Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það er skelfilegt að sjá þetta félagar, þetta var sko staður sem átti það skilið að fara á heimsminjaskrá.
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á
einn vinsælasta áfangastað Costa
Brava strandarinnar við Barcelona,
Lloret de Mar. Gott hótel með
góðri aðstöðu, fallegum garði,
sundlaug og veitingastöðum.
Stutt í golf og á ströndina.
Öll herbergi með baði, sjónvarpi
og síma.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
5 NÆTUR
ALLT INNIFALIÐ
LIoret de Mar
20. maí
frá kr. 49.990
Aðeins 15 herbergi í boði
Verð kr. 49.990 - 5 nætur
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting
í tvíbýli með allt innifalið á
Hotel Sunrise í 5 nætur, 20. maí.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 7.900.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
VEÐUR
Réttarhöldin, sem nú standa yfir íBandaríkjunum yfir Conrad
Black, fyrrum aðaleiganda Daily
Telegraph í London, Chicago Sun-
Times og Jerusalem Post, svo dæmi
séu nefnd, vekja heimsathygli.
Þau snúast í grundvallaratriðumum það hvað stór hluthafi í fé-
lagi, sem skráð er á markaði og
æðstu stjórn-
endur mega eða
mega ekki í með-
ferð fjármuna fé-
lagsins.
Black og nán-
ustu samstarfs-
menn hans færðu
80 milljónir doll-
ara að því talið er
með svik-
samlegum hætti
frá Hollinger International (félag-
inu sem um er að ræða) til sjálfra
sín. Verjendur hans halda því fram
að stjórn félagsins hafi samþykkt
þær tilfærslur. Saksóknari segir að
það hafi verið gert án samþykkis
stjórnar.
Í stjórn sátu m.a. Henry Kissinger,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og fleiri áhrifa-
menn í bandarískum stjórnmálum.
Wall Street Journal segir að þarað auki hafi Black og félagar
fært til sín 400 milljónir dollara
með samþykki stjórnar. Það kunni
að hafa verið löglegt en engu að
síður ranglega að málum staðið.
Sama blað segir að réttarhöldinyfir Black dragi úr líkum á því
að dregið verði úr þeirri ströngu
löggjöf um reikningsskil fyrirtækja
sem sett var í kjölfar Enron-
málsins.
Niðurstaða réttarhaldanna yfirConrad Black mun ráða miklu
um það hvað verði talið eðlilegt og
hvað ekki í meðferð stjórnenda á
fjármunum almenningshlutafélaga
á Vesturlöndum.
STAKSTEINAR
Conrad Black
Réttarhöldin yfir Black
SIGMUND
!
"#
$ %&
' (
)'
* +,
- %
.
/
*,
!
01 0
2
31,
1 ),
40
$
5 '67
8 3#'
"
!
!
9
)#:; ##
! "
#
$ %&' (
) ##: )
$ % &#
#%#
!
'
<1 <
<1 <
<1
$ ! & #(
)
*#+,
;=
7
-&#,
.
# /
0! #
#
.)) #%
# %) 1#
#
#, %/
- # #
## ) /
: !
1
$%
##
#"# *
#
2#
#1#
#
#
#'
#
# #
##34
#3
)/
- #,
.
# /
)
$%
#"# *
##
2#
.))1#
# & ##
)
/#- ## ##
/
5. ##66
##7
#(
)
2&34 >3
>)<4?@A
)B-.A<4?@A
+4C/B (-A
/ 1
1
1
/ / / / / 1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Eiríkur Bergmann Einarsson | 23. mars
Yfirlýsingaflóðið
Ég veit ekki alveg hvað mér á að
finnast um allt þetta yfirlýsingaflóð
sem flæðir einhvern
vegin út um allt í
kringum Baugs-
málaferlin. Saklausum
blaðalesendum er
drekkt í þessu nánast á
hverjum degi. Samt
skilur enginn neitt í neinu. Nema að
þessu fólki líkar ekkert sérstaklega
vel við hvert annað. En nýjasta yf-
irlýsingin, Ku, er svo skemmtilega
afundin að maður getur eiginlega
ekki annað en glott út í annað.
Meira: eirikurbergmann.blog.is
Marsibil J. Sæmundardóttir |
23. mars
Margrét enn til vara!
Ég er eiginlega búin að vera orðlaus
síðan ég fékk fréttir af því í gær að
Ómar Ragnarsson
verði formaður nýs
stjórnmálaafls Mar-
grétar, Ómars og Jak-
obs (já, hann er víst
enn með). Ekki út af
Ómari heldur meira
vegna þess að Margrét er það ekki.
[...]
Ég er bara ekki að skilja þessa
ráðstöfun ... er hægt að kaupa póli-
tískt nef einhvers staðar?
Meira: marsibil.blog.is
Helga Sigrún Harðardóttir | 23. mars
Nornabrennur
Pólitík á Íslandi er farin að lykta af
nornabrennum. Fólki er stillt upp við
vegg og menn dæmdir
ef þeir samþykkja ekki
eða skrifa ekki op-
inberlega undir stuðn-
ingsyfirlýsingu. Fram-
tíðarlandið hefur
gengið hvað lengst. Þar
eru þingmenn litaðir gráir eða græn-
ir. Ef þeir eru ekki með eru þeir sjálf-
krafa dæmdir á móti. Vinnubrögðin
varðandi tölvupóstsendingar til þing-
manna sem ekki hafa litað sig græna,
bera einkenni ofsa og öfga.
Meira: helgasigrun.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 23. mars
Áfall Samfylkingar
Það er mjög fróðlegt að rýna í nýjustu
könnun Gallups. Uppsveifla VG heldur
þar og áfall Samfylking-
arinnar verður sífellt
meira áberandi. Fimm
sitjandi þingmenn
flokksins mælast fallnir í
könnuninni og aðeins
myndu þrjár konur ná á
þing í nafni flokksins. Á meðan
blómstrar VG enn og mælist með
sautján þingmenn, tólf fleirum en í
kosningunum 2003. Samfylkingin tap-
ar sjö þingmönnum, sem er mikið af
stjórnarandstöðuafli að vera.
Samfylkingin er í könnuninni að
missa Einar Má Sigurðarson, Þór-
unni Sveinbjarnardóttur, Ástu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur, Mörð Árnason
og Önnu Kristínu Gunnarsdóttur af
þingi. Aðeins Róbert Marshall í Suð-
urkjördæmi er að mælast inni af fólki
í baráttusætum flokksins. Það virðist
þurfa pólitískt kraftaverk til að Sam-
fylkingin sjái fram á að ná inn t.d.
Steinunni Valdísi Óskarsdóttur,
Önnu Kristínu, Árna Páli Árnasyni,
Guðmundi Steingrímssyni, Láru
Stefánsdóttur og Guðnýju Karls-
dóttur. Aðeins í Suðurkjördæmi virð-
ist Samfylkingin geta brosað í dag. Í
Norðausturkjördæmi er Samfylk-
ingin orðin minnst fjórflokkanna
hvorki meira né minna og er þar að-
eins með Kristján Möller inni.
Þessi könnun Gallups staðfestir
endanlega mikla fylgissveiflu til
vinstri grænna. Hún er orðin mjög
föst yfir 20% fylgi og því sífellt meir
að festast í sessi. Það er mikil kvenna-
sveifla sem fer í áttina til þeirra fyrst
og fremst. [... ]Segja má að Samfylk-
ingin sé að verða örflokkur, festast í
sessi sem þriðja stærsta aflið.Meira:
stebbifr.blog.is
Björn Ingi Hrafnsson | 23. mars
Breytt pólitískt
landslag
Það er til marks um breytt pólitískt
landslag á Íslandi þegar varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins lýsir því
yfir að þátttaka Sjálf-
stæðisflokksins í rík-
isstjórn sé forsenda fyrir
því að hér verði mynduð
umburðarlynd miðju-
stjórn. Er hægri ekki
lengur inni í myndinni?
Meira: bingi.blog.is
BLOG.IS