Morgunblaðið - 24.03.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 51
65ára afmæli. Í dag, 24.mars, verður 65 ára
Gerður R. Sveinsdóttir,
Hjallabraut 82, Hafnarfirði.
Hún er erlendis ásamt sam-
býlismanni, Sigurði Jóhanns-
syni, á afmælisdaginn.
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem oss mun opinberast. (Rm. 8, 18.)
Tónlist
Akureyrarkirkja | Vortónleikar
KvAk í dag kl. 16. Einsöngvarar:
Hildur Tryggvadóttir, Hólmfríður
Þorsteinsdóttir, Linda Guð-
mundsdóttir, Sigríður H. Arn-
ardóttir, Snæfríð Egilson. Stjórn-
andi: Arnór B. Vilbergsson.
Undirleikarar: Helga Bryndís
Magnúsdóttir á píanó, Halli Gulli
á slagverk.
Dillon | Grasrætur spila í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 22, frítt
inn.
Narfeyrarstofa | í Stykkishólmi.
Kvartett Hauks Gröndal leikur í
kvöld kl. 22. Á efnisskránni er
djasstónlist frá 4. og 5. áratugn-
um með áleitna sveiflu í fyr-
irrúmi. Aðgangseyrir 1.000 kr.
Norræna húsið | Richard Wag-
ner-félagið sýnir fjórðu og síð-
ustu Niflungahringsóperuna,
Ragnarök, á morgun kl. 13. Um
er að ræða myndbandsupptöku
frá Festspielhaus í Bayreuth árið
1992. Leikstjóri sýningarinnar er
Harry Kupfer og hljómsveit-
arstjóri er Daniel Barenboim. All-
ir velkomnir.
Salurinn, Kópavogi | Sunnudag-
inn 25. mars kl. 14. Kvennakór
Kópavogs var stofnaður árið
2002 af Natalíu Chow Hewlett.
Kórinn hyggur á kórakeppni í
Búdapest á 5 ára starfsafmæli
sínu. Stjórnandi er Natalía Chow,
undirleikari er Julian Hewlett.
Einnig koma fram Regína Ósk og
Englakórinn, sem skipaður er
3–7 ára börnum. Miðaverð:
1500/1200 kr., frítt fyrir 12 ára
og yngri. Uppl. í s. 570 0400 og
á salurinn.is.
Þjóðarbókhlaðan | Grove Music,
stærsta tónlistargagnasafn í
heimi, verður kynnt í fyrirlestr-
arsal í dag kl. 11.30–12.
Skemmtanir
Lukku-Láki | Hljómsveitin Signia
spilar í kvöld.
Rocco | Karlakór Eyjafjarðar og
hagyrðingar á 1929 (gamla Odd-
vitanum) í kvöld. Húsið opnar kl.
20.30.
Myndlist
Anima gallerí | Bjarni Sig-
urbjörnsson. Iður, málverkainn-
setning. Olía á plexígler. 24.
mars – 15. apríl. Opið kl. 10–22
alla daga. www.animagalleri.is.
Listasafn ASÍ | Um helgina lýkur
tveimur sýningum í Listasafni
ASÍ. Guðrún Kristjánsdóttir –
Veðurfar. Hún hefur um árabil
fágað og dýpkað nálgun og sýn á
landslagsmyndina, í málverkum
og öðrum miðlum. Etienne de
France – Live sucks! Ljósmyndir
sem fjalla um sýndarsamfélagið.
Opið kl. 13–17. Aðgangur ókeypis.
Menningarmiðstöð Fljótsdals-
héraðs | Kvikmynda- og vídeó-
listahátíðin 700IS Hreindýraland
verður haldin í annað skiptið á
Egilsstöðum og nágrenni í ár.
500 listamenn sóttu um að fá að
sýna myndir og voru 100 valdar
til sýningar. Sjá nánar á vefsíð-
unni www.700.is. Ókeypis er á
alla viðburði hátíðarinnar.
Þjóðarbókhlaðan | Grove Art-
gagnasafnið, sem er stærsta
myndlistargagnasafn í heimi,
verður kynnt í fyrirlestrasal í dag
kl. 11–11.30.
Söfn
Minjasafnið á Akureyri | Hörður
Geirsson, safnvörður ljós-
myndadeildar, mun veita gestum
innsýn í þróun ljósmynda-
tækninnar frá 1820 fram til okk-
ar daga í dag kl. 14. Einnig segir
hann frá tilurð ljósmyndasýning-
arinnar Þekkir þú … híbýli mann-
anna?
Uppákomur
Kaffitár, Kringlunni | Leirlist-
arfélag Íslands opnar sýningu á
bollum í dag kl. 10.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist
í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á
morgun, sunnudag, kl. 14.
Thorvaldsensfélagið | Hádeg-
isverðarfundur verður á hótel
Nordica í dag kl. 12. Góðir gestir
koma. Mætum vel.
Kvikmyndir
Skriðuklaustur | Sunnudaginn
25. og laugardaginn 31. mars
verða heimildarmyndir og list-
rænar myndir sýndar á Skriðu-
klaustri kl. 13–18. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir.
Fyrirlestrar og fundir
Félagsheimili Samtakanna ’78 |
FAS og Samtökin ’78 kynna
samstöðu- og fræðslufund í dag
kl. 15 í húsnæði Samtakanna ’78
fyrir homma, lesbíur, foreldra,
ættingja og vini. Boðið verður
upp á forvitnilegt og skemmti-
legt efni sem tengist því að vera
samkynhneigður eða aðstand-
andi samkynhneigðra og hafa
áhuga á málefninu. Allir vel-
komnir.
Maður lifandi | Borgatúni 24.
Opinn hláturjógatími Hlát-
urkætiklúbbsins í dag kl. 10.30.
Aðgangseyrir er 1000 kr. Allir
velkomnir. Ásta Valdimarsdóttir
hláturjógakennari leiðbeinir.
Auglýstu atburði
á þínum vegum
hjá okkur
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistar-
sýningar
• Leiksýningar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mann-
fagnaði
árnað heilla
ritstjorn@mbl.isdagbók
Í dag er laugardagur 24. mars, 83. dagur ársins 2007
Ídag, laugardag, standa FAS –samtök foreldra og aðstandendasamkynhneigðra, í samstarfi viðSamtökin ’78 fyrir kynningar- og
fræðslufundi undir yfirskriftinni Ég er í
Samtökunum ’78.
Dagskráin stendur frá 15 til 17 og er
haldin í húsakynnum Samtakanna ’78 á
Laugavegi 3, 4. hæð.
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir er for-
maður FAS: „Félagið var formlega
stofnað 2003 en hefur starfað frá árinu
2000. Starf okkar felst meðal annars í að
halda mánaðarlega stuðnings- og um-
ræðufundi yfir vetrarmánuðina, fræða
um samkynhneigð og málefni samkyn-
hneigðra, og vinna að réttarbótum fyrir
þennan þjóðfélagshóp og aðstandendur
þeirra,“ segir Ingibjörg. „Með dagskrá
laugardagsins viljum við sýna gestum
okkar ýmsa þætti úr lífi samkyn-
hneigðra, og um leið hvetja ættingja og
aðstandendur samkynhneigðra til að
gerast meðlimir í Samtökunum ’78 og
styrkja þannig það góða fræðslustarf og
réttindabaráttu sem þar er unnin.“
Ingibjörg segir að ekki vanþörf á fé-
lagsskap fyrir aðstandendur samkyn-
hneigðra að fræðast og styrkjast:
„Margir upplifa að þeir þurfa að fræð-
ast betur um samkynhneigð til að geta
staðið sem best við bakið á samkyn-
hneigðum ættingja eða vini. Þar til ný-
lega ríkti mikil þögn um málefni sam-
kynhneigðra og mörg okkar hafa ekki
fengið að læra um samkynhneigð sem
jákvæðan og eðlilegan hlut í litrófi sam-
félagsins,“ segir Ingibjörg.
Stuttmyndir og erindi
Á dagskránni í dag er meðal annars
sýning á myndbroti úr heimild-
arkvikmyndinni Hrein og bein, og sýn-
ing stuttmyndarinnar Góðir gestir eftir
Ísold Uggadóttur. „Flutt verða styttri
erindi þar sem fyrirlesarar segja frá
fyrstu hendi af þeirri upplifun að koma
út úr skápum eða vera foreldri barns
sem hefur hugrekki til að stíga þetta
skref. Sagt verður frá rannsókn á til-
finningalífi fjölskyldunnar, og frá
fræðsluverkefni meðal kennara í grunn-
skólum.“
Nánari upplýsingar um dagskrá
laugardagsins má finna á heimasíðu
Samtakanna ’78 á slóðinni www.sam-
tokin78.is
Fjölskylda | Fræðsludagskrá í Samtökunum ’78, Laugavegi 3, í dag frá kl. 15 til 17
Samkynhneigð og fjölskylda
Ingibjörg S.
Guðmundsdóttir
fæddist á Ísafirði
1942. Hún lauk
námi í hjúkrun í
Ósló 1965 og BS-
námi frá Háskóla
Íslands 1987. Ingi-
björg hefur starfað
við hjúkrun um
langt skeið, nú á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi, Landakoti. Hún hef-
ur verið formaður FAS frá 2006 og
starfað með félaginu frá upphafi. Ingi-
björg er gift Bergi Felixssyni, fyrrv.
framkvæmdastjóra, og eiga þau fjög-
ur börn.
LEIKFÉLAG Hólmavíkur
frumsýnir Þið munið hann
Jörund eftir Jónas Árnason í
kvöld kl. 20.30 í Félagsheim-
ilinu á Hólmavík. Næsta sýn-
ing er á morgun kl. 15.
Leikfélag Hólmavíkur var
stofnað 3. maí 1981. Áður
hafði þó löngum verið leikið á
Ströndum, undir merkjum
ýmissa ólíkra félagasamtaka.
Miðapantanir eru í síma: 865 3838.
Leikfélag Hólmavíkur
Þið munið hann Jörund
Félagsstarf
Dalbraut 18–20 | Fjölbreytt félagsstarf alla daga. Mánudaga
myndlist, leikfimi, brids. Þriðjudaga félagsvist. Miðvikudaga
samvera í setustofu með upplestri. Fimmtudaga söngur með
harmonikuundirleik. Föstudaga postulínsmálun og útivist þeg-
ar veður leyfir. Heitt á könnunni og meðlæti.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dag-
skrá, opnar vinnustofur, spilasalur, létt ganga um nágrennið,
o.fl. Fimmtud. 29. mars kl. 13.15 „Kynslóðir saman í Breiðholti“
félagsvist, samstarf eldri borgara og Fellaskóla, Garðheimar
veita vegleg verðlaun, allir velkomnir. Strætisvagnar S4, 12 og
17 stansa við Gerðuberg.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans í Ásgarði, Stangarhyl 4, í
kvöld kl. 20 og dans að henni lokinni. Hilmar Sverrisson leikur
fyrir dansi.
Kirkjustarf
Boðunarkirkjan | Hlíðasmára 9, 3. hæð. Kópavogi. Samkoma í
dag kl. 11, allir hjartanlega velkomnir.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með 2ja daga
fyrirvara virka daga og 3ja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. H;gt er að
hringja í s. 569-1100 eða sent
á netfangið ritstjorn@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2, 110 Rvk
HELGINA 30. mars – 1. apríl verða
kyrrðardagar með jógaívafi í Skál-
holti í umsjá sr. Jakobs Hjálm-
arssonar dómkirkjuprests og Ás-
laugar Höskuldsdóttur jógakenn-
ara.
Dagskráin er fjölbreytt þar sem
blandað er saman kennslu í jóga-
leikfimi, uppbyggilegum hugleið-
ingum, samveru í kirkju og kapellu
og hollri, íslenskri fæðu. Kyrrð-
ardagarnir hefjast á föstudaginn
kl. 18 með tíðagjörð í Skálholts-
dómkirkju og þeim lýkur upp úr
hádegi á sunnudag. Helgin kostar
14.000 kr.
Skráning fer fram í síma
486 8870 eða á netfanginu rekt-
or@skalholt.is. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kyrrðar-
dagar í
Skálholti FJÓRÐA umferðin í WPSA-mótaröðinni ísnjókrossi fer fram í miðbæ Ólafsfjarðar í
dag, laugardaginn 24. mars.
Búið er að gera braut í miðbænum og er
aðstaða fyrir áhorfendur eins og best
verður á kosið. Ástæða er til að vekja at-
hygli á tímasetningu mótsins en keppni
hefst kl. 18 á laugardagskvöldið og tekur
um tvo tíma. Allir bestu snjókrossöku-
menn landsins mæta og hart verður barist
um stig til meistaratitla, segir í tilkynn-
ingu.
Snjókross í miðbæ
Ólafsfjarðar
Sævar Helgi
Lárusson
Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur hjá
Rannsóknanefnd umferðarslysa, var sagður
Jónsson í frétt blaðsins í gær. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT