Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 2

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn- arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FJÓRIR dómar féllu í Hæstarétti í gær um eign- arréttindi á landi í svokölluðum þjóðlendumálum. Fallist var á kröfur landeigenda um að svæðin væru háð séreignarrétti þeirra. Áður hefur rétt- urinn fellt 9 þjóðlendudóma en þess eru ekki dæmi að Hæstiréttur hafi áður snúið dómi eða úrskurði um þjóðlendu yfir í eignarland. Í þremur málanna var deilt um svæði sunnan Mýrdalsjökuls: Hvítmögu og Skógarfjall vestan Sólheimajökuls og Stórhöfða sunnan Mýrdalsjök- uls. Í málinu er varðaði Hvítmögu lá fyrir landa- merkjabréf Ytri-Sólheimajarðar þar sem til- greint var að svæðið tilheyrði jörðinni. Hæstiréttur hefur hins vegar áður dæmt að standi aðrir þættir, svo sem gróðurfar, stað- hættir og eldri heimildir gegn orðum landa- merkjabréfa þá geti það í ákveðnum tilfellum ekki legið til grundvallar séreignarrétti yfir land- svæði. Þrátt fyrir að Sólheimajökull standi nú á milli jarðarinnar og Hvítmögu taldi Hæstiréttur að ekki væri ljóst að svo hefði verið við landnám. Af mörkum sveitarfélaga mætti hins vegar ráða að svæðið tilheyrði eignarlandi Ytri-Sólheima. Aðliggjandi Hvítmögu liggur svæðið Skógfjall og líkt og þar náði landamerkjabréf jarðarinnar Eystri-Skóga yfir svæðið. Talið var að ekki væru rök gegn því að um eignarland væri að ræða enda ekki hægt að ætla að landnám hefði stað- næmst við Skógarfjall. Að svipaðri niðurstöðu var komist varðandi Stórhöfða þar sem einnig var dæmt eignarland. Í máli íslenska ríkisins gegn Rangárþingi ytra var deilt um hvort óbyggðanefnd hefði verið heimilt að ganga lengra en íslenska ríkinu við af- mörkun þjóðlendu á Rangárvallaafrétti. Skaut sveitarfélagið úrskurði óbyggðanefndar til dóms í kjölfar þess að nefndin úrskurðaði að þjóðlendan væri stærri en íslenska ríkið gerði kröfu til. Hafði nefndin talið að svæðið sem stóð umfram kröfur íslenska ríkisins lægi að óumdeildum mörkum aðliggjandi eignarlands. Hæstiréttur féllst hins vegar ekki á að óbyggðanefnd gæti gengið lengra en kröfur íslenska ríkisins, en því hélt íslenska ríkið aftur á móti fram í málinu. Dæmdi Hæstiréttur því að hluti Rangárvallaaf- réttar væri eignarland. Hæstiréttur dæmir eignar- land í 4 þjóðlendumálum Hefur ekki áður breytt úrskurði óbyggðanefndar um þjóðlendu í eignarland Í HNOTSKURN » Áður hafa fallið 9 hæstaréttardómar íþjóðlendumálum. » Í þremur dómanna sem féllu í gær varfjallað um svæði sem liggja sunnan Mýr- dalsjökuls og sumar eldri heimildir bentu til takmarkaðra nytja á. » Hæstiréttur leit einkum til þess að fárök væru til að landnám hefði verið tak- markað líkt og óbyggðanefnd hafði talið. » Í einu málanna afmarkaði óbyggða-nefnd þjóðlendu yfir stærra svæði en ís- lenska ríkið hafði gert. VAXANDI vantrú er á framhald ríkisstjórnarsamstarfsins innan bæði Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks. Ástæðan er ekki sú, að einhverjar uppákomur hafi orðið í viðræðum formanna flokkanna, þeirra Geirs H. Haarde og Jóns Sigurðssonar, heldur vegna hins að í raun hafi ekkert gerzt í þeim við- ræðum og þeim hafi ekkert miðað áfram. Innan Sjálfstæðisflokksins hafa þingmenn og aðrir trúnaðarmenn flokksins vaxandi efasemdir um, að þingflokkur framsóknarmanna verði nægilega traustur samstarfs- aðili. Frá fulltrúum flokksins í sveitarstjórnum og öðrum trúnað- armönnum víðs vegar um land ber- ast fréttir um að takmarkaður áhugi sé meðal stuðningsmanna flokksins á óbreyttu stjórnarsam- starfi. Innan Framsóknarflokksins telja menn sig merkja meira áhugaleysi meðal sjálfstæðismanna á framhaldi stjórnarsamstarfsins en fyrr í vik- unni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, hefur gerzt talsmaður þeirra hópa innan Sjálfstæðisflokksins, sem hallast að samstarfi við Samfylkinguna. En innan Sjálfstæðisflokksins eru líka áhrifamiklir aðilar, sem telja, að Vinstri grænir gætu orðið betri samstarfsaðilar í ríkisstjórn. Ljóst er að þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins munu fylgja leiðsögn Geirs H. Haarde í þessum efnum. Formenn stjórnarflokkanna ræddust við a.m.k. tvisvar í gær en ekkert bendir til þess að þau samtöl hafi orðið til að viðræðum um áfram- haldandi samstarf miðaði áfram. Vaxandi vantrú á framhald VELTA dagvöruverslana var verulega meiri í apríl en á sama tíma í fyrra og munar þar rúmum 11% skv. tölum frá Rannsókn- arsetri verslunarinnar. Einnig sýna tölurnar að lítil breyting varð á milli veltu í apríl og mars þrátt fyrir að páskar væru í apríl. Segir í tilkynningu frá rannsóknarsetrinu að aukn- inguna nú megi fyrst og fremst rekja til virðisaukaskattslækkana í upphafi mars og afnáms vöru- gjalda. Mun meiri sveiflur eru í veltu fata- og skóverslunar á milli mánaða en í dagvöru. Velta fataverslunar dróst aftur á móti saman um 16,8% og í skó- verslun um 21,7% á milli mánaða. Samanlögð velta í þeim flokkum smásöluverslunar sem mælingar Rannsóknarseturs verslunarinnar ná til dróst saman um 3,5% á milli mars og apríl. Skoðar setrið verð dagvöru og áfengis auk skó- fatnaðar og almenns fatnaðar. Velta dagvöru- verslana eykstMENNTARÁÐ fundaði í fyrsta sinn í gær með nemendaráðum grunnskólanna í Reykjavík og Júl- íus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, upplýsti að um 65 nemendur hefðu sóttu fundinn. „Nemendur voru beðnir að koma og opna hug sinn, ræða við okkur um menntastefnuna og grunnskól- ann almennt og ekkert undanskilið í þeim efnum,“ segir Júlíus Vífill, en endurskoðun menntastefnu Reykjavíkurborgar er nú í gangi. Að sögn Birnu Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra á menntasviði, voru nokkrar spurningar lagðar fyrir krakkana og „það var ekki annað að sjá en þetta væru ánægðir grunnskólanemar“, sagði hún. Krakkarnir voru spurðir að því m.a. hvort þeir fengju að taka þátt í ákvörðunum í skólanum og var svarið að þau vildu gjarnan gera það í meira mæli. Einnig var spurt hvaða breytingar ætti að gera í grunnskólanum á næstu árum. Sumir vildu betra mötuneyti, nem- endur ættu að fá að setja fram hugmyndir um hvað þeir mættu læra og svo sögðust þeir vilja að kennararnir væru skemmtilegir. Einhverjir vildu taka út sam- ræmdu prófin eða í það minnsta breyta þeim. Símat þótti þeim vænlegur kostur og að skólar í hverfum ættu eitthvað sameig- inlegt. Sérstaka athygli vakti að ein ósk nemanna var að tungu- málakennsla í grunnskólanum hæfist fyrr. Hugmyndir krakkanna verða notaðar við endurskoðun mennta- stefnunnar. Morgunblaðið/Ómar Krakkarnir vilja hefja tungumálanám fyrr ♦♦♦ Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is FJÓRIR viðskiptavinir netbanka Glitnis á Akur- eyri sæta nú ákærum fyrir um 30 milljóna króna umboðssvik með því að hafa misnotað aðgang sinn að gjaldeyrisviðskiptakerfi netbankans. Í atvikalýsingu ákæru efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra segir að sakborningarnir hafi nýtt sér með kerfisbundnum og sviksamlegum hætti kerfisvillu í gjaldeyrisviðskiptakerfinu sem var til komin vegna forritunarmistaka banka- starfsmanna. Á fimmta þúsund færslur Þessi mistök hafi leitt til þess að kaup- og sölu- gengi víxlaðist og þannig telur ákæruvaldið að fólkið hafi með á fimmta þúsund færslum á gjald- eyrisreikningum aflað sér tuga milljóna króna. Í öllum tilvikum keypti fólkið dollara fyrir evrur og seldi síðan strax aftur fyrir evrur. Vegna kerfisvillunnar hafi ákærðu fengið til sín þá fjárhæð sem undir eðlilegum kringumstæðum á að renna til bankans í formi álags. Allt að sex ára fangelsi Ákæruvaldið telur að þessi háttsemi varði við 249. gr. hegningarlaga sem kveður á um allt að sex ára fangelsi fyrir brot af þessu tagi. Málið hefur verið þingfest í Héraðsdómi Norð- urlands eystra og er fyrirtöku að vænta. Sakborn- ingarnir eru á aldrinum 38-48 ára, þrír karlmenn og ein kona. Sökuð um tuga milljóna umboðssvik í netbanka ÖKUMAÐUR slapp án teljandi meiðsla þegar hann velti bifreið sinni á Möðrudalsöræfum, nánar til tekið í Víðidal við Vegaskarð, seinni partinn í gær. Ökumaðurinn, sem var einn á ferð, missti stjórn á bifreiðinni í krapa með þeim afleiðingum að hún valt. Bifreiðin er mikið skemmd eft- ir veltuna. Bílvelta á Möðrudals- öræfum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.