Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 25

Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 25 Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is „ÉG mæli með þorska- eða Krakka- lýsi bæði fyrir börn og fullorðna. Úr lýsi er fólk að sækjast eftir A- og D- vítamínum og omega-3 fitusýrum. Sami ráðlagði dagskammtur af D- vítamíni er fyrir einstaklinga frá sex mánaða til sextugs, en börn þurfa mun minna af A-vítamíni en full- orðnir. Engum er hollt að fá of stóra skammta af A-vítamíni og því mæli ég ekkert sérstaklega með ufsalýs- inu, sem er ríkt af A-vítamíni og alls ekki ætlað börnum til inntöku. Með því að taka þorskalýsi fram yfir ufsalýsi fær fólk líka meira af omega-3 fitusýrum í kaupbæti, ef svo má segja, því það tekur fleiri milli- lítra af þorskalýsinu en ufsalýsinu,“ segir Brynhildur Briem, næring- arfræðingur á matvælasviði Um- hverfisstofnunar. Öll lifrin er brædd saman Þorskalýsi er ekki bara unnið úr þorsklifur og ufsalýsi ekki einvörð- ungu úr ufsalifur heldur innihalda báðar þessar vörutegundir lýsi úr lif- ur þorskfiska, þorski, ýsu og ufsa. „Við söfnum saman lifur úr þessum fisktegundum og bræðum saman austur í Þorlákshöfn. Það er hins vegar of kostnaðarsamt að halda lifr- inni aðgreindri því fisklifur er við- kvæm," segir Jón Ögmundsson, gæðastjóri hjá Lýsi. A-vítamín minnkað um helming Lýsið er hreinsað til að losa úr því mengunarefni, en í hreinsunarferlinu tapast náttúrulegu vítamínin. Það þarf því að bæta við vítamínum í lýs- ið að loknu vinnsluferlinu. Helsti munurinn á þorska- og ufsalýsi felst því í mismikilli víta- mínbætingu. Ufsalýsið er mun vít- amínríkara en þorskalýsið. Að sögn Jóns er bæði A- og D-vítamínum bætt í lýsið, en nýlega hefur A- vítamín í ufsa- lýsi verið minnkað um helming, í sam- ráði við sér- fræðinga Lýð- heilsustöðvar, til að unnendur ufsalýsis fari ekki yfir ráð- lagðan dag- skammt af A- vítamíni. Fólk fær almennt ekki D-vítamín úr daglegri fæðu sinni, nema í síld, laxi, eggjum og sum- um mjólkuraf- urðum, en getur aftur á móti fengið A- vítamín eða for- vera A-vítamíns úr mjólkurvörum, fiski, grænmeti og ávöxtum auk lýsisins. A-vítamín hef- ur áhrif á sjón, stuðlar að heilbrigði húðar, hefur áhrif á vöxt beina, styrkir ónæmiskerfið og flýtir fyrir að sár grói. Þungaðar konur og mjólkandi mæður hafa lítils háttar aukna þörf fyrir A-vítamín. En hætta eykst á fæðingargöllum ef teknir eru á með- göngu stærri skammtar en ráðlagt er. Túnfiskur líka í Krakkalýsinu „Við höfum vissulega stundum velt nafnabreytingu á lýsinu fyrir okkur þar sem ufsalýsið er ekki bara unnið úr ufsalifur og þorskalýsið ekki bara unnið úr þorsklifur. Það hefur þó enn ekki orðið úr því vegna þess að við teljum að nafnabreyting myndi ekki falla í góðan jarðveg. Neytendur eru íhaldssamir og vilja bara fá sitt lýsi undir heitunum þorskalýsi og ufsa- lýsi. Persónulega kýs ég þó að taka Krakkalýsi því mér finnst það langbest. Það er ekki stór munur á Krakkalýsi og þorskalýsi, en það er á hinn bóginn mikill munur á þessu tvennu og ufsalýsi enda er- um við að ráð- leggja mun minni inntöku á ufsalýs- inu en hinu og alls ekki er mælt með ufsalýsi fyrir börn yngri en 12 ára. Í Krakkalýsið not- um við þorsk-, ýsu- og ufsalifur, en bætum túnfiski út í það til að fá í það aukið magn af fjölómettuðu DHA-fitusýrunni, sem er hluti af svokölluðum omega-3 fitusýrum. DHA-fitusýran er talin hafa mik- ilvægu hlutverki að gegna í upp- byggingu heila, miðtaugakerfis og sjónar,“ segir Jón. Í einu grammi af þorskalýsi eru 2 míkrógrömm af D-vítamíni, 50 mík- rógrömm af A-vítamíni og 1 milli- gramm af E-vítamíni. Í einu grammi af ufsalýsi eru nú um 4 míkrógrömm af D-vítamíni og 100 míkrógrömm af A-vítamíni og 2 milligrömm af E- vítamíni. Eitt gramm af Krakkalýsi inniheldur 2 míkrógrömm af D- vítamíni, 35 míkrógrömm af A- vítamíni og 1 milligramm af E- vítamíni. Lýðheilsustöð mælir í sín- um leiðbeiningum með þorskalýsi umfram ufsalýsi því of stórir skammtar af A-vítamíni geta verið skaðlegir vegna eituráhrifa. Mæla með þorskalýsi frekar en ufsalýsi Grillkjöt fyrir sumarið Sláturfélag Suðurlands hefur sett á markað nýjar tegundir af grill- kjöti. Í fyrsta lagi er um að ræða tvær tegundir af nautakjöti, nautakjöt að argentínskum hætti, bæði nauta- kótilettur og -bógsneiðar. Kjötið er látið liggja í krydd- legi sem gerir það sérlega meyrt og safa- ríkt. Í öðru lagi eru nú á boðstólum kryddlegnar, reyktar grísakóti- lettur. Þær eru léttreyktar og mar- ineraðar í rabarbarasultulegi en lög- urinn gefur sætt bragð. Í þriðja lagi koma á markað lambatvírifjur með kryddsmjöri. Lambatvírifjurnar eru lagðar í kryddsmjörslög en hann gefur góm- sætt kryddbragð og gerir kjötið bæði meyrt og gott. Von er á enn fleiri nýjungum nú á vormánuðum. SS-grillkjötið fæst í öllum helstu matvöruverslunum. nýtt Rúmteppi frá DanmörkuVerslunin Betra bak býður nú upp á ný rúmteppi frá danska hönn- uðinum Mette Ditmer. Teppin eru þunn, létt og fyrirferðarlítil og eru til í fimm mismunandi litum. Að auki er hægt að fá á sama stað púða í stíl við teppin, annaðhvort í sama lit eða í öðrum litum, að sögn Egils Reynissonar hjá Betra baki. MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 E N N E M M / S IA / N M 27 86 3 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Sértilboð íbúð á Kassandra, 2. júní í viku. 26. maí - UPPSELT 2. júní - 17 sæti 9. júní - 24 sæti Frá 49.990 kr. Rhodos Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 7 nætur, 24. eða 31. maí. 24. maí - 23 sæti 31. maí - örfá sæti 7. júní - 24 sæti Frá 49.990 kr. Montreal - Kanada Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Sértilboð íbúð á Diamant, 3. júní í viku. 27. maí - UPPSELT 3. júní - 11 sæti 10. júní - UPPSELT Frá 49.990 kr. Króatía Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð. 30. maí í viku. 23. maí - 7 sæti 30. maí - örfá sæti 6. júní - UPPSELT Frá 39.990 kr. Costa del Sol Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Stökktu tilboð 25. maí í viku. Ath. sér- tilboð á Las Gaviotas og Fontanellas, 25. maí eða 1. júní í viku kr. 10.000 aukalega. 25. maí - 19 sæti 1. júní - örfá sæti Frá 39.990 kr. Mallorca Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn. Sértilboð á Oasis Papagayo í viku, 10., 17. eða 24. júlí. UPPSELT í maí 5. júní - 11 sæti 12. júní - 14 sæti Frá 39.995 kr. Fuerteventura Netverð á mann, m.v. 2-4 saman í íbúð á Vina del Mar í viku. 24. eða 31. maí. 24. maí – 19 sæti 31. maí - 23 sæti 7. júní - UPPSELT Frá 39.990 kr. Benidorm Síðustu sætin í maí og júní ótrúleg tilboð – gríptu tækifærið Allt að seljast upp! Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is VATNSENDI – STÓRT EINBÝLI – HESTHÚS (STÆKKUNARMÖGULEIKI Á EIGNINNI) Frábær eign á yndislegum stað. Hér er um að ræða 284 fm eign, sem skiptist í einbýlishús á einni hæð og svo 15 hesta hesthús með gerði og aðgangi að stórri lóð. Með í kaupunum fylgja samþykktar teikningar af 88 fm bílskúr sem ráðgert er að tengist húsinu. Húsið sjálft skiptist í forstofu, tvö baðherbergi, opið rými með mikilli lofthæð, stofu og borðstofu, eldhús og búr, þrjú barnaherbergi, þvottaherbergi, hjónaherbergi og fataherbergi. Þetta er sannarlega stór og góð eign á einstökum stað. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Kletts. Ásett verð: 88,4 millj. Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.