Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 24
24 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
„VIÐ erum ákaflega stolt af hljóm-
sveitinni okkar og það er því með
mikilli ánægju sem ég undirrita
þennan samning,“ sagði Sigrún
Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri í vik-
unni þegar hún undirritaði nýjan
samning milli bæjarfélagsins og Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands,
áamt Gunnari Frímannssyni, for-
manni hljómsveitarinnar.
Samningurinn gildir til þriggja
ára og með honum er tryggð áfram-
haldandi blómleg starfsemi SN, eins
og sagt er í frétt frá Akureyrarbæ.
Framlög til sveitarinnar hækka um
samtals 10,5 milljónir króna á samn-
ingstímanum.
Samningurinn er reistur á sam-
starfssamningi ríkisins og Akureyr-
arbæjar um samstarf í menningar-
málum. Meginmarkmiðið er að
styðja við uppbyggingu SN sem
meginstoðar sígildrar tónlistar utan
höfuðborgarsvæðisins. Áfram verð-
ur lögð mikil áhersla á skapandi
starf með börnum á Akureyri og í
nágrenni.
Helstu tímamótin á samningstím-
anum eru þau að menningarhúsið
Hof verður tekið í notkun en þar
verður aðalstarfsvettvangur hljóm-
sveitarinnar. Það gjörbreytir mögu-
leikum sveitarinnar til vaxtar og þró-
unar, auk þess sem aðstaða fyrir
áheyrendur verður til fyrirmyndar.
Samningurinn tekur mið af þessu og
er stefnt að því að hljómsveitin haldi
tónleika mánaðarlega yfir vetrartím-
ann eftir að hún flytur í Hof, að sögn
Gunnars Frímannssonar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Samið um tónlist Gunnar Frímannsson formaður Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands og Sigrún Björk Jakobsdóttirk, bæjarstjóri á Akureyri.
Blómleg starf-
semi SN tryggð
Í HAUST eru 20 ár frá því að Há-
skólinn á Akureyri hóf starfsemi
sína og af því tilefni verður haldið
málþing, Framtíð Háskólans á Ak-
ureyri – háskólinn í akureyrsku
samfélagi, á mánudaginn kl. 14.30.
Þorsteinn Gunnarsson rektor set-
ur málþingið en erindi flytja Sigrún
Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, Víðir Benediktsson skip-
stjóri, Jón Már Héðinsson, skóla-
meistari MA, Sigurður Kristinsson,
dósent í Háskólanum á Akureyri,
og Páll Skúlason, prófessor við Há-
skóla Íslands.
Framtíð
háskólans
OPINN hádegisfundur verður í Há-
skólanum á Akureyri nk. mánudag
kl. 12-14 undir yfirskriftinni Ísinn
brotinn – Norðurhafssiglingar í al-
þjóðlegu og íslensku ljósi. Fjallað
verður margvíslegar breytingar á
hafsvæðum norðurskautssvæðisins
og afleiðingar þeirra með tilliti til
skipasiglinga í framtíðinni. Erindi
flytur dr. Lawson W. Brigham, að-
stoðarforstjóri heimskautarann-
sóknaráðs Bandaríkjanna.
Ísinn brotinn
Eftir Örn Þórarinsson
Fljót | „Þetta er fjórði veturinn sem
ég fer með ómsjána milli bænda og
kanna fyrir þá hve mörg fóstur eru í
kindunum. Þetta er stanslaus törn
frá 10. febrúar og líklega til loka
mars,“ sagði Gunnar Björnsson,
bóndi í Sandfellshaga í Öxarfirði,
þegar fréttaritari hitti hann á dög-
unum.
Gunnar segir að ekki sé ætlunin
að skoða fé sem komið er nærri
burði en kindin verði hafa gengið
með í um fjörutíu daga til að nið-
urstöðurnar séu nákvæmar. „Ég fer
yfir svæðið frá Austur-Húnavatns-
sýslu og austur um, að Völlum á
Héraði og enda svo oftast í Borg-
arfirði eystra. Ég hef ekki töluna
hvað ég fer á marga bæi í ár en
þetta verða tæplega 50 þúsund
fjár,“ sagði Gunnar.
Skakkaföll vegna
dauðra fóstra
Það eru ýmsar ástæður fyrir að
bændur fýsir að vita hvað kindurnar
eru með í sér. Víða er orðinn um-
talsverður hluti af ánum þrílembdur
og það er gott að vita áður og fóðra
slíkar kindur meira en aðrar. Sömu-
leiðis er þá ekki ástæða til að fóðra
einlembur eins vel þannig að fóstrið
verði ekki mjög stórt því stórum
einlembingum er oft hætt við að
deyja í fæðingu. Þá er með þessu
hægt að fylgjast sérstaklega grannt
með einlembunum um burð því oft
er reynt að koma undir þær öðru
lambi og þá auðveldast að gera það
þegar þær bera. Sömu sögu er að
segja um gemlinga. Þá sem eru með
tvö fóstur er hægt að fóðra sér í
þeim tilgangi að fá afkvæmin stærri
fædd. Þá er enn ótalin ein ástæða
fyrir fósturtalningu en hún er sú að
sumir bændur hafa nýtt sér þann
möguleika að senda gelda gemlinga
og ær í sláturhús þegar ljóst er að
þær munu ekki skila afkvæmum.
Við fósturtalningu sjást einnig
dauð fóstur. Segir Gunnar að tals-
vert sé um dauð fóstur í ár og ljóst
að veruleg skakkaföll af þeim völd-
um verði á nokkrum bæjum.
Talningin er nokkuð nákvæm. „Í
fyrra var skekkjan innan við 1%. Í
þeim tilfellum er helst að mér sjáist
yfir þriðja fóstrið. En þetta hefur
orðið nákvæmara með hverju árinu
því maður þjálfast upp í þessu eins
og öðru sem maður er að fást við,“
sagði Gunnar.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Fósturtalning Gunnar Björnsson fylgist með lambafjöldanum á tölvuskjá
en aðstoðarmaður hans, Sigurður Alexander, styður við kindina
Vita nú fjölda
ófæddra lamba
Í HNOTSKURN
»Fósturtalning fer þannigfram að kindin er rekin inn í
þar til gert búr og síðan er nemi,
sem tengdur er við tölvu, settur í
nára kindarinnar og þá kemur
mynd af legi hennar á tölvuskjá.
»Með þessari aðferð geturvanur maður séð fjölda
lamba. Þau geta verið frá einu og
upp í fimm.
»Einnig er mikilvægt að sjá efkind er án fósturs eða fóstrið
er dautt.
Húnavatnshreppur | Hugmynda- og
hvatningarþing um ferðaþjónustu í
Austur-Húnavatnssýslu verður
haldið á Húnavöllum í dag og hefst
klukkan 13.15. Húnavatnshreppur
stendur fyrir þinginu.
Fyrirlesarar munu halda tölu um
þá möguleika sem ferðaþjónustan
felur í sér. Meðal annars er rætt um
náttúrutengda og menning-
artengda ferðaþjónustu og sagt frá
stuðningi sem Impra nýsköp-
unarmiðstöð veitir atvinnulífinu.
Þá verða pallborðsumræður.
Hugmyndir í
ferðaþjónustu
FRÉTTARITARAR Morgunblaðs-
ins á landsbyggðinni halda aðal-
fund félags síns í Morgunblaðshús-
inu við Hádegismóa síðdegis í dag.
Fundurinn hefst klukkan 16.30.
Fréttaritarar Morgunblaðsins
hafa með sér félag, Okkar menn,
sem kemur saman til aðalfundar á
tveggja ára fresti. Farið er yfir
starfsemina síðustu tvö árin,
fundað með forstjóra og ritstjóra
Morgunblaðsins og öðrum yf-
irmönnum á ritstjórn og að því
búnu verða afhent verðlaun í ljós-
myndasamkeppni fréttaritaranna
við sérstaka athöfn.
Um helgina halda Okkar menn
námskeið fyrir hóp fréttaritara.
Þorvaldur Þorsteinsson, rithöf-
undur og myndlistarmaður, hefur
umsjón með námskeiðinu sem
hann nefnir „Næringin í sögunni“.
Annað eins námskeið verður fyrir
annan hóp fréttaritara um næstu
helgi.
Fréttaritarar
funda í dag
Borgarfjörður | Landbúnaðarhá-
skóli Íslands verður með opið hús í
kennslu- og rannsóknarhúsunum á
Hesti í Borgarfirði í dag, laug-
ardag, kl. 13 til 17.
Kynnt verða rannsóknarverkefni
í sauðfjárrækt á vegum Landbún-
aðarháskólans og samstarfsaðila,
auk fyrirhugaðra verkefna á kom-
andi misserum. Þá verða lamb-
hrútar sem eru í afkvæmarannsókn
kynntir og ýmsar uppákomur til
skemmtunar. Loks munu fyrirtæki
og stofnanir kynna þjónustu sína.
Kynna rann-
sóknir á sauðfé
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Kennsla var brotin upp á yngsta stigi
Grunnskólans í Þorlákshöfn í eina viku. Unnið var
með fjölmenningu í fimm aldursblönduðum hópum.
Löndin sem tekin voru fyrir eru: Taíland, Filipps-
eyjar, Rúmenía, Rússland, Litháen, Pólland og Ísland.
Þessi lönd urðu fyrir valinu vegna þess að í þessum
bekkjum eru nemendur frá þeim öllum. Í hópunum
fimm var tekið fyrir mismunandi þema og blandað
saman fróðleik og skemmtun.
Prikadans með kústsköftum
Í tónlistarhópnum hlustuðu börnin á tónlist frá
löndunum sjö, horfðu á myndband með danslist frá
Taílandi og dönsuðu prikadans með kústsköftum en í
Taílandi eru notaðar bambusstangir. Einnig lærðu
börnin að syngja „Meistari Jakob“ á flestum tungu-
málunum.
Í listasmiðjunni voru búnir til ýmsir munir sem eru
vinsælir í þessum löndum og einkennandi fyrir þau
hvert fyrir sig. Þarna var um að ræða fíla (Taíland),
krossa (Litháen), óróa (Filippseyjar), egg (Rússland),
munsturmálaða diska (Rúmenía), vasa með mósaík-
munstri (Pólland) og fiska (Ísland).
Í fánahópnum var áhersla lögð á þjóðfána og land-
fræðilega legu landanna. Fánarnir voru málaðir á lér-
eft og löndin teiknuð fríhendis á pappír.
Í leturhópnum var börnunum kynnt mismunandi
letur þessara þjóða og kennt að skrifa það.
Í upplýsingahópnum var leitað á Netinu að ýmsum
fróðleik um viðkomandi lönd.
Ásta Júlía Jónsdóttir, stigstjóri á yngsta stigi, sagði
að þemavikan hefði gengið mjög vel, bæði kennarar
og nemendur verið mjög ánægðir. „Þetta er skemmti-
leg tilbreyting í skólastarfinu, gaman og fróðlegt fyrir
kennara jafnt sem nemendur, allir kynnast betur
þjóðháttum nemendanna sem starfa saman daglega í
skólanum,“ sagði Ásta Júlía. Afrakstur vinnunnar var
síðan kynntur foreldrum síðastliðinn fimmtudag.
Tóku fyrir menningu 7 landa
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Fánahópurinn Hér má sjá fána landanna sjö og stolta fulltrúa þeirra landa sem að baki þeim standa.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
HÖRÐUR Geirsson, safnvörður
ljósmyndadeildar Minjasafnins,
endurtekur í dag kl. 14 í safninu
fróðleiksmola sína um ljós-
myndatækni fyrr og nú.
Ljósmyndun
KVENNAKÓR Akureyrar heldur
árlega vortónleika í Akureyr-
arkirkju í dag kl. 16. Miðaverð er
1.500 krónur fyrir fullorðna en frítt
er fyrir börn yngri en 12 ára.
Vortónleikar