Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 25 Eftir Alfons Finnsson Ólafsvík | Settar hafa verið fram hugmyndir að snjóflóðavörnum í Ólafsvík. Voru þær kynntar á íbúa- fundi sem haldinn var á Klifi fyrr í vikunni. Heildarkostnaður við þess- ar framkvæmdir er talinn vera á bilinu 150 til 200 milljónir og er hlut- ur Snæfellsbæjar 10% af því. Á fundinum voru kynntar hug- myndir Verkfræðistofu Siglufjarðar og Landslags ehf. um gerð snjóflóða- varna í Ólafsvík. Hugmyndir fyrir- tækjanna eru metnaðarfullar og fjalla um stóran hluta Ólafsvíkur, allt frá svæðinu þar sem skíðalyftan var og áfram með hlíðinni fyrir ofan Heilsugæslustöðina og hluta Ennis- ins auk þess sem svæðið í kringum bæjarlækinn allt niður að höfn er til skoðunar. Þrjár raðir af snjóflóðagrindum Gert er ráð fyrir að komið verði fyrir öflugum stoðvirkjum í hlíðinni fyrir ofan Heilsugæsluna. Þeim er ætlað að hindra snjóflóð. Grindur þessar eru allt að fjórir metrar á hæð og koma í þremur röðum, tvær raðir eru nánast á brúninni og ein heldur neðar. Nær Heilsugæslunni er svo gert ráð fyrir að efla og endurmóta núverandi varnargarð. Frá Bæjarfossinum og niður að fyrsta fjölbýlishúsi er gert ráð fyrir að breikka farveg lækjarins til að minnka líkur á krapaflóðum sem hætta er á að berist niður farveginn. Á Engihlíðina verður svo sett ný brú sem gerir það einnig að verkum að lækurinn mun ekki renna í átt að leikskólanum heldur mun stefnan vera meira niður í átt að höfninni. Miklar breytingar munu eiga sér stað á umhverfi bæjarlækjarins og gilinu, þar með töldu bílastæði og að- komu að leikskólanum, auk þess sem uppi eru hugmyndir um talsverðar breytingar á umhverfi kirkjunnar. Hönnuðir gera ráð fyrir að hlaðið verði grjóti í kanta gilsins og að í lækinn komi tjarnir þar sem endur og annað líf verði áberandi. Ný göngubrú verður auk þess sett yfir lækinn. Gönguslóðar um allt svæðið Á fundinum komu fram hugmynd- ir um að grjóthreinsa skíðabrekkuna og nota grjótið í varnargarðinn fyrir ofan Heilsugæsluna. Einnig voru hönnuðir með hugmyndir um hvern- ig mætti útbúa gönguslóða um allt svæðið og tengja það helstu ferða- mannastöðum í Ólafsvík. Á svæðinu í kringum Heilsugæsluna var í tillög- unum gert ráð fyrir tjörnum og mikl- um trjágróðri sem m.a. kemur til með að minnka sjónmengun af völd- um snjóflóðagrindanna ofar í brekk- unni. Á verktímanum verður útbúið geymslusvæði þar sem efni í grind- urnar verður geymt, undirlag þessa svæðis þarf að styrkja talsvert en þegar notkun þess lýkur er t.d. hægt að nota það sem hjólhýsa- og felli- hýsasvæði fyrir ferðamenn. Kynntar tillögur um miklar snjóflóðavarnir í Ólafsvík Morgunblaðið/Alfons Heilsugæslan Snjóflóð hefur fallið úr hlíðinni ofan við Heilsugæsluna. Þar er gert ráð fyrir miklum snjóflóðagrindum til að hindra flóð. Suðurnes | Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum og Ferðamálasam- tök Suðurnesja halda kynningar- fund á Radisson SAS Hótel Sögu, í Ársal, næstkomandi þriðjudag kl. 14 til 16.30. Er þetta í fyrsta skipti sem ferðaþjónustufólk á Suðurnesjum kynnir svæðið og þjónustu þar með þessum hætti. Markmið fundarins er að gefa ferðaþjónustuaðilum á höfuðborg- arsvæðinu kost á að hitta fagfólk af Suðurnesjum til að ræða og fara yfir ferðamöguleika á Reykjanesinu á komandi sumri, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Ferðamálasamtökunum. Ferðaþjónustuaðilar af höfuðborg- arsvæðinu eru sérstaklega vel- komnir en auk þess eru allir áhugamenn um ferðamál á Reykja- nesinu boðnir velkomnir, segir ennfremur. Á fundinum verður meðal ann- ars kynnt uppbygging Bláa lónsins og þjónusta þess, fyrirhuguð upp- bygging Víkingaheima í Reykja- nesbæ og sýning Orkuversins Jarðar í Reykjanesvirkjun. Sagt verður frá náttúru Reykja- ness, söfnum og vitum, Reykjanes- fólkvangi fyrr og nú og fornum þjóðleiðum á Reykjanesi. Að loknum fyrirlestrum verður fyrirspurnum svarað og umræður opnaðar. Félög kynna ferða- þjónustu á Reykjanesi BMW3 lína www.bmw.is Sheer Driving Pleasure Með bílinn handa þér Bíll á mynd: BMW 318i með 17” álfelgum og krómlistum. * BMW 318i kr. 3.790.000. Útborgun 30%. Lán í 84 mánuði. Kr. 39.990* á mánuði. B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2007-2008 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, ritara og fjórum svæðisfulltrúum, þ.e. frá Dalvíkurbyggð, Ólafsfirði, Hrísey og Grýtubakkahreppi ásamt 100 manns í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara eða tillögum um menn í eitthvert, einhver eða öll sætin, sem kjósa skal til. Kjósa skal formann, ritara og svæðis- fulltrúa frá Grýtubakkahreppi og Ólafsfirði til tveggja ára. Varaformann og svæðisfulltrúa frá Dalvíkurbyggð og Hrísey til eins árs. Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna. Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi þriðjudaginn 3. apríl 2007. Akureyri 22. mars 2007 Stjórn Einingar-Iðju Stjórnarkjör
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.