Morgunblaðið - 17.05.2007, Page 10

Morgunblaðið - 17.05.2007, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Barcelona er höfuðborg Katalóníu á Spáni og af mörgum talin ein af fegurstu borgum í heimi. Iðandi mannlíf, menning, saga, fallegar byggingar og söfn. Í þessari 7 daga ferð verður gist í strandbænum Salou. Skoðunarferðir verða til Barcelona og m.a. verður skoðuð frægasta bygging borgarinnar, kirkjan Sagrada Familia (Heilög fjölskylda) sem Gaudi hannaði. Farið til Tossa de Mar og Monserat klaustursins, sem er í 1236 metra hæð. Góður tími verður til að fara á Ramblas verslunargötuna og drekka í sig menningu og listir þessa lands. Fararstjóri: Steingrímur Gunnarsson Verð: 112.500 kr. Mikið innifalið! SUMAR 10 15. - 22. ágúst Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Ág ús ts dó tti r Barcelona s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Obbobbobb, ekkert útstáelsi, Nonni minn. VEÐUR Kristján Leósson og HildigunnurSverrisdóttir leituðu í gær að ofnum í nýju íbúðina, annar ný- fæddra tvíburanna í kerrunni og hinn í fanginu á pabbanum.     Jóna Kristín Jónsdóttir málaði ogsetti upp gardínur í gær. Nú bíð- ur hún bara eftir því að sólin fari að skína. Þá koma barnabörnin í heim- sókn frá Danmörku.     Birgir Birgisson og Kristín FjólaFannberg fóru í morgun til Parísar með vinahjónum sínum. Þau fengu pössun fyrir börnin. Það ku vera rómantískt á þessum árs- tíma við bakka Signu.     Bára Einarsdóttir lætur sérnægja að syngja: „Vaknaði í morgun klár og hress, klæddi mig í föt og sagði bless, sólin skein og fuglar sungu í trjánum…“     Stefán Þ. Þorláksson las dagblöðog Spiegel í gær eins og vant er, meira að segja eina eða tvær sögur í smásagnasafni Erlings Davíðssonar, og hugsaði en ekkert af viti.     Sigríður Vigfúsdóttir átti aðeinskleinur með kaffinu. Og baðst innilega forláts á því.     Veit þetta fólk ekki að það standayfir viðræður um myndun næstu ríkisstjórnar?     Kannski gengur lífið bara sinnvanagang? STAKSTEINAR Tilveran á Fróni Morgunblaðið/ÞÖK SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                *(!  + ,- .  & / 0    + -                12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  ! !  "    "        #     $%%& % :  *$;<                             ! "#   *! $$ ; *! ' &  (  &  # % )% =2 =! =2 =! =2 ' #(  *  +,%-  >         *  '% (      % .&   / 0! / /    ,    /1 &  % .&   2      3 / 4#    %& / =7  5  % "6!+  . %   2    % %   % & &/0 2  %  / 13 %77 %  8 % %*   3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B 2 2 .2 "/ /!    "/  /! !/!   /! / 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2! 2            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sigríður Laufey | 16. maí 2007 Stjórnarsamstarfið Markmið stjórnarand- stöðunnar var að fella ríkisstjórnina er ekki tókst. Stefna Samfylk- ingarinnar um innflutn- ing landbúnaðarafurða og inngöngu í ESB með auðlindir þjóðarinnar sem skipti- mynt er ekki traustvekjandi. Rökrétt niðurstaða kosninganna varð því fylgistap Samfylkingar þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu. Vinstri grænir eru ekki traust- vekjandi hvað varðar varnarmál, draga í efa norrænt samstarf þar að lútandi. Meira: logos.blog.is Eyþór Arnalds | 16. maí 2007 Sarkozy og Ísland Vel má vera að Sar- kozy takist að hafa áhrif á ESB á við- kvæmum tímum þegar enn er tekist á um stjórnarskrá. Þýskalandi er stjórnað af samsteypustjórn og skiptir miklu hvað hin stóra stofn- þjóðin vill í ESB-málum. Vandi Íslands í ESB-málum er ekki bara hvað ESB er, heldur óviss- an um hvert ESB stefnir. Stórríki „federalistanna“ er enn möguleiki, þó flestar þjóðirnar séu því mótdrægnar. Meira: ea.blog.is Óli Björn Kárason | 16. maí 2007 5%-reglan er skynsamleg Ekki veit ég hvort Ómar Ragnarsson vill enga þröskulda eða lækka þann sem fyrir er. Til að vera sjálfum sér samkvæmur hlýtur hann að berjast fyrir fyrrnefndu leiðinni. Með því að setja þröskuld af þessu tagi er einmitt verið að draga úr möguleikum þess að fram komi ýmis smáframboð og að flokkakerf- ið splundrist upp í marga smá- flokka. Meira: businessreport.blog.is Kristinn Pétursson | 16. maí 2007 Fjósamjólk góð gegn ofnæmi Frétt af ruv.is: „Börn sem drekka óunna mjólk beint úr fjósinu fá miklu síður asma og ofnæmi en börn sem drekka ger- ilsneydda mjólk. Þetta sýna nýjustu rannsóknir. Banda- rískir og evrópskir vísindamenn rannsökuðu 15.000 börn í dreifbýli í Austurríki, Þýskalandi, Hollandi, Svíþjóð og Sviss og þurftu foreldrar þeirra að svara ítarlegum spurn- ingalistum um mataræði og lífs- mynstur barnanna. Niðurstaðan var einföld: Vísinda- fólkið komst að því að börn sem drukku fjósamjólk þjáðust miklu síð- ur af heymæði, asma og ofnæmi en önnur börn. Sömuleiðis virtust ýms- ar mjólkurafurðir sem unnar voru heima á bóndabæjum draga úr lík- unum á þessum kvillum en þó aðeins ef börnin drukku líka ógerilsneydda mjólk. Sama virtist gilda um egg úr heimilishænunum. Doktor Marco Waser við lækna- deild háskólans í Basel í Sviss stýrði rannsókninni og hann segir enn allt á huldu um hvað það sé í óunninni kúamjólk sem hafi þessi áhrif. Hugs- anlega séu einhverjar örverur í henni sem hverfi við gerilsneyðingu en það kunni líka að vera eitthvað allt annað. Hann segist þrátt fyrir þetta ekki geta mælt með því að fólk gefi börnunum sínum mjólk beint úr fjósinu því henni geti alltaf fylgt salmonella eða hættulegir kólígerl- ar. Fréttastofu Útvarps er hins vegar ekki kunnugt um alvarlegar sýk- ingar vegna mjólkur sem drukkin er beint úr íslenskum kúm.“ Er þessi frétt ekki bara eitt dæmi af mörgum – þegar homo sapiens þykist geta toppað almættið – og gert miklu betur – með því að „ger- ilsneyða“ alvöru mjólk og rýra um leið stórlega náttúruleg gæði? Þegar athafnamaðurinn Thor Jen- sen rak Korpúlfsstaðabúið gátu mæður ungbarna í Reykjavík verið áskrifendur að volgri nýmjólk sem ekið var út á morgnana heim til áskrifenda. Þetta var „lífræn rækt- un“ þess tíma, besta mjólkin … Þjónustulundin og framsýnin hjá þeim mikla athafnamanni Thor Jen- sen var ótrúleg. Meira: kristinnp.blog.is BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.