Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 36

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 36
36 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÁFRÆÐI flokkssystur minnar. Sigrúnar E. Smáradóttur, borgarfull- trúa Samfylkingarinnar, um málefni fólks í hjólastólum og Ferðaþjónustu fatlaðra, kemur mér ekki í opna skjöldu. Það hefur nefnilega margsannað sig að betra er að hugsa fyrst og tala svo. Þegar menn snúa þessu við er fjandinn laus. Af skrif- um hennar að dæma veit hún lítið eða ekkert um Ferðaþjónustu fatl- aðra. Ljóst er að hún talaði ekki við bílstjór- ana en þeir eru vel inni í málum er varða þjón- ustu og farþega sem hún augljóslega hafði ekkert samband við. Ekki ætla ég Sigrúnu að vilja gera fötluðu fólki illt en það gerir hún ómeðvitað með tillögum sínum svo óupplýst sem hún er um líf fatlaðra og starfsmanna Ferðaþjónustunnar. Hún hæðist að því að fatlaðir skuli gera sér ljósan þann kostnað sem fylgir breytingum til hins betra. Þeir eru sér alveg meðvitandi um að vinn- andi fólk borgar hærri skatta þeirra vegna og er þó nóg í þeim efnum fyrir. Sigrún virðist ekki skilja að ef allir sem rétt hafa á þjónustunni, gætu pantað með þriggja tíma fyrirvara án kostnaðar og fyrirvara, yrði það vinn- andi fólki ofviða. Heimtufrekja er ekki aðalsmerki fatlaðra. Sigrún þarf að fiska á öðrum miðum eftir slíkum aðli og kannski ekki svo langt að fara. Ná- grannasveitarfélögin hafa einkavætt keyrslu með fatlaða og þar er ólíku saman að jafna og við Ferðaþjón- ustuna í RVK. Þjónustan dróst sam- an, auk þess að verða óskilvirkari. Fólk sem ætlar á mismunandi staði er sett í bílana og flækist með þeim til að spara keyrslu fyrir handhafa einkavæðingarinnar. Al- gengt dæmi. Kona beið svo lengi eftir bíl einka- væddrar þjónustu í Kópa- vogi að hún var orðin gegnköld og varð of sein í leikhúsið. Þetta er það sem fatlaðir eiga á hættu ef Sigrúnu verður að ósk sinni. Hún trúir á einka- væðingu og telur þá leið verða ódýrari fyrir samfélagið og jafnvel betri en núverandi þjónusta er. Það undrar mig að Sigrún skuli ekki skilja að þjónusta þessi verður ekki rekin með peningagróða og að einkaaðilar vinna ekkert sem ekki gefur af sér. Auðvitað geta aðrir en Ferðaþjónusta fatlaðra flutt fólkið með sóma hafandi velferð þess í fyrirrúmi. En þeir bara gera það ekki því það skaðar fjárhag þeirra. Það er margsannað. Fólk í hjólastólum á mest allra undir góðri ferðaþjónustu og borgarfulltrúanum er enginn heiður að leggja til að hún verði færð í verra horf. Jafnvel þó að vanþekking valdi. Mér er kunnugt að þrautþjálfað starfslið Ferðaþjónust- unnar lítur á skrif Sigrúnar sem aðför að atvinnu þess og öryggi. Fatlaðir eru sárir og undrandi, enda áttu þeir ekki óvinar von úr herbúðum Sam- fylkingarinnar. Borgin á fyrst og fremst að reka Ferðaþjónustu fatl- aðra með sæmd. Það er hægt að halda utan um fjármálinn þó að svo sé gert. Það er engin sæmd að flytja lamað fólk eins og hunda eða farangur í skottinu aftan við sætin. Ef Sigrún vill halda herferðinni gegn fötluðum áfram, rálegg ég henni að fara á skrif- stofu og símaþjónustu starfseminnar og ræða við fólkið. Líka að ferðast með bílunum og setja sig í stöðu bjargarlítils fólks sem getur ekki gengið og hendurnar jafnvel mátt- lausar. Fatlaðir koma til með að líta svo á að Sigrún sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sé þarna að fylgja eftir skoðun flokks síns á málinu. Fleirum en mér finnst sorglegt ef Samfylkingin hefur tekið þann pól í hæðina. Þannig þenkjandi flokk munu fatlaðir ekki styðja til valda. Sigrún og hjólastólafólkið Albert Jensen svarar grein Sig- rúnar E. Smáradóttur »Ekki ætla ég Sig-rúnu að vilja gera fötluðu fólki illt, en það gerir hún ómeðvitað með tillögum sínum … Albert Jensen Höfundur er trésmíðameistari. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is SÚ þróun mála sem er orðin á sjúkra- liðanámi hefur leitt til þess að það þarf sérstakt andlegt úthald til þess að stunda það, hvort heldur er farin hin hefðbundna leið eða hin nýja, þ.e. sjúkraliðabrúin, sem hér er til um- fjöllunar. Það stundar enginn nám í sjúkraliðabrú með hangandi hendi því námið er mjög þungt, eins og í hinni almennu sjúkraliðabraut, og getur kornið svitanum út hjá þeim sem eldri eru í starfi. Þeir sem kosið hafa að mennta sig og hætt sér út á hina margumræddu brú eru margir með áratuga reynslu á sviði umönnunar ásamt brennandi áhuga, því annars væri þetta ekki hægt. Þessum nemum er ekkert hlíft þó svo sum skrifin, sem birst hafa undanfarið í dagblöðum, hallist að því að hér sé um einhverja menntunar- útsölu að ræða. Önnur skrif hafa þó verið jákvæð- ari og virðist sem höfundar þeirra hafi haft fyrir því að kynna sér málið en gefi sér ekki ímyndaðar forsendur. Eins og gefur að skilja er eingöngu vaktavinnufólk í þessu námi. Dæmi eru um einstaklinga sem eru á næt- urvöktum og verða að einbeita sér næstum á hlaupum því heimaverk- efnin eru ekkert smá. Þótt skólinn sé 2–4 sinnum í viku er alltaf verið að huga að úrlausnum verkefna. Það er því lítið um pásur ef árangur á að nást. Þrátt fyrir góðan vilja er mjög erfitt að setja sig í spor þeirra sem eru á móti þeim nýju leiðum sem í boði eru fyrir þá sem vilja mennta sig og nýta sína reynslu. Manni dettur helst í hug skotgrafahern- aður í verstu látunum. Samt er ekki öll nótt úti enn, því fólk, sem hefur bitið í sig ákveðna fordóma, getur komið mjög á óvart þegar það loks- ins fæst til að hlusta á staðreyndir og rök. Það eru fleiri starfsstéttir sem nota sams konar námsleið svo reynsluríkt fólk geti öðlast réttindi, en frá þeim berast engin mótmæli. Sé einhver vottur af skynsemi hjá þessum mótmælendum, þá ætti hann að til að koma vitinu fyrir þá áður en í óefni er komið. Námshraðinn sem krafist er af þessum sjúkraliðanemum er slíkur að undirritaður hefði illilega verið sleginn út af laginu þegar hann stundaði sitt nám. Að lokum vil ég taka fram að ég ber fyllsta traust til formanns okk- ar, Kristínar Á. Guðmundsdóttur. Sem félagsmaður veit ég um festu hennar og ósérhlífni varðandi kjara- baráttu okkar sjúkraliða. Spurning! Myndum við, sjúkralið- ar, hafna því ef okkur opnaðist „brú“ yfir í hjúkrunarfræðinginn? Svari nú hver fyrir sig. ELÍAS VALDIMARSSON, sjúkraliði á geðsviði. Aldeilis breyttir tímar Frá Valdimar Elíassyni: SIGURJÓN Þórðarson þingmað- ur var ræðumaður dagsins í Mein- horninu á Útvarpi Sögu hinn 20. mars sl. og kvartaði undan því há- stöfum, að einhver fiski- fræðingur á Hafró hefði farið með rangt mál þegar hann, að sögn Sigurjóns, sagði í Rík- isútvarpinu, að ástæða þorskhrunsins í Kanada hefði verið hækkun á hitastigi sjávar. Sig- urjón kvað það rangt mál og vildi koma á framfæri leiðréttingu, sem ekki hefði verið flutt. – Hann tíundaði síðan, að ástæðan hefði verið sultur sem sést hefði af því, að lifrarstuðull var lágur. – Svipað sjónarmið hefur einnig komið margsinnis fram hjá Jóni Kristjánssyni fiskifræðingi, en fyrir fáeinum dögum sagði hann í Morg- unhananum á Útvarpi Sögu, að hann hefði komist í kast við þorsk í Breiða- firði, sem hefði reynst vera lítill og lé- legur en þó kynþroska, hvort tveggja merki um sult. Í þessu felst sú skoð- un, að sultur sé eða geti verið ástæða fyrir bráðþroska, kynþroska við lít- inn þunga eða litla lengd. – Þetta er alveg af og frá. – Margir vís- indamenn hafa rannsakað ítarlega skýringar á of snemmbærum kyn- þroska og eru skýr- ingar allar á einn veg; bráðþroskinn er vegna erfðabreytinga í kjöl- far langvarandi stærð- arvals. Þegar stærsti fiskurinn er viðvarandi „sigtaður“ ofan af hópi fiska, þá gerast smám saman þær breytingar í þeim fiskinum, sem eftir er, að hann verð- ur sífellt yngri kyn- þroska. Ritara er ekki kunnugt um neinar vísindagreinar, sem gefa það til kynna, að bráðþroski verði vegna sultar, en hann lengir biðtíma eftir kynþroska en ekki öf- ugt. – Það sem Sigurjón sagði er af sama meiði og líklega komið frá Jóni. Þeim báðum til upplýsingar þá getur skrifari bætt við, að kanadíska þingið sendi sjávarútvegsnefnd sína fyrir um hálfu öðru ári til Nýfundnalands og Labrador til að reyna að fá skýr- ingar á því, hvers vegna þorskurinn þar hefði ekki verið orðinn veiðibær eftir 14 ára veiðibann. Fjórir vís- indamenn komu fyrir nefndina og gáfu vitnisburð og allir nefndu erfða- breytingar sem ástæðu auk ýmissa annarra breytinga eins og eyðilegg- ingar á vistkerfum, sem eiga sinn þátt í því að lifur fiskanna var lítil yf- irleitt. Það er fráleitt að ætla sér að skýra hið hörmulega þorskhrun við Kanada fyrir tæpum 20 árum án þess að tilnefna erfðabreytingar og það er ábyrgðarlaust af þeim Jóni og Sig- urjóni að gaspra um sult og seyru og vilja ekkert af erfðabreytingum vita. Þeim væri nær að tilnefna einhverja nýlega vísindagrein máli sínu til stuðnings en að endurtaka sífellt heimabruggaðar skýringar sínar. Röng „leiðrétting“ Jónas Bjarnason skrifar um kynþroska þorska » Sigurjón Þórðarsonþm. flutti erindi á Útvarpi Sögu 20. mars og kvartaði undan röng- um skýringum á RÚV og vildi leiðrétta þær en gerði það rangt. Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur dr.rer.nat. ÞAÐ leynir sér ekki, það blasir raunar við hverjum manni, að Sam- fylkingin fer mikla erindisleysu þessi dægrin. Það er að minnsta kosti greinilega álit kjósendanna í landinu. Því verður ekki um kennt, að flokkurinn njóti lítillar athygli. En kannski að það sé einmitt vegna athygl- innar sem hann nýtur, að lánleysið er svona mikið. Athyglin bein- ist nefnilega að þess- ari miklu pólitísku er- indisleysu flokks, þar sem frambjóðendurnir stritast við að gagn- rýna, en setja fátt fram sem handfesta er í; nema ef pólitísk yfirboð eru nefnd því nafni. Frambjóðendur skrifa í blöðin. Nýj- asta dæmið um það er grein eftir Önnu Kristínu Gunn- arsdóttur, alþing- ismann Samfylking- arinnar, í Morgunblaðinu í gær. Þar er því meðal ann- ars haldið fram að ekkert hafi gerst í sjávarútvegsmálum, sem gagn sé að fyrir byggðir landsins. Al- veg eins og ekki sé vitað að sjávarútveg- urinn sé landsbyggðaratvinnugrein fyrst og fremst, aflaheimildirnar einkanlega á landsbyggðinni og sjávarútvegurinn því burðarstoðin í atvinnulífinu þar. Því er það mikið hól í mínum eyrum þegar því er haldið fram að ég sé talsmaður sjávarútvegsins; jafnvel þó að reynt sé að gera það með neikvæðum for- merkjum. Og það er eins og það hafi framhjá þeim sem gagnrýna sjáv- arútvegsmálin, undir byggðalegum vinkli, að veiðiréttur minni bátanna, krókaaflamarksbátanna, hefur verið stóraukinn, en þessir bátar eru að langmestu leyti gerðir út frá minni byggðarlögunum í landinu. Meðal annars þeim byggðarlögum sem höfðu misst frá sér veiðiréttinn. Hafnirnar tíu þar sem þorskígildin í krókaaflamarki eru mest eru allar utan höfuðborgarsvæðisins eins og það er skilgreint á byggðakorti hins evrópska efnahagssvæðis. Raunar hefur veiðiréttur þessara báta verið aukinn svo mjög, að það hefur ver- ið harðlega gagnrýnt af öðrum útgerð- armönnum. Sú umdeilda línu- ívilnun skilaði 5.400 tonnum til þeirra skipa sem hennar nutu, nær algjörlega á lands- byggðinni. Þessi staðreynd og þessi umræða hefur greinilega algjörlega farið framhjá samfylk- ingarmönnum; í það minnsta ef marka má skrif þeirra. En hitt hlýtur þeim þó að vera ljóst að við þinglok voru samþykkt ný lög sem gera munu byggðakvótann mark- vissari og treysta hann sem tæki til þess að styrkja veikar sjáv- arútvegsbyggðir. Þetta viðurkenndi Samfylk- ingin, eins og raunar allir stjórnmálaflokkar á Alþingi, því þessar breytingar voru sam- þykktar samhljóða. Það er síðan eftirtektarvert að þegar svona greinar eru skrifaðar, eins og sú sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, þá örlar hvergi á til- lögum. Gagnrýnin er leiðarljósið, rétt eins og annars staðar. Hvergi glittir í ærlegar tillögur, því varla dettur nokkrum manni það í hug að fyrningarleið í sjávarútvegi sé lík- leg til að styrkja íslenskan sjávar- útveg, hvað þá byggðirnar í land- inu. Erindisleysan mikla Einar K. Guðfinnsson svarar grein Önnu Kristínar Gunnarsdóttur Einar K. Guðfinnsson » Þessi stað-reynd og þessi umræða hefur greinilega algjörlega farið framhjá sam- fylkingarmönn- um; í það minnsta ef marka má skrif þeirra. Höfundur er sjávarútvegsráðherra. MIG langar til að vekja athygli á þeirri miklu breytingu sem orðið hef- ur í sjúkraflugi á landsbyggðinni þar sem þjónusta við íbúa landsbyggðarinnar hefur stórbatnað svo jafna má við það sem best gerist í öðrum löndum þar sem und- irritaður þekkir til. Áður var það þannig að notaðar voru litlar vélar sem voru að sumu leyti vanbúnar til sjúkraflugs með mjög veika sjúklinga. Flestar ekki búnar jafnþrýstibúnaði þannig að ekki var hægt að fljúga upp fyrir slæm veður. Undantekningalítið þurftu dreif- býlislæknar að fylgja með og var þá héraðið oft læknislaust á meðan Sjúkraflugi hingað á Vestfirði, en undirritaður starfar á Patreksfirði, er sinnt frá Akureyri svo að til fyr- irmyndar er. Ávallt skjót viðbrögð og það er í valdi þess lækn- is sem biður um sjúkra- flugið hve hátt hann vill hafa þjónustustigið um borð í vélinni. Það fer eftir því hve alvarleg veikindi sjúklingsins eru. Sjúkraflugvélin er sérútbúin og hönnuð sérstaklega fyrir sjúkra- flug. Hún er búin jafn- þrýstibúnaði sem skiptir sköpum þegar fljúga þarf yfir vond veður og skiptir einnig miklu máli fyrir sjúklinginn. Þeirri breytingu sem orðið hefur á þjónust- unni má jafna við byltingu. Það þarf ekki að hafa um það mörg orð hve miklu máli það skiptir fyrir dreifbýlislækna og sjúklinga þeirra að vita það að ef á þarf að halda er til taks fullkomin sjúkraflugvél með vel þjálfuðum læknum og sjúkraflutn- ingamönnum. Þessi breyting hefur haft mjög já- kvæð áhrif á starfsumhverfi dreif- býlislækna og hefur það jafnframt í för með sér að sjúklingar á lands- byggðinni eiga ávallt kost á full- komnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á. Það var í tíð Jóns Kristjánssonar sem heilbrigðisráðherra sem ráðist var í þessar breytingar, sem eins og áður segir má jafna við byltingu. Hafi hann mikið hrós fyrir. Frábær þjónusta Jón B.G. Jónsson skrifar um sjúkraflug til Vestfjarða Jón B.G. Jónsson » Sjúkraflugi hingaðá Vestfirði, en undirritaður starfar á Patreksfirði, er sinnt frá Akureyri svo að til fyrirmyndar er. Höfundur er yfirlæknir á Patreksfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.