Morgunblaðið - 20.03.2007, Síða 47
FREGNIR herma að ungstirnið Ryan Phillippe hafi átt
ástarnótt með Ashlee Simpson. Ryan, sem skildi nýlega
við eiginkonu sína til sjö ára, Reese Witherspoon, hitti
hina 22 ára gömlu söngkonu á næturklúbbi í Los Angel-
es.
„Þegar Ryan og vinir hans mættu á staðinn var þeim
vísað á eina borðið þar sem var eitthvert pláss – þar
sem Ashlee og vinir hennar sátu. Þau virtust hafa mik-
inn áhuga hvort á öðru. Hann gat ekki tekið augun af
henni og Ashlee var mjög spennt. Það leyndi sér ekki
að henni leist þrusuvel á hann,“ er haft eftir heimilda-
manni ástralsks tímarits.
Eftir að hafa daðrað í nokkra klukkutíma dró parið
sig í hlé á efri hæð staðarins.
Ungstirni Ryan Phillippe
þykir mjög myndarlegur.
Ryan Phillippe
og Ashlee Simpson
í eina sæng
„Þau voru þarna uppi í rúman klukkutíma og komu
nokkuð reitt til baka. Það var ljóst að eitthvað hafði
gengið á. Þau keyrðu svo hvort í sínum bílnum heim til
hennar,“ sagði heimildamaðurinn.
Talsmaður Ryans hefur neitað orðrómnum.
Nýstirni Vegur Ashlee
Simpson fer vaxandi.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 47
Sími - 551 9000
Epic Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Venus kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Last King of Scotland kl. 5.30, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
Notes on a Scandal SÍÐUSTU SÝN. kl. 8 B.i. 14 ára
Pan´s Labyrinth SÍÐUSTU SÝN. kl. 10 B.i. 16 ára
Litle Miss Sunshine SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.50 B.i. 7 ára
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
- Verslaðu miða á netinu Sýnd kl. 6, 8 og 10Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
HÚN ER STÓR....VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK
ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN!
Milljón dollarar. Sjö leigumorðingjar. Eitt skotmark.
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 B.i. 16 árawww.laugarasbio.is
eee
SV, MBL
eee
VJV, TOPP5.IS
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór
mistök?
eeee
H.J. - MBL
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
O.R. - EMPIRE
eee
H.J. - MBL
eee
Ó.H.T. - RÁS 2
SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeeee
LIB, TOPP5.IS
eeeee
HGG, RÁS 2
eeeee
HK, HEIMUR.IS
SÍÐUSTU SÝNINGAR SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeee
„Frábær
skemmtun!“
- S.V., Mbl
„Óvænt kvikmyndaperla sem
enginn má láta fram hjá sér fara.“
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1
eeee
„Frábær leikur og eftirminnileg mynd!“
- B.S., Fréttablaðið
Ég fór að velta fyrir mérþessari spurningu þegar égsá frétt á mbl.is á dögunum
með fyrirsögninni: Hinrik vill
verða kóngur.
Téður Hinrik er eiginmaður
Margrétar Þórhildar Danadrottn-
ingar en hann er franskur, fæddur
Henri Marie Jean André greifi af
Laborde og Monpezat.
En í kjölfarið fór ég að velta fyr-
ir mér fleiri spurningum...
Til hvers var hann að giftastMargréti? Til þess að öðlast
einhverja sérstaka tign? Af hverju
er manninum ekki sama að vera í
þriðja sæti í virðingarstiganum
innan konungsfjölskuldunnar á eft-
ir eiginkonu sinni og elsta syni?
Langar hann svona mikið að
verða konungur yfir Danmörku
eða ætli þau Margrét og Friðrik,
sonurinn og erfðaprinsinn, hreyti
ónotum í Hinrik vegna þriðja sæt-
isins þegar enginn sér til?
Jú jú, ég viðurkenni það að út frájafnréttissjónarmiðum ætti eig-
inmaður drottningar að verða
kóngur vegna þess að eiginkona
kóngs verður drottning. En hverj-
um er ekki sama um titla að þessu
tagi þegar maður býr í höll og lifir
augljóslega konunglegu líferni líkt
og makinn? Svar: Hinrik prinsi.
Þegar málið er kannað kemur
líka í ljós að staða hans er ekkert
bágbornari en kollega hans í Evr-
ópu. Danskir fjölmiðlar fóru á stúf-
ana árið 2002, í kjölfar þess að Hin-
rik varð oftar en ekki fúll yfir
stöðuleysi sínu, og kynntu sér virð-
ingarstigann í öðrum konungs-
fjölskyldum í Evrópu. Þá kom í ljós
að maki drottningar eða konungs
er í besta falli númer þrjú og oft
miklu neðar í stiganum. Í Bretlandi
leysir Karl prins Elísabetu, móður
sína, af hólmi þegar svo ber undir
og síðan Andrés og Játvarður. Þá
fyrst er komið Filippusi drottning-
armanni og hertoga af Edinborg.
Það eru sem sagt erfðirnar sem
ráða. Í Hollandi kemur Willem-
Alexander fram fyrir hönd móður
sinnar, Beatrix drottningar, en
ekki eiginmaður hennar, Claus
prins.
Í viðtali við franska vikublaðiðPoint de Vue nýlega segir Hin-
rik frá raunum sínum. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem prinsinn, sem
er franskur, vekur máls á bágri
stöðu sinni. Síðustu ár hefur það
gerst reglulega að Hinrik rýkur til
Frakklands á búgarð þeirra hjóna
og hugsar stöðu sína innan kon-
ungsfjölskyldunnar.
Danskir fjölmiðlar gera gjarnanhálfgert gys að þessu reglu-
lega upphlaupi Hinriks og hafa
litla samúð með honum. Þá hefur
blaðamaður EkstraBladet umfjöll-
un sína um umrætt viðtal á því að
segja tilgang Hinriks með at-
hugasemdunum þann að gera lífið
auðveldara fyrir unga lesendur æv-
intýrabóka.
„Í ævintýrunum ná kóngurinn og
drottningin saman og prinsinn og
prinsessan. Í raunveruleikanum er
þetta öðruvísi þar sem drottningin
giftist prinsunum.“
Aumingjans Hinrik! Ég vona aðhann fari að sættast við hlut-
verk sitt innan dönsku hirðarinnar.
Mín ráðlegging til hans er að njóta
þess sem hirðlífið hefur uppá að
bjóða, drekka gott rauðvín, ferðast
og láta allar áhyggjur um titla inn-
an báknsins lönd og leið.
Hvað er Hinrik prins að væla?
Reuters
Aumingjans Hinrik! Margrét Danadrottning og eiginmaður hennar, prinsinn Hinrik.
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
»Danskir fjölmiðlargera gjarnan hálf-
gert gys að þessu reglu-
lega upphlaupi Hinriks
og hafa litla samúð með
honum.
birta@mbl.is
MUGISON sagðist vera flökkutík í
viðtali við Lesbók á dögunum. Hann
flytur þannig búferlum ótt og títt en
þetta einkenni hans spillist og yfir í
tónlistina eins og hér má heyra, á
þriðju kvikmyndatónlistarplötu
hans, en viðfangið er Mýrin eftir
Baltasar Kormák. Flakkað er með
tilþrifum á milli dægurlaga, þjóðlaga
og nútímatónlistar; og myrk og
þungbúin stemning er dýrkuð upp
með tilstilli fjölmargra kóra. Fegurð
og ljótleiki togast á, angurværum
vögguvísum er teflt gegn frum-
sömdum, dökkleitum stefjum og
gömul, sígild íslensk lög fá á sig
furðublæ, þar
sem „leikið“ er á
kórana á allfrum-
legan hátt.
Tónlist Mug-
ison við Mýrina
er metnaðarfull
en það sem meira er um vert, hún er
og vel heppnuð og fangar drunga-
lega stemningu kvikmyndarinnar
geysivel. Það verður því spennandi
að heyra hvernig Muggi ætlar að
„tækla“ næsta verkefni sitt af þess-
um toga, sem er tónlist við myndina
On the Road, gerð við samnefnt
tímamótaverk Jacks Kerouac. Rót-
leysi Mugison hlýtur að smellpassa
inn í það samhengi.
Mýrarbúggí
Arnar Eggert Thoroddsen
TÓNLIST
Mugison - Mýrin