Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 41
þið afi og fóruð að vera saman. Fljót- lega voruð þið Helga fluttar á Sólvell- ina til hans og var þá tengingin orðin meiri. Þú háðir langa baráttu við veikindi þín en sjaldan kvartaðirðu eða sýndir á þér kvölina sem þú mátt- ir þola. Þú leitaðir í trúna sem gaf þér mik- inn styrk og alltaf man ég eftir stóru Biblíunni sem lá opin í stofuskápnum. Það var erfitt að horfa á þig svona veika og geta ekkert gert nema að biðja, vera hjá þér og halda í hönd þína. En nú líður þér vel og loksins færðu að hitta Ágúst manninn þinn sem þú misstir ung og saknaðir svo mikið. Ég mun standa við það sem ég lofaði þér þegar þú faðmaðir mig í síðasta sinn, að passa Helgu Bettý fyrir þig. Minningarnar eru óteljandi um góða og hlýja konu sem mun lifa í hjörtum okkar. Þín verður sárt sakn- að og ekkert mun ná að fylla þinn stað í hjarta dætra þinna sem þykir svo óendanlega vænt um þig. Megir þú hvíla í friði. Elsku Helga Bettý, Pétur, Bjarn- ey, Bjarni, Helga, Engilbert og aðrir aðstandendur, okkar dýpstu samúð- arkveðjur og megi algóður Guð styrkja ykkur í sorginni Agnes. Þórunn vinkona mín er dáin. Í þessari setningu er svo mikil sorg og söknuður, með henni hverfur svo ótrúlega margt sem við tvær áttum bara saman. Ég man það eins og það hefði gerst í gær þegar hún tók á móti mér, nýju stelpunni í Gagnfræðaskól- anum á Selfossi, tók mér opnum örm- um inn í vinahópinn sinn og ekki bara vinahópinn heldur inn á heimilið sitt líka þar sem Helga og Betti buðu mig velkomna og ég varð heimagangur næstu árin. Á þessum þroskaárum frá fimmtán ára vorum við að upplifa allt; fyrstu böllin, fyrstu ástina, fyrstu launuðu vinnuna, spara fyrir fyrstu utanlandsferðinni því til út- landa ætluðum við sem ekki var svo algengt í þá daga. Við völdum hús- mæðraskóla í Danmörku og kom- umst alla leið þótt við værum að velta því fyrir okkur hvernig við ættum að heilsa hvað þá annað í þessu framandi landi. Síðan tekur alvaran við, gift- ingar og barneignir, hún alltaf aðeins á undan mér. Giftist stóru ástinni sinni honum Gústa, þvílík hamingja, við Valli fengum að vera í dúkkuleik með Bjarneyju litlu í hreiðrinu þeirra á Sæfelli. Síðan kom sá harmur sem enginn verður samur eftir þegar hún missti Gústa sinn, þá hræðilegu sorg sem fylgir þegar sjórinn hrifsar til sín heila skipshöfn úr svo litlu plássi sem Eyrarbakki var. Tíminn líður og margt drífur á dag- ana, við erum mismikið saman enda lengra á milli. En þegar þú átt vin þá er alveg sama hversu oft eða sjaldan maður hittist það er alltaf eins og maður hafi sést í gær. Þórunn var ótrúlega dugleg og drífandi; þegar hún hafði sett sér eitthvað skyldi hún klára það, hvort heldur í leik eða starfi. Hún sagðist hafa ákveðið að eignast Helgu Bettý þegar Haukur minn var fæddur svo við vorum sam- tíma með krílin okkar yngstu. Oft hef ég velt því fyrir mér hve misskipt er mannanna gæðum. Frá því ég man fyrst eftir hefur alltaf eitt- hvað verið að hrjá Þórunni mína, endalausir sjúkdómar af öllum mögu- legum gerðum þótt bakveikin hafi trúlega kvalið hana mest og í hvert sinn sem búið var að reyna að bæta böl hennar tók annað við. Þegar hún sagði mér frá krabbameininu fannst mér mælirinn fullur, var ekki komið nóg? En Þórunn ætlaði sér ekki að láta það buga sig. Hún skyldi yfir- vinna það eins og allt annað og gerði það líka lengi vel, hún minnti mig á að það var svo margt sem við ætluðum að gera saman þegar við yrðum gaml- ar. En krabbinn læddist að aftur og þá varð ekki við neitt ráðið. Í gegnum öll hennar veikindi man ég aldrei eftir að hún hafi talað um þau að fyrra bragði og alltaf heldur dregið úr ef um var rætt. Þegar hún sagðist ekki ætla í fleiri meðferðir var æðruleysið algjört, ákvörðunin tekin: „Auðvitað langar mig að fylgjast með stelpun- um mínum og barnabörnunum en mér er það ekki ætlað.“ Þá var erfitt að gráta ekki hátt. Það var aðdáun- arvert að sjá hvað stórfjölskyldan öll stóð þétt saman þessa síðustu mán- uði, fyrir aldraða foreldra er það þyngra en tárum taki að horfa upp á barnið sitt deyja og systurnar móður sem alltaf var til taks þegar leita þurfti ráða. Guð gefi ykkur öllum styrk í sorginni. Hjördís vinkona. Mig langar að minnast Þórunnar vinkonu minnar með nokkrum orð- um. Þórunn var tengdamóðir mín til margra ára og þrátt fyrir að upp úr hjónabandinu slitnaði þá hélst vin- skapur okkar og samband nánast óbreytt. Lífið fór lengst af engum vettlingatökum um Þórunni. Ung missti hún manninn sinn á sviplegan hátt og stóð uppi með unga dóttur sína. Hún átti við veikindi að stríða sem tóku sig upp af og til og þá helst hin seinni árin. Þau reyndust henni oft þungur baggi að bera en í því eins og svo mörgu öðru stóð hún uppi sem sigurvegari. Hún lá yfirleitt ekki á skoðunum sínum, hún Tóta og stund- um kom fyrir að mann sveið undan en þá oftast af því maður vissi að maður átti það skilið. En hún sýndi okkur líka stuðning á erfiðum tímum og hann oft meiri en hún kannski áttaði sig sjálf á. Ég vissi alltaf að Þórunn var sterkur persónuleiki en eftir að hún veiktist fyrst fyrir nokkrum ár- um af þeim banvæna sjúkdómi sem loksins sigraði, fékk þessi sterki kar- akter fyrst að blómstra fyrir alvöru. Aldrei æðraðist hún eða kvartaði yfir veikindum sínum. Frekar reyndi hún að dylja slæma líðan sína fyrir öðrum og sagði aðspurð að margir hefðu það ábyggilega verra en hún, hún hefði það bara ágætt. Maður vissi hins veg- ar oftast betur. Og eftir því sem lík- aminn gaf eftir þá efldist andinn. Hún barðist hetjulega til síðustu stundar, ekki af örvæntingu, heldur vegna þess að henni fannst of miklu ólokið af því sem hana langaði til að gera. Ágúst og Rakel Steinunn kveðja ömmu Tótu með söknuð í hjarta, ömmu sem alltaf var til staðar og gott var að kúra hjá þegar illa áraði í litlum hjörtum. Helga, Engilbert, Dagný, Heiðar, Jóna Stína, Bjarney og Helga Bettý. Ég votta ykkur samúð mína. Mig langar í lokin að skilja eftir fyrir þig, Tóta mín, lítið ljóð sem ég veit að þér myndi þykja fallegt: Svo vertu blessuð, blíða og bjarta, göfga sál ! Nú hljóðnar harpan mín og mér harmur stillir mál. Í nafni allra’, er unna þér, af alhug kveð ég nú,- og ljóðsveig þennan legg ég á þitt leiðı́ í von og trú. (Guðmundur skólaskáld) Hjalti Tómasson. Vinahópurinn er horfinn og það á tæpu ári. Einhver hlýtur tilgangur- inn að vera, það kemur ekki annað til. Sjálfsagt fáum við að vita eitthvað um þessi mál þegar að okkar kveðju- stund kemur en ykkur þremur hlýtur að vera ætlað að vinna verkefni hand- an móðunnar í guðsríki. Elsku Tóta mín, eins og ég kallaði þig alltaf, mig langar að minnast á öll ferðalögin sem þið fóruð í saman bæði innan- lands sem utan, þegar við sátum yfir kaffibolla og rifjuðum upp skemmti- leg atvik og var mikið hlegið af því sem gerðist í þessum stórskemmti- legu ferðum. Oft var hellt uppá sterkt kaffi sem þú baðst sérstaklega um því nú ætlaði mín að hvolfa bolla og spá, og það gerðirðu með stæl þannig að fólk rak upp stór augu eða maður pissaði á sig út hlátri, orðaforðinn þinn var stórskemmtilegur, oft var nú gaman hjá okkur Tóta mín. Ef þér fannst einhver ekki nógu tillitssamur í munninum þá sagðir þú: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“. Þú varst alltaf svo nærgætin við allt og alla. Til þín frá mér, þetta var okkar orðatiltak þegar við gáfum hvor annarri rós eða bara einhvern hlut. Aldrei gleymi ég hvað þú varst hjálpleg við mig á erf- iðum tímum. T.d færðir þú mér gull- fallegan ramma með uppáhalds bæn- inni þinni og ætla ég að leifa henni að fylgja þér. Til þín frá mér. Ljúfi Drottinn lýstu mér svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni (Gísli á Uppsölum). Nú er komið að kveðjustund. Kæra vinkona ég kveð þig hinstu kveðju með söknuði, þakklæti og virðingu fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér. Megi guðs englar vaka yfir þér. Þú varst hetja. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Nú hnígur sól að sævar barmi sígur húm á þreytta jörð. Nú blikar dögg á blóma hvarmi, blundar þögul fuglahjörð. Í hljóðrar nætur ástar örmum, allir fá hvíld frá dagsins hörmum. (Axel Guðmundsson.) Þó í okkar feðra fold falli allt sem lifir, enginn getur mokað mold minningarnar yfir (Bjarni Jónsson frá Gröf) Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Elsku Tóta mín, minning þín lýsir upp allan heim- inn. Aðstandendum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið Drott- in að vaka yfir þeim. Þín vinkona Ingibjörg H.W. Guðmundsdóttir. Við fráfall vinkonu okkar og frænku langar okkur að minnast hennar með örfáum orðum. Minning- arnar eru margar og góðar. Hún var hlý, góð og traust persóna. Við bjugg- um í sömu götu við Suðurengi á Sel- fossi í mörg ár og dætur okkar voru sem systur þá og enn í dag. Við fórum saman í útilegu í Galtalæk á sumrin. Var það skemmtilegur tími og sam- gangur fjölskyldna okkar mikill á þessum árum. Endalausar minningar streyma fram á svona stundu og maður veltir fyrir sér af hverju ekki eldri mann- eskja en hún er tekin frá fjölskyldu sinni. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er og illvígur sjúkdómur sótti hana heim. Tókst Þórunn á við hann af miklu æðruleysi. Elsku Þórunn okkar, lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum en núna hefur þú fundið hvíldina. Minn- ingin um góða konu lifir um ókomna tíð. Guð blessi fjölskyldu Þórunnar, dætur, foreldra, systkini og fjölskyld- ur þeirra og megi hann styrkja þau í þessari sorg. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur, mín veri vörn í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Gréta, Marý og fjölskylda. Kveðja frá Framsóknarfélagi Vestmannaeyja Þegar maður hugsar um hana Þór- unni koma orðin æðruleysi og um- hyggja fyrst fram í hugann. Það er nefnilega fátt sem segir manni meira um manneskjur en hvernig þær tak- ast á við áföll í lífinu. Hvernig þær glíma við ástvinamissi, sjúkdóma og dauðann. Hún Þórunn vinkona okkar mátti fást við meira en margur en aldrei heyrði maður hana samt kvarta. Æðruleysið var hennar einkenni, allt fram á síðustu stundu og umhyggja fyrir öðrum var henni ávallt ofar í huga en áhyggjur af eigin líðan. Þeg- ar við hjónin hittum hana í síðasta sinn fyrir nokkrum vikum lá hún á sjúkrahúsinu á Selfossi og ljóst að ekki væri langt eftir. Hún vildi samt helst ræða nýliðið prófkjör Fram- sóknarflokksins í Suðurkjördæmi og eftirmála þess. Hún hafði fylgst vel með prófkjörsbaráttunni og mætti galvösk á kjörstað til að styðja sitt fólk. Svona var Þórunn. Umhyggja hennar fyrir vinum sínum og fjöl- skyldu litaði líka allt hennar pólitíska starf. Velferðarmál voru henni hug- leikin og sinnti hún þeim af kappi í starfi fyrir Framsóknarflokkinn. Í Eyjum sat hún í nefndum fyrir flokk- inn auk þess að sitja í stjórn Fram- sóknarfélags Vestmannaeyja. Nú kveðjum við því ekki aðeins samstarfskonu og flokkssystur, við kveðjum góðan vin. Þau ár sem við áttum með Þórunni voru allt of fá, en við getum bara vonað að þau hafi gef- ið henni jafnmikið og þau gáfu okkur. Með sorg í hjarta sendum við ætt- ingjum hennar og vinum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Nú verðum við að fylgja fordæmi Þórunnar, horfa æðrulaus fram á veginn og muna að fjölskylda okkar og vinir eru það dýrmætasta sem við eigum. Sigurður E. Vilhelmsson formaður Framsóknarfélags Vestmannaeyja MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 41 jú, talandi um mat, uppskriftir og fleira og hlógum okkar eftirtekt- arverða hlátri sem í allri ættinni er orðinn frægur. Mig langar að lok- um að láta fylgja hér litla vísu sem þér þótti svo falleg og sem er ein af fáum vísum sem þú hafðir aldrei heyrt og ég gat kennt þér, amma mín, eða öllu heldur hann Víðir sonur minn. Þegar hann var þriggja ára þá stóð hann uppi á litla rauða plussstólnum þínum og söng þetta hástöfum fyrir þig þeg- ar hann kom úr leikskólanum. Ég gæti talað endalaust um þig, elsku amma mín. Ég sakna þín svo sárt og í einlægni minni og trú veit ég að þú munt fylgjast með mér og mínum. Trú mín er líka sú að þú sért búin að hitta afa og Viktor og gleðst ég yfir því. Frost er úti, fuglinn minn, ég finn hvað þér er kalt. Nærðu engu í nefið þitt, því nú er frosið allt? En ef þú bíður augnablik, ég ætla að flýta mér að biðja hana mömmu mína um mylsnu handa þér. (Höf. ók.) Þín Inga. ✝ Elskulegur faðir okkar, ÞORVALDUR RUNÓLFSSON, Álfhólsvegi 17, Kópavogi, lést á hjartadeild LSH fimmtudaginn 15. mars Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Pálína Þorvaldsdóttir, Sóley Þorvaldsdóttir, Auður Þorvaldsdóttir, Dröfn Þorvaldsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÞRÁINN GUÐMUNDSSON fyrrverandi skólastjóri, Sóleyjarima 1, Reykjavík, lést á Kanaríeyjum þriðjudaginn 20. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Margrét Guðmundsdóttir, Ingibjörg Þráinsdóttir, Guðmundur Ómar Þráinsson, Bergþóra Haraldsdóttir, Hulda Þráinsdóttir, Helgi Kristinn Hannesson, Margrét Þráinsdóttir, Lúðvík Þráinsson og barnabörn. ✝ TÓMAS TÓMASSON er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR EIRÍKA GÍSLADÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fimmtu- daginn 22. mars. Útförin verður auglýst síðar. Rafn Kristjánsson, Ingibjörg Rafnsdóttir, Magnús Rafnsson, Arnlín Óladóttir, Sigríður Rafnsdóttir, Rafn Jónsson, Auður Rafnsdóttir Bett, James Bett, Hjördís Rafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.