Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 22

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 22
|fimmtudagur|17. 5. 2007| mbl.is daglegtlíf Litarefni sem notuð eru til að lita klæði og skó hafa fundist í kryddi og óleyfileg efni í spænskum paprikum. » 24 neytendur Hjónin Þorkell Erlingsson og Margrét Sæmundsdóttir fóru nýlega til Galapagoseyja og í regnskóga Amazon. » 26 ferðalög Jólapakkinn sem Birna Guð-mundsdóttir fékk eitt sinnsendan út til Kaup-mannahafnar lét ekki mikið yfir sér. Engu að síður átti hann eftir að valda ýmsum breytingum í lífi hennar. Nú, tveimur árum síðar, er hún búin að stofna fyrirtæki, minnka við sig vinnu á sjúkrahúsinu þar sem hún var í föstu starfi áður og stendur í viðskiptum heimsálfa á milli. Þar fyrir utan hefur hún endurnýjað kynnin við strákpjakkinn sem fyrir löngu kom til hennar í sveitina fyrir austan, þá bara níu ára gamall. „Ég skildi ekkert af hverju systir mín var að senda mér ósköp venju- legt hvítt kerti í hvítum pakka með jólapökkunum alla leið til Danmerk- ur,“ útskýrir Birna þegar hún rifjar upp hvernig sagan hófst. „Þegar ég kveikti hins vegar á kertinu var það ást við fyrstu sýn. Ég gekk rakleiðis inn á skrifstofu mannsins míns og sagði við hann að svona kerti hefði ég áhuga á að flytja inn til Danmerk- ur.“ Leitaði í hálft ár Kertið sem um ræðir er svokallað litbreytingaljós og er þeirrar nátt- úru að það skiptir litum á meðan log- ar á því. Systir Birnu hafði keypt það á bensínstöð hér heima eftir ábend- ingu vinkonu sinnar. Þar var kertið statt fyrir tilstilli móður framleið- andans, Þrastar Jóhannssonar, sem er búsettur í Hong Kong og á þar nokkur fyrirtæki. Hið merkilega er að Þröstur þessi var í sveit hjá Birnu sem krakki „og lærði þar að vinna,“ eins og hann segir sjálfur í gegnum símalínu frá Hong Kong. Birna hafði þó ekki hugmynd um að ljósið sem hafði heillað hana svo væri sprottið úr smiðju krakkaorms- ins sem fyrir löngu dvaldi hjá henni í nokkur sumur í Flóanum. „Það tók mig hálft ár að finna út úr því hver framleiðandinn var – ég var alltaf að leita á netinu en varð ekkert ágengt. Svo las ég viðtal við Þröst þar sem fram kom að hann væri með dans- skóla í Hong Kong og í einhverri aukalínu sagði að hann framleiddi kerti.“ Í ljós kom að þetta voru litbreyt- ingakertin sem Birna hafði leitað svo mikið að. „Ég hringdi í mömmu hans, fékk númerið hjá Þresti úti og sagði við hann að það væru bara mín örlög að gera þetta. Hann var meira en til og er búinn að reynast okkur rosalega vel enda með frábært starfsfólk.“ Söng uppi á stól Hún segir ótrúlega skemmtilegt að endurnýja kynnin við Þröst. „Við kynntumst þegar ég bjó austur í Flóa en þá tók ég krakka í sveit á sumrin. Þröstur kom til mín eftir að foreldrar hans höfðu séð auglýsingu frá mér. Hann var rosalega skemmtilegur karakter og ég man alltaf að fyrsta kvöldið hans í sveit- inni sýndi hann úr hverju hann var gerður. Ég sagði við hann í gríni að það væri siður hjá okkur að þegar nýr krakki kæmi í sveitina stæði hann uppi á stól og syngi fyrir heim- ilisfólk. Ég átti nú ekki von á að hann myndi gera það en hann hikaði ekki og fór upp á stól og söng. Þannig er Þröstur.“ Sjálfur rifjar hann upp kynni sín af sveitinni: „Ég hafði verið í sveit í Borgarfirði í þrjár vikur sumarið sem ég var átta ára og fannst það mjög gaman. Þar fékk ég smjörþef- inn af sveitalífinu en þó var dvölin þar meira eins og að vera í sum- arbúðum. Árið eftir var ákveðið að ég yrði í sveit allt sumarið og nið- urstaðan var sú að ég fór til Birnu. Það var alvöru sveit því við krakk- arnir tókum þátt í vinnunni á bæn- um. Það var mjög góð reynsla og ég fór mörg sumur eftir það eða alveg þangað til ég varð 13 ára. Þarna var grunnurinn lagður að því að maður lærði að vinna og vera duglegur. Síð- ar bauð Birna mér að vinna í sveit- inni fyrir húsi og fæði og mér fannst það mikill heiður enda hlýt ég þá að hafa verið ansi duglegur.“ Ætlaði bara í sumarfrí Hann varð því að vonum kátur þegar Birna hringdi í hann og fal- aðist eftir kertunum hans til end- ursölu. „Það var ótrúlega skemmti- legt enda mikil tilviljun að hún hafi verið búin að leita að þessu svona lengi. Það sýnir bara hvað heim- urinn er lítill – hún í Danmörku og ég í Hong Kong.“ Þröstur segir tilviljun hafa ráðið því að hann fór í kertaframleiðslu, sem er aðeins brot af starfsemi hans í Hong Kong. „Ég fór upprunalega sem gestakennari í samkvæm- isdönsum. Á þeim tíma var ég í fullri vinnu hjá Securitas en dansinn var mikið áhugamál og ég kenndi dans á kvöldin. Mér var boðið að koma til Hong Kong sem gestakennari í sum- arfríinu mínu en eftir tvær vikur var mér boðinn tveggja ára samningur hér úti. Mér hafði líka ákaflega vel hjá Securitas og því var þetta erfið ákvörðun og ekki hjálpaði til að ég var nýbúinn að fá stöðuhækkun hjá þeim. Yfirmenn mínir hjá Securitas, Guðmundur Arason og Árni Guð- mundsson, voru einstaklega skiln- ingsríkir svo ég ákvað að taka boð- inu um að vera áfram í Hong Kong þessi tvö ár. Og hér er ég enn, ellefu árum síðar.“ Í Hong Kong stofnaði Þröstur dansskóla sem hefur vaxið og dafnað úr því að vera eins manns fyrirtæki í einn stærsta dansskóla borgarinnar en hann hefur nú selt stóran hlut í honum. Í dag rekur hann nokkrar verslanir og fyrirtæki, m.a. Iceco Ltd. sem framleiðir og selur ýmiss konar dansvörur og hefur kerta- framleiðsluna sem aukabúgrein. „Kunningjafólk konunnar minnar sem framleiðir rafmagnstæki sýndi okkur einhvern tímann gróft eintak af svona breytilegu ljósi til að setja inn í kerti sem þau voru að prófa. Ég varð svo hrifinn að ég ákvað að keyra inn á þetta á fullu enda ekki margir í þessu á þeim tíma sem við byrjuðum. Við þróuðum þessa vöru og byrjuðum síðan að selja hana, til að byrja með ómerkta, en þegar samkeppnin jókst tókum við upp okkar eigið merki sem er SPA Cand- les.“ Grænlendingar stórkúnnar Kertin eru nú í dreifingu um allan heim en Birna er með umboð fyrir þau í Danmörku og á Íslandi í sam- starfi við Bergþóru Guðbergsdóttur. „Við seljum kertin undir nafninu Heillaljós og nú er hægt að fá þau á 40–50 stöðum á Íslandi,“ segir Birna. „Eins er ég að selja þau í Danmörku, svolítið í Þýskalandi og Noregi og Grænlendingar eru stórkúnnar.“ Þannig halda kertin góðu áfram að dáleiða þá sem á horfa, hvort sem þeir eru staddir í Hong Kong, Kaup- mannahöfn, á bensínstöð á litla Ís- landi eða í köldu þorpi á Grænlandi. „Bling bling og Nornabúðin voru fyrstu verslanirnar til að kveikja á þessu hér heima,“ segir Birna. Kannski er það ekki tilviljun. Það býr eitthvað dularfullt og seiðandi í marglitu og breytilegu ljósinu sem af kertunum stafar. Og sennilega kynngi magnaður galdur sem nær að tengja horfna vini yfir heimsálfur og ókunn höf. Logandi galdur heimsálfa á milli Morgunblaðið/Ásdís Á kínverska vísu Í heimsókn Birnu til Þrastar nýlega fékk hún far að hætti heimamanna hjá gömlum vini sínum. Eldur Þegar Birna kveikti á fyrsta kertinu var það ást við fyrstu sýn. Seiðandi Kertin eru ekki bara til heimilisnota, heldur gjarnarn notuð á nuddstofum og víðar þar sem skapa á róandi stemningu. Látlaust kerti sem keypt var á bensínstöð varð hvati viðskipta milli Hong Kong og Danmerkur. Grunnur þeirra var hins vegar lagður í íslenskri sveit fyrir meira en tuttugu árum. Bergþóra Njála Guðmunds- dóttir lét töfrast af seiðandi litbreytingaljósi. www.heillaljos.com www.lysslottet.dk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.