Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 37
mín! Það var rok þennan dag og seð-
illinn flaug úr hendi mér. Ég hljóp
eins og fætur toguðu, en seðillinn
fauk alltaf lengra og lengra. Loks
lánaðist mér að kyrrsetja hann með
því bókstaflega að fleygja mér ofan
á hann á götunni. Svo fór ég inn og
tilkynnti ömmu að afi hefði gefið
mér svolítið af peningum. Þá hafði
amma staðið við gluggann og horft á
allan skopleikinn! Hún veltist um af
hlátri og sagði: „Já, elskan mín og
þú hefur svo sannarlega unnið fyrir
þeim! Svo grétum við báðar úr
hlátri.
Amma dekraði við mig í mat sem
og öllu öðru. Lambasteik á hverjum
sunnudegi og allar hinar kræsing-
arnar sem ég fékk urðu til þess að
ég elska enn þann dag í dag íslensk-
an mat – það er að segja: Allt nema
súrt hvalspik!
Eitt kvöldið þegar ég var að skrifa
stíl fyrir íslenskutímann í skólanum
skrifaði ég eitt orð rangt, en amma
leiðrétti mig kurteislega. En ég
þóttist nú heldur betur geta upplýst
tungumálasérfræðinginn hana
ömmu mína um það að kennarinn
minn hefði sagt að orðið ætti að
skrifa svona. Hún bað mig að ná í ís-
lenska orðabók og spurði hvort ég
væri tilbúin að smakka svolítið á
súra hvalnum sem hún ætti í ís-
skápnum, ef ég hefði á röngu að
standa. Ég hélt nú það! Auðvitað
hafði ég rangt fyrir mér og amma
naut þess svolítið að sjá mig kyngja
einum bita af þessu ógeðslega hval-
spiki og þar með stolti mínu um leið.
Við hlið ömmu lærði ég að meta
Ísland. Við stóðum saman og dáð-
umst að Norðurljósadýrðinni yfir
borginni. Úði fossanna stakk líka í
andlit okkar beggja, en mest af öllu
naut ég þess að fara með þeim
ömmu og afa í Þórsmörk snemma
um sumarið.
Eitt kvöld sátum við ásamt öðrum
erlendum ferðamönnum við varðeld-
inn og sungum ættjarðarlög okkar
landa. Allt í einu sungu allir „Oh,
beautiful for spacious skies …“ og
ég leit á ömmu yfir mig hrifin. Þá sá
ég að tárin runnu niður kinnar henn-
ar og hún sagðist vorkenna mér svo
mikið að vera svona langt í burtu að
heiman. En ég grét vegna þess að ég
var að fara svo langt frá henni og
afa.
Eitt sem við áttum sameiginlegt,
fyrir utan háralit okkar, var ást okk-
ar á dýrum. Oft óskaði ég mér þess
að geta kynnt ömmu fyrir hundun-
um og hestunum mínum. Mikið hefði
hún notið þess!
Þegar ég fékk meðaleinkunn í
skólanum kom afi til mín og sagði að
ég væri „alveg normal“. En amma,
sem vissi vel hvað ég hafði mikla
minnimáttarkennd, lýsti því yfir að
hún sæi að ég byggi yfir ótrúlegum
listahæfileikum og það væri miklu
betra. Þessi orð hennar hafa hvatt
mig til að notfæra mér mína smá
hæfileika í listinni, aðallega í málun
og teikningu, og hef ég oft síðan get-
að framfleytt mér á því. Að ég tali nú
ekki um ánægjuna sem listin hefur
fært mér!
Ég gæti haldið áfram að tala um
elsku ömmu mína, en læt þetta
nægja, enda bara minningar fjórtán
ára stúlku um ömmuna sem hún hef-
ur saknað mest alla sína ævi. Ég hef
lengi beðið heitar bænir fyrir ömmu
og afa á Íslandi. Ég treysti því að
hún hafi trúað á Drottin og hans
miklu náð. Ég hef fullkomna trú á að
hún standi við hlið mér þegar komið
er yfir fljótið mikla og að hún sýni
mér miklu fegurri sýnir en hún gerði
á Íslandi forðum. Þetta er huggun
mín í sorginni.
Elsku afi minn, Guð blessi þig,
vertu sterkur og trúðu þessu líka.
Mig langar að enda þessa grein eins
og ég endaði alltaf bréfin sem ég
skrifaði henni og afa:
„Love forever, from your grand-
daugther in America.“
Kim Elisabet McKisson.
Elsku amma mín.
Ég trúi því varla að þú sért búin
að kveðja okkur. Er lífið virkilega
þetta eina stutta andartak, eins og
Guð sagði okkur og svo er því lokið?
Það var svo mikil fjarlægð á milli
okkar, þó ekki sé litið nema til land-
fræðilegrar fjarlægðar; þúsundir
mílna og úthaf skildi okkur að; fjöl-
skyldan mín og ég í Bandaríkjunum
og þið afi á Íslandi. Sumir gætu skil-
ið sem svo að öll þessi fjarlægð yrði
til þess að við tengdumst síður. En
það var síður en svo. Þið eigið sama-
stað í huga mér, bænum mínum og
hjarta, og þannig hefur það verið frá
því ég var lítil stelpa.
Elsku hjartans fallega, elskulega
amma mín sem gafst okkur svo mik-
ið með ást þinni og listrænum hæfi-
leikum; þar sem við búum svo langt
frá þér höfum við alltaf saknað þín.
Nú, þegar ég hugsa til baka, hjálpar
það lítið að sefa söknuðinn hve fáar
heimsóknirnar voru til Íslands. Nú
get ég ekki lengur afsakað eða hugg-
að mig við
hugsanirnar og vonað: „Kannski
fer ég til Íslands á næsta ári og hitti
elsku ömmu og afa. En nú hvílirðu í
örmum Drottins og ég fagna því að
þú finnur ekki lengur til og ert ekki
lengur hrædd. Nú ertu heilbrigð,
falleg og leikur við hvern þinn fingur
og ert alltaf hlæjandi; alveg eins og
þú ert í minningum mínum.
Þakka þér fyrir að hafa gefið mér
það sem svo fáir eiga í þessum
heimi. Fallegar minningar um að
vera dýrmæt ömmustelpa. Minning-
ar um að kúra í æðardúnssæng og
borða góða matinn þinn, hlusta á þig
hlæja og spila við afa, horfa á fín-
gerðu fingurna þína spila hvert
meistarastykkið á fætur öðru á pí-
anóið, göngutúrar með þér í miðbæ
Reykjavíkur og heyra sögur af þér
þegar þú varst ung. Þó fórnaðir allt-
af svo miklu til að geta glatt aðra.
Gjafir þínar til mín verða mér alltaf
dýrmætar en það var hjartalag þitt
sem er mér dýrmætast.
Nú, þegar þú ert komin í hús
Drottins og við erum aðskildar með
hyldýpinu sem skilur að Himnaríki
og jörð, vona ég að við munum hitt-
ast aftur, þegar minn tími kemur til
að fara í þessa ferð, í eilífðina. Það
hjálpar til við að breyta sorg minni í
gleði og söknuði mínum í von að við
munum þá aldrei framar verða að-
skildar með sjó, heimsálfum, lönd-
um, og mílum.
Þú verður í hjarta mínu að eilífu
og þú ert dýrmæt gjöf frá Guði.
Með ástarkveðju,
Heather.
Þegar ég kveð ömmu mína, Ás-
laugu Sigurðardóttur eða ömmu
Ásu, þá er mér það efst í huga að
hún var góð amma og reyndist mér
og öðrum barnabörnum sínum alltaf
gífurlega vel.
Til 10 ára aldurs er ég að mestu
alinn upp í Amsterdam en ég kom
oft heim á sumrin og gisti þá oft hjá
ömmu og afa á Bergstaðastrætinu.
Það var iðulega gestkvæmt hjá
þeim, enda þau mikið selskapsfólk
og vinsæl með eindæmum. Það er
gaman að minnast þeirrar fjöl-
breyttu mannflóru sem sótti þau
heim. Á þessum samverustundum
tengdumst við amma og afi tryggða-
böndum sem aldrei rofnuðu og
styrktust enn frekar þegar fram liðu
stundir eftir að fjölskylda mín flutt-
ist heim til Íslands.
Ég lærði margt af ömmu og afa
um lífið og tilveruna og veittu þau
mér mikla hlýju og voru alltaf tilbú-
in til að hlusta og ræða við mig sem
barn, ungling og fullorðinn mann. Þá
var mikið spilað á spil, manni og vist
en amma og afi elskuðu að spila og
kenndu okkur barnabörnunum ung-
um að spila. Ég kann ömmu minni
nýlátinni og afa mínum 96 ára kærar
þakkir fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum.
Ef ég ætti að punkta niður allar
helstu minningar með ömmu og afa
þá þyrfti ég að skrifa heila bók en ég
ætla að láta það duga í þessari grein
að minnast á tvo viðburðaríka daga í
lífi ungs manns með ömmu sinni.
Þegar ég var 10 ára í heimsókn
hjá ömmu og afa sagði amma allt í
einu við mig upp úr þurru: Ívar, við
skulum fara og skoða reiðhjól. Mig
hafði dreymt um að eignast 10 gíra
reiðhjól í marga mánuði en eygði
litla von á því að sá draumur gæti
orðið að veruleika enda á þeim tíma
töluverð fjárfesting í góðu gírahjóli.
Við fórum saman í reiðhjólaverslun-
ina Örninn og hún keypti fyrir mig
flottasta 10 gíra reiðhjólið í búðinni.
Þetta var hamingjuríkur dagur í lífi
ungs manns.
Þá minnist ég þess að hún var allt-
af mjög úrræðagóð. Eitt sinn sem
oftar vorum við í veiðitúr með vina-
fólki þeirra og gistum við í tjaldi í
2–3 nætur. Ég hef sennilega verið
um 6 ára þegar þetta gerðist en í
einu kastinu hjá mér þá flækist girn-
ið í enda stangarinnar og það kom
bakslag og flotholt og öngull flýgur í
átt að andliti mínu með þeim afleið-
ingum að öngullinn kræktist í geng-
um nefið á mér. Ég stóð þarna stein-
hissa með öngulinn í gegnum nefið
og það byrjar að blæða og ég að
vola. Amma kemur aðvífandi mér til
hjálpar, hún tók upp veiðitöskuna og
náði í töng til að klippa agnhaldið af,
dró síðan öngulinn úr, sótthreinsaði
sárið og bjó um það með grisju og
plástri. Það var ekki gert meira veð-
ur út af þessu og allir héldu áfram að
veiða.
Þetta var einn af mörgum góðum
veiðitúrum og skrifa ég hina ólækn-
andi veiðibakteríu mína á ömmu Ásu
og afa Guðmund til jafns við ömmu
Völu og afa Magnús úr móðurætt.
Þegar ég kveð ömmu Ásu með
söknuði þá þakka ég að þjáningu
hennar sé lokið. Hún var södd líf-
daga eftir viðburðaríka, stundum
erfiða en oftar hamingjusama ævi.
Það er erfitt fyrir afa að takast á við
dauða ömmu en við fjölskyldan mun-
um gera okkar besta í að styðja
hann og styrkja.
Ívar Kristjánsson.
Fleiri minningargreinar um Ás-
laugu Hrefnu Sigurðardóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Anna
Kristine Magnúsdóttir, Elsa og Ein-
ar
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar félagsins
3. Breytingar á lögum og reglugerðum
4. Kosning uppstillinganefndar
5. Önnur mál
Skráning í síma 575 9805 og á kristin@vm.is
haldinn á Grand Hótel Reykjavík
24. mars 2007 kl. 14:00.
Aðalfundur VM, Félags vélstjóra og málmtæknimanna
Að fundi loknum verður úthlutað í fyrsta sinn úr Akki,
Styrktar- og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga
Hluthafafundur
í Taugagreiningu hf.
Stjórn Taugagreiningar hf. boðar til hluthafa-
fundar þriðjudaginn 27. mars kl. 16.00 á skrif-
stofum félagsins í Skógarhlíð 12, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Lagður fram efnahags- og rekstrarreikn-
ingur fyrir félagið ásamt álitsgerð endur-
skoðanda félagsins.
2. Kosning skilanefndar í samræmi við 111.
gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög sbr.
ákvörðun aðalfundar félagsins frá
28. febrúar 2007 um slit á félaginu.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, reikningur félagsins og þær tillögur
sem fyrir fundinum liggja verða hluthöfum til
sýnis á skrifstofu félagsins í Skógarhlíð 12,
Reykjavík, viku fyrir fundinn.
Stjórn Taugagreiningar hf.
Fræðslufundur
Stelpur með ADHD
ADHD samtökin til stuðnings börnum
og fullorðnum með athyglisbrest,
ofvirkni og skyldar raskanir, halda
fræðslufund í kvöld 20. mars kl. 20:00.
Fyrirlesari er Rósa Steinsdóttir list-
meðferðarfræðingur.
Allir velkomnir.
Aðalfundur
Landssambands
sumarhúsaeigenda
verður haldinn miðvikudaginn 28. mars í fundar-
salnum að Skipholti 70, Reykjavík kl. 20.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundastörf.
Engar lagabreytingar liggja fyrir.
Kynning á frumvarpi um frístundabyggð.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Raðauglýsingar
sími 569 1100