Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 21

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 21 LANDIÐ Blönduós | Málararnir Kristján Pétursson og Jón Jóhannsson voru í óða önn að tjarga Hillebrandts- húsið á Blönduósi einn ágætan sól- skinsdag fyrir skömmu. Þetta ágæta hús sem mun vera eitt elsta timburhús landsins mun hýsa hafíssetur í sumar líkt og í fyrrasumar. Jóna Fanney Friðriks- dóttir bæjarstjóri sagði fyrirhugað að opna safnið 9. júní og mun það verða opið dag hvern í allt sumar. Ísbjörninn sem setti mikinn svip á safnið fór suður til síns heima í haust en er væntanlegur aftur allra næstu daga, að sögn bæjarstjórans. Erla Gunnarsdóttir hefur verið ráð- in til að hafa umsjón með Hafíssetr- inu og uppbyggingu þess í sumar en hún er að ljúka námi í ferða- málafræði. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Ísbjörninn er aftur á leiðinni norður Fáskrúðsfjörður | Fyrsta vorhátíð leikskólans Kæra- bæjar á Fáskrúðsfirði í nýju húsnæði skólans var haldin um helgina. Íbúum Fáskrúðsfjarðar var boðið að skoða húsið og hlusta á börnin sem voru með nokk- ur skemmtiatriði. Í skólanum eru 39 börn í vetur. Að þessu sinni út- skrifuðust 10 börn en þau byrja í grunnskólanum í haust. Gestir þáðu veitingar í boði skólans en allmargir íbúar staðarins sóttu hátíð- ina og tóku þátt í gleðinni með börnum leikskólans og foreldrum þeirra. Fyrsta vorhátíðin í nýju skólahúsnæði Morgunblaðið/Albert Kemp Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Í annað sinn á skömmum tíma barst stórlúða á land á Djúpavogi á línuveiðara en fyrir skemmstu kom báturinn Anna GK með 146 kg lúðu að landi. Að þessu sinni var það báturinn Arnar KE 260, sem er um 15 tonna plastbátur, sem kom með aðra og ennþá stærri lúðu að landi í Djúpavogs- höfn eftir hálftíma slag við að innbyrða ferlíkið. Lúða þessi vó hvorki meira né minna en 181 kg og er að sögn ein allra stærsta ef ekki sú stærsta sem dregin hefur verið á hefðbundna fiskilínu á Ís- landsmiðum. Í bókinni Íslenskir fiskar (1992) kemur fram að árið 1935 var veidd 266 kílóa lúða við Ísland og hún var talin sú stærsta sem hér hefur komið á land. Skipstjóri á Arnari er Karl Guð- mundsson frá Djúpavogi og með hon- um í róðri var sonur hans, Guðmundur Már. Sá síðarnefndi stendur hér við hlið stórlúðunnar. Þeir feðgar fengu aðstoð hjá skipverja á öðrum báti til að ná lúðunni um borð. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Lönduðu 181 kg þungri lúðu AUSTURLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.