Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING 22. daga ævintýraferðir á ári Gríssins, 2007 til Kína og Tíbet með KÍNAKLÚBBI UNNAR Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO, SHANGHAI, SUZHOU og TONGLI. Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og á KEISARASKURÐINUM og farið á KÍNAMÚRINN. Kína-Tíbet: 26. ágúst - 16. september Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO, SHANGHAI og SUZHOU. Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og farið á KÍNAMÚRINN. Í TÍBET verður dvalið í höfuðborginni LHASA, en þar verður m.a. POTALA HÖLLIN skoðuð, ein frægasta bygging veraldar. Heildarverð á mann: kr. 370 þús. á hvora ferð. Allt innifalið: þ.e. allar skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 70 þ.), fullt fæði, skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta verða 24. og 25. hópferðirnar, sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Kínakvöld: Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínakvöld“, á Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 R sími/símbréf: 551 2596, farsími: 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is Geymið auglýsinguna Kína: 19. apríl - 10. maí Njálsgötunni eða úti í bæ, með myndasýningu og mat, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum. POURQUOI-PAS? – franska vorið á Íslandi tekur sér ból- festu í Háskólabíói í dag með fransk–íslenskri stutt- myndahátíð. Hátíðin hefst kl. 15 og henni lýkur kl. 23 í kvöld. Tveir salir bíósins verða und- irlagðir. Myndirnar verða sýndar í öðrum salnum og verður mörgum þeirra fylgt úr hlaði af leikstjóra eða öðrum aðstandendum þeirra. Í hinum salnum verður haldið málþing í tengslum við myndirnar. Þar verður skipst á skoðunum og leikstjórar og aðrir aðstandendur myndanna taka þátt í umræðum. Hátíðin er öllum opin og aðgangur ókeypis. Kvikmyndir Frönsk–íslensk stuttmyndahátíð Sólveig Anspach Í ÁR eru 200 ár liðin frá fæð- ingu Jónasar Hallgrímssonar. Af því tilefni hafa Menningar- miðstöðin Gerðuberg og Búta- saumsfélag Íslands efnt til samkeppni um gerð búta- saumsteppa sem unnin eru út frá ljóði Jónasar, Ég bið að heilsa. Hægt er að senda inn teppi í hefðbundnum flokki og óhefðbundnum. Texti ljóðsins má vera ísaumaður eða áþrykktur í verk- inu, jafnt stök orð, valdar setningar, eitt vísuer- indi eða ljóðið í heild. Fagnefnd velur úr inn- sendum teppum og verða þau sýnd í Gerðubergi í vor. Skráningarfrestur er til 31. mars. Samkeppni Ég bið að heilsa – Jónas í bútum GUÐRÚN Kristjánsdóttir lýsir landslagi, smáu og stóru, í verkum sínum. Í dómi um sýninguna sagði Ragna Sig- urðardóttir: „Myndefnið er gjöfult. Það gefur í skyn áhugavert millibilsástand, um- breytingu. Kraftur leysinga minnir á sköpunarkraft sem leystur er úr læðingi og finnur sér farveg. Tilvísanir í ís- lenska náttúru eru sterkar og formin minna t.d. á eina af myndum Kjarvals af Esjunni, Esja, frá 1959, sem birtist gráfjólublá með hvítu mynstri, allt að því abstrakt.“ Sýningu Guðrúnar í Listasafni ASÍ lýkur á morgun. Myndlist Síðasta sýningar- helgi Guðrúnar Guðrún Kristjánsdóttir MYNDBANDSVERK Steinu Va- sulku hafa ferðast víða um heiminn og hlotið mikið lof en hún er ein af frumkvöðlum þessarar tegundar list- ar og var meðal stofnenda Eldhússins (The Kitchen) árið 1971, sem er sviðs- vettvangur rafrænnar listsköpunar í New York. Steina verður á meðal listamanna sem sýna á Alþjóðlegu kvikmynda- og myndbandsverkahátíðinni 700IS en hátíðin hefst í dag og stendur til 31. mars. Verður myndbandsverk Steinu sýnt annað kvöld á Eiðum þar sem hún mun sýna í slagtogi við lista- mennina Finnboga Pétursson og Rúrí. Listamannaspjall mun svo fylgja kjölfarið og þar sem Sigurjón Sighvatsson mun einnig leggja orð í belg. „Það er mjög ánægjulegt að fara austur á firði og alltaf skemmtilegt þegar listalífið nær út fyrir Reykja- vík,“ segir Steina. Nokkuð er liðið síð- an hún sýndi hér á landi en Steina er búsett í Bandaríkjunum ásamt eig- inmanni sínum. Síðast sýndi hún hér á Listahátíð í Reykjavík árið 2000. „Mér finnst ekkert sérstaklega gaman að sýna en mér finnst aftur á móti mjög gaman að vinna verkin mín. En svo kemur alltaf að því að maður sýnir þau,“ segir Steina en á sýningunni á Eiðum mun hún sýna myndbandsverk sem hún vann árið 2000. Það hafa óneitanlega orðið tölu- verðar breytingar á myndbandslist- inni frá því að Steina fór að sinna henni árið 1969. Ný tækni breytir forminu stöðugt. „Maður notar varla myndband lengur – þetta er allt í rafrænum skjölum. Svo á maður stöðugt von á nýrri tækni en það er engin ástæða að staldra of mikið við t.d. DVD því það er líka á leiðinni út. Það gæti þó alveg haldist inni næstu tíu árin – maður veit aldrei – en það er greinilega að verða gamaldags. Maður er alltaf að eltast við eitthvað nýtt en framfar- irnar eru alltaf skemmtilegar því í þeim felast óskaplega miklir mögu- leikar,“ segir Steina að lokum. Listakonan Steina Vasulka sýnir myndbandsverk á Eiðum Síbreytilegt listform Morgunblaðið/Árni Sæberg Frumkvöðull Steina Vasulka sýnir, ásamt fleirum, á Alþjóðlegu kvik- mynda og myndbandsverkahátíðinni 700IS sem hefst á Eiðum í dag. EINN frægasti rithöfundur í heimi, Jane Austen, þykir ekki nógu fríð fyrir auga nútímamannsins. Útgefandi að bók um líf Aus- ten ákvað að breyta andlits- mynd af henni til hins betra eftir að hann ákvað að hún væri of ófríð á upprunalegu myndinni, grein- ir fréttavefur BBC frá. „Hún var ekki mikið fyrir augað,“ sagði Helen Trayler hjá Wordsworth-bókaút- gáfunni. Útgefendur hafa hingað til sætt sig við að nota andlitsmynd af Aus- ten sem var máluð af systur hennar en nú hefur Wordsworth bætt við myndina andlitsfarða, hárlengingu og tekið af henni nátthúfu sem hún var með á upprunalegu myndinni. Bókin er ný útgáfa af minningum um Austen sem frændi hennar skrifaði. „Ég veit að það á ekki að dæma bók af kápunni en því miður gerir fólk það. Ef þú lítur betur út þá stendur þú út úr,“ sagði Trayler um þessa ákvörðun forlagsins sem virðist vera tekin í gróðaskyni. Upprunalega myndin eftir Cass- andru Austen hangir í National Portrait Gallery í London. Hún er talin af sérfræðingum vera eina ófalsaða myndin sem er til af Aus- ten. En önnur mynd sem er sögð vera af Austen fer á uppboð hjá Christies í New York hinn 19. apríl, það er olíumálverkið sem hefur valdið nokkrum deilum eftir að sér- fræðingar sögðu það vera falsað. Það er eftir Ozias Humphry og kom fyrst fyrir augu manna árið 1884 þegar það birtist á kápu á fyrstu út- gáfunni á bréfasafni Austen. Austen of ófríð á bókarkápu Fríkkar Jane Austen til að auka söluna Mynd af Austen eftir Humphry. Skipið siglir til Danmerkur Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞETTA er alveg frábært. Aðdrag- andinn er búinn að vera langur; Gyldendal er stórt forlag og erfitt að brjóta ísinn þar,“ segir Stefán Máni rithöfundur, en danska forlagið Gyldendal hefur keypt útgáfurétt að spennutrylli Stefáns Mána, Skipinu, sem JPV gaf út hér á landi á síðasta ári. Skipið hlaut frábærar viðtökur fyrir jólin og seldist í 8.500 eintökum og var með söluhæstu bókum ársins. Gyldendal er stærsta og virtasta forlag Danmerkur og einn fremsti útgefandi landsins á sviði fagurbók- mennta. Stefán Máni er að vonum ánægður en ráðgert er að bókin komi út í Danmörku í febrúar á næsta ári. „Þetta er fyrst og fremst mikill heiður en ef bókin selst vel í Danmörku þýðir það líka pening í aðra hönd. Til að byrja með er heið- urinn nóg, það lyftir manni upp.“ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.