Morgunblaðið - 24.03.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Lífið á
landnámsöld
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
JÁ... ÆTLI HÚN SÉ EKKI
MEÐ STERKA LEGGI...
JÁ... OG GÓÐAR
TENNUR
PABBI, ÞETTA ER KÆRASTAN MÍN... ÉG
ER EKKI AÐ KAUPA HANA Á UPPBOÐI
ÞAÐ ER BARA
ÞRENNT SEM
SKIPTIR BÓNDA
MÁLI
MÉR
FANNST ÉG
FINNA
PÍTSU LYKT
ÉG GÆTI BORÐAÐ
TUTTUGU TOMMU
PÍTSU ÁN ÞESS AÐ
BLIKNA
LAND
FRAM-
UNDAN!!
TAKK FYRIR AÐ
LÁTA OKKUR VITA
EN ÉG HELD AÐ
ÞÚ ÆTTIR AÐ
VINNA AÐEINS Í
TÍMASETNINGUNNI
SJÁÐU, GRÍMUR! ÉG
FÉKK HELLO KITTY ÚR Í
AFMÆLISGJÖF! ÞAÐ
SEGIR ALLTAF „HELLO
KITTY“ Á HEILA
TÍMANUM
ÉG FÉKK LÍKA
HELLO KITTY
ILMOLÍU OG
HELLO KITTY
TÖSKU!
FÉKKSTU
NOKKUÐ
HELLO KITTY
ÆLUPOKA?
MMM...
ÞAÐ ER
BLÓMA-
LYKT AF
ÞESSU
ROSALEGA ER ÉG UPPGEFIN NÚNA LANGAR MIG BARA
TIL ÞESS AÐ LEGGJAST UPP Í
RÚM OG NÁ AÐ SOFA EITTHVAÐ
ÉG VERÐ AÐ KOMA Í VEG
FYRIR AÐ HANN KOMIST AÐ ÞVÍ
AÐ ÉG SÉ EKKI Í RÚMINU
LÆKNIR, GÆTI ÉG NOKKUÐ
FENGIÐ AÐ EIGA VIÐ ÞIG ORÐ?
SJÁLFSAGT
HJÚKRUNARKONAN
KEMUR TIL BJARGAR
dagbók|velvakandi
Allir fái að kjósa á Stór-
Reykjavíkursvæði
Undirrituðum finnst að Hafnarfjarð-
arkratar eigi ekki að fá að ráða því
hvernig lofti fólkið í Garðabæ, Kópa-
vogi og Reykjavík eigi að anda að
sér. Þeir vilja einir ráða andrúms-
loftinu á Reykjavíkursvæðinu.
Gamlir starfsmenn hjá álverinu eru
nú á launum við að reka áróður fyrir
áframhaldandi álveri og stækkun
þess eins og gráir kettir um allan
Hafnarfjörð. Það ættu allir lands-
menn að taka þátt í þessari atkvæða-
greiðslu í næstu kosningum, það eitt
er réttlæti, allt annað er hreinn
Hafnarfjarðarkratismi á hæsta stigi.
Öll þjóðin eða ekki neinar kosningar
um þetta álmál. Við viljum ráða því
hverju við öndum að okkur en ekki
láta Hafnfirðinga sjá um það.
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
Menntafólk og hugsuði úr
landi, fátæka verkamenn inn
Í BÆJARSTJÓRNAR- og skipu-
lagsmálum í Hafnarfirði hefur
löngum þótt ríkjandi sveitamennska
og viðhorf sem engan veginn sam-
ræmast hugsunarhætti nútímafólks.
Alls konar skipulagsslys sem voru
algeng um 1970 hafa verið að end-
urtaka sig þar á síðustu árum. Má
þar á meðal nefna íbúðablokkina
sem þeir skelltu á túnið fyrir framan
dómshúsið í miðbænum og eyðilögðu
þar með eina samkomusvæði mið-
bæjarins. Síðan hafa uppákomur og
jólamarkaðurinn verið haldin á bíla-
stæði verslunarmiðstöðvarinnar. En
nú tekur steininn úr hvað varðar úr-
eltan hugsanagang Hafnfirðinga. Í
stað þess að unnið verði að því á 21.
öldinni að koma þessu álveri burt úr
bæjarfélaginu er farið í að byggja
íbúðarbyggðina nánast ofan í álverið
og svo á að margfalda stærð þess og
það á þeim tímum er flytja þarf inn
verkamenn í þúsundatali ár hvert.
Maður skal svo sem ekki lá lands-
byggðarfólki þótt það láti sig hafa ál-
ver þar sem búið er að koma allri út-
gerð og kvóta í hendur örfárra
einstaklinga og bæjarfélögin eru að
lognast út af. En að hafa svona
verksmiðju svo gott sem í íbúð-
arbyggð á höfuðborgarsvæðinu er
algjörlega afrískt fyrirbæri. Á með-
an stutt er við álversbyggingar úti
um allar trissur eru hátæknifyr-
irtæki og fjármálastofnanir hraktar
úr landi og þar með rjóminn af okk-
ar menntafólki og hugsuðum, á móti
flytjum við svo inn fólk sem hefur
orðið undir í sínum samfélögum. Á
að fara að skipta um þegna í þessu
þjóðfélagi? Það er að segja mennta-
fólkið út, fátæka verkamenn inn. Í
hvaða umhverfi hrærast þeir sem
tala um að hópinnflutningur fá-
tækra verkamanna auðgi hér mann-
lífið? Ef þessi álversþróun og inn-
flutningur verkamanna verður ekki
stöðvaður missum við brátt þann
sess sem hefur skipað okkur með
Lúxemborg, þ.e. fólksfæð og vel-
megun, svo að lokum situr Ísland
uppi með eintómar álbræðslur og
lágstéttirnar frá Austur-Evrópu.
Ásdís Arthursdóttir,
nemi við hugvísindadeild
Háskóla Íslands.
Mynd eftir Rúnar
Undirritaður veit að á sínum tíma
fékkst Rúnar Gunnarsson tónlist-
armaður við að mála myndir. Þess
vegna datt mér í hug að ef einhver
ætti eftir hann mynd sem viðkom-
andi vildi losa sig við væri gott að
vita um það því svona verk ætti vel
heima á Tónlistarsafni mínu, Mel-
ódíum minninganna, til góðrar varð-
veislu. Hafið samband sem allra
fyrst í síma 456 2186 eða 847 2542.
Jón Kr. Ólafsson söngvari,
Reynimel, 465 Bíldudal.
Vettlingur í óskilum
Útprjónaður svartur vettlingur með
munstri fannst á gangstíg fyrir ofan
Þingasel í Reykjavík. Uppl. í síma
557 4096.
Morgunblaðið/Ómar
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Ferdinand