Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 18
18 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
STJÓRNVÖLD í Íran staðfestu í
gær að þau hefðu látið taka fimm-
tán breska sjóliða höndum í Persa-
flóa og sögðu að þeir hefðu verið á
ferð innan íranskrar lögsögu.
Breska varnarmálaráðuneytið full-
yrti hins vegar að mennirnir hefðu
verið teknir er þeir fóru um borð í
bát í ánni Arvand, sem arabar
nefna Shatt al-Arab-vatnaleiðina,
en þá grunaði að hann væri notaður
til smyglstarfsemi. Shatt al-Arab
skilur að Íran og Írak og liggur út í
Persaflóa.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
svona nokkuð gerist en atvikið nú
þykir magna mjög þá spennu sem
þó var næg fyrir í samskiptum Ír-
ana og Vesturvelda. Íranar hafa
mótmælt því sem þeir kalla yf-
irgang Breta innan íranskrar lög-
sögu en Margaret Beckett, utanrík-
isráðherra Bretlands, hefur fyrir
sitt leyti kallað íranska sendiherr-
ann í London á sinn fund og krafist
þess að mönnunum verði sleppt.
Íranar tóku fimmtán breska
sjóliða höndum í Persaflóa
AP
Handtaka Sjóliðarnir 15 voru á
freigátunni HMS Cornwall.
LÖGREGLA á Jamaica greindi í gær frá því að krufning
hefði leitt í ljós að landsliðsþjálfari Pakistans í krikket,
Suður-Afríkumaðurinn Bob Woolmer, hefði verið myrt-
ur – en Woolmer fannst látinn á hóteli sínu í Kingston á
Jamica sl. sunnudag. Mun hann hafa verið kyrktur og
grunar lögregluna að fleiri en einn maður hafi verið að
verki, enda Woolmer stór maður og sterklega vaxinn.
Fjölskylda Woolmers sagði í gær að hún hefði enga
vitneskju sem gæti skýrt hvers vegna Woolmer var
myrtur. Atburðurinn átti sér stað einungis örfáum
klukkustundum eftir að Pakistan tapaði fyrir Írum í
heimsmeistarakeppninni í krikket en tapið þýddi að
Pakistan var úr leik í mótinu þrátt fyrir að vera álitið fjórða besta lands-
liðið í heimi. Búið er að yfirheyra liðsmenn pakistanska landsliðsins og
starfsfólk hótelsins. Grunur leikur á að Woolmer hafi þekkt morðingjann
en engin merki voru um að brotist hefði verið inn á hótelherbergið eða
nokkru stolið.
Landsliðsþjálfarinn var
myrtur eftir tap gegn Írlandi
Myrtur Bob Wool-
mer þjálfari.
MEIRIHLUTI demókrata í full-
trúadeild Bandaríkjaþings sam-
þykkti í gær lög sem fela í sér að
Bandaríkjaher skuli kallaður frá
Írak í síðasta lagi 31. ágúst 2008.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
brást ókvæða við samþykkt frum-
varpsins og sagði ekki koma til
greina að hann staðfesti lögin með
undirskrift sinni.
218 þingmenn gegn 212 sam-
þykktu að tengja fjárlög upp á
124 milljarða dollara, sem fara
áttu til stríðsrekstrarins í Írak, við
skilmála þess efnis að byrjað verði
að fækka í bandaríska herliðinu í
Írak og að heimkvaðningu hersins
verði lokið eftir mitt næsta ár.
„Þetta stríð er hrikaleg mistök,“
sagði Nancy Pelosi, leiðtogi meiri-
hluta demókrata í fulltrúadeild
þingsins, eftir að niðurstaðan varð
ljós.
Reuters
Ósammála Nancy Pelosi, forseti
fulltrúadeildarinnar, og George W.
Bush, forseti, eru ekki á sama máli.
Lög um heim-
komu hersins
ALKÓHÓL og sígarettur eru hættulegri en margar aðr-
ar gerðir fíkniefna eins og t.d. alsæla og ætti að flokkar
fíkniefni upp á nýtt í reglugerðum með hliðsjón af skað-
seminni. Þetta er álit vísindamanna sem birtu í breska
læknaritinu Lancet í gær viðamikla rannsókn á kostnaði
sem fellur á samfélagið vegna neyslu fíkniefna. Að
þeirra mati eru alkóhól og sígarettur á meðal tíu skað-
legustu fíkniefnanna og lágu þrír þættir því til grund-
vallar: áhrif á heilsu neytandans; hversu ávanabindandi
efnið er og samfélagsleg áhrif vegna neyslu þess.
Rannsóknin þykir sæta tíðindum en í Bretlandi má
rekja 40% veikinda á sjúkrahúsum til tóbaks og um
helming heimsókna á neyðarmóttökur til neyslu áfengis. Byggðist rann-
sóknin á viðtölum við sérfræðinga, lögreglumenn og heilbrigðisstarfsfólk.
Alkóhól skaðlegra en alsæla
Hættulegt Öl er
annar maður
UM 800 manns hafa látist úr heila-
himnubólgu í Vestur-Afríku frá
áramótum eftir að faraldur breidd-
ist út frá Búrkína Fasó til átta ann-
arra landa.
Um 800 látnir
SALAM al-Zubayi, varaforsæt-
isráðherra Íraks, særðist í
sprengjutilræði skammt frá heimili
sínu í Bagdad í gær. Níu týndu lífi,
þ.á m. bróðir ráðherrans.
Ráðherra særðist
ROBERT Gates, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, færði rök
fyrir því að Guantanamo-fangabúð-
unum á Kúbu yrði lokað þegar
hann tók við embætti fyrir
skömmu. Dagblaðið New York
Times skýrði frá þessu.
Vildi loka búðum
ÆTTINGJAR
hins goðsagna-
kennda sjón-
hverfingamanns
Harry Houdini
vilja að lík hans
verði grafið upp
til að skera úr
um hvort spírit-
istar hafi eitrað
fyrir honum vegna efasemda hans
um líf eftir dauðann. Allt frá dauða
hans 1926 hafa samsæriskenningar
skotið upp kollinum, hann hafi ekki
látist af magahöggi.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
ENGUM er ljóst hvaða áhrif þau
tíðindi munu hafa á forsetaframboð
Johns Edwards, fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmanns Demókrata-
flokksins, að eiginkona hans, Eliza-
beth, þjáist nú af
brjóstakrabbameini enn á ný. Hitt
er víst að margir í Bandaríkjunum
eru fullir aðdáunar á Elizabeth
Edwards og ennfremur dást margir
að því hversu samhent þau hjón
virðast vera er þau standa and-
spænis erfiðri raun.
John Edwards var varaforseta-
efni Johns Kerry í forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum fyrir þrem-
ur árum. Hann var meðal þeirra
fyrstu sem lýsti því yfir í fyrra að
hann hygðist sækjast eftir útnefn-
ingu demókrata vegna forsetakosn-
inganna 2008 og líkur á sigri hans í
forvalinu hafa þótt ágætar þó að
Hillary Clinton, fyrrverandi for-
setafrú, og Barack Obama, öld-
ungadeildarþingmaður frá Illinois,
þyki vissulega sigurstranglegust.
Edwards nýtur hins vegar mests
fylgis í Iowa-ríki; nokkuð sem
skiptir verulegu máli sökum þess
að fyrsta forvalið fer einmitt fram í
Iowa, snemma á næsta ári.
Elizabeth Edwards var fyrst
greind með brjóstakrabbamein
skömmu eftir forsetakosningarnar í
nóvember 2004.
Hún þótti taka tíðindunum af
mikilli yfirvegun og bók sem hún
skrifaði eftir að hafa undirgengist
læknismeðferð, Saving Graces,
vakti athygli. Læknismeðferðin bar
góðan árangur í það sinn og Edw-
ards gat því leyft sér að horfa fram
á veg þó að tölfræðin sýni að um
18% líkur séu á því að brjósta-
krabbamein skjóti aftur upp koll-
inum í konum sem fengið hafa
meinið.
Í þessari viku fengu þau hjón,
John og Elizabeth, hins vegar þau
tíðindi að krabbinn væri kominn
aftur og fyrir liggur að sjúkdóm-
urinn er í þetta sinn ólæknanlegur,
ekki er hægt að skera því að krabb-
inn er kominn á nýtt stig og hefur
breiðst út í bein Edwards og hugs-
anlega annað lunga hennar og önn-
ur líffæri.
Þau hjón báru sig þrátt fyrir
þetta áfall vel á fimmtudag er þau
greindu frá þessum slæmu tíðind-
um, sögðu aldrei hafa komið til
greina að Edwards hætti við fram-
boð sitt. Þau sögðu að þó að meinið
væri ólæknanlegt væri hægt að lifa
með því og er gert ráð fyrir að
Edwards hefji þegar lyfjameðferð.
Köld tölfræði sýnir þó að aðeins eru
um 50% líkur á að hún lifi 5 ár eða
lengur.
Misstu son sinn 1996
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Edwards-hjónin ganga í gegnum
erfiðar raunir; elsti sonur þeirra,
Wade, lést í bílslysi aðeins sextán
ára gamall, það var árið 1996.
Vinir þeirra Edwards-hjóna segja
spurninguna ekki þá hvort Eliza-
beth Edwards sýni styrk í þessari
miklu raun eða ekki, heldur hvort
John Edwards eigi eftir að geta
einbeitt sér að kosningabaráttunni
– sem á eftir að verða afar krefj-
andi og þýða að hann þarf að vera á
stöðugu ferðalagi um Bandaríkin –
á meðan kona hans gengst undir
læknismeðferð.
Erfið raun framundan
Framganga Elizabeth Edwards vekur aðdáun vestanhafs
en hún vill ekki að bóndi hennar hætti við forsetaframboð
Reuters
Sterk saman John og Elizabeth
Edwards halda ótrauð áfram.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÁTTA Íslendingar eru í Mapútó,
höfuðborg Mósambík, og þeir voru
ekki í hættu þegar vopnabúr hersins
sprakk í loft upp í úthverfi borg-
arinnar síðdegis í fyrradag. Í gær
var greint frá því að 87 manns hefðu
látist í sprengingunum og um 300
manns væru særðir á sjúkrahúsum.
Skjólstæðingarnir í skjól
Jóhann Pálsson, umdæmisstjóri
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
í Mapútó, segir að sprengingarnar
hafi verið í um 10 til 15 km fjarlægð
frá sendiráðinu og skrifstofu ÞSSÍ
og því hafi starfsmenn ekki verið í
hættu. Hins vegar hafi munaðar-
leysingjahæli, sem Íslendingar
styrki, farið mjög illa og ósprungnar
sprengjur séu á víð og dreif á leik-
vellinum og í garðinum við heimilið.
Forstöðumaðurinn, faðir Andre, hafi
brugðist skjótt við og komið öllum
skjólstæðingunum, um 80 til 90
börnum, í burtu í tæka tíð.
Aðvörun í janúar
Að sögn Jóhanns lék allt á reiði-
skjálfi í sprengingunum og víða
brotnuðu rúður undan höggbylgj-
unum í byggingum í nágrenni sendi-
ráðsins. Skrifstofur Íslendinganna
og heimili hafi samt sloppið en inn-
fæddur bílstjóri þeirra hafi misst
þakið á húsi sínu.
Í janúar sl. sprakk vopnageymsla
í loft upp og þá var mikil umræða um
mikilvægi þess að koma þessum ára-
tugagömlu sprengjum út úr borginni
og eyða þeim, en sagt er að svona
vopnageymslur séu í öllum stærstu
borgum landsins. Jóhann segir að
ekki hafi verið hlustað á varnaðar-
orðin í byrjun árs og því séu íbúar
mjög sárir og reiðir stjórnvöldum
vegna aðgerðarleysisins.
Svæðið sem fór verst út úr
sprengingunum var lokað í gær og
hermenn unnu að því að hreinsa upp
sprengjubrot og ósprungnar
sprengjur. Engar skemmdir urðu á
alþjóðaflugvelli borgarinnar, sem er
á hersvæðinu, en vegna sprenging-
anna var hann lokaður til hádegis í
gær og varð því seinkun á flugi.
Að undanförnu hefur verið óvenju
heitt og rakt í Mapútó og segir Jó-
hann það talið vera orsök sprenging-
anna. Ekki hafi verið á bætandi því
árið hafi verið erfitt vegna veðurs.
Íslendingar ekki í hættu
Reuters
Eyðilegging Hermenn skoða afleið-
ingar sprenginganna í Mapútó.
Mikið mannfall í
sprengingum í
Mapútó í Mósambík
JOSE Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, svipast um á sýningu í Brussel í
gær í tilefni þess að 50 ár voru þá liðin frá undirritun
Rómarsáttmálans, samkomulags sex þjóða um sameig-
inlegt markaðssvæði sem markaði upphafið að stofnun
Evrópusambandsins, ESB. Fulltrúar 27 aðildarríkja
sambandsins voru viðstaddir hátíðaathöfn á ítalska
þinginu í Róm ásamt Romano Prodi forsætisráðherra.
Reuters
Fagna 50 ára afmæli Rómarsáttmálans
Vilja lík Houdinis