Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 9

Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 9 FRÉTTIR the illusion of perfection Bjóðum 10% kynningarafslátt og kaupauka. 3 spennandi nýjungar frá La Prairie: • Lip Renewal Concentrate • Lip Line Plumper • Revitalizing Eye Gel www.laprairie.com Kringlan • Sími 533 4533 Velkomin á kynningu í Hygeu Kringlunni á morgun, föstudag, kl. 13-17. Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Glæsilegur fatnaður Laugavegi 84 • sími 551 0756 Sumarjakkar og sumarbuxur Blússur og bolir í úrvali Full búð af nýjum vörum Mikið af frábærum tilboðum A la Carte - Modern ný stell erum byrjuð að taka niður pantanir Velkomin tilvonandi brúðhjón 16 gerðir af frábærum matar- og kaffistellum til sýnis á gjafadögum. Mikið af nýjum stellum frá Rosenthal Tilvonandi brúðhjón bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að skrá óskalista ykkar. Allir sem versla á gjafadögum lenda í lukkupotti dregið í lok maí. Vinningar eru falleg og mjúk sængurföt. Full búð af nýjum vörum á verði fyrir alla. Líttu á allt um GJAFADAGANA á www.tk.is KRINGLUNNI - Sími: 568 9955 hönnunar-vörur útskriftargjafir - brúðhjónagjafir - afmælisgjafir - fermingargjafir - skírnargjafir - fyrirtækjagjafir Gjafadagar 17-26 maí ATH: Opið í dag 1-5 Hæðasmára 4 s. 544 5959 Opið í dag uppstigningardag Jakki 6.900 Pils 3.990 EINNIG TIL Í SVÖRTU OG HVÍTU ATLANTSOLÍU hefur verið út- hlutað lóð í Bogarnesi. Hyggst fé- lagið reisa þar stöð með tveimur dælu. Gengið var frá lóðarúthlutun í síðustu viku og að sögn Alberts Þórs Magnússonar, framkvæmda- stjóra Atlantsolíu, gera þeir sér vonir um að hægt verði að opna stöðina í lok ágúst eða byrjun sept- ember. Atlantsolía rekur nú þegar 10 stöðvar og vill Albert meina að bensínverð samkeppnisaðila sé um- talsvert lægra í nágrenni við stöðv- ar fyrirtækisins. Íbúar Selfoss og Hveragerðis mega eiga von á að stöðvar Atlants- olíu rísi þar fljótlega þar sem við- ræður eru á lokastigi um lóðir fyrir bensínafgreiðslustöðvar Atlants- olíu á þessum stöðum. Þá hafa við- ræður við bæjaryfirvöld í Mosfells- bæ hafist og yrði þar um að ræða fyrstu sjálfsafgreiðslustöð bæjar- ins. Atlantsolía í Borgarnes MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá emb- ætti ríkislögreglustjóra: „Ríkissaksóknari, Bogi Nilsson, telur ekkert tilefni til opinberrar rannsóknar á embættisathöfnum ríkislögreglustjóra. Þetta kemur fram í bréfi hans til Haralds Johannessen ríkislögreglustjóra, dagsettu 15. maí sl. Bréf ríkissaksóknara fylgir í kjölfar bréfs Einars Þórs Sverris- sonar, lögmanns Jóhannesar Jónssonar, til ríkissaksóknara, þar sem hann óskaði eftir því að rannsakað yrði hvort Haraldur og Jón H.B. Snorrason saksóknari hefðu gerst brotlegir við lög, einkum XIV. kafla almennra hegningarlaga vegna ákæru á hendur Jóhannesi o.fl. hinn 1. júlí 2005. Í bréfi ríkissaksóknara til ríkis- lögreglustjóra segir orðrétt: „Tekið skal fram að erindi lög- mannsins þykir ekki gefa nokkurt tilefni til þess að ríkissaksóknari mæli fyrir um opinbera rannsókn á embættisathöfnum …“ Embætti ríkislögreglustjóra mun ekki tjá sig frekar um málið á meðan það er til stjórnsýslu- meðferðar hjá ríkissaksóknara.“ Ekki tilefni til rannsóknar Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is Í KJÖLFAR kosninga hefur Fram- tíðarlandið ályktað um úrslitin og kosningakerfið. Í ályktuninni segir að traust og trúverðugleiki sé grundvallaratriði í lýðræðisþjóð- félagi og að stjórnmálamönnum beri að virða þann vilja sem fram kemur í kosningum. Óánægja með stóriðjustefnuna „Minnihluti kjósenda greiddi sitj- andi stjórn atkvæði sitt í nýaf- stöðnum kosningum,“ segir í ályktun Framtíðarlandsins. „Einungis tæknileg útfærsla kosningakerfisins leiðir til þess að flokkarnir halda meirihluta sínum á þingi. Óánægja landsmanna með stóriðjustefnuna á mikinn þátt í slæmu gengi annars stjórnarflokksins, en talsmenn um- hverfisverndar fengu hins vegar byr undir báða vængi. Niðurstöður kosninganna verður að túlka sem ákall um breytta stefnu þar sem sátt við fólk og náttúru er í fyrirrúmi,“ segir þar einnig. Stjórn Framtíðar- landsins telur jafnframt að því er segir í ályktuninni að í kosningunum og kosningabaráttunni hafi ýmsir misbrestir á kosningafyrirkomulagi og reglum um kosningabaráttu kom- ið fram. „Nægir að nefna ógegnsæj- ar og torskiljanlegar reglur um út- hlutun þingsæta í kjördæmum, misræmi í atkvæðavægi og ofnotkun skoðanakannana. Félagið hvetur ný- kjörið Alþingi til að leita leiða til að bæta úr þessum ágöllum á næsta kjörtímabili,“ segir í ályktun. „Ákall um breytta stefnu“ ÞEGAR lögreglumenn komu á vett- vang umferðaróhapps mátti sjá að þar hafði orðið tveggja bíla árekst- ur. Tjónvaldurinn reyndist vera 13 ára stúlka sem hafði sest undir stýri bíls og ekið honum á annan bíl sem var kyrrstæður á sama bíla- stæði. Lögreglan hefur eftir stúlkunni, að hún hafi ætlað að bakka bílnum út úr stæðinu, snúa honum við á planinu og bakka bílnum aftur á sama stað. Bíllinn sem stúlkan ók var bæði ólæstur og í gangi þegar hún fékk þessa hugdettu. Ekki er ljóst um hversu mikið tjón er að ræða. 13 ára stúlka undir stýri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.