Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 2

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 2
Ný tónlistar- hús hafa góð áhrif á aðsókn REYNSLA erlendra sinfóníu- hljómsveita sem flutt hafa í nýtt húsnæði sýnir að það getur haft góð áhrif á starfsemi þeirra. Í grein eftir Örnu Kristínu Ein- arsdóttur í Lesbók í dag kemur fram að Hallé-hljómsveitin í Man- chester í Englandi og Los Angeles- fílharmónían í Bandaríkjunum hafa báðar styrkt stöðu sína nokkuð eft- ir að hafa flutt í nýtt húsnæði. Það gekk þó ekki átakalaust fyrir sig, sveitirnar þurftu að gera talsvert átak í markaðsmálum og ungmennastarfi til þess að vinna sig út úr erfiðleikum sem fylgdu flutningunum. Telur Arna Kristín að álíka verk- efni bíði Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands er hún flytur í nýja Tónlistar- húsið í Reykjavík. | Lesbók 2 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is straumsvik.is Verið velkomin í skoðunarferð um álverið í Straumsvík. Skoðunarferðirnar verða á fimmtudögum kl. 17:00 og á laugardögum kl. 14:00. Hægt er að skrá sig á straumsvik.is eða í síma 555 4260. Af öryggisástæðum er aldurstakmark í skoðunarferðirnar 14 ár. Við bjóðum þér í skoðunarferð um álverið Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Á ÁRSFUNDI Veiðimálastofnunar í gær sagði Guðni Guðbergsson fiski- fræðingur að ekki væru nein merki um annað en veiði á laxi í sumar yrði yfir meðaltali rétt eins og síðustu ár. Þó gerir hann ráð fyrir einhverri fækkun. Í fyrrasumar veiddust rúm- lega 45.100 laxar á stöng, sem var samdráttur um 18% frá árinu 2005. Þá var metveiði á laxi, 55.168 fiskar. Veiðin í fyrra var þó um 26% yfir meðalveiði áranna 1974 til 2006. Sagði Guðni að veiðimenn og veiði- réttareigendur mættu því vel við una. Netaveiði á laxi fer minnkandi í kjölfar netauppkaupa á Ölfusársvæð- inu. Mest veiddist í net í Þjórsá, 3.334 laxar, en um 2.300 í Ölfusá-Hvítá. 18% laxa sleppt aftur Hátt í 8.300 löxum var sleppt aftur, en það er rúmlega 18% veiðinnar. Hlutfall slepptra smálaxa var 14,4% en hins vegar hefur vænn hluti veiði- manna svarað kalli Veiðimálastofn- unar um að sleppa veiddum stórlöx- um, löxum sem hafa verið tvö ár í sjó, aftur í árnar, því hlutfallið þar er 32,5%. Mestu af laxi var sleppt í Vatns- dalsá, 96%, og í nokkrum öðrum ám, svo sem Bugðu, Víkurá og Laxá í Að- aldal er hlutfallið yfir 70%. Um fimmti hver lax sem veiddist í fyrra var stórlax, en það hlutfall hef- ur lækkað jafnt og þétt í íslenskum ám síðustu árin. Hefur breytingin komið svipað fram í öllum landshlut- um. Meira munar þó um fækkunina norðan- og austanlands, þar sem hlutfall tveggja ára laxanna er jafnan hæst. Í ársskýrslu stofnunarinnar segir Guðni að ef stórlöxum haldi áfram að fækka hlutfallslega með sama hraða, þá verði þeir nær horfn- ir úr íslenskum laxastofnum eftir 15 til 20 ár. „Ef við reiknum okkur yfir þetta tímabil, þá stefnir í að síðasti stórlax- inn verði drepinn 2020. Við skulum vona að til þess komi ekki, en það er ekki langt í það. Þetta er alvara máls- ins,“ sagði Guðni á fundinum í gær. Fækkun stórlaxa hefur bein áhrif á verðmæti veiði, en stórlaxinn geng- ur jafnan fyrr upp í árnar en smálax- inn. Fyrir vikið er veiðiálagið einnig mun meira á stórlaxinum. Ítrekar Guðni mikilvægi þess að sleppa stór- laxi í veiði. Fjöldi stangaveiddra silunga hefur verið stöðugur á síðustu árum en í fyrra varð um 22% samdráttur, bæði í veiði á bleikju og urriða. Spáð að laxveiðin í sumar verði yfir meðaltali en þó verði einhver fækkun „Stefnir í að síðasti stór- laxinn verði drepinn 2020“ Morgunblaðið/Golli Stórlax Varað er við því að slíkir fiskar kunni að hverfa eftir 15 til 20 ár. GRÍPA þurfti til bráðabana til að skera úr um úrslitin í seinustu und- anúrslitaviðureigninni í Gettu bet- ur, spurningakeppni framhalds- skólanna, sem fram fór í beinni útsendingu í sjónvarpinu í gær- kvöldi. Þar áttust við lið Mennta- skólans í Kópavogi og Mennta- skólans við Hamrahlíð og lauk viðureigninni 33-31 fyrir MK, en staðan að lokinni hefðbundinni keppni var 31-31. MK mun því keppa á móti Menntaskólanum í Reykjavík til úrslita eftir viku. Æsispennandi Gettu betur Ljósmynd/Guðmundur Ólafsson VAFALAUST hafa margir rekið upp stór augu um há- degisbil í gær þegar Airbus A380 þotu var flogið í lág- flugi yfir höfuðborgarsvæðið. Alloft hafa þotur þess- arar gerðar verið við æfingar á Keflavíkurflugvelli undanfarið. Þotan er 72,8 metrar að lengd og vænghaf- ið er á við fótboltavöll. Ljósmynd/Jón Arnar Ólafsson Stærsta farþegaþota heims í lágflugi TVÆR konur voru fengnar til að fækka fötum á karlakvöldi hesta- mannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ sem haldið var í félagsheimili þess í lok febrúar. Bréf sem kona sem er félagi í Herði skrifaði til að mótmæla þessu hefur vakið töluverða umræðu á spjallvef hestamanna á www.847.is, Femínistafélagið hefur tekið undir mótmælin og í grein á vef Íþrótta- sambands Íslands lýsir fram- kvæmdastjóri sambandsins van- þóknun sinni á framtakinu. Konan sem ritar bréfið lætur ekki nafns síns getið en það fékkst stað- fest hjá Marteini Hjaltested, for- manni Harðar, að á umræddu karla- kvöldi hefðu tvær dansmeyjar komið og fækkað fötum. Aðspurður hvers vegna ákveðið hefði verið að fá fata- fellur sagði hann að fyrir því væri ákveðin hefð en tók jafnframt fram að stjórnin hefði ekki skipulagt karlakvöldið. Hann sagði að hvorug þeirra hefði farið úr öllum fötunum en sagðist aðspurður ekki muna hvort þær hefðu t.d. farið úr að ofan. Hann mundi heldur ekki hvort þær hefðu verið íslenskar eða erlendar. Aðspurður sagði hann vel koma til greina að láta af þessari hefð. Í bréfinu sem konan ritar segir hún mjög athugavert að slíkar nekt- arsýningar séu taldar sjálfsagðir við- burðir á skemmtunum sem haldnar eru á vegum íþróttafélags og í fé- lagsheimili þess. Viðkomandi félag vinni að því að fá gæðastimpilinn „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“ og hún spyr hvernig slíkar skemmtanir falli að jafnréttismarkmiðum ÍSÍ. Fyrir- myndarverkefnið lúti að barna- og unglingastarfi og þeir sem það skipuleggi verði væntanlega að vera til fyrirmyndar „líka eftir klukkan átta á kvöldin.“ Í grein sem birt var í gær á vef ÍSÍ harmar Stefán Konráðsson, fram- kvæmdastjóri sambandsins, þessa uppákomu og segir að skilaboðin séu í raun kvenfyrirlitning og slíkt megi ekki láta viðgangast. „Nektardansar og það sem þeim fylgir á ekki heima á opinberum samkomum í okkar hreyfingu. Vilji menn perrast á þessu sviði er best að þeir geri það á öðrum vettvangi,“ segir hann. Fatafellur á samkomu hestamannafélags „Vilji menn perrast á þessu sviði er best að þeir geri það á öðrum vettvangi,“ segir framkvæmdastjóri ÍSÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.