÚMI BIRGISSON,
Skólavegi 34,
Fáskrúðsfirði,
lést sunnudaginn 11. mars sl.
Jarðarförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 22. mars kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hans láti Barnaspítalasjóð
Hringsins, sími 543 3724, njóta þess.
Birgir Kristmundsson, Áslaug Guðný Jóhannsdóttir,
Sigurður Elmar Birgisson,
Guðmundur Hrafn Birgisson,
Birgir Björn Birgisson.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800