Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 31

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 31 Í FRÉTTABLAÐINU 23. apríl sl. er haft eftir Páli Péturssyni, for- manni lyfjagreiðslunefndar, að ástæðan fyrir háu lyfjaverði hér á landi sé m.a. offramboð apóteka og fákeppni þeirra er versla með lyf. Miðað við þetta mætti halda að við Ís- lendingar værum mjög lyfjaglaðir og að við nenntum ekki að labba skrefinu lengra til að ná okkur í nauðsynleg lyf. Ég vil þó meina að þeir sem þurfa á lyfj- um að halda séu ekki lyfjaglaðir letingjar, því ég held að flestir taki lyf því það sé ástæða til og þeir telji það vera nauðsynlegt, hvort sem það er vegna eigin tilfinninga eða vegna orða þeirra er ávísa lyfinu. Lyfjagleði Þeir sem leyfa innflutning lyfja, selja og/eða ávísa lyfseðlum, eru, að mínu mati, margir hverjir allt of lyfjaglaðir. Fyrir suma er lífsnauðsynlegt að vera á lyfjum, fyrir aðra ekki. Þó er það svo þegar sjúk manneskja leggst inn á spítala að í flestum, ef ekki öllum, tilfellum koma lyf við sögu, þ.e.a.s. sá sjúki fær einhver lyf. Þessi lyf eru, eins og fyrr segir, stundum lífsnauðsynleg en allt of oft held ég að sá sjúki sé hafður á lyfj- um lengur en þörf er á og án þess að nokkuð sé verið að spá, eða hann spurður, hvort hann vilji hætta eða telji að það sé lífsnauðsynlegt að vera á lyfjum. Síðustu misseri hafa fréttir um geðheilbrigðismál m.a. fjallað um biðlista, manneklu, yfirfullar deildir, lág laun, lokanir deilda, skerðingu á þjónustu og ónóga samvinnu, litla sem enga liðveislu, háar sjálfs- vígstölur og óbilandi trú stjórnmála- manna á „besta heilbrigðiskerfi í heimi“ sem sumir vilja meina að sé á Íslandi. Áhugaleysi Þegar heilbrigðisráðherra var spurður að því í fréttum Ríkissjón- varpsins 24. apríl sl., hvort það væri forsvaranlegt að börn í sjálfsvígs- hættu þyrftu að fara á biðlista eftir þjónustu hjá barna- og unglinga- deild Landspítalans, þá svaraði hann svo: „Þeir fá þjónustu sem eru í mestri þörf“. En hvernig er með alla hina sem bíða, þurfa þeir þá að bíða eftir að þeir verði í mestri þörf til að komast að? Það er alveg ljóst að þeir sem eru á biðlista eftir þjónustu á Landspít- alanum þurfa á aðstoð að halda. En ástæðan fyrir því að fólk leitar eða er sent þangað, þrátt fyrir biðlist- ana, er að þessi þjónusta er á vegum ríkisins og þ.a.l. niðurgreidd svo þeir sem þangað leita eigi kost á að borga minna en ella. Á sama tíma og þetta ástand hef- ur ríkt hafa t.a.m. sálfræðingar og aðrir meðferðaraðilar, sem vinna utan spít- alans, ítrekað reynt að ná samningum við ríkið svo fólk geti leitað til þeirra og fengið þjón- ustu fyrir sama verð og er hjá Landspítalanum. En hingað til hafa heil- brigðisyfirvöld ekki viljað semja við þessa aðila. Ég hef líka ítrekað reynt að fá upplýsingar varðandi þjónustu er kallast liðveisla, en sú þjónusta, sem og önnur þjónusta ut- an spítalans, hefur hjálpað mörgum sem eiga við veikindi að stríða og hefur oft og tíðum komið í veg fyrir að fólk þurfi að leita eftir eða fara á biðlista eftir bráðaþjónustu inni á spítala. En því miður vitum við til þess að störf eins og liðveisla, störf fé- lagsliða og önnur umönnunarstörf eru svo illa launuð að það fæst ekki nógu margt fólk til starfa og oftar en ekki stoppar fólk stutt við, vegna lélegra launa og að því er virðist áhugaleysis og lítils skilnings stjórn- valda á mikilvægi þessara starfa. Besta heilbrigðiskerfi í heimi Samkvæmt alþjóðlegum stöðlum er Ísland með „besta heilbrigð- iskerfi í heimi“ og er það gjarnan nefnt þegar ráðamenn þjóðarinnar fjalla um þessi mál á opinberum vettvangi. Eftir að hafa hrist hausinn, eins og margir aðrir, yfir „besta heil- brigðiskerfi í heimi“ var mér sagt að alþjóðlegur útreikningur á heil- brigðiskerfum miðaðist við dán- artíðni vegna mistaka í heilbrigð- iskerfinu. Þá vitum við það, svo lengi sem sá sjúki sleppur lifandi af sjúkrahúsi eða deyr ekki í heima- húsi af völdum mistaka heilbrigð- isstarfsmanns, þá er heilbrigð- iskerfið ennþá í hópi þeirra bestu. Það er alveg víst að margir af þeim sem eru á listanum yfir sjálfs- vígstölur á Íslandi voru á biðlistum eftir heilbrigðisþjónustu í töluverð- an tíma áður en að sjálfsvíginu kom. Og margir aðstandendur eiga um sárt að binda eftir áralanga bið eftir þjónustu og/eða að einhver þeim ná- kominn hefur ekki getað beðið leng- ur og framið sjálfsvíg. Þessir að- standendur eru jafnvel sjálfir komnir á lista með þeim sem bíða eftir þjónustu hjá heilbrigðiskerfinu. Ég vil taka það fram að þrátt fyrir neikvæðar fréttir af geðheilbrigð- ismálum veit ég að margir fá góða þjónustu og þar eru margir heil- brigðisstarfsmenn sem eiga mikið hrós skilið fyrir sína vinnu. Miðað við framgang stjórnvalda í heilbrigðismálum mætti halda að besta heilbrigðiskerfi í heimi hefði verið og væri stjórnað af lyfjaglöð- um áhugaleysingjum. En nú er bara að vona að nýir tímar láti ljós sitt skína. Að heiðarleikinn verði hafður að leiðarljósi og að réttindi sjúklinga verði virt til hins ýtrasta. Að efnahagur þeirra efnaminni verði bættur sem og að velferð- arkerfi og mannauður íslenskrar þjóðar fái að njóta sín á traustum grunni. Lyfjagleði og áhugaleysi í „besta heilbrigðiskerfi í heimi“? Bergþór G. Böðvarsson skrifar um skilvirkni íslenska heil- brigðiskerfisins »… þá mætti halda aðbesta heilbrigð- iskerfi í heimi hefði ver- ið og væri stjórnað af lyfjaglöðum áhugaleys- ingjum. Bergþór G. Böðvarsson Höfundur starfar sem fulltrúi not- enda geðsviðs LSH. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Fréttir á SMS  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 ÁRSALIR EHF - FASTEIGNAMIÐLUN ef þú þarft að selja, leigja eða kaupa fasteign, mundu 533 4200 eða senda okkur póst: arsalir@arsalir.is F A S T E I G N A S A L A Höfum ákveðinn fjársterkan kaupanda að 6-8000 fm vöruskemmu á höfuðborgarsvæðinu, einnig kemur til greina lóð undir vöruskemmu. Allar nánari upplýsingar veitir Steinar S. Jónsson á Lyngvík. VÖRUSKEMMA ÓSKAST Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is Sigrún Gissurardóttir lögg. fasteignasali Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Blikaás 13 - Hf. Opið hús í dag milli kl. 15.00-16.00. Rúmgóð 119 fm, 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð, jarðhæð, í litlu fjölbýli með sérinngangi, vel stað- sett í Áslandshverfi í Hafnarfirði. Góð eign sem vert er að skoða. V. 28,3 millj. Ingibjörg og Sigurður bjóða ykkur velkomin. Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði Sími 520 7500 www.hraunhamar.is Glæsilegt 202 fm ein- býlishús á einni hæð, þar af 36,2 fm inn- byggður bílskúr. Húsið er mjög vel staðsett í enda botnlanga og næg bílastæði. Lóðin er um 1000 fm. Nýleg- ur sólpallur með heit- um potti. Húsið skipt- ist í andyri/sólstofu, hol, 30 fm stofu, þrjú 15 fm herbergi og er um 8 fm fataherbergi innaf einu herberginu, gang, þvottahús, geymslu/búr. Verð 54 millj. Afh. í ágúst 2007. Björn s. 820-6459 og Sigrún s. 695-2967, bjóða ykkur velkomin. Opið hús í Skógarlundi 11, Garðabæ í dag frá kl. 15-17 SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-15 ÁSGARÐUR 75 (Elías & Jóhanna á bjöllu) Rúmgóð og vel skipulögð 4ra- 5 herbergja 119 fm íbúð auk 26 fm bílskúrs, suðursvalir með glæsilegu útsýni. Íbúð skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, herb. hol, baðherb., 3 herb., geymsla innan íbúðar, 2 sérgeymslur í kjallara og bílskúr. Snyrtileg eign á þessum vinsæla stað. Verð: 29.900.000.- Sveinn Eyland S: 6-900-820 frá Fasteign.is verður á staðnum. GISTIHEIMILI - SUÐURHLÍÐUM REYKJAVÍKUR Skeifunni 11 Sími 534 5400 www.klettur.is Fasteignasalan Klettur var að fá í sölu gott gistiheimili neðarlega í suður- hlíðum Reykjavíkur við Fossvogsdalinn. Stutt er í gönguleiðir um Foss- vogsdalinn og næsta nágrenni, að Nauthólsvík og víðar. Nánari lýsing á gistiheimilinu: Komið er inn í anddyri, þar er gestamót- taka, inn af gestamóttöku er starfsmannaeldhús og inn af því er íbúðarher- bergi, sem nýta mætti fyrir forstöðumann. Til hægri frá anddyri er komið inn í veitingasal. Af jarðhæð er gengið niður í kjallara en þar eru 7 herbergi, eld- húsaðstaða, góð sjónvarpsaðstaða og sameiginleg baðherbergisaðstaða. Komið er upp á aðra hæð, sem er teppalögð, með 11 herbergjum og sam- eiginlegri baðherbergisaðstöðu fram á gangi. Komið er upp á 3ju hæð sem er teppalögð með 12 herbergjum og sameiginlegri baðherbergisaðstöðu fram á gangi. Gott gistiheimili í góðum rekstri. Möguleiki er að kaupa 6 íbúðir í sama húsi Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Kletts fasteignasölu. Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.