Morgunblaðið - 24.03.2007, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.03.2007, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING NÁM Í DANMÖRKU Í boði er: Á ensku og dönsku • Byggingafræði • Byggingaiðnfræði • Markaðshagfræði Á ensku • Framleiðslutæknifræði • Útflutningstæknifræði Á dönsku • Véltækni • Véltæknifræði • Landmælingar • Tölvutæknifræði • Aðgangsnámskeið • Byggingatæknifræði Hjá VITUS BERING í Horsens bjóðum við upp á margvíslega menntun. Fulltrúar skólans, Jørgen Rasmussen og Johan Eli Ellendersen verða á Íslandi (Hótel Plaza) frá 23.mars til 30.mars. Þeir sem hafa áhuga geta haft sam- band, hringið í síma 5901400, leggið inn skilaboð og við munum hringja tilbaka, eða hringið beint í Johan í síma 8458715. UNIVERSITY COLLEGE - VITUS BERING DENMARK CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4 DK-8700 HORSENS TEL. +45 7625 5000 FAX: +45 7625 5100 EMAIL: UC@VITUSBERING.DK. www.vitusbering.dk/uc V I T U S B E R I N G D E N M A R K U N I V E R S I T Y C O L L E G E KVENNAKÓR Kópavogs fagnar fimm ára afmæli sínu með tónleikum í Salnum á morgun kl. 14, en stofnandi kórsins og stjórnandi er Na- talía Chow Hewlett. Strax á stofnfundi kórsins nefndi Na- talía að vorið 2007, á 5 ára starfsafmæli kórsins, yrði kórakeppnin Musica Mundi í Búdapest sem gaman væri að taka þátt í. Nú er komið að því, og í byrjun apríl fer kórinn til Búdapest og tekur þar þátt í umræddri keppni. Efnisskrá kórsins er jafnan fjölbreytt: þjóðlög frá ýmsum löndum, kirkjutónlist, bítlalög, negrasálmar og fleira. Tónlist Kvennakór Kópavogs fimm ára Natalía Chow Hewlett FAÐMUR er heiti tónleika Kirstínar Ernu Blöndal í Hall- grímskirkju á morgun kl. 17. ,,Tilgangurinn er að gefa fólki kost á að hlusta á fallega tónlist með bænum og sálmum sem tjá það sem oft er erfitt að segja með eigin orðum en þannig er hægt að minnast þeirra sem farnir eru og hugsa á uppbyggilegan hátt um eigin lífsgöngu,“ segir Kirstín Erna. Henni fylgir eðalsveit hljóðfæraleikara; Örn Arn- arsson leikur á gítar, Gunnar Gunnarsson á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa. Tónleikarnir eru liður í Sálmadagskrá Listvinafélags kirkjunnar. Tónlist Sálmar um huggun og von í sorg Kirstín Erna Blöndal ELDRI félagar Karlakórs Reykjavíkur halda árlega vor- tónleika í Digraneskirkju á morgun kl. 16. Á efnisskránni eru hefð- bundin karlakóralög úr ýmsum áttum. Sett hefur verið saman syrpa laga eftir Sigfús Hall- dórsson bæði til að heiðra minn- ingu hans og einnig tvo kór- félaga sem báðir unnu mikið með Sigfúsi, þá Friðbjörn G. Jónsson og Guðmund Guðjónsson. Einsöngvarar með kórnum eru Einar Clausen og Hlynur Andri Elsuson. Píanóleikari er Bjarni Þór Jónatansson, og Kjartan Sigurjónsson stjórnar. Tónlist Sigfús Halldórsson heiðraður í söng Kjartan Sigurjónsson Ronnie Baker Brooks erkominn af traustri blú-sætt – faðir hans er gít-arleikarinn og söngv- arinn snjalli Lonnie „Guitar Junior“ Brooks. Hinn ungi Ronnie Baker byrjaði líka snemma að fást við blúsinn líkt og fjölskyldan öll, því hann á yngri bróður, Wayne Baker Brooks, sem er eitursnjall gítarleik- ari, og tvær söngnar systur. Pabbi hans byrjaði að kenna hon- um undirstöðuatriðin þegar piltur var aðeins sex ára. Eftir því sem hann náði betri tökum á hljóðfær- inu langaði hann æ meira að fá að spila með föður sínum, en sá þráað- ist við, fannst að strákur ætti frek- ar að einbeita sér að skólalærdómn- um en að vera sífellt að glamra á gítarinn. Á endanum lét hann und- an, lofaði pilti af ef hann gæti lært utan að tvö lög myndi hann fá að spila þau með sveitinni þegar hann sneri heim aftur úr Evrópuför. Það gekk eftir og níu ára gamall spilaði Brooks yngri með föður sínum og hljómsveit á búllu í Chicago Junior Wells-lagið „Messin with the Kid“ og „Reconsider Baby“ eftir Lowell Fulsom. Segja má að hann hafi byrjað á botninum, var fyrst rótari, síðar gítarrótari og fékk síðan að sjá um skipulag á hinu og þessu. Þegar þeim gamla fannst hann vera búinn að læra nóg fékk hann að spila með í einu lagi á kvöldi og síðan komst hann í hljómsveitna smám saman. Komst í tæri við snillinga Eftir það fékk hann verkefni hjá öðrum þegar Lonnie Brooks var ekki á ferðinni og þannig spilaði Brooks yngri með Koko Taylor, Junior Wells og Elvin Bishop, svo dæmi séu tekin. Það var þó íhlaupa- vinna, aðalvinnan var að spila með pabba og þá komst hann líka í tæri við snillingana, fékk að spila með Stevie Ray Vaughan, Albert Collins og Luther Allison, svo dæmi séu tekin. Eftir því sem honum fleytti fram í spilamennskunni fékk hann að spila meira, hálftíma um miðbik setts þess gamla, en síðan fékk hann að hita upp á tónleikum og spila síðan í hljómsveitinni það sem eftir var kvölds. Ekki var bara að hann varð sjóaður í sviðsspila- mennsku, heldur lærði hann líka að semja eigin tónlist því faðir hans lagði einmitt höfuðáherslu á það. „Þótt það sé gott að geta spilað verk annarra af innlifun verður til- finningin aldrei eins sönn og þegar maður glímir við eigin verk“. Eigin hljómsveit Þar kom að Brooks yngri langaði að spreyta sig einn síns liðs og sagði hann því skilið við sveit föður síns í góðri sátt og byrjaði síðan að spila með eigin hljómsveit í klúbb- um í Chicago og sendi frá sér fyrstu breiðskífuna, Golddigger, 1998. Næsta skífa, Take Me Witcha, kom út þremur árum síðar, en í kjölfar hennar hafði Brooks svo mikið að gera að fimm ár liðu þar til næsta plata leit dagsins ljós, The Torch, sem kom út á síðasta ári. Ekki er bara að Brooks stendur traustum fótum í hefðinni heldur vill hann miða forminu áfram, setja sitt mark á blúsinn eins og hann orðar það, og það má vel heyra á The Torch, sem Brooks vann með upptökustjóranum Jellybean John- son, sem hefur meðal annars unnið með Prince og Janet Jackson. Það er mikil vakning í Chicago- blúsnum nú um stundir, meðal ann- ars fyrir tilstilli tónlistarmanna eins og Ronnie Baker Brooks, She- mekia Copeland og Bernard All- ison, sem öll eru börn helstu blús- listamanna síðustu áratuga. Blúsinn fer líka víðar og algengt er að popparar blandi blús saman við poppið, svona rétt til að gefa því meiri dýpt, eða nýti sér blúsfrasa og tækni. „Mig langar til að gera blúsinn nútímalegri til að ungt fólk finni eitthvað við sitt hæfi í honum, án þess þó að þynna hann út. Þegar ég var ungur hlustaði ég á blús á með- an vinirnir hlustuðu allir á rapp og fönk en við fundum það snemma að það var minna bil á milli tónlistar- innar en menn kannski halda, mik- ið af rappi er í raun nútímablús, verið að rappa um það sem blús- menn sungu um á árum áður, en það er stutt frá fönki í blúsinn.“ Snemma beygist blúskrókurinn Blúsmenn Ronnie Baker Brooks þykir stefna á jafnvel meiri frama í blúsn- um en faðir hans, goðsögnin Lonnie Baker Brooks. Meðal gesta á Blúshá- tíð í Reykjavík sem haldin verður í næstu viku en gítarleikarinn snjalli Ronnie Baker Brooks. Árni Matthías- son segir aðeins frá Brooks sem tók fyrstu skrefin á blússviðinu aðeins níu ára gamall. BÚIST er við að málverk eftir amer- íska abstraktmálarann Mark Rothko seljist fyrir sem svarar rúmum þremur milljörðum íslenskra króna á uppboði í New York í maí. Ef verk- ið selst fyrir þetta verð verður það dýrasti eftirstríðslistmunurinn sem seldur hefur verið á uppboði hingað til. Verkið heitir White Center og er um tveggja metra hátt olíumálverk frá árinu 1950. Dýrasta eftirstríðs- verkið fram að þessu er eftir Willem de Kooning og seldist það fyrir tæpa tvo milljarða í fyrra. Eigandi White Center núna er billjónamæringurinn David Rocke- feller. Rothko-mál- verk selst fyrir milljarða Fast þeir sóttu sjóinn BJARNI Jónsson listmálari sýnir um þessar mundir málverk sem lýsa lífi og störfum sjómanna á tímum áraskipanna. Bjarni hefur lengi unnið að gerð heimildamynda um árabátatímann og líf og störf forfeðra okkar. Sýn- ingin er í Sjóminjasafninu Grandagarði en þar er opið frá kl. 13–17.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.