Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 46

Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 46
46 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Sunnudagaskólar Garðaprestakalls á faraldsfæti Sunnudaginn 25. mars eru ferm- ingar í Garðaprestakalli. Í tilefni af því verður sunnudagaskóli Garða- sóknar í Garðakirkju. Farið verður með rútu frá Vídalínskirkju kl. 11 yfir í Garðakirkju. Sunnudagaskól- inn er í umsjá Ármanns H. Gunn- arssonar æskulýðsfulltrúa. Boðið verður upp á hressingu að stund- inni lokinni. Sunnudagaskólinn í Bessastaðasókn fer í óvissuferð þennan dag af því að þetta er síð- asta samveran á þessari önn. Farið verður með rútu frá íþrótta- miðstöðinni á Álftanesinu kl.11, en það er komið aftur heim kl. 12. Sunnudagaskólinn er í umsjá Krist- jönu Thorarensen leikskólakenn- ara. Allir velkomnir. Kirkjustarf eldri borgara Á undarförnum árum hafa Elli- málaráð Reykjavíkurprófastsdæma og kirkjurnar í prófastsdæmunum staðið fyrir sameiginlegri föstuguð- sþjónustu sem er sérstaklega ætluð eldri borgurum. Að þessu sinni verður guðsþjónustan í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 29. mars kl. 14. Prestar eru sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar Stef- ánsson. Djákni er Ragnhildur Ás- geirsdóttir. Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðriks- sonar og orgelleikari er Lenka Má- téová. Eftir guðsþjónustuna eru kaffiveitingar í boði Fella- og Hóla- sóknar. Allir eru velkomnir og eru eldri borgarar sérstaklega hvattir til að taka þátt í guðsþjónustunni þennan dag. Hvað er gott kynlíf Sunnudagskvöldið 25. mars kl. 20.30 verður hjóna- og sambúð- armessa í Garðakirkju. Þetta eru uppbyggjandi og endurnærandi kvöldmessur þar sem hlúð er að sambúð fólks með ráðgjöf, tónlist og fyrirbæn. Í þessari messu mun Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkr- unar- og kynfræðingur, flytja er- indi sem ber yfirskriftina „Hvað er gott kynlíf“. Aðalheiður Þorsteins- dóttir, Tómas R. Einarsson og Anna Sigga Helgadóttir leiða lofgjörðina, en prestarnir Jóna Hrönn Bolla- dóttir og Friðrik J. Hjartar þjóna fyrir altari. Allt fólk er velkomið, óháð aldri og kynhneigð. Sjá www.gardasokn.is Kvikmyndasýning í Landakoti: „The shoes of the fisherman “ „Í fótspor fiskimannsins“ Mánudaginn 26. mars er þessi magnaða mynd eftir skáldsögu Morris L. West og er stórkostlegur lokapunktur kvikmyndasýninga þessa vetrar. Anthony Quinn leikur rússnesk- kaþólskan biskup, Kiril Lakota, sem lengi hefur verið fangi í fanga- búðum í Síberíu. Sovéski leiðtoginn og fyrrverandi fangavörður hans (Sir Laurence Olivier) lætur hann lausan og sendir hann til Rómar í þeirri von að hann geti verið nyt- samlegur í þeim deilum sem Sov- étríkin og heimurinn allur glímir við. Heimurinn er á barmi kjarn- orkustríðs. Í Róm er Lakota fyrst sæmdur kardínálatign. Skömmu seinna deyr páfinn og páfakjörið hefst. Og það sem enginn getur ímyndað sér gerist: Kiril Lakota er kjörinn páfi, fyrstur erlendra páfa eftir 400 ár … Nú reynir á hvort hann getur eitthvað gert í þessum miklu erfiðleikum sem ögra framtíð mannkynsins. Myndin hefur hreppt mörg verð- laun (tvisvar Academy Awards, Golden Globe). Athyglisvert er m.a. að sjá hvernig páfakjör fer fram fyrir luktum dyrum. Myndin er frá 1968 og notar heimildarmyndir frá andláti Jóhannesar XXIII. páfa og kjöri Páls VI. páfa. Hún er sýnd á ensku með enskum texta. Sýningin hefst kl. 19.30 í safnaðarheimilinu á Hávallagötu 16 og tekur u.þ.b. 2 1⁄2 tíma. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Selfosskirkja. Messa 25. mars kl. 11., 5. sunnudag- ur í föstu. Hjónin Eyjólfur Stur- laugsson og Guðbjörg Hólm Þor- kelsdóttir lesa ritningarlestra. Barnasamkoma kl. 11.15 í lofti Safnaðarheimilisins. Sama dag kl. 14.30: Guðsþjónusta á Ljósheimum. Sama dag kl. 15.15: Guðsþjónusta í Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Þriðjudagur 27. mars: Kirkjuskóli í Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu kl. 14.00. Miðvikudagur 28. mars: Foreldramorgunn í Safnaðarheim- ilinu kl. 11.00. Heimsókn frá leik- skóla. Opið hús og spjall. Fimmtu- dagur 29. mars: Fundur í Æskulýðsfélagi Selfosskirkju kl. 19.00. Sr. Gunnar Björnsson. Tómasarmessa í Breiðholtskirkju Áhugahópur um svokallaðar Tóm- asarmessur efnir til sjöttu mess- unnar á þessum vetri í Breiðholts- kirkju í Mjódd sunnudagskvöldið 25. mars, kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkju- lífi borgarinnar, en slík messa hef- ur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu níu ár. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbæn- arþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbún- ingi og framkvæmd Tómasarmess- unnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Ensk messa í Hallgrímskirkju Sunnudaginn, 25. mars nk. kl. 14 verður haldin ensk messa í Hall- grímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Prédikun flytur Þorgils Hlynur Þorbergsson cand. theol. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. Guðrún Finn- bjarnardóttir mun leiða almennan safnaðarsöng. Sjötta árið í röð er boðið upp á enska messu í Hall- grímskirkju síðasta sunnudag hvers mánaðar. Messukaffi. Service in English Service in English at the Church of Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 25th of March, at 2 pm. Holy Comm- union. The Fifth Sunday of Lent. Celebrant: TheRevd Bjarni Thor Bjarnson. Preacher: Þorgils Hlynur Þorbergsson, cand. theol. Organist: Björn Steinar Sólbergsson. Leading singer: Guðrún Finnbjarnardóttir. Refreshments after the Service. Umfjöllun og spjall um eilíft líf á mann- ræktar kvöldi í Laugarneskirkju Að loknum kvöldsöng í Laugarnes- kirkju þriðjudagskvöldið 27. mars 2007, sem hefst kl. 20, mun Sig- urbjörn Þorkelsson rithöfundur og framkvæmdastjóri og meðhjálpari kirkjunnar bjóða upp á umfjöllun og spjall um hið eilífa líf. Hvernig eignast maður eilíft líf? Í hverju er það fólgið? Hvernig lítur það út? Er það einhver aðgerð eða meðferð eða e.t.v. eitthvað ofan á brauð? Er eftirsóknarvert að öðlast eilíft líf? Á sama tíma koma 12 spora hópar kirkjunnar saman til að halda áfram sinni góðu vinnu og sínu and- lega ferðalagi. Umsjón hefur Guð- rún K. Þórsdóttir djákni. Það er Þorvaldur Halldórsson sem leiðir kvöldsönginn í kirkjunni ásamt Gunnari Gunnarssyni, tónlistar- stjóra Laugarneskirkju. Allir vel- komnir Fjölskyldudagar Laugarneskirkju í Vatnaskógi Ertu að grínast í mér? - - Hvenær urðu samskiptin svona snúin? Er yf- irskrift fjölskyldudaga Laugarnes- kirkju sem haldnir verða í Vatna- skógi föstudaginn 30. og laugardaginn 31. mars 2007. Þar mun Hafliði Kristinsson fjöl- skylduráðgjafi fjalla um samskipti foreldra og unglinga undir yf- irskriftinni hér að ofan. Boðið verð- ur upp á kjarngott og samfélagsefl- andi fæði, bæði andlegt og líkamlegt. Leikir, íþróttir, göngu- ferðir, kvöldvaka. Samvera og spjall um lífið, trúna og tilveruna. Um einstakt tilboð er að ræða! Einstakt tækifæri! Það er mun ódýrara að taka þátt í fjöl- skyldudögunum en að vera heima. Sjá nánari dagskrá og upplýsingar á heimasíðu Laugarneskirkju www.laugarneskirkja.is. Þar er einnig hægt að skrá sig til þátttöku. Síðasti skráningardagur er á þriðjudaginn 27. mars 2007. Boðunardagur Maríu í Hallgrímskirkju Fræðsla, helgihald, tónleikar. Sunnudagur í Hallgrímskirkju hefst á Fræðslumorgni í suð- ursalnum kl. 10. Dr. Þóra Kristjáns- dóttir, list- og sagnfræðingur, held- ur erindi sem hún nefnir: Hin mörgu andlit Maríu í Þjóðminja- safninu. Í messunni kl. 11 prédikar sr. Jón D. Hróbjartsson og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgir Ás- geirssyni. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Björns Steinars Sólbergs- sonar organista. Messuþjónar eru úr röðum Listvinafélagsins, en í messunni verður safnað til Listvina- félags Hallgrímskirkju, sem í ár fagnar sínu 25. starfsári. Barna- starfið er á sama tíma. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa. Kl. 14 er ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og for- söngvari Guðrún Finnbjarn- ardóttir. Fimmtu sálmatónleikar Listvinafélagsins hefjast kl. 17 og bera yfirskriftina Faðmur. Þar syngur Kirstín Erna Blöndal, sópr- an, um huggun og von. Flytjendur með henni eru: Örn Arnarsson, gít- ar, Gunnar Gunnarsson píanó og Jón Rafnsson, bassi. Helgihald í Kolaportinu Sunnudaginn 25. febrúar kl. 14 verður helgihald í Kolaportinu í „Kaffi Port“. Um leið og gengið er um og bænarefnum safnað, eða frá kl. 13.30, syngur og spilar Þorvald- ur Halldórsson ýmis þekkt lög bæði eigin og annarra. Hann annast einnig tónlistina í helgihaldinu. Ragnheiður Sverrisdóttir djákni og sr. Þorvaldur Víðisson munu leiða samveruna og prédika. Að venju er boðið upp á að koma með fyrirbæn- arefni og munu Margrét Scheving, Ragnheiður og sr. Þorvaldur biðja með og fyrir fólki. Allir eru vel- komnir. Miðborgarstarfið. Sólheimakapella í Mýrdal Guðsþjónusta verður í Sólheima- kapellu í Mýrdal, nk. sunnudag, 25. mars, kl. 14. Kristín Björnsdóttir leikur á orgel og stjórnar almenn- um safnaðarsöng. Fjölmennum. Sóknarprestur Kirkjuskólinn í Mýrdal Munið samveru Kirkjuskólans í Mýrdal í grunnskólanum í Vík laug- ardaginn 24. mars nk. kl. 11.15. Sóknarprestur. Úthlíðarkirkja. Á undanförnum misserum hefur at- hygli manna mjög beinst að skák- mönnum á borð við Topalov, Anand, Kramnik og Leko. Þetta eru óneitan- lega frábærir skákmenn sem koma vel fyrir, kunna sína lexíu, tefla af ör- yggi, klæðaburður þeirra er óaðfinn- anlegur og mætti auðveldlega rugla þeim saman við bankamenn á morg- unverðarfundi. En það er samt eitt- hvað sem vantar. Er skákheimurinn hættur að tefla fram stórum og litrík- um karakterum? Um daginn lýsti hinn kunni kylf- ingur Arnold Palmer svipuðu and- rúmlofti meðal fremstu kylfinga; eng- inn snarar lengur skröltormi upp úr hreiðri sínu eins og hinn gamansami kylfingur frá Mexíkó, Lee Trevino, gerði á golfmóti árið 1971. Á Amber-mótinu sem nú stendur yfir í Mónakó og kennt er við dóttur auðjöfursins og upphafsmannsins Jo- op von Osterom, Melody Amber, bein- ast augu manna nú skyndilega að úkraínska stórmeistaranum Vasilij Ivantsjúk sem leiðir mótið. Tefld er tvöföld umferð, atskákir og blindskák- ir. Staðan eftir 2x5 umferðir er þessi: 1.–3. Vasilí Ivantsjúk, Lev Aronjan og Valdimir Kramnik 7,0 v. hver. 4. Peter Svidler og Wisvanathan Anand 6 v. hvor. 6.–7. Boris Gelfand og Pet- er Leko 5 v. hvor. 8. Alexander Mo- rozevich 4 ½ v. 9. Magnus Carlsen 4 v. 10. Teimour Radjabov 3 ½ v. 11. Vallejo Pons 3 v. 12. Loek Van Wely 2 v. Það er eitthvað í fari Ivantsjúk sem felur mönnum vel í geð. Hið virta skáktímarit New in chess kallar Iv- antsjúk einfaldlega meistara fólksins í umfjöllun sinni um hið árvissa Capa- blanca-mót í Havana á Kúbu. Ivantsjúk er ekki sundurgerðar- maður í klæðaburði en lætur það ekki eftir sér að tefla við gesti og gangandi. Eftir mótið sat hann klukkutímum saman að tafli við unga þarlenda skákmenn. Slíkt kunnu eyjaskeggjar vel að meta. Ivantsjúk kom fyrst til Íslands árið 1990 þegar Stórveldaslagurinn svo- nefndi fór hér fram. Hann vakti enn meiri athygli ári síðar á heimsbikar- móti Stöðvar 2 þegar hann deildi efsta sæti með Anatolij Karpov. Menn tóku eftir því að þegar sat að tafli virtist hann vera í einhverri leiðslu, ósjaldan horfði hann út um gluggann, upp í rjáfur eða í „gegnum“ andstæðinginn. Sumir héldu að maðurinn væri nörd. En í lokahófinu, sem varð nokkuð frægt, flutti hann mikinn ljóðabálk á rússnesku og þá varð mönnum ljóst að hér var á ferðinni sannkallaður orig- inal. Lítum á skák hans úr fyrstu umferð í Mónakó þar sem hann leggur besta Hollendinginn til margra ára. Þó um- hugsunartími sé minni en í venjulegri kappskák þarf það ekki aðkoma niður á gæðunum. Skákin snýst fyrst og Athyglin beinist að Ivantsjúk MeistarI fólksins Vasilí Ivantsjúk að tafli í Havana á Kúbu. Skák Amber-mótið í Mónakó 17.–29. mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.