Morgunblaðið - 24.03.2007, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.03.2007, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og byggingarmála hefur vísað frá kæru Náttúruverndarsamtaka Ís- lands vegna ákvörðunar skipulags- ráðs Reykjavíkur um að veita fram- kvæmdaleyfi til lagningar vatnsveitu Kópavogs frá Vatns- endakrikum um Heiðmörk innan lögsögu Reykjavíkurborgar. Kærunni var vísað frá á þeim for- sendum að Náttúruverndarsamtök Íslands ættu ekki samkvæmt lögum aðild að kærumálum á sviði skipu- lags- og byggingarmála, og hefðu því ekki lagalegar forsendur til að kæra þetta umdeilda fram- kvæmdaleyfi. Einnig segir að aðild kæranda geti ekki átt sér stoð í svo- nefndum Árósasamningi, því hann hafi ekki hlotið fullgildingu. Árni Finnsson, sem á sæti í stjórn samtakanna, segir að þessi nið- urstaða þýði að bæjaryfirvöld í Kópavogi geti farið sínu fram og brotið skipulagslög líkt og við land- fyllingu á Kársnesi. Kæru náttúruverndarsamtaka vegna vatnsveitu vísað frá Morgunblaðið/RAX Heiðmörk Hin umdeilda lögn vatns- veitu Kópavogs, sem stöðvuð var. NÝLEGA varð sr. Bragi Friðriksson, fyrrverandi sóknarprestur í Garða- prestakalli og prófastur, átt- ræður. Við messu í Vídal- ínskirkju afhentu Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, og Matthías Guðm. Pétursson, formaður sóknarnefndar Garðasókn- ar, sr. Braga skjal til stað- festingar á því að Garðabær og Garðasókn muni gangast fyrir útgáfu á riti hans um sr. Jón Þorláksson, sem var prestur í Vesturheimi. Ritið mun koma út á komandi hausti og mun mönnum gefast kostur á því að skrá nöfn sín á heillaóskaskrá sem birt verður í ritinu. Sr. Bragi Friðriksson heiðraður Afmæli Gunnar Einarsson og Matthías G. Pétursson ásamt sr. Braga Friðrikssyni. MAGNÚS Stefánsson félagsmála- ráðherra lýsir því sem skoðun sinni í nýjasta fréttabréfi félags- málaráðuneyt- isins að óhjá- kvæmilegt sé að herða jafn- réttislög, þar sem þau jafn- réttislög sem sett voru fyrir 30 árum og önnur lög hafi ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Frumvarp til nýrra jafnrétt- islaga er í opnu umsagnarferli á Netinu, en þverpólitísk nefnd undir forystu Guðrúnar Erlends- dóttur, fyrrverandi hæstarétt- ardómara, samdi frumvarpið. Meðal tillagna í því er að heimila launamanni að gefa þriðja aðila upplýsingar um laun sín og starfskjör. Magnús segir í fréttabréfinu að kynbundinn launamunur hér- lendis sé 15,7% samkvæmt könn- un Capacent Gallup og aðrar kannanir hér sem annars staðar á Norðurlöndum gefi sömu vísbend- ingar. Segir Magnús þennan mun óviðunandi og að hann muni leita allra leiða til að jafna launamun- inn. Vill herða jafnréttislög Magnús Stefánsson RAGNAR Ómarsson matreiðslumeistari keppti fyrir hönd Evrópu í matreiðslukeppninni One World í Suður- Afríku sl. mánudag og lenti í öðru sæti. Með Ragnari í för voru íslenskir aðstoðarmenn. Fram kemur á vefnum freisting.is að litlu hafi munað á Ragnari og sigurvegara keppninnar sem er frá Fiji- eyjum. Hver keppandi átti að elda úr hráefni sem hann hefði ekki unnið með á sínum heimaslóðum, og var því allt hráefni frá Suður-Afríku og er þ.a.l. nýtt fyrir Evr- ópuþjóðirnar. Umgjörð keppninnar hafi verið á léttu nótunum og fyrir vikið hafi verið erfitt að fá rétta hráefnið. En íslenskir kokkar séu vanir að „redda“ sér við erfiðar kringumstæður og því hafi allt farið vel. Segir á vefnum að þetta hafi verið hin mesta ævintýraför. Ragnar hreppti silfrið Ragnar Ómarsson Á SJÖUNDA þúsund höfðu í gær skrifað undir Sáttmála um framtíð Íslands sem Framtíðarlandið stendur fyrir. Alls hafa 20 af 63 alþingismönnum skrifað undir sáttmálann. Þar af eru aðeins tveir flokksformenn, þ.e. Stein- grímur J. Sigfússon og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Jónína Bjart- marz er enn eini stjórnarþingmað- urinn sem hefur staðfest sáttmál- ann. Á sjöunda þúsund ALLIR frambjóðendur til alþing- iskosninga 2007 sem ekki hafa þegar undirritað Sáttmála um framtíð Íslands, sem Framtíð- arlandið stendur fyrir, fengu nú í vikunni sáttmálann sendan heim ásamt gulri rós og voru í með- fylgjandi bréfi beðnir um að skýra frá afstöðu sinni til sáttmálans. Framtíðarlandið mun kynna af- stöðu þingmanna og frambjóðenda á opnum fundi nk. miðvikudag, þ.e. 28. mars. Sáttmáli og blóm MARGIR líta svo á að þegar lóan kemur sé vorið komið. Á vef Nátt- úrufræðistofnunar er bent á að einnig megi líta á hrossafluguna sem vorboða, en hún fer yfirleitt að sjást í byrjun maí. 17. mars sl. fannst hins vegar hrossafluga á húsvegg í Hafnarfirði. Ekki er vitað til þess að slík fluga hafi áður fund- ist svona snemma árs hér á landi. Hrossafluga Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is GERT hafði verið ráð fyrir að milli- þinghaldið í Baugsmálinu sem var háð í gærmorgun yrði stutt og tíð- indalítið enda lá aðeins fyrir að leggja ætti fram rafræn gögn, nokkuð sem ekki gaf fyrirheit um miklar svipting- ar í dómsalnum. Raunin varð allt önn- ur því til töluvert harkalegra orða- skipta kom milli verjanda Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og saksókn- arans og lauk þinghaldinu með því að dómurinn tók ekki við neinum gögn- um og dómarinn bað menn að „hugsa málið“ yfir helgina. Þinghaldið átti að hefjast klukkan 9.30 en saksóknara hafði misheyrst þegar tímasetningin var tilkynnt í síðasta þinghaldi og taldi að það ætti að hefjast klukkan 10. Hann mætti til dóms klukkan 9.45 og taldi sig vænt- anlega hafa góðan tíma til undirbún- ings. Með honum í för var lögreglu- maður sem byrjaði þegar að setja upp skjávarpa en ætlun saksóknara var að sýna dómnum hvernig afrit af tölvupóstum Tryggva Jónssonar litu út en þau voru á hörðum diski sem hann hugðist afhenda dómnum. Seinkun sem varð af þessum sök- um mæltist illa fyrir hjá Gesti Jóns- syni, verjanda Jóns Ásgeirs, og hann var síst ánægðari með fyrirhugaða sýningu á tölvupóstum. Gestur var eini verjandinn sem mætti í þinghald- ið en hann hafði umboð frá Jakobi R. Möller, verjanda Tryggva. Gestur sagðist hafa komið til dóms eingöngu í því skyni að taka á móti gögnum, eins og rætt hefði verið um, og hann teldi að umboð hans frá Jak- obi næði eingöngu til þess að taka við einhverju sem hann gæti afhent hon- um í umslagi. Hann mótmælti að gögn yrðu lögð fyrir dóminn svo seint í ferlinu og alls ekki kæmi til greina að lögð yrðu fram ný gögn föstudag- inn áður en málflutningur hæfist enda hefðu verjendur engin tök á að fara yfir þau. Varðandi fyrirhugaða sýningu með skjávarpanum sagði Gestur að hún kæmi ekki til greina enda hefði hann engin tök á því að fara á fund Jakobs til að útskýra sýningu saksóknarans fyrir honum. Þessi framlagning væri „ekki í samræmi við neitt sem ég hef séð í opinberu máli, aldrei“, sagði Gestur og lagði þunga í orð sín. Framlagning gagnanna og útskýring á þeim með aðstoð skjávarpa á þess- um tímapunkti væri án fordæmis og „algjörlega út í hött“. Sigurður Tómas sagði á hinn bóg- inn að sýningin væri eingöngu til þess að dómarar gætu betur áttað sig á því hvernig finna mætti tölvupósta á harða diskinum og tók skýrt fram að hér væri ekki um ný gögn að ræða. Framlagning þeirra væri þó ekkert sem skipti sköpum í málinu. Sigurður Tómas ætlaði einnig að leggja fram afrit af tölvupóstsam- skiptum lögreglumanna við Deloitte, en þeim gögnum höfðu verjendur óskað eftir og sagði hann að öflun þeirra hefði kostað töluverða vinnu og fyrirhöfn. Gestur benti þá á að verjendur hefðu óskað eftir að um- rædd gögn yrðu lögð fram fyrir 19. mars og það hefði verið einfalt mál fyrir lögregluna að senda gögnin með tölvupósti. Sigurður Tómas sagði þá að það væri ekki góð reynsla af því að senda Gesti tölvugögn því þau kæmu þá í fjölmiðla strax í kjölfarið. „Þakka þér fyrir það,“ svaraði Gestur, stuttur í spuna. Um þessi gögn sagði Arngrímur Ísberg dómsformaður að hann áttaði sig ekki alveg á þýðingu þeirra fyrir málið. „Dómurinn ætlar ekki að láta þennan skjalagrúa kaffæra sig,“ sagði hann. Annars kæmi dómurinn ekki fyrr en undir jól. Ætlun um tíðindalítið þinghald stóðst ekki Morgunblaðið/Sverrir Deilur Gestur Jónsson og Sigurður Tómas Magnússon deildu harkalega fyrir dómi í gær. Myndin er tekin á fyrstu dögum aðalmeðferðarinnar. Í HNOTSKURN » Saksóknari hugðist leggjafram rafræn afrit af öllum tölvupósti Tryggva Jónssonar sem lagt var hald á. » Ákæruvaldið hafði þegarlagt fram þá tölvupósta sem það telur skipta máli. » Einnig átti að leggja framafrit af tölvupóstum milli rannsóknarlögreglumanna við endurskoðendur Deloitte en þar var gert að ósk varn- arinnar. ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Til sýnis og sölu einn glæsilegasti sportbíll sögunnar, Mercedes-Benz SLK55 AMG, svartur að lit með svörtu leðri. Slagrými: 5439 cc. Tog: 510 Nm v/ 4000 sn. Afl: 360 hestöfl. Hröðun: 4,9 sek. 0-100 km/klst. SPENNANDI SUMAR! SLK55 AMG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.