Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 29

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 29
gömlu höfðu þó mikil áhrif á lita- valið, þennan brúna tón,“ segja þau og brosa. „Svo eru hér auðvitað hlutir sem höfðu tilfinningalegt gildi en flest hér er „okkar“. Við völdum innanstokksmunina sam- an.“ Dagsverkin sem að baki liggja nýja heimilinu eru mörg. „Við gerðum flest sjálf eða með aðstoð góðra vina en fengum engan arki- tekt til þess að hana. Það gerðum við allt sjálf. Þær eru ófáar stund- irnar sem hafa farið í að skoða, hanna og útfæra. Sumt teiknuðum við margoft áður en við fundum bestu lausnina. Þetta var mikil vinna. Þetta er útkoman og ég er stoltur af henni,“ segir Vignir Ingi. Og það mega þessi heiðursskötuhjú líka vera, stolt af heimili sínu og verki. Það er með hallarbrag. Rómantískt Arinninn er í miðju heimilisins, líkt og hjarta. Sig- ríður stillir fallegu húsmununum, sem flestir eru úr gleri, upp svo úr verði samræmi en samt einstakt og persónulegt. Hún leikur sér oft skemmtilega með form, liti og litla skrautmuni. Stílhreint Baðherberginu gjörbyltu Sigríður og Vignir frá upphaflegu teikningunni en það er stórt, rúmgott og stílhreint. Handleikur Það verður allt að listaverki í höndum húsfreyjunnar sem hún fellir síðan á áreynslulausan hátt en listilega inn í heild- armynd heimilisins enda alvön. uhj@mbl.is „Við vildum skapa nýtt en ljósakrónan yfir borðstofuborðinu og gardínustangirnar gömlu höfðu þó mikil áhrif á litavalið.“ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 29 árum saman. Það er líka kominn tími til að stefnubreyt- ing verði hjá þeim sem annast mötuneyti úti um allan bæ. Þeir bjóða upp á of flókna matargerð sem í mörg- um tilvikum er ger- samlega misheppnuð. Veitingahúsið í Ikea ætti að verða öðrum nokkur fyrirmynd. Með því er ekki sagt að aðrir ættu að apa eftir Ikea í einu og öllu held- ur er grunnhugmyndin þess virði að henni sé fylgt. Einfaldur matur. Ódýr matur. Góður matur. Við Íslendingar erum komnir of langt á braut amerískrar skyndi- bitamenningar. Við eigum að snúa við og halla okkur að því sem vel hefur gefizt t.d. á Norðurlöndum og í norðurhluta Evrópu. Þar að auki er ljóst að mat- reiðslan á hamborgurum og kjúk- lingum er ekki með þeim hætti að samræmist hollustu sjónarmiðum nútímans þótt einhver breyting hafi á orðið. Víkverji hvetur veitingamenn og umsjónarmenn mötuneyta til þess að taka veitingahús Ikea sér til fyr- irmyndar. Veitingahúsið í Ikeaer ódýrasti veit- ingastaður landsins. Nú veit Víkverji ekki hvort það er vegna þess að verzlunin nið- urgreiði matinn en þó verður það að teljast ólíklegt. En jafnframt býður þessi veitingastaður upp á einfaldari mat en aðrir veitingastaðir og það kann að vera skýr- ingin á hinu lága verði. Sú spurning vaknar hvers vegna aðrir veit- ingastaðir fylgi ekki fordæmi Ikea og bjóði upp á jafn einfaldan og ódýran mat. Raunar má hið sama segja um ýmis mötuneyti. Hvers vegna þarf mat- argerðin að vera svona óskaplega flókin í mötuneytum og á veit- ingastöðum? Ef Ikea tæki upp á því að opna útibú frá veitingastað sínum annars staðar á höfuðborgarsvæðinu má fullyrða að þeir veitingastaðir yrðu vinsælir vegna lágs verðs, vegna þess hversu einfaldur maturinn er og vegna þess að hann er góður. Það er kominn tími til að stefnu- breyting verði í framboði veit- ingastaða á mat. Hamborgarastað- irnir og kjúklingastaðirnir eru staðnaðir. Þar hefur lítil þróun orðið              víkverji skrifar | vikverji@mbl.is AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.