Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 1

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 82. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TROMMUSTUÐ BÝR Á GRUNDARFIRÐI EN REYNIR AÐ MÆTA Á ALLA VALSLEIKI, KVENNA OG KARLA >> 26 LEAVES VINNUR AÐ NÝRRI BREIÐSKÍFU Í MIKLUM MÓÐ VIÐTAL >> 54 FRÉTTASKÝRING Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is ÞÓTT Íslandshreyfingin segist vera hægri græn virðist sem hún muni aðallega sækja fylgi sitt til kjósenda, sem í dag segjast styðja flokka vinstra megin við miðju. Ef framboðið fær eitthvert fylgi að ráði bitnar það líklega verst á Vinstri grænum. Í könnun Gallup, sem gerð var fyrir Morg- unblaðið og RÚV 14.–20. marz, var spurt hversu líklegt væri að fólk kysi framboðið, sem hefði „vinnuheitið Íslandsflokkur“. Sam- tals sögðu rétt rúm 15% það líklegt, þó aðeins 3,7% mjög líklegt. Þegar svörin eru sundurgreind eftir því hvaða framboð fólk segist nú styðja kemur í ljós að Íslandshreyfingin fær sáralítið fylgi hjá stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, innan við 5%, og 13–14% hjá stuðningsmönnum Frjálslynda flokksins og Samfylkingarinnar. Hins vegar segja 25% stuðningsmanna VG líklegt að þeir myndu kjósa Íslandshreyfinguna. Þetta getur þýtt tvennt. Annaðhvort höfð- ar fólkið, sem stendur að Íslandshreyfing- unni, frekar til kjósenda á vinstri vængnum en þeim hægri, eða þá að kjósendur, sem undanfarið hafa fært sig yfir á VG og aðra vinstri flokka vegna afstöðunnar í umhverf- ismálum, eru ekkert vinstrisinnaðir og taka hægri grænum kosti fegins hendi. Umhverfismálin mikilvægust Könnun Gallup sýnir það, sem ekki kom út af fyrir sig á óvart, að umhverfismálin verða eitt aðalkosningamálið. Reyndar nefna örlít- ið færri „umhverfismál“ en samgöngu- og at- vinnumál, þegar spurt er hvert verði mik- ilvægasta málið eða málefnið á næsta kjörtímabili á landsvísu. Þegar lagðir hafa verið við þeir, sem vilja sporna við stóriðjustefnu eða nefna orku- og virkjanamál, álversmál, stóriðjumál og auð- lindamál, liggur fyrir að rétt tæp 20% kjós- enda telja umhverfismál og tengd málefni mikilvægustu málin framundan. Stuðningsmenn VG leggja langmesta áherzlu á umhverfismálin; 31,4% þeirra segja umhverfismálin verða mikilvægasta mál næsta kjörtímabils. Ekkert mál er jafn- mikilvægt í stuðningsmannahópi neins ann- ars flokks. Um leið er ekki ólíklegt að það sé umhverfisstefna VG fremur en vinstripólitík- in, sem ræður stuðningi margra við flokkinn. Þegar annar flokkur með jafnsterka um- hverfisáherzlu en annars konar pólitík að öðru leyti kemur fram á sjónarsviðið geta þessir kjósendur verið tilbúnir að færa sig til. Allt skýrist þetta í næstu viku, þegar Gallup mælir í fyrsta sinn fylgi við Íslandshreyfinguna. Morgunblaðið/RAX Hægri snú Nær Íslandshreyfingin kjós- endum sem eru grænir en ekki til vinstri? Græn frá vinstri til hægri? Íslandshreyfingin mest ógnun við VG Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „EKKERT húsnæði“ var skráð í sjúkraskrár um 300 einstaklinga sem komu í meðferð á Vogi á síðasta ári. Langflestar þeirra húsnæðislausu kvenna, sem koma í meðferð hjá SÁÁ, hafa ver- ið beittar kynferðislegu ofbeldi, bæði áður en þær leiddust út í neyslu og meðan á henni stóð. Sjötíu einstaklingar gistu í fangaklefum lög- reglu á síðasta ári samkvæmt eigin ósk. Í hverri viku þarf lögreglan að kalla til lækni vegna þess að þeir heimilislausu einstaklingar sem þangað leita eru fárveikir. „Stundum höfum við það á tilfinningunni að verði ekki gripið strax inn í lifi þeir ekki út vikuna eða mánuðinn,“ segir Berg- lind Eyjólfsdóttir rannsóknarlögreglumaður. Þetta kom m.a. fram á málþingi um stöðu heim- ilislausra sem fram fór í gær. „Það er greinilegur munur á körlum og kon- um sem til okkar leita,“ segir Vilborg Odds- dóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkj- unnar. Konur gisti í Konukoti eða fái inni hjá karlmönnum í stuttan tíma í senn. „Konurnar hafa oftar sjáanlega áverka eftir barsmíðar og eru verr farnar bæði á sál og líkama og hafa meiri þörf fyrir að ræða um börnin sín og börnin sem þær hafa misst frá sér. Eins er greinilegt að konur greiða fyrir gistingu sína og vernd með kynlífi og í nokkrum tilfellum eru þær notaðar sem gjaldmiðill af þeim sem veitir þeim húsa- skjól. Karlar ræða um goggunarröðina og of- beldi á milli þeirra sjálfra. Þeir séu neyddir til að láta frá sér bæði hluti og fjármagn til að fá frið. Karlarnir tala meira um einmanaleika og að þeir hafi ekki neitt tengslanet, hafi étið það allt upp og geti ekki leitað til ættingja lengur.“ 300 heimilislausir í með- ferð hjá SÁÁ á síðasta ári 70 manns óskuðu eftir gistingu í fangaklefum lögreglunnar í Reykjavík  Einfaldlega veikasta fólkið | 4 FYRSTA áfanga við botnplötusteypu tónlist- ar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn anna í lok apríl. Þær eru um metri á þykkt og fara í þær um 7.000 rúmmetrar af steypu. er lokið. Undirbúningur að 2. og 3. áfanga er hafinn og verður búið að steypa 2⁄3 botnplatn- Morgunblaðið/RAX Hljómbotninn steyptur KJÓSENDUR á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu hafa tals- vert ólíka afstöðu til þess hvað séu mikilvægustu mál á komandi kjörtímabili. 36–41% kjósenda í Norðvestur- og Norðausturkjör- dæmum eru þeirrar skoðunar að atvinnumál séu mikilvægustu mál á næsta kjörtímabili. Hins vegar segja 1–4% kjósenda kjör- dæmanna á höfuðborgarsvæðinu að atvinnumál eigi að vera mik- ilvægustu mál á kjörtímabilinu. Þetta kemur fram í nýrri skoð- anakönnun Capacent sem gerð var fyrir Morgunblaðið og RÚV. 11–23% kjósenda í kjördæm- um á Suðvesturlandi telja að mál- efni aldraðra og öryrkja séu mik- ilvæg mál en 2–7% kjósenda í landsbyggðarkjördæmunum telja þetta mikilvæg mál. Kjós- endur á suðvesturhorni landsins leggja einnig áherslu á umhverf- ismál en kjósendur á landsbyggð- inni miklu síður. Almennt leggja kjósendur mesta áherslu á sam- göngumál. | 6 Málefnin fara eftir kjördæmum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.