Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 38

Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 38
38 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ OrmheiðurSverrisdóttir fæddist í Kaldr- ananesi í Mýrdal hinn 30. nóvember 1916. Hún lést á Dvalarheimilinu Kumbaravogi hinn 12. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sverr- ir Ormsson, f. 10. september 1878, d. 30. janúar 1956, og kona hans, Hall- dóra Einarsdóttir, f. 6. mars 1879, d. 1. nóvember 1955, bændur í Kaldrananesi. Systkini Ormheiðar voru Vil- borg, f. 5. mars 1912, d. 13. jan- úar 1986, og Einar, f. 1. apríl 1914, d. 30. janúar 2004. Hall- dóra og Sverrir höfðu áður eignast tvo drengi, 6. nóvember 1908, annar fæddist andvana, hinn dó á fyrsta sólarhring. Ormheiður giftist 25. maí þeirra eru: a) Helgi, f. 11. maí 1969, kvæntur Svanhvíti Ósk Jónsdóttur, f. 3. júlí 1974, börn, Eva Ýr, Hugrún Líf og Ólafur Kristófer. b) Heiðrún, f. 20. mars 1971, gift Sveinbirni Jóns- syni, f. 11. júlí 1966, börn, Jón Freyr og Hlynur Örn. c) Erlend- ur Karl, f. 27. apríl 1977, kvænt- ur Hafdísi Harðardóttur, f. 23. janúar 1977, börn, Jökull Ingi, Ísak Þór og Elísa Katrín. d) Elín Drífa, f. 3. janúar 1981, sam- býlismaður Sigmar Freyr Pálm- arsson, f. 3. júlí 1976. 3) Jón, f. 24. maí 1950, búsettur á Kjóa- stöðum í Bláskógabyggð. Ormheiður og Helgi hófu bú- skap í Fagurhól í Austur- Landeyjum vorið 1941. Ormheið- ur bjó áfram í Fagurhól eftir lát Helga til ársins 1963 en þá flutti hún ásamt sonum sínum að Hjallanesi í Landsveit. Árið 1982 flytur hún ásamt Jóni syni sínum til Eyrarbakka þar sem hún starfaði við fiskvinnslu um nokk- urra ára skeið. Þau fluttu síðar á Selfoss og árið 1999 fór Orm- heiður til dvalar á Kumbaravogi. Útför Ormheiðar verður gerð frá Krosskirkju í Austur- Landeyjum í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. 1941 Helga Jóns- syni, f. á Skeiðflöt í Mýrdal 9. sept- ember 1910, d. 3. febrúar 1953. For- eldrar hans voru Jón Jónsson, f. 24. desember 1867, d. 7. desember 1926, og Guðrún Mark- úsdóttir, f. 20. febr- úar 1868, d. 27. apr- íl 1954. Börn Ormheiðar og Helga eru: 1) Hall- dór, f. 23. janúar 1942, búsettur í Þorlákshöfn, kvæntist Ingibjörgu Halldórs- dóttur, f. 23. desember 1949. Þau skildu. Sonur þeirra er Markús, f. 5. október 1984. Börn Ingibjargar af fyrra hjónabandi eru Hrönn, Hafrún, Ívar Örn og Andri Már. 2) Ólafur Kristján, f. 27. mars 1946, kvæntur Katrínu Samúelsdóttur, f. 7. febrúar 1950, búsett á Hellu. Börn Elsku amma, okkur systkinin langar að minnast þín í örfáum orð- um. Dugleg, ákveðin, hjartahlý, eru meðal þeirra orða sem koma upp í hugann þegar við minnumst ömmu Heiðu. Ekki hefur það verið auðvelt hlut- skipti að missa manninn sinn eftir tólf ára hjúskap frá þremur ungum drengjum en ótrauð hélt hún áfram búskap í Fagurhól og síðar í Hjalla- nesi. Minningarnar eru margar. Hænsnin í kjallaranum í Hjallanesi, dimmur, langur stiginn úr kjallaran- um upp í hlýtt eldhús ömmu þar sem alltaf var til eitthvað gott til að stinga upp í litla munna. Amma hætti bú- skap í Hjallanesi árið 1982 og flutti til Eyrarbakka og síðar á Selfoss. Ekki voru móttökurnar síðri þar og eins gott að vera svangur þegar komið var í heimsókn því alltaf svignaði borðið undan kræsingunum. Óhætt er að segja að amma hafi verið með græna fingur. Heimili hennar var alltaf fullt af blómum. Lísur, kólusar, blómstrandi kaktus- ar. Allar plöntur blómstruðu í hönd- unum á henni að því er virtist fyr- irhafnarlaust. Eitthvað fannst henni skrýtið hvað þetta erfðist illa til barnabarnanna og fannst okkar heimili frekar tómleg hvað blóma- rækt varðaði. Amma fluttist að Kumbaravogi ár- ið 1999 þar sem heilsu hennar var farið að hraka og þar lést hún 12. mars síðastliðinn níræð að aldri. Við viljum þakka starfsfólki Kumbara- vogs fyrir góða umönnun. Elsku amma, við þökkum þér um- hyggjuna og elskuna alla tíð. Helgi, Heiðrún, Erlendur Karl, Elín Drífa. Vinkona mín, Heiða í Hjallanesi, er látin. Mér finnst ég tæplega þess megnug að skrifa eftirmæli um slíka sæmdarkonu sem Heiða var, en finn hjá mér þörf til að setja á blað kveðjuorð til hennar. Kynni okkar hófust fyrir rúmum aldarfjórðungi er ég réð mig ráðskonu í sveit með ung- an son minn að Hjallanesi í Land- sveit. Þá var Heiða um það bil að ljúka ævistarfi sínu, sveitabúskapn- um, og aðrir teknir við. Stuttu síðar fluttu þau Jón yngsti sonur hennar að Eyrarbakka og síðar á Selfoss. Mér duldist ekki að Heiða hafði af- skaplega sterkan persónuleika. Hún var ein af hvunndagshetjum þessa lands, dugleg svo af bar. Ein stóð hún eftir með 3 unga syni sína og sveitabúið er eiginmaður hennar Helgi Jónsson veiktist og lést langt um aldur fram árið 1953. Hún hélt búskapnum áfram og hef ég heyrt að hún hafi unnið þrekvirki, búið óx og dafnaði og varð hið mesta myndarbú með dyggri aðstoð sona hennar, sjálf vildi hún minnst gera úr sínum þætti þar. Dýravinur var hún og lét sér annt um hag lítilmagnans. Hún hafði stórt hjarta og til hennar leitaði fólk og var hún örugglega fleirum en mér styrkur á erfiðum stundum. Lífs- speki hennar var gott veganesti og minnist ég mánaðanna tveggja er við bjuggum saman hlið við hlið með gleði og þakklæti, líkt og góðrar upp- skeru liðins árs. Með okkur tókst hinn besti vinskapur sem aldrei bar skugga á. Við þurftum ekki endilega að hafa mörg orð um hlutina til að skilja hvor aðra, hún var mér styrkur og ég vona að ég hafi einhvern tímann getað orð- ið henni að liði á einhvern hátt. Þótt aldursmunur okkar væri töluverður kom það ekki í veg fyrir að við gætum rætt allt mögulegt. Samræðurnar leituðu iðulega út um víðan völl, tekið var á landspólitíkinni, heimsmálun- um eða því sem bar hæst í það og það skiptið, og man ég ekki betur en að við hefðum svör við öllu sem bar á góma og leystum málin með stæl, þótt ekki værum við alltaf alveg sam- mála. Heiða reyndist syni mínum elsku- leg, spurði eftir honum og lét sig varða hvernig honum vegnaði í lífinu. Fyrir það er ég þakklát. Síðustu æviárin dvaldi hún á Kumbaravogi við Stokkseyri og naut góðrar umönnunar. Hún hvarf okkur smám saman inn í sinn eigin hugar- heim og gat að lokum ekki tjáð sig með orðum. Ég hitti hana í lok nóv- ember síðastliðinn. Fjölskylda henn- ar hélt henni þá veislu í tilefni 90 ára afmælisins. Heiða var fín og vel til höfð, yfir henni var reisn og virtist hún njóta stundarinnar með fólkinu sínu sem henni þótti svo vænt um og var stolt af. Það er síðasta minning mín um Heiðu sem ég varðveiti í huga mér. Trúðu á tvennt í heimi tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingrímur Thorsteinsson.) Ég votta Halldóri, Ólafi, Jóni og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Far þú í friði, elsku vina, og hafðu þökk fyrir tryggð og vináttu alla tíð. Jónína Björgvinsdóttir. Vorið 1963 urðu breytingar á lífi okkar krakkanna í Hjallanesi. Vigfús og Kristín, sem höfðu búið í neðri bænum allt okkar líf og verið okkur sem aukaafi og -amma, fluttust burtu og jörðina keypti ekkja, sem búið hafði í Landeyjunum og fluttist að Hjallanesi með þremur sonum sínum á unglingsaldri, þeir voru bara svolít- ið eldri en við systkinin. Fljótt kom í ljós að nýju nágrannarnir voru úr- valsfólk og mörg voru sporin, sem við systkinin áttum í neðri bæinn. Alltaf var okkur tekið með kostum og kynj- um, seint gleymist bragðið af krydd- lagkökunni hennar Heiðu sem hún bauð oft upp á, og margt var spjallað um við eldhúsborðið, þar sem hún sagði okkur frá æsku sinni í Mýrdaln- um og hestunum sínum og þótt hún Ormheiður Sverrisdóttir ✝ Þorsteinn JósefStefánsson fæddist á Rauðhól- um í Vopnafirði 26. desember 1904. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sundabúð í Vopna- firði, fimmtudaginn 15. mars síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Þor- steinsdóttir, f. 22. mars 1875, d. 3. mars 1944 og Stefán Stefánsson, f. 19. ágúst 1860 d. 5. júní 1925. Þorsteinn var yngstur fjögurra systkina. Þau voru: Sigurbjörg, f. 1895, d. 20. febrúar 1898. Sig- urjón, f. 10. mars 1899, d. 24. maí 1980, og Valborg Stefanía, f. 9. mars 1901, d. í ágúst 1932. Þorsteinn var tvíkvæntur: Hinn 13. mars 1943 giftist hann Sigrúnu Guðmundsdóttur frá Ásbrands- stöðum í Vopnafirði, f. 20. janúar 1910, d. 2. október 1945. For- eldrar hennar voru Guðmundur Kristjánsson, póstur og bóndi á Ásbrandsstöðum, f. 25. október 1862, d. 27. júní 1948, og Sesselja Eiríksdóttir frá Hafrafelli í Fell- um, f. 1. apríl 1870, d. 25. maí 1956. Börn þeirra: 1) Heiðrún, f. 14. október 1942, búsett á Höfn í Hornafirði, gift Hermanni Hans- 3) drengur sem dó í fæðingu, 2. október 1945. Síðari kona Þorsteins var Þur- íður Jónsdóttir frá Læknesstöðum á Langanesi, f. 13. maí 1914, d. 6. ágúst 1993, ekkja Þorsteins Óla- sonar frá Þórshöfn. Börn Þuríðar af fyrra hjónabandi: Skúli, Þór- unn, Jóna, Óli og Jóhanna. Þorsteinn ólst upp á Rauðhólum í Vopnafirði til 17 ára aldurs, en fór þá í vinnumennsku um þrettán ára skeið. Flutti í Vopnafjarð- arkauptún 1935 og bjó þar í nokk- ur ár með móður sinni. Skóla- ganga Þorsteins var engin, utan þrjár vikur í farskóla í Vopnafirði þegar hann var tíu ára. Að öðru leyti kenndi móðir hans honum undir fermingu. Eftir að Þorsteinn fluttist í Vopnafjarðarkauptún fór hann fljótlega að fást við smíðar og stundaði slíka vinnu um árabil, var m.a. við brúarsmíðar í mörg ár. Hann var vigtarmaður í slát- urhúsi Kaupfélags Vopnfirðinga í mörg ár og á bílavog á vegum hreppsins. Ennfremur vann hann á skrifstofu Kaupfélags Vopnfirð- inga. Þorsteinn sat í hreppsnefnd í fjögur ár, í skólanefnd Vopna- fjarðarskóla í mörg ár og sömu- leiðis í sóknarnefnd Vopnafjarð- arkirkju og söng um árabil með kirkjukór Vopnafjarðar. Hann var einn af stofnendum Kiwanis- klúbbsins Öskju og heiðursfélagi klúbbsins. Þorsteinn skrifaði ýmsa minningar- og fróðleiksþætti sem birtust m.a í Heima er best og Aldnir hafa orðið. Útför Þorsteins verður gerð frá Vopnafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.00. syni, f. 28. júlí 1943. Börn þeirra: a) Unn- ur, f. 9. nóvember 1968, sambýlismaður Ólafur Árnason, f. 8. ágúst 1966, þau eiga einn son, Árna, f. 25. október 2005. b) Kristín, f. 5. febrúar 197l, gift Sæmundi Helgasyni, f. 25. ágúst 1971. Börn þeirra: Heiðrún, f. 19. júní 1994, Helgi, f. 13. mars 2000, og Hermann Bjarni, f. 23. janúar 2005. c) Þorsteinn Rún- ar, f. 6. mars 1977, giftur Gunn- hildi Stefánsdóttur, f. 7. júní 1978, barn þeirra; Þórhildur fædd 6. september 2006. 2) Aðalbjörg, f. 19. ágúst 1944, búsett í Hafn- arfirði. Maki 1: Ómar Ö. Kjart- ansson, f. 27. júlí 1946. Þau skildu. Börn þeirra. a) Sigrún, f. 15. mars 1967, gift Einari Kristni Vil- hjálmssyni, f. 7. nóvember 1964. Börn þeirra: a) Arnór, f. 28. febr- úar 1989, Viktor, f. 28. febrúar 1989, Haukur, f. 13. júlí 1995. b) Inga Hugborg, f. 6. október 1971, gift Jóni Agnari Ólasyni, f. 15. maí 1973. Börn þeirra: Sindri Snær, f. 24. desember 1998, Sævar Leó, f. 15. október 2002, og dóttir, fædd 19. mars 2007. Maki 2: Viðar Bjarnason, f. 25. nóvember 1946. Það var kyrrð og friður í kringum Þorstein, tengdaföður minn, þegar hann kvaddi þennan heim laust eftir miðnætti fimmtudaginn 15. mars sl. Hann var búinn að ljúka góðu ævi- starfi, lifa rösklega 102 ár og því tilbúinn að kveðja. Ég kynntist Þorsteini fyrst fyrir meira en 40 árum nokkru eftir að ég og Heiðrún, eldri dóttir hans, kynnt- umst. Hann tók mér vel þá og alla tíð síðan voru samskipti okkar hin ánægjulegustu. Þorsteinn var Vopnfirðingur af bestu gerð. Átti þar heima alla ævi og helgaði því byggðarlagi starfs- krafta sína. Hann lifði ótrúlega mikl- ar samfélagsbreytingar á sinni löngu ævi. Var þátttakandi í þeirri miklu þjóðfélagsbyltingu sem varð með bættum samgöngum og betri húsa- kosti fólksins. Starfaði m.a. við brú- arsmíði í allmörg ár um miðja öldina og einnig við smíðar um árabil. Eiginleg skólaganga hans var ein- ungis þrjár vikur í farskóla, en hann var óþreytandi að afla sér þekkingar og síðar að miðla þeirri þekkingu sinni og reynslu, enda var hann ágætlega ritfær og skrifaði ýmsa minningar- og fróðleiksþætti sem komið hafa fyrir almenningssjónir. Þorsteinn var vel lesinn og átti mikið bókasafn, þar til hann leysti upp heimili sitt árið 1996 og flutti í þjón- ustuíbúð í Sundabúð. Hann stundaði vinnumennsku á yngri árum eins og algengt var á þeim tíma. Var það einkum í Vopna- firði, en um eins árs skeið var hann þó í vinnumennsku á Lágafelli í Mos- fellssveit hjá Thor Jensen og var það trúlega eini tíminn sem hann dvaldi og starfaði utan héraðs, nema þegar hann vann við brúarsmíðar. Árið 1944 keypti Þorsteinn íbúð- arhúsið Jaðar í Vopnafjarðarkaup- túni. Það er eitt af elstu húsum á staðnum. Byggt árið 1880 og var byggingarmeistari þess F. Bald, sá hinn sami og byggði Alþingishúsið við Austurvöll í Reykjavík. Fyrsti eigandi hússins og sá sem lét byggja það var Pétur Hafsteinn Guðjóns- son, verslunarstjóri hjá verslun Ör- um og Wulf á Vopnafirði. Húsið átti Þorsteinn til ársins 1996 og lét sér alla tíð afar annt um að viðhalda því, en gera jafnframt á því nauðsynleg- ar endurbætur í takt við nýja og breytta tíma. Eins og algengt er upplifði Þor- steinn bæði sorg og gleði á æviskeiði sínu. Fyrri konu sína – Sigrúnu – missti hann þegar hún lést af barns- förum í október 1945 eftir fárra ára sambúð þeirra. Það hlýtur að hafa verið þung raun fyrir hann og tvær ungar dætur hans, sem teknar voru í fóstur og aldar upp, önnur hjá móð- urfólki og hin hjá föðurfólki sínu. Hlutu þar hið besta atlæti og um- hyggju á alla lund. Þá var ekki í tísku að tala um áfallahjálp og þessi sorgartími reyndar aldrei ræddur af hans hálfu. Hann sýndi dætrum sín- um hinsvegar ávallt hina mestu ræktarsemi þó svo að þær ælust ekki upp hjá honum. Röskum tveim- ur áratugum seinna kvæntist Þor- steinn í annað sinn, Þuríði Jónsdótt- ur frá Læknesstöðum á Langanesi, en hún var ekkja og móðir fimm uppkominna barna frá fyrra hjóna- bandi. Þau Þorsteinn og Þuríður áttu saman farsælt hjónaband í 25 ár. Nutu þess að búa saman, en einn- ig að ferðast og fylgjast með afkom- endum sínum. Þorsteinn var virkur þátttakandi í samfélaginu á Vopnafirði. Hann tók margvíslegan þátt í félagslífi svo sem í kirkjukór, bridgefélagi, Kiw- anisklúbbi o.fl. og lét sig atvinnulíf og hag héraðsins varða. Hann fylgd- ist einnig afar vel með þjóðfélags- umræðu fram undir það síðasta og var óragur við að láta skoðanir sínar í ljós. Árið 1996 ákvað Þorsteinn að selja íbúðarhús sitt á Jaðri og flytja í þjónustuíbúð í Sundabúð. Þar dvaldi hann í rösklega sjö ár, en frá því í nóvember 2003 dvaldi hann á hjúkr- unardeildinni í Sundabúð og naut þar góðrar aðhlynningar ágætra starfsmanna. Þó svo hann væri lítið á ferli síðustu árin fylgdist hann ótrúlega vel með og hlustaði m.a. á útvarp fram undir það síðasta. Þor- steinn var alla tíð heilsuhraustur, ef undan eru skildar fáeinar síðustu vikurnar sem hann lifði. Ég kveð Þorstein, tengdaföður minn, með virðingu og þakklæti og ánægju yfir því að hafa fengið að kynnast jafn heilsteyptum og skyn- sömum manni. Hermann Hansson. Þorsteinn afi er dáinn. Maður sem lifði ótrúlega öld í sögu Íslands og heimsins. Við systkinin minnumst húmorista með glettni í augum og hreinskilni á vörum. Alla okkar barnæsku bjó hann á Jaðri með Þur- íði ömmu en þangað fórum við í ófáar veislur í heimsóknum okkar til Vopnafjarðar. Húsið var ævintýra- heimur fyrir krakka, byggt á 19. öld og var fátt meira spennandi en að fá að fara niður í kjallarann undir bað- herbergismottunni. Í minningunni var alltaf boðið upp á kaldar rjóma- pönnukökur, hangikjöt með grænum baunum og niðursoðna ávexti með rjóma í eftirrétt. Eftir matinn spil- uðum við systurnar stundum á org- elið, lög úr gamla söngvasafninu, önnur lék á nótnaborðið en hin sá um fótstigin. Þá var fastur liður að skoða myndir með forláta stækkun- argleri og stilla sér upp í sófanum fyrir fjölskyldumyndatöku. Það var alltaf gaman þegar afi og amma komu á Lödunni upp í Ás- brandsstaði og fengu okkur „lánuð“ í dagpart, þegar við vorum í sveit hjá frændfólki okkar. Þessi dagpartar fóru í fjöruferðir, skógarferðir í Burstafellsskóg og sundlaugarferð- ir, þó að afi færi sjálfur aldrei ofan í laugina. Afi kunni margar sögur og var Þorsteinn Jósef Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.