Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 61

Morgunblaðið - 24.03.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2007 61 SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is BLOOD & CHOCOLATE kl.5:50 - 8 B.i.12 .ára THE BRIDGE TO TERABITHIA kl. 2 - 4 - 6:10 LEYFÐ VEFURINN HENNAR... m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ WILD HOGS kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:30 B.i.7.ára 300 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára 300 VIP kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 SMOKIN' ACES kl. 10:30 B.i.16.ára MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ / ÁLFABAKKA / AKUREYRI WILD HOGS kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára 300 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára THE BRIDGE TO TEREBITHIA kl. 2 - 4 LEYFÐ VEFURINN HENNAR ... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ / KEFLAVÍK WILD HOGS kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára 300 kl. 5:30 - 10:10 B.i. 16 ára NORBIT kl. 3:40 - 5:50 - 8 LEYFÐ THE BRIDGE TO TER... kl. 1:40 - 3:40 LEYFÐ VEFURINN HENNAR ... kl. 1:40 LEYFÐ STÆRSTA MYND ÁRSINS Í BANDARÍKJUNUM eeee V.J.V. STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI FRÁ HÖFUNDI SIN CITY eeee FBL eeee KVIKMYNDIR.IS eeeee FILM.IS eee S.V. - MBL eeee VJV, TOPP5.IS RÍKJUNUM Á ÞESSU ÁRI SÝND Í SAMBÍÓ KRINGLUNNI SparBíó* : 450 KR MIÐAVERÐ Á OFANTALDAR SÝNINGAR Laugardag og Sunnudag Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI OG KEFLAVÍK FRÁIR FÆTUR M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA Stærsta opnun á fjölskyldu- mynd í Bandaríkjunum í Ár s.v. mbl SPARbíó SparBíó* — 450kr laugardag og sunnudag VEFUR KARLOTTU M/- ÍSL TAL. KL. 1:30 Í ÁLFABAKKA KL. 2 Á AK. OG 1:40 Í KEF BRIDGE TO TERABITHIA KL. 2 Í ÁLFABAKKA OG. Á AK. KL. 1:40 Í KEFLAVÍK EKKI SÝND KL. 2 Í SAMB. AKUR Á SUNNUDAG SKOLAÐ Í BURTU M/- ÍSL TAL. KL. 2 Í ÁLFABAKKA ÞAÐ FER óþolandi illa saman, auraleysi og ferðaþrá. Það er þó þannig að alltaf má hafa einhver ráð með að draga úr útgjöldum á flakki sínu um heiminn þótt ekki séu öll slík ráð til eftirbreytni – því ekki má draga svo úr útgjöldunum að dregið sé úr ánægju ferðarinnar. Eitt af því sem hinn félausi ferðalangur getur gripið til er að sofa á flugvöllum, sérstaklega ef fljúga skal árla morguns. Þá er tilvalið að mæta á flugvöllinn kvöldinu áður og einfaldlega sofa fram að brottför í stað þess að punga út oftast sársaukafullri upphæð fyrir hótelgist- ingu. (Maður hvílist hvort eð er aldrei nema miðlungs vel nóttina fyrir morgunflug sökum ótta um að sofa yfir sig.) Illir starfsmenn og góðir Því miður eru sumir flugvellir svo óvinveittir hinum félausa ferðalangi að það er ekki nokkurrar sparaðrar krónu virði að eyða þar nótt. Sætin eru hörð og auk þess aðskilin með stólörmum og þannig útilokað að leggjast. Hávaðinn og flúorflóðlýsingin eru svo ekki beint vinveitt þeim hinum vansvefta, hvað þá djö... flugvallarstarfs- maðurinn sem hnippir í hvern þann sem virðist hafa tek- ist hið ómögulega og sofna, rekinn áfram af einhverri óskiljanlegri illsku að því er virðist. Á hinn boginn er aðstaðan á sumum flugvöllum til al- gjörrar fyrirmyndar og starfsfólkið svo vinalegt að þú værir alveg til í að eyða með því jólunum. Maður er út- hvíldur eftir nóttina eftir að hafa hreiðrað um sig á bólstruðum bekkjum í vari frá öllum umgangi og getur jafnvel skellt sér í sturtu fyrir slikk á eftir. Að þekkja hin skemmdu epli En hvernig í ósköpunum á maður að fara að því að þekkja skemmdu eplin frá hinum góðu, það er að segja áður en maður bítur í þau? Lausnin liggur í vefsíðunni www.sleepinginairports.net, þar sem fólk deilir upplifun sinni af flugvöllum heimsins og gefur þeim einkunn með tilliti til svefnskilyrða. Sé síðan skoðuð kemur til dæmis í ljós að jafnvel þótt maður eigi sand af seðlum sé vel þess virði að gista á al- þjóðaflugvellinum í Singapore, svo gott þykir að hvílast þar. Hins vegar virðist ekkert réttlæta, sama hve fjár- hagurinn er bágur, að sofið sé á O’Hare-flugvellinum í Chicago, en samkvæmt einum skríbent hefði verið auð- veldara að festa blund í vélarrúmi flugvélar. Undirritaður hefur í tvígang nýtt sér þær upplýsingar sem þarna er að finna og reyndist sú ákvörðun heilla- vænleg í bæði skiptin; í öðru tilvikinu sparaðist fé, í hinu fyrirhöfn. Það er því tilvalið að tékka á síðunni áður en teknar eru örlagaríkar ákvarðanir um hvar eyða skuli nóttinni. Vefsíða vikunnar: www.sleepinginairports.net Sofið á flugvöllum Notalegt? Það getur verið afskaplega gagnlegt fyrir ferðalanga að kynna sér frásagnir af misljúfum flug- vallanóttum á netsíðunni sleepinginairports.net áður en tekin er ákvörðun um hvort splæsa skuli í hótel eður ei. »Hins vegar virðist ekkert réttlæta,sama hve fjárhagurinn er bágur, að sofið sé á O’Hare-flugvellinum í Chicago Flóki Guðmundsson AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.