Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 55

Morgunblaðið - 24.03.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 55 Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg. Flogið er út að morgni föstudagsins langa og komið heim á fimmtudegi eftir páska (aðeins 3 vinnudagar). Prag hefur skipað sér sess sem eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Fararstjórar okkar gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Apríl er frábær tími til að heimsækja borgina - vorið komið á fulla ferð og borgin hreint yndislega falleg. Bjóðum nú frábært tilboð á glæsilegum fimm stjörnu lúxushótelum Hilton Hotel eða Hotel Corintia Towers. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessarar frábæru borgar og njóttu þess að hafa allan aðbúnað í toppi. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Lúxuspáskar í Prag 6.-12. apríl frá kr. 69.990 Ótrúlegt verð - Aðeins 16 herbergi Verð kr. 69.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi, 6. apríl í 6 nætur á Hilton Hotel ***** eða Hotel Corintia Towers ***** með morgunmat. Ath. takmarkaður herbergjafjöldi í boði á hvoru hóteli fyrir sig. Munið Mastercard ferðaávísunina Fimm stjörnu páskar Hilton Hotel ***** eða Hotel Corinthia Towers ***** 6 nátta páskaferð Vodafone live! Nokia 6085 Krúttlegur með Bluetooth, myndavél, útvarpi, steríó heyrnartólum, styður minniskort og fæst í fleiri litum. Ævintýraverð 16.900 kr. Ævintýraleg símatilboð Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.vodafone.is til að fá nánari upplýsingar. Gríptu augnablikið og lifðu núna. spyrja af hverju The Angela Test hafi bombað um leið og hún kom út, þ.e. hún varð lítt sýnileg. Arnar verð- ur fyrir svörum. „Sko … hún gerði náttúrlega ekki neitt þessi plata,“ segir hann. „Ég viðurkenni það alveg að mér finnst að hún hefði átt að gera meira.“ Hallur segir að örlög plötunnar skrifist að einhverjum hluta á þá sjálfa. „Við sinntum ekkert þessum markaði hérna heima og vorum ekki nógu drífandi í kringum þetta ferli. Platan kom út og fór framhjá öllum um leið. Þetta er svolítið skrít- ið … maður er oft spurður að því af hverju það hafi farið svona lítið fyrir þessari plötu. Sumir vita varla að hún hafi komið út.“ Arnar segir að þeir hafi ekkert dvalið við þetta, og hafi síst lagt hendur í skaut. „Maður hefur lært það í þessum bransa að það þarf að horfa stöðugt fram á við, halda áfram og gera meira. Maður er ekkert að svekkja sig of mikið á hlutunum, og snýr sér heldur að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Þetta er líka búið að vera mikið lærdómsferli fyrir okkur í hljóm- sveitinni. Af einhverjum ástæðum vorum við í öllum blöðum eftir fyrstu tónleikana okkar. Hallur hafði aldrei stigið upp á tónleikasvið áður! Miklar væntingar og mikið skrifað og auð- vitað var þetta dáldið fáránlegt.“ Eins og blaðamaður skynjaði þetta á sínum tíma áttu margir einfaldlega bágt með að trúa því hversu góð þessi óþekkta sveit var. Leaves spratt fram fullsköpuð og Hallur seg- ir frá því að sumir hafi haldið að bandið væri sett saman af einhverju liði úti í bæ og það væri verið að smygla þeim bakdyramegin inn(!?) Arnar dæsir. „Ég var búinn að starfa við tónlist í um tíu ár áður en Leaves var stofnuð. Þess vegna virkaði þetta svona full- mótað. En okkur finnst eins og hljómsveitin sé alltaf að verða meiri og meiri hljómsveit. Sú hljómsveit var að reyna að brjótast fram á The Angela Test. Sú plata er frekar dökk og í henni endurspeglast ákveðnar hræringar hjá okkur sjálfum.“ Fyrsta plata Leaves, Breathe, gekk ótrúlega vel erlendis. Sér- staklega með tilliti til þess að þetta var fyrsta plata nær óþekktrar hljómsveitar. Hún fékk góða dóma í helstu tónlistartímaritunum og seld- ist í tugum þúsunda eintaka. Hún hafnaði á árslista Q yfir bestu plötur ársins og Rolling Stone mælti sér- staklega með henni. Þrátt fyrir alla þá velgengni („Í raun meikuðum við það með þessari fyrstu plötu,“ segir Arnar) voru þeir ekki sáttir og ákváðu að hræra upp í hljómsveit- inni. „Við höfðum metnað fyrir mús- íkinni, ekki meiki,“ segir Hallur og kveður fast að. „Meikið var í góðum gír en okkur langaði frekar til að bæta og breyta hvað sjálfa tónlistina varðaði.“ Þröskuldar Síðasta ár hefur svo farið í að vinna áfram með „nýju“ hljómsveit- ina. „Við höfum verið að prufa okkur áfram,“ segir Arnar. „Auk þess sem það þurfti að ljúka ýmsum persónu- legum málum. Þetta getur tekið á. Við vorum búnir að leggja einhvern veginn allt undir og svo er kannski ekkert mikið að koma til baka. En samt … okkur þykir greinilega svo vænt um þessa hljómsveit að við náð- um að komast yfir alla þessa þrösk- ulda.“ Nói segir að hann hafi t.d. komið hálfringlaður heim eftir hausttúrinn 2005. „Það er alltaf pínusjokk að koma aftur í raunveruleikann eftir að hafa búið í rútu í nokkra mánuði. Maður missti áhugann í smátíma en nú er hann kominn aftur. Það er ein- faldlega erfitt að halda fókus þegar ekkert markvisst er að gerast.“ Hallur segir því að nú sé verið að setja meiri kraft í vinnsluferlið á plötunni. Það sé búið að ákveða að platan skuli kláruð fyrir haustið og menn gangi nú glaðbeittir til þeirra starfa. „Við erum allir tengdir frá því að við vorum pínulitlir,“ segir Arnar. „Við vorum saman í íþróttum t.d. Þessi æskutengsl gera mikið í því að halda bandinu saman. Ég get ímynd- að mér að ef ég væri í hljómsveit með einhverjum sem ég hefði kynnst bara í gegnum tónlist hefðu hlutirnir get- að þróast öðruvísi. Það hefur verið alls konar rugl í gangi hjá okkur, fýla og þrúgandi þagnir. En einhvern veginn siglum við í gegnum þetta alltaf.“ Arnar segir að lokum að þeir ætli að belgja sig meira út á þessu ári, en það verði gert á réttum forsendum. Eftir undangengin ævintýr er komin mikil uppsöfnuð reynsla í hópinn og þeir sjá hlutina skýrar og í víðara samhengi. Það er því mikill hugur í Leaves þó að það hafi gengið á ýmsu síðastliðin ár. „Á sínum tíma var okkur kippt inn í þetta og breytingin á lífi okkar varð súrrealísk,“ rifjar hann upp og bros- ir. „Ég og Hallur, sem leigðum sam- an, ætluðum að stofna lítið húsband og leika okkur en áður en við vissum af vorum við farnir að bíða eftir sím- tali frá Dreamworks!“ Tónleikar Leaves verða í Iðnó hinn 28. mars eins og áður segir og er miðaverð litlar 1.000 krónur. arnart@mbl.is Svokallaður vakning-arviðburður verður haldinn ídag í íþróttahúsinu viðStrandgötu í Hafnarfirði í tilefni af fyrirhugaðri stækkun ál- versins í Straumsvík. Yfirskrift við- burðarins er „En hvað með kjarn- orkuver?“ Það er hafnfirska hljómsveitin Úlpa sem á upptökin að vakningunni en liðsmenn Úlpu segjast tilheyra þeim hópi sem af margvíslegum og ólíkum ástæðum er mótfallinn stækk- un álversins. Vill hljómsveitin með þessu framtaki leggja sitt lóð á vog- arskálarnar og vekja Hafnfirðinga og aðra landsmenn til vitundar um fram- tíð bæjarins og landsins í heild sinni. Fjölbreytt dagskrá Dagskráin í kvöld 19.30 Þórður Marteinsson spilar á harmonikku. 20.00 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (varaformað- ur skáksambands Íslands) opnar. 20.05 Ólöf Arnalds (tónlist). 20.30 Jón Baldvin Hannibalsson (fyrrverandi ut- anríkisráðherra) 20.35 Úlpa (tónlist). 21.00 Finnbogi Jóhannsson (bóndi og talsmaður gegn virkjunum í Þjórsá). 21.05 Rass (tónlist). 21.30 Árni Matthíasson (blaðamaður á Morgun- blaðinu). 21.35 Múm (dj set) (tónlist). 22.10 Eyrún Ósk Jónsdóttir (leikstjóri). 22.15 Draumalandið (leikhús). Af hverju ekki kjarnorkuver? Mótmæli Rass er á meðal þeirra sem koma fram í Hafnarfirði í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.