Morgunblaðið - 20.03.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Jóga
kl. 9. Postulínsmálning kl. 13. Lestrarhópur kl. 13.30.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16 handavinna. Kl.
9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9 leikfimi. Kl. 9.45
boccia.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður,
leikfimi, almenn handavinna, fótaaðgerð, morg-
unkaffi/dagblöð, hádegisverður, vefnaður, boccia,
kaffi. Uppl. í s. 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Félagsvist í dag. Heitt á könnunni
og meðlæti.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópurinn hittist við Litla-
kot kl. 10 þriðjud. og föstud. Gengið í u.þ.b. klst. á
hraða sem hentar öllum. Kaffi í Litlakoti á eftir. Nýir
göngugarpar velkomnir. Uppl. í s. 863-4225.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Fram-
sögn kl. 17, leiðb. Bjarni Ingvarss. Félagsvist kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl.
9.55. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30. Handavinna
kl. 10. leiðbeinandi verður til kl. 17. Jóga kl. 10.50.
Tréskurður kl. 13. Bossía kl. 13. Alkort kl. 13.30.
Stólajóga kl. 17.15. Jóga á dýnum kl. 18.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl.
9.30 jóga og myndlist, kl. 10 ganga, kl. 11.40 matur,
kl. 14 vorjafndægur/hátíðardagskrá (kórsöngur,
upplestur, harmonikuleikur o.fl.), kl. 18.15 jóga.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Línudans í Kirkju-
hvoli kl. 12 og 13. Opið hús í safnaðarheimilinu á veg-
um kirkjunnar kl. 13, trésmíði kl. 13.30 og kóræfing
kl. 17. Karlaleikfimi í Ásgarði kl. 13 og boccia kl. 14.
Leshringur bókasafnsins kl. 10.30. Lokað í Garða-
bergi.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Handa-
vinnustofan í Hlaðhömrum er opin virka daga eftir
hádegi. Fjölbreytt föndur, t.d. skartgripagerð,
postulínsmálun o.fl.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar m.a. leiðsögn við ullarþæfingu eftir hádegi
(ýmsir nytjahlutir). Kl. 10.30 létt ganga um ná-
grennið. Á morgun kl. 10.30 gamlir leikir og þjóð-
dansar umsj. félag áhugafólks um íþróttir aldraðra,
m.a. undirbúningur fyrir landsmót U.M.F.Í. í Kópa-
vogi í byrjun júlí nk. s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 handavinna. Kl. 9-12 glerlist.
Kl. 9 hjúkrunarfræðingur. Kl. 10-11 boccia. Kl. 11-12
leikfimi, (frítt). Kl. 12-13 hádegismatur. Kl. 12.15
verslunarferð, (Bónus). Kl. 13-16.30 myndlist. Kl. 15
kaffi. Borgarnesferð. Farið verður í leikhús í Land-
námssetur Íslands í Borgarnesi 29. mars að sjá Mr.
Skallagrímsson. Verð kr. 3.400 (rúta og leikhús).
Súpa og brauð fyrir leiksýningu. Verð kr. 850.
Skráning á skrifstofu Hraunbæ 105 eða í síma 587-
2888. Ath. miða þarf að greiða fyrir 22. mars.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-12 hjá Sig-
rúnu. Jóga kl. 9-12.15, Björg F. Helgistund kl. 13.30 í
umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Námskeið í mynd-
list kl. 13.30-16.30 hjá Ágústu. Böðun fyrir hádegi.
Fótaaðgerðir s. 588-2320. Hársnyrting s. 517-
3005, 849-8029.
Hæðargarður 31 | Tölvukennsla þriðjud. og miðvi-
kud. kl. 13-15. Bútasaumur þriðjud. kl. 13-16. Lista-
safn Íslands föstudag 23. mars kl. 11.50. Jóhann
Briem og Jónas Engilberts. Uppl. í Ráðagerði s.
568-3132/asdis.skuladottir@reykjavik.is
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Framtalsaðstoð frá
Skattstjóranum í Reykjavík kl. 9. Handavinnustofu
kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Uppl. í s. 552-4161.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9-12 myndlist, kl. 13-
16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upplestur, kl. 14 leikfimi,
kl. 9 opin hárgreislustofa s. 588-1288.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 10.15-11.45 enska. Kl.
11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13.30-14.30 leshópur
- Lóa. Kl. 13-16 glerbræðsla. Kl. 13-16 bútasaumur.
Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9.30, morg-
unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10-11, hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarstofa o alla daga, morgunstund kl.
9.30, handavinnustofan opin kl. 9-16.30, félagsvist
kl. 14.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 9 hjúkrunarfræðingur, (fyrsta
þriðjudag í mán.). Kl. 10 bænastund og samvera. Kl.
12 Bónusbíllinn. Kl. 16.45 bókabíllinn.
Kirkjustarf
Áskirkja | Kl. 10 föndur með kerti, íkona o.fl. Kl. 12
hádegisbæn í umsjá sóknarprests, súpa og brauð á
eftir. Kl. 14 brids eða vist. Allir velkomnir.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Kirkjustarf
aldraðra kl. 12. Léttur málsverður, helgistund og
bókmenntakynning í umsjá heimamanna. Starf
KFUM&KFUK 10-12 ára kl. 17. Opið frá kl. 16.30.
Æskulýðsstarf Meme fyrir 14-15 ára kl. 19.30-21.30.
www.digraneskirkja.is
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13.30-16. Helgistund, handavinna, spil og spjall.
Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu.
TTT fyrir 10-12 ára í Engjaskóla kl. 17-18, TTT fyrir
10-12 ára í Borgaskóla kl. 17-18. Lesið úr Pass-
íusálmum séra Hallgríms Péturssonar. Í dag kl. 18
les Ögmundur Jónasson.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15 í
umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 18.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK í kvöld kl. 20 á
Holtavegi 28. Lofgjörðar og fyrirbænastund í umsjá
Þórdísar K. Ágústsdóttur og Ragnhildar Gunn-
arsdóttur. Kaffi. Allar konur velkomnar.
Laugarneskirkja | Málþing kl. 20.30. Yfirskrift:
Samræður unglinga og foreldra um kynlíf. Fram-
söguerindi, Lilja Óskarsdóttir, skólahjúkrunarfræð-
ingur og Salóme Ásta Arnardóttir, læknir. Fund-
arstjóri Kristín Axelsdóttir, djákni og
hjúkrunarforstjóri heilsugæslunnar í Lágmúla. Mál-
þingið er einkum ætlað foreldrum. Kvöldsöngur kl.
20. Þorvaldur Halldórsson og Gunnar Gunnarsson
leiða. Að kvöldsöngnum loknum kl. 20.40 heldur 12
spora vinnan áfram. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir
djákni.
Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju kl. 13-16. Við púttum, spilum lomber,
vist og bridge. Kaffi og meðlæti kl. 14.30. Helgi-
stund í kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá sem vilja,
uppl. s. 895-0169. Allir velkomnir
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudags-
blað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100 eða sent
á netfangið ritstjorn-
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 20. mars, 79. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Miðgarður, þjónustumiðstöðGrafarvogs og Kjalarnessstendur í dag, þriðjudag,fyrir málþinginu For-
varnir á fyrstu árum. Málþingið er
haldið í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni
6, frá 13 til 17.
„Umræðan um forvarnir snýr oft að
unglingum, en full þörf er á að huga að
forvörnum mikið fyrr,“ segir Ingibjörg
Sigurþórsdóttir, framkvæmdastjóri
Miðgarðs. „Það þarf að huga að því
strax á grunn- og leikskólaaldri að
byggja upp einstaklinga með sterka
sjálfsmynd sem bera virðingu fyrir
sjálfum sér og samfélaginu, og eru
þannig betur í stakk búnir til að takast
á við bæði erfiðleika unglingsárana og
allt lífið framundan. Það þarf að byrgja
brunninn miklu fyrr, ef vel á að vera.“
Mörg sjónarhorn
Á málþinginu verða forvarnarmál
skoðuð frá fjölbreyttum sjónarhornum:
„Við höfum fengið til liðs við okkur sér-
fræðinga af ýmsum sviðum, fagmenn
og fræðimenn sem og foreldri,“ segir
Ingibjörg. „Meðal annars mun Vil-
hjálmur Árnason heimspekiprófessor
ræða um hagsmuni barna í hagsæld-
arsamfélaginu, Eva María Jónsdóttir,
móðir og dagskrárgerðarmaður, segir
frá sjónarhorni foreldris, Hera Björg-
vinsdóttir fjallar um í hverju forvarnir
þurfa að felast og hvenær þarf að beita
þeim.“
Aukin neysla
Sagt verður frá ýmsum forvarn-
arverkefnum í grunn- og leikskóla:
„Víða er verið að gera margt gott í for-
varnarmálum, en það þarf að kynna góð
verkefni betur svo fleiri geti tileinkað
sér þau,“ segir Ingibjörg. „Mikið hefur
unnist í forvörnum þegar litið er til síð-
ustu 15 ára, áfengis-, tóbaks- og eitur-
lyfjaneysla hefur hraðbyri minnkað
lengst af, en þó bendir rannsókn frá síð-
asta ári til smávægilegrar aukningar.“
Frekari upplýsingar má finna á slóð-
inni www.midgardur.is. Málþingið er
öllum opið en skrá þarf þátttöku með
tölvupósti á gudrun.halla.jonsdott-
ir@reykjavik.is.
Samfélag | Málþing í Rúgbrauðsgerðinni í dag kl. 13 til 17
Forvarnir á fyrstu árum
Ingibjörg Sig-
urþórsdóttir fædd-
ist í Seattle 1962.
Hún lauk versl-
unarskólaprófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands 1980, leik-
skólakennaranámi
frá Fóstruskól-
anum 1984, lauk
framhaldsnámi við sama skóla 1994
og lagði stund meistaranám við Kenn-
araháskóla Íslands.
Ingibjörg var leikskólastjóri á Folda-
borg í 11 ár, leikskólaráðgjafi hjá Mið-
garði 1997 og síðar deildarstjóri,
framkvæmdastjóri frá 2002. Ingibjörg
er gift Sigurði Erlingssyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau fjögur börn
og eitt barnabarn.
Bækur
Eymundsson | Linda Vilhjálmsdóttir les upp úr ljóðabókum
sínum kl. 20, m.a. nýjustu ljóðabókinni: Frostfiðrildin. Gestir
mega hafa með sér veitingar frá kaffistaðnum Te og kaffi.
Aðgangur ókeypis.
Uppákomur
Listasalur Mosfellsbæjar | „Mig hefur dreymt þetta áður“
Ljóðaveisla til heiðurs Jóhanni Hjálmarssyni bæjarlista-
manni Mosfellsbæjar í kvöld kl. 20-21.30 í Listasal Mos-
fellsb. Karl Möller og fél. leika undir lestri Kristbjargar Kjeld.
Þröstur Helgason fjallar um skáldskap og feril Jóhanns. Le-
skór nemenda Lágafellsskóla flytur ljóð. Ókeypis aðgangur.
Múltí Kúltí | Vegna Evrópuviku þar sem verið er að vinna
gegn kynþáttamisrétti erum við núna með kynningar á
þjóðum. Í kvöld kl. 20 verða á dagskrá kynning frá félagi
múslima á Íslandi og einnig verður kynning frá Filippseyjum.
Kynningar eru í ýmsu formi, fyrirlestur, dans, tónlist og
myndir. Ókeypis inn en kaffisala.
Fyrirlestrar og fundir
Nordica Hótel | Félag viðskiptafræðinga MBA-HÍ standa
fyrir opnum morgunverðarfundi á Nordica hóteli, miðviku-
daginn 21. mars nk. kl. 8.15. Framsögumenn verða Guðrún
Ragnheiður Jónsdóttir, deildastjóri vísitöludeildar Hagstofu
Íslands og Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna.
Norræna húsið | Aðalfundur Félagsins Ísland-Palestína
verður haldinn miðvikudagskvöldið 21. mars kl. 20. Jóhanna
K. Eyjólfsdóttir, mannfræðingur og framkvæmdastjóri Am-
nesty International greinir frá starfi Amnesty gagnvart Ísr-
ael og Palestínu. Petter Winnberg úr hljómsveitunum
Hjálmar og Petter & The Pix leikur nokkur lög. Auk þess
verða hefðbundin aðalfundarstörf á dagskrá þar sem ný
stjórn félagsins fyrir komandi starfsár verður m.a. kjörinn.
Allir velkomnir á fundinn, en aðeins félagsmenn hafa at-
kvæðisrétt.
Orkugarður | Miðvikudagserindi: Landfræðileg gögn á Ís-
landi - Aðgengi og varðveisla. Þorvaldur Bragason land-
fræðingur segir frá aðgengi á netinu og hættumerkjum í
varðveislu landfræðilegra gagna, svo sem hefðbundinna
korta, loftmynda, gervitunglagagna og stafrænna korta-
gagna. Settar verða fram hugmyndir um fjölda nýrra skrán-
ingar- og miðlunarverkefna. Á morgun kl. 13. Nánari upplýs-
ingar á www.os.is
Í BÆJARBÍÓI í Hafnarfirði stendur kvik-
myndasafn Íslands fyrir sýningum valinna
mynda á þriðjudögum klukkan 20 og laug-
ardögum klukkan 16. Í kvöld verður sýnd
myndin When eight bells toll frá 1971 en hún er
gerð eftir skáldsögu Alistair MacLean. Myndin
er tekin úti fyrir vesturströnd Skotlands og má
þar sjá Antony Hopkins ungan að aldri ásamt
fleiri þekktum leikurum.
Miðar eru seldir á 500 krónur við innganginn
u.þ.b. hálftíma áður en sýning hefst.
Kvikmyndir
Kvikmyndasafn
Íslands sýnir
ungan Hopkins
Auglýstu
atburði
á þínum
vegum
hjá okkur
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistar-
sýningar
• Leiksýn-
ingar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mann-
fagnaði