Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT RÁÐAMENN fyrirtækja, sem stað- in eru að því að ráða til sín ólöglega innflytjendur, geta fengið fangels- isdóma verði nýjar tillögur fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins að veruleika, að sögn BBC. Franco Frattini, sem fer með dóms- mál í stjórninni, vill auka fimmfalt tíðni skyndikannana til að fylgjast með ráðningum fyrirtækja. Hann segir allt að 16% af störfum í ríkj- um ESB vera sinnt af ólöglegum innflytjendum. Einnig er lagt til að refsingar við að ráða til sín einstaka starfsmenn úr röðum ólöglegra innflytjenda, t.d. til að ræsta á heimilinu, verði hertar. Sú skylda verði lögð á herðar brotlegum að þeir kosti heimferð umrædds starfsmanns. Reuters Úthýst Innflytjendur á Tenerife. Herði lög gegn útlendingum GEORGE W. Bush Banda- ríkjaforseti hef- ur skipað Dou- glas Lute hershöfðingja í nýtt embætti „stríðsstjóra“, en hann á að hafa yfirumsjón með hernaðaraðgerð- um Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan. Erfiðlega hefur gengið að finna mann í embættið og af- þökkuðu nokkrir fyrrverandi hers- höfðingjar starfið. Að sögn embættismanna verður Lute aðstoðarmaður forsetans og aðstoðarþjóðaröryggisráðgjafi í málefnum Íraks og Afganistans. Bush skipar „stríðsstjóra“ Douglas Lute NÝ ríkisstjórn lýðræðisflokkanna hefur tekið við völdum í Serbíu. Forsætisráðherra verður Vojislav Kostunica, hófsamur þjóðernis- sinni. Málefni Kosovo verða ofar- lega á dagskrá stjórnarinnar, en Serbar eru mótfallnir hugmyndum um að Kosovo – sem var hérað í Serbíu – fái sjálfstæði. Ný stjórn í Serbíu JERRY Falwell, einn af áhrifa- mestu kristilegu leiðtogunum í Bandaríkjunum sl. 30 ár, lést í fyrrakvöld, 73 ára að aldri. Fal- well hafði um- talsverð pólitísk áhrif á áttunda og níunda áratugnum sem forystu- maður samtakanna Moral Majority en talið er að stuðningur hans við forsetaframboð Ronalds Reagans 1980 hafi stuðlað að sigri Reagans. Falwell var hins vegar umdeildur, m.a. vegna ummæla eins og þeirra sem hann lét falla eftir hryðju- verkaárásirnar 11. september 2001. Þá kenndi hann „hinum trúlausu, þeim sem styddu fóstureyðingar, femínistum, hommum og lesbíum“ um atburðinn. Og árið 2002 vakti hann reiði múslíma um heim allan er hann kallaði Múhameð spámann „hryðjuverkamann“. Jerry Falwell látinn Jerry Falwell París. AFP. | Nicolas Sarkozy tók í gær formlega við embætti forseta Frakklands og hét hann því við það tækifæri að beita sér fyrir umbótum í því skyni að tryggja stöðu Frakk- lands í síbreytilegri veröld. „Þjóðin hefur veitt mér umboð. Ég mun framfylgja því,“ sagði Sarkozy í tíu mínútna löngu ávarpi sem var sjón- varpað beint um allt Frakkland. Sarkozy átti stuttan fund með Jacques Chirac, fráfarandi forseta, í gærmorgun en að því búnu ók Chirac á brott frá Elysee-höll í París í síðasta skipti, að minnsta kosti í síðasta skipti sem forseti lýðveldis- ins. Chirac er 75 ára gamall. Kona Sarkozys, Cecilia, var við- stödd athöfnina ásamt tíu ára göml- um syni þeirra, Louis, og fjórum börnum sem þau eiga samanlagt úr fyrri hjónaböndum. Fillon líklega forsætisráðherra Sarkozy hét því að standa vörð um sjálfstæði Frakklands og þjóðarsál. „Krafa er gerð um breytingar,“ sagði hann svo. „Aldrei nokkurn tím- ann hefur meiri hætta stafað af að- gerðaleysi og doða og nú á tímum, nú þegar miklar breytingar blasa við í veröld þar sem allir vilja ná frum- kvæðinu fyrst, þar sem minnsta hik getur valdið skaða,“ sagði Sarkozy m.a. í ávarpi sínu. Fyrsta verk Sarkozys sem forseta var hefðbundið, hann hugðist fljúga til Berlínar til að eiga þar fund með Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands. Þannig var undirstrikað það forystuhlutverk sem löndin tvö leika í Evrópu. Talið er næsta víst að Sarkozy muni í dag útnefna bráðabirgða- ríkisstjórn sem stýra mun landinu þar til þingkosningar hafa farið fram 10. og 17. júní nk. Líklegt þykir að hann muni útnefna Francois Fillon, fyrrverandi félagsmálaráðherra, sem forsætisráðherra og rætt er um að hann muni skipa Bernard Kouc- hner, gamlan ráðherra í stjórnum sósíalista, sem utanríkisráðherra. Kouchner stofnaði samtökin Læknar án landamæra árið 1970 og er þjóðþekktur í Frakklandi. Chirac kvaddi þjóð sína með ávarpi í fyrrakvöld. Hann og kona hans, Bernadette, flytja nú tíma- bundið í íbúð við Signu-fljót með út- sýni yfir Louvre-safn. Líklegt þykir að dómarar muni vilja heyra fram- burð hans í tengslum við meinta spillingu í átján ára borgarstjóratíð hans í París á áttunda og níunda ára- tugnum. Sarkozy heitir breytingum AP Vaktaskipti í höllinni Nicolas Sarkozy vottar Jacques Chirac virðingu sína en Chirac yfirgaf Elysee-höll í gær eftir tólf ár á forsetastóli. SJALDGÆF Cantor-risaskjaldbaka, tegund með mjúkan skjöld og geysi- lega öfluga kjálka, hefur fundist á gömlu yfirráðasvæði Rauðu kmeranna á vatnasvæði Mekong-árinnar í Kambódíu en talið var að tegundin væri nær útdauð. Síðast sást hún árið 2003 í frumskógum Kambódíu, einnig fundust einstök dýr í Laos en talið er að bakan sé horfin í Taílandi og Víetnam. „Þessi ótrúlegi fundur merkir að hægt er að bjarga einstakri skjald- bökutegund frá því að deyja út á jörðinni,“ sagði David Emmett, líffræð- ingur hjá Alþjóðlegu verndarstofnuninni, CI. Vísindamenn segja að dýrið sem fannst sé kvendýr, um 11 kílógrömm að þyngd en vitað er að skjald- bökur af þessari tegund hafa orðið rúm 50 kíló og tveir metrar að lengd. Húðin er eins og þykkt gúmmí og hún myndar lag sem hlífir innri líffær- unum en bakan ver sig m.a. árásum með því að eyða 95% af tíma sínum fal- in í sandi og leðju þannig að einvörðungu augu og nasir standa upp úr. Dýrið er með langar klær og getur teygt hálsinn eldsnöggt fram og beitt síðan kjálkunum sterku til að mola bein í andstæðingi sínum. „Árásir henn- ar eru sneggri en hjá nokkur öðru dýri sem ég hef nokkurn tíma séð og ég undanskil ekki cobra-slöngur,“ sagði áðurnefndur Emmett. AP Cantor-risaskjaldbaka var talin nær útdauð Falin í sandi og leðju Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FORSETI Srí Lanka, Mahinda Rajapakse, segir að þjóð sín ætli ekki að vera háð erlendri fjárhags- aðstoð en Bretar, Þjóðverjar og Bandaríkjamenn hafa nú minnkað aðstoð við landið til að mótmæla meintum mannréttindabrotum stjórnvalda. „Ef okkur er boðin að- stoð af einlægni munum við taka boðinu. Ef ekki munum við gleyma allri aðstoð og bjarga okkur sjálf, “ sagði forsetinn. Bresk stjórnvöld frestuðu fyrr í mánuðinum að veita Srí Lanka að- stoð er nemur þrem milljónum doll- ara, um 190 milljónum króna, vegna meintra mannréttindabrota stjórn- ar Rajapakse. Stjórnir Bretlands og Bandaríkjanna grunar að stjórn- arhermenn beri að hluta til ábyrgð- ina á að bardagar milli þeirra og uppreisnarmanna Tamíl-Tígranna hafa breiðst út og nánast gert út af við vopnahléið frá 2002. Um 35.000 manns týndu lífi á Srí Lanka af völdum flóðbylgjunnar miklu árið 2004. Íslendingar eru meðal þjóða sem nú aðstoða Srí Lanka. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands, segir hvorki Norðmenn né Svía hafa gripið til sams konar aðgerða og áð- urnefndar þrjár, vestrænar þjóðir. En vel sé fylgst með þróun mála. „Við Íslendingar erum rétt að byrja á okkar verkefni og höfum fylgt þeim áætlunum sem við gerð- um í upphafi. Þetta byggist á samn- ingum milli stjórna landanna og við höfum ekki tekið neina ákvörðun um breytingu enn sem komið er þrátt fyrir þá ókyrrð sem komin er upp í landinu. En ég get ekkert full- yrt um það hvað verði gert í fram- tíðinni.“ Draga úr aðstoð við Srí Lanka Bretar gagnrýna mannréttindabrot Í HNOTSKURN »Tamíl-Tígrarnir, upp-reisnarmenn úr röðum þjóðarbrots Tamíla á norð- austurhluta Srí Lanka, hafa síðan 1983 barist við stjórnar- hermenn fyrir sjálfstæði. Um 70.000 manns hafa fallið í ár- tökunum. Praia da Luz. AFP. | Robert Murat, maðurinn sem yfirheyrður var af portúgölsku lögreglunni vegna barnshvarfsins í Algarve í Portú- gal 3. maí sl. segist hafa verið gerður að blóraböggli í málinu. „Þetta hefur eyðilagt líf mitt og gert mér og fjölskyldu minni hér og í Bretlandi afar erfitt fyrir,“ sagði Murat, sem á breska móður og fæddist sjálfur í Bretlandi, við Sky-sjónvarpsstöðina. Murat fékk stöðu grunaðs manns hjá lögreglunni eftir að leit- að hafði verið á heimili hans í Pra- ia Da Luz í Algarve á mánudag. Hann var yfirheyrður í hálfan sól- arhring en lögregla sagði sannanir á hendur honum ekki nægar til að hægt væri að gefa út ákæru á hendur honum. Murat sagði í gær að eina leiðin fyrir hann til að komast í gegnum þessa lífsreynslu væri ef lögreglan fyndi þann sem nam hina fjögurra ára gömlu Madeleine McCann á brott af hóteli hennar 3. maí sl. „Ég hef verið gerður að blóra- böggli fyrir eitthvað sem ég gerði ekki,“ sagði hann. Gerður að blóraböggli vegna barnshvarfs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.