Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 14

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BÆJARSTJÓRN Vesturbyggðar fagnar framkominni hugmynd um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum og hefur lýst yfir vilja til samstarfs við hlutaðeigandi aðila. Íslenskir og rússneskir athafna- menn hafa sett fram hugmyndir um að reisa olíuhreinsunarstöð á Vest- fjörðum. Stefnt er að því ef sam- vinna fæst við stjórnvöld að stöðin rísi á næstu fjórum árum og þar skapist rúmlega 500 störf. Talið er að stöðin myndi afkasta átta milljónum tonna af hráolíu á ári. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur boðað til fundar þann 22. maí vegna umræðna um olíuhreins- unarstöð á Vestfjörðum. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Ályktun Frá Patreksfirði. Samstarfsvilji í bæjarstjórn FIMM stjórnarmenn í Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga sóttust eftir sæti á Alþingi í nýliðnum kosn- ingum og náðu allir kjöri. Sveitastjórnarmennirnir fimm og nýbakaðir alþingismenn eru þessir: Árni Þór Sigurðsson (V), Reykja- vík, Björk Guðjónsdóttir (D), Reykjanesbæ, Kristján Þór Júl- íusson (D), Akureyri, Ragnheiður Ríkharðsdóttir (D), Mosfellsbæ, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir (S), Reykjavík. Varamenn þeirra í stjórn Sambands íslenskra sveitar- félaga eru Svandís Svavarsdóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Sigrún Björk Jakobsdóttir, Gunnar Einarsson og Stefán Jón Hafstein. Allir fimm náðu kjöri til Alþingis MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra: „Pólitísk auglýsing Jóhannesar Jónssonar kaupmanns gegn mér birtist í öllum dagblöðum föstudag- inn 11. maí í því skyni að hafa áhrif á kjósendur í Reykjavík suður í kosn- ingunum daginn eftir. Meira en 80% kjósenda flokksins höfðu áskorun Jóhannesar að engu. Í fréttatíma sjónvarpsins að kvöldi 15. maí var látið að því liggja, að óvenjulegt framtak Jóhannesar mætti rekja til þess, hvernig staðið var að því að auglýsa embætti rík- issaksóknara. Þetta er alrangt. Jó- hannes birti auglýsingu sína til að ófrægja embættismenn, sem hafa komið að ákærum í Baugsmálinu svonefnda, auk mín, sem á engan hlut að ákærunum. Baugsmálið var hafið áður en ég varð dómsmálaráðherra. Til minna kasta kom haustið 2005, þegar ég setti Sigurð T. Magnússon, héraðs- dómara, sérstakan saksóknara í mál- inu. Fyrir nokkrum mánuðum setti ég síðan Rúnar Guðjónsson, sýslu- mann í Reykjavík, ríkislögreglu- stjóra í skattsvikamáli tengdu Baugsmönnum, en það er til rann- sóknar hjá efnahagsbrotadeild. Þegar ég setti Sigurð T. Magnús- son töldu Baugsmenn mig vanhæfan og létu árangurslaust á þá skoðun sína reyna fyrir dómstólum. Í auglýsingunni gaf Jóhannes Jónsson meðal annars til kynna, að aðstoðarlögreglustjórinn í Reykja- vík hefði eitthvað „á mig“ og þess vegna myndi ég skipa hann ríkissak- sóknara. Þessi kenning varpar ljósi á einkennilegan hugarheim auglýs- andans og síðan meginboðskapinn: Vegna auðs míns og verslunarum- svifa skal ég hafa mitt fram! Í ljósi síendurtek- inna yfirlýsinga Jó- hannesar um pólitískt samsæri sjálfstæðis- manna gegn sér og fjöl- skyldu sinni kemur í sjálfu sér ekki á óvart, að hann beiti auði sín- um og viðskiptaáhrif- um gegn stjórnmála- mönnum, sem hann telur standa í vegi fyrir því, að hann geti farið öllu sínu fram. Ekkert réttarríki býr auð- mönnum hins vegar eftirlitslausar aðstæð- ur. Það þjónar almannahagsmunum, að óháðir, opinberir aðilar fylgist með hvernig stjórnendur og ráðandi hluthafar almenningshlutafélaga fara með þau verðmæti, sem þeim er fyrir treyst. Með árásum á mig og ákæruvaldið er Jóhannes að gera veika stöðu almennra fjárfesta á Ís- landi enn verri gagnvart stóreigend- um. Hér ráða einkahagsmunir ferð en ekki virðing fyrir rétti annarra. Takist með opinberum, persónuleg- um árásum að hræða lögreglu og aðra eftirlitsaðila frá því að sinna skyldum sínum er vegið að hags- munum fleiri en þeirra, sem árásun- um sæta. Í framhaldi af auglýsingunni kem- ur á óvart, að almennt hafa stjórn- málamenn og álitsgjafar látið eins og hún sé næsta eðlilegt ef ekki sjálfsagt nýmæli. Um svipað leyti og Steingrímur J. Sigfús- son, formaður vinstri/ grænna, kveinkaði sér undan því, að ungir framsóknarmenn hefðu birt af sér skopmyndir, lýsti hann skilningi á framtaki Jóhannesar. Ágúst Ólafur Ágústs- son, varaformaður Samfylkingarinnar, hlakkar yfir því, að ég lækka á þingmanna- lista. Egill Helgason álitsgjafi segir: „Í al- vörunni. Þetta er ein aðferð kjósenda til að segja skoðun sína – það næsta sem við komumst persónukjöri í þingkosningum. Það á að taka mark á slíkum skilaboðum. Annars eru stjórnmálamenn að gefa kjósendum langt nef.“ Ég lýsi áhyggjum yfir þróun stjórnmálastarfs og raunar réttar- ríkisins sjálfs, sé talið sjálfsagt og eðlilegt að beita ofríki í krafti auðs í því skyni að tryggja sér viðhlæjend- ur á þingi, í réttarsalnum og hjá ákæruvaldinu. Er ekki tímabært að staldra við og líta á alvöru málsins?“ Stöldrum við – hugsum um alvöru málsins Björn Bjarnason ATHUGULIR starfsmenn Olís á Akranesi höfðu samband við lög- regluna eftir að hafa veitt því at- hygli að keypt hafði verið út á stolið greiðslukort í einum af sjálfsölum Olís. Öryggismyndavélar náðu mynd bæði af bíl og manni. Lög- regla hafði uppi á manninum og í ljós kom að hann hafði stolið korti úr vörubíl og notað það í einhverja daga fyrir sjálfan sig og aðra. Þeg- ar athæfið var stöðvað voru bensín- úttektir á stolna kortið orðnar á fjórða hundrað þúsund. Eigandi kortsins hefur gert kröfu um bæt- ur. Notaði stolið greiðslukort BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs- ing frá Hreini Loftssyni, formanni stjórnar Baugs Group: „Með yfirlýsingu til fjölmiðla hefur Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, tjáð sig um auglýs- ingu Jóhannesar Jóns- sonar, kaupmanns í Bónus, í dagblöðum föstudaginn 11. maí sl. Þar hvatti Jóhannes kjósendur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík- urkjördæmi suður til að strika yfir nafn Björns á kjörseðli við alþingis- kosningarnar. Í yfirlýs- ingu Björns er spurt hvort ekki sé tímabært að staldra við og líta á alvöru málsins. Undir það skal tekið en ekki með þeim hætti sem Björn leggur til. Í yfir- lýsingu sinni reynir ráðherrann að skapa sér samúð með ódýrum hætti, þ.e.a.s. með því að láta að því liggja að Jóhannes hafi í krafti auðs síns haft áhrif á kjósendur Sjálf- stæðisflokksins líkt og hann geti beygt næstum 20% þeirra undir vilja sinn. Málið er ekki svona einfalt. Af- staða Björns lýsir hroka hans í garð lýðræðislegra ákvarðana sem teknar eru af einstaklingum þegar þeir nýta ein mikilvægustu mannréttindi sín, kosningaréttinn. Þessir einstakling- ar voru einir í kjörklefanum og eng- inn veit hverjir þeir eru. Þeir þurfa ekki að standa reikningsskil gerða sinna við einn eða neinn og svo mikið er víst að Jóhannes Jónsson stóð ekki yfir þeim þegar þeir gengu til kosn- inga. Eftir því sem ég kemst næst fann Jóhannes sig knúinn til að setja fram afstöðu sína með afgerandi hætti þegar spurðist í fjölmiðlum skömmu fyrir kjördag að Björn hygðist fresta skipun í embætti ríkissaksóknara fram yfir kosningar, öndvert við það sem áður hafði komið fram. Taldi Jó- hannes það benda eindregið til þess að það væri rétt sem haldið hafði ver- ið fram í fjölmiðlum að ráðherrann hygðist skipa Jón H.B. Snorrason í embættið. Jóhannes er ekki einn um þessa skoðun. Feluleikur ráðherrans hefur reynst honum dýrkeyptur. Jó- hannes hefur fullkomna heimild til að setja afstöðu sína fram á þann hátt sem hann gerði og er svo sannarlega á færi fleiri en aðeins þeirra sem telj- ast til „auðmanna“. Það sem hér skiptir máli er frelsi manna til að tjá sig og hvort Jóhannes gerir það með auglýsingu, grein eða fréttatilkynn- ingu er hans mál. Björn er þekktur fyr- ir brellur sínar. Hann kýs að leggja málið þannig upp að meira en 80% kjósenda flokksins hafi haft áskorun Jó- hannesar Jónssonar að engu. Alvara málsins fyrir Björn er hins veg- ar sú að tæp 20% af stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi hans hafa í leynilegum kosningum ákveðið að strika nafn hans út af lista. Með brellu sinni reynir hann að draga at- hygli frá þessum kjarna málsins. Að bera kjósendum á brýn að þeir séu einhverjar undirlægjur eða hand- bendi „auðmannsins“ er móðgun og lítilsvirðing í þeirra garð. Birni væri rétt að hafa hugfast að yfirstrikanir þessar koma í kjölfar prófkjörs þar sem hann varð undir í baráttu um annað sætið við Guðlaug Þór Þórð- arson. Kjósendur í Reykjavík höfðu áður hafnað Birni sem borgarstjóra þegar sá möguleiki gafst þeim fyrir nokkrum árum. Birni hefur þannig áður verið hafnað af kjósendum án þess að Jóhannes Jónsson hafi komið þar nærri. Hér beitir Björn þeirri brellu að kenna öðrum um í stað þess að líta í eigin barm. Björn beitir líka annarri brellu. Hann samsamar sig við alla sjálf- stæðismenn og heldur því fram að Jóhannes og aðrir „Baugsmenn“ hafi vænt þá um pólitískt samsæri gegn sér. Hið rétta er að Jóhannes hefur talið að öfl innan Sjálfstæðisflokksins hafi tekið þátt í aðför að sér og fjöl- skyldu sinni. Jóhannes á því ekkert sökótt við aðra í þeim flokki, sem hann segist reyndar tilheyra sjálfur. Í yfirlýsingu sinni kemur Björn Bjarnason enn og aftur upp um hug sinn í Baugsmálinu svokallaða. Eft- irfarandi kemur fram: „Fyrir nokkr- um mánuðum setti ég síðan Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, ríkislögreglustjóra í skattsvikamáli tengdu Baugsmönnum, en það er til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild.“ Ég undirstrika orðaval Björns. Ekki verður betur séð en að ráðherrann hafi komist að þeirri niðurstöðu að um „skattsvik“ hafi verið að ræða, annars hefði hann einfaldlega sagt að skattamál tengt Baugi væri til rann- sóknar. Enn og aftur kýs Björn að nota orðalag sem felur í sér huglæga afstöðu hans til Jóhannesar og ann- arra „Baugsmanna“. Varðandi efni auglýsingar Jóhann- esar er þetta að segja: Hann telur sig hafa verið órétti beittan af lögreglu- yfirvöldum og ákæruvaldi. Björn Bjarnason ber pólitíska ábyrgð á skipan manna sem stjórna þeim málaflokki. Hvort sem Birni líkar það betur eða verr þá eru störf hans lögð í dóm kjósenda og sá dómur liggur nú fyrir. Jóhannes hefur m.a. haldið því fram að jafnræðisregla hafi verið brotin á sér og að hann hafi að ósekju mátt sitja á sakamanna- bekk árum saman. Í auglýsingunni segir hann að það keyri um þverbak ef ráðherrann hyggst verðlauna einn þessara manna með því að fá honum æðstu metorð, þ.e.a.s. embætti rík- issaksóknara. Hvað svo sem segja má um þá afstöðu hans er hitt full- komlega ljóst að Jóhannes hefur heimild til að opinbera skoðun sína en þegar hún kom fram svaraði Björn henni í engu. Sagði aðeins eitt- hvað á þá leið að hún dæmdi sig sjálf. Það hefur hún svo sannarlega gert. Hvort sem það er áskorun Jóhann- esar til kjósenda Sjálfstæðisflokksins eða eitthvað annað sem liggur að baki því að tæplega 20% kjósenda strika nafn Björns út af lista flokks- ins þá hlýtur sú ákvörðun þessara einstaklinga að vera verulegt áhyggjuefni fyrir ráðherrann. Aðrir ráðamenn í Sjálfstæðisflokknum hljóta að taka mið af þeim skila- boðum sem þessir kjósendur flokks- ins hafa sent þeim. Þetta er alvara málsins.“ Já, Björn, skoðum alvöru málsins Hreinn Loftsson ICELAND Express hóf í gær form- lega flug til fimm nýrra áfanga- staða. Matthías Imsland opnaði flugleiðirnar í gærmorgun með því að rífa af miða fyrsta farþegans sem steig um borð í vél félagsins. „Iceland Express hefur staðið fyrir aukinni samkeppni og fjöl- breytni í áætlunarflugi á Íslandi frá stofnun félagsins,“ sagði Matthías við það tækifæri í gær. París allt að þrisvar í viku Nýju áfangastaðirnir fimm eru París en þangað verður flogið tvisv- ar til þrisvar í viku, Ósló, Eind- hoven og Billund tvisvar í viku og Basel einu sinni. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra flutti ávarp við opnunina. Hann sagði Iceland Express hafa með góðri þjónustu og hagstæðri verðlagningu unnið sér traust Ís- lendinga með starfsemi sinni undanfarin fjögur ár. Aukin þjónusta við landsbyggðina Iceland Express var stofnað fyrir rúmum fjórum árum. Félagið hefur þann tíma bætt jafnt og þétt við áfangastöðum. Upphaflega flaug fé- lagið til tveggja áfangastaða en nú eru þeir orðnir 13 víðs vegar um Evrópu. Iceland Express mun í sumar einnig efla þjónustu við landsbyggð- ina með beinu flugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar auk þess sem ný flugleið milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar verður opnuð í sumar. Nýir áfangstaðir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra óskar Matthíasi Imsland til hamingju með áfangann og stóraukna þjónustu. Aukin fjölbreytni í áætlunarflugi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.