Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MESSUR Á MORGUN Með örfáum orðum langar mig að minn- ast vinar míns og starfsfélaga, Kalla Þórleifs. Okkar kynni hófust fyrir alvöru árið 1987 þegar ég var svo lánsamur að fá vinnu á teiknistof- unni hjá honum þar sem ég starf- aði síðan næstu ellefu árin. Það var á þessum árum, eða upp úr 1982, að tæknivæðingin við vinnslu sjávarafurða til sjós hófst fyrir alvöru og sífellt fleiri veiði- skipum var breytt í vinnsluskip af ýmsu tagi. Kalli átti stóran þátt í þessu öllu þar sem vinnslulínur og fyrirkomulag vinnslubúnaðar í meirihluta íslenskra vinnsluskipa allt frá upphafi þessa tímabils er hannað af honum. Þess utan hann- aði hann margar vinnslulínur í landi og breytingar á skipum. Vinnan var honum mikils virði, hann var skipulagður, og það birt- ist fyrst og fremst í því hversu af- kastamikill hönnuður hann var og ekki síst var hann frumkvöðull í mörgu af því sem hann hannaði. Að teikna og hanna var hans líf og yndi. Ekki bara vinna, heldur líka áhugamál, og það er alltaf gæfa hvers manns þegar það fer saman. Kalli var alltaf hress í viðmóti og átti svo auðvelt með að fitja upp á ólíklegustu hlutum til að ræða um, ekki síst einhverju spaugilegu í líf- inu. Hann hafði svo góða návist og það var alltaf svo mikil ró yfir hon- um. Það var oft unun að fylgjast með hvernig hann leysti úr vanda- málum sem óhjákvæmilega komu upp, ekki síst í kringum skip sem voru í breytingum erlendis. Þá komu stundum upp hnökrar milli manna í skipaviðgerðarstöðvunum annars vegar og fulltrúum útgerða hins vegar þar sem oft stefndi í mikil vandræði. Kalli leysti oftar en ekki úr þessum málum á sinn hægláta og markvissa hátt þannig Karl Garðar Þórleifsson ✝ Karl GarðarÞórleifsson fæddist á Mið- görðum í Grímsey 21. maí árið 1943. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 30. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrar- kirkju 8. maí. að allir fóru sáttir frá borði. Ég minnist Kalla þar sem hann situr í kyrrð og ró við teikniborðið og teikn- ar en síminn hringir af og til. Hann gat hinsvegar sparað sér tíma við að leita að númerum í símaskrá þegar hann þurfti að hringja. Hann mundi nánast öll símanúmer sem hann þurfti á að halda, það voru að- eins einstaka faxnúmer sem hann mundi ekki. Ég dáðist hins vegar oftar að þessu sterka sjónminni sem hann hafði. Það virtist vera nóg fyrir hann að koma einu sinni um borð í skip til að skoða aðstæður og eftir það mundi hann nákvæmlega hvar allir þeir hlutir voru staðsettir sem skiptu hann máli varðandi fyrir- hugaða hönnun. Og ef mig vantaði einhverjar upplýsingar þá gekk hann oft með mér að einhverjum hillurekkanum, tók út möppu, opn- aði hana nákvæmlega á þeim stað sem þær upplýsingar var að finna sem mig vantaði. Á þeim árum sem ég starfaði á Teiknistofu KGÞ þá handskrifaði Kalli allar verklýsing- ar og annað sem frá honum fór. Skrift hans var víða rómuð því hann hafði svo fallega rithönd. Til hans var leitað af aðstandendum Andrésar Andar-leikanna og í mörg ár skrifaði hann viðurkenn- ingarskjöl keppenda á leikunum en þeir skiptu hundruðum á hverju ári. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir samverustundirnar Kalli minn. Ég mun minnast þín með söknuði og hlýhug, sem trausts vinar og góðs drengs. Aðstandendum votta ég hina dýpstu samúð. Guðmundur Pétursson. Mig langar að kveðja félaga minn, öðlinginn Karl Garðar Þór- leifsson, með fáeinum orðum. Leið- ir okkar Kalla lágu fyrst saman fyrir margt löngu þegar hann var nýbúinn að opna eigin teiknistofu og ég stýrimaður á Súlunni. Hann var að vinna að breytingum á skip- inu. Upp frá því „þekktumst“ við, þótt ekki yrðu mikil samskipti okk- ar í millum lengi vel, en þessi þægi- legi maður hafði svo góða návist að þó að ár liði milli þess að við hitt- umst var það sem við hefðum rætt saman í gær. Eftir að ég hætti til sjós lágu leiðir okkar Kalla saman á golfvell- inum. Hann var fróður um golfið og minnugur með afbrigðum um atburði tengda golfi og golfkeppn- um. Ekki að Kalli hafi spilað mikið sjálfur, heldur var þar kominn fjöl- skyldufaðirinn og stuðningsmaður- inn sem fylgdi sonum sínum, sem báðir voru góðir golfspilarar og keppnismenn í golfi til fjölda ára. Hann var „caddy“ fyrir þá á Ís- landsmótum og einnig „dró“ hann fyrir eiginkonu sína á mótum. Þessi mót mundi Kalli nánast holu fyrir holu, slíkt var minni hans. Já við Kalli spiluðum mikið golf. Það er óhætt að segja „mikið“ því við höfðum oft í flimtingum að við næðum miklu meiri æfingu út úr hverjum hring en flestir, þar sem við notuðum mun fleiri högg og æfðumst því meira en aðrir. Við höfðum færri orð um árangurinn, enda ekki aðalmálið. Við áttum okkar „einkahúmor“ á golfvellin- um. Hann laumaði kannski út úr sér: „Það er OK núna Sæmi minn, hestarnir eru farnir,“ sem var til- vísun í að undirritaður hafði eitt sinn átt högg 90° á stefnuna og boltinn hafnað í hrossahóp utan girðingar. Einnig voru „Banka- stjórabrekkan“ og „Karlsruhe“ okkar sérstöku viðmið með sína sögu. Við tókum okkur mátulega alvarlega í sportinu en höfðum því meiri ánægju af þessum stundum. Eftir að ég flutti suður á síðasta ári var lítið um spilamennsku, við höfðum þó samband af og til svona rétt til að monta okkur, og ræða um spilamennskuna. Þegar svo Kalli veiktist fékk ég hjá honum fréttir nokkuð reglulega. Eftir að hann varð rúmliggjandi og mest á spítala heyrðumst við lítið, þó fylgdist ég með úr fjarlægð. Kannski mitt hugleysi að vilja ekki trúa hvert stefndi og vera meira í sambandi. Hann „hnippti“ þó í mig í tví- gang síðustu dagana. Fyrst daginn sem hann fékk að fara heim á Ak- ureyri til að ljúka baráttunni, og svo daginn sem hann kvaddi þessa jarðvist. Hann verður örugglega búinn að bóka tíma fyrir okkur þegar þar að kemur og við tökum hring á öðrum velli í öðrum heimi. Önnu Freyju og börnunum votta ég mína dýpstu samúð, því þeirra missir er mikill. Sæmundur Friðriksson. Elsku vinkona mín. Ég er búin að vera lengi að koma mér til að skrifa þessar lín- ur. Hvers vegna veit ég ekki en einhvern veginn hef ég ekki ennþá skilið að þú sért farin héðan frá okkur og að ég geti ekki haft samband við þig, nú sem áður. Ég græt núna þegar ég skrifa þessar línur. Þær eru skrifaðar að kvöldi 1. maí og að loknum síðari útvarpsþætti sem var gerður þér til heiðurs og til minningar um þig. Þann þátt hefði mátt gera áður en þú yfirgafst þessa jarðvist því þá hefðir þú heyrt og fundið hversu mikla virðingu þú hefur haft meðal tónlistarunnenda og vina. En, þá rifjuðust upp svo margar minn- ingar. Ég minnist þess til dæmis þegar ég heyrði um þig fyrst. Þú komst til Þorlákshafnar, til frænku þinnar, „Öldu hans Franklíns“, og strákarnir sem ég hélt að ég „ætti“ Bergþóra Árnadóttir ✝ Bergþóra Árna-dóttir fæddist í Reykjavík 15. febr- úar 1948. Hún lést á sjúkrahúsinu í Ála- borg í Danmörku 8. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hveragerð- iskirkju 31. mars. voru uppveðraðir því það var komin ný pæja í bæinn. Ég, vitanlega, ákvað að athuga hvað væri að gerast og fór að hafa auga með þér. Þá kom upp úr dúrnum meðal annars að þú áttir frábæra útgáfu af megrunarkúr sem ég, auðvitað, þurfti að reyna og heimsótti þig til að fá upp- skriftina. Þá var ég sennilega fimmtán ára gömul. Nokkrum árum síðar lágu leiðir okkar saman á ný, ég þá búin að eiga Helenu Rós og þú Jón Tryggva, bæði fædd á sama ári. Margt kvöldið sat ég hjá þér á þeim árum á H-götunni og hlustaði á þig spila og semja lög við ljóð eftir Stein Steinar eða Pál J. Árdal og fleiri. Ég var vitanlega ekki sú baráttukona sem þú varst og því var ég bara þiggjandi í þessari sköpun þinni. Þrátt fyrir að við veldum ólíkar slóðir á lífsleiðinni voru samskipti okkar alltaf eins og við værum heima í Þorlákshöfn eða hefðum hist í gær. Ég man að við vorum að undirbúa frumsýningarpartý fyrir Leikfélag Þorlákshafnar, sennilega árið 1975. Við vorum heima hjá mér og vorum að búa til brauðtertur og annað álíka góð- gæti. Þá fór rafmagnið allt í einu af húsinu. Þér fannst það nú lítið mál. Við gætum vel haldið þessu áfram við kertaljós ef þess þurfti. Og vitanlega hristum við hnallþór- urnar fram úr erminni sem átti að eta um kvöldið. Margar stundirnar áttum við á Laugalæknum, á Skólavörðustígnum og uppi í Mosó. Stundum voru samveru- stundirnar þannig að það kom ekki til greina annað en að ég eða þú gistum hvor hjá annarri. Ég var svaramaður þinn þegar þið Valdi giftuð ykkur og átti margar góðar stundir með ykkur. Ég heimsótti ykkur Peter til Brovst í Danmörku og þar var ekkert lát á viðurgjörn- ingi og gestrisni. Þú sagðir við mig þegar ég flutti til Ólafsfjarðar að þar hefðir þú aldrei sungið, nú væri full ástæða til þess að koma þangað. Af því varð þó aldrei. Við náðum þó, í síðustu ferð þinni hingað heim til Íslands, að smala saman gamla góða saumaklúbbn- um og eiga þar góða stund saman. Það eitt sannar að maður skal aldrei geyma til morguns, það sem maður getur gert í dag. Elsku Begga. Ég kem til með að hitta þig hinum megin þegar minn tími kemur. Þar getum við rokkað eins og okkur sýnist. Bið að heilsa öllum englunum. Öllum þínum nánustu sendi ég samúðarkveðjur. Þín vinkona, Ásta Gríms. AKUREYRARKIRKJA: Uppstigningardag- ur. Dagur aldraðra. Hátíðarmessa kl. 14. Meðhjálpari, Birgir Styrmisson og prestur, Óskar Hafsteinn Óskarsson flytja sam- talspredikun. Kór aldraðra syngur. Organ- isti: Petra Björk Pálsdóttir. Kaffiveitingar í Safnaðarsal á eftir. Allir velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Karlakórinn Stefnir syngur ásamt hluta af kirkjukórnum. Organisti Krisztina Kalló. Hátíðarkaffi í safnaðarheimilinu í boði Soroptimista-kvenna. ÁSKIRKJA: Helgistund á Hjúkrunarheimil- inu Skjóli kl. 13. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Áskirkju syngur, organisti Kári Þormar. Ein- söngur Oddný Sigurðardóttir. Kaffiveiting- ar í boði Safnaðarfélags Ásprestakalls í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lok- inni. Kl. 17 heldur Rósa Jóhannesdóttir burtfararprófstónleika frá Söngskólanum í Reykjavík í Áskirkju. Kirkjubíllinn ekur. BORGARNESKIRKJA: Messa kl. 14. Organisti Steinunn Árnadóttir. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta klukkan 14. Sr. Pálmi Matthíasson þjónar fyrir alt- ari. Þar prédikar Ellert B Schram, nýkjörinn alþingismaður. Glæðurnar, kór Kvenfélags Bústaðakirkju, syngja undir stjórn Arnhild- ar Valgarðsdóttur. Organisti er Renata Ivan og einsöngvari Erla Berglind Einarsdóttir. DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 14. Dagur aldraðra. Sr. Sigurður Pálsson prédikar. Sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Magnús B. Björnsson þjóna fyrir altari. Kór Digranes- kirkju syngur. Organisti Kjartan Sigurjóns- son. www.digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN: Kl. 14. Norsk messa á þjóðhátíðardegi Norðmanna, ræðumaður er Siv Friðleifsdóttir, sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson, prófastur, þjónar fyrir altari. Organisti er Marteinn Friðriksson. Drengja- kór dómkirkjunnar í Niðarósi syngur. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa á degi aldr- aðra. Ræðumaður er Örnólfur Thorlacius en sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson sér um helgihaldið. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Friðriksson. Einsöng syngur Björg Þórhallsdóttir. Að lokinni messu er gestum boðið í kaffi í Safnaðarheimilinu. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 14 fyr- ir eldri borgara og fjölskyldur þeirra. Mess- una leiða sr. Hjörtur Magni Jóhannsson og sr. Ása Björk Ólafsdóttir en almennan safnaðarsöng leiða Anna Sigríður Helga- dóttir og Carl Möller. Messukaffi í Safn- aðarheimilinu á eftir í boði Kvenfélags Frí- kirkjunnar. GRAFARVOGSKIRKJA: Dagur eldri borg- ara. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Séra Ólöf Ólafsdóttir fyrrv. prestur á Skjóli pré- dikar. Prestar safnaðarins þjóna. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Gróa Hreinsdóttir. Kaffiveitingar í boði sóknar- nefndar og Safnaðarfélags Grafarvogs- kirkju. GRENSÁSKIRKJA: Uppstigningardagur, dagur aldraðra. Guðsþjónusta kl. 11. Samskot í Líknarsjóð. Kirkjukór Grensás- kirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnar- son. Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannes- dóttir. Málsverður að lokinni messu í safnaðarheimili. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Ath tímann. Eldri borgurum boðið sérstaklega til kirkju. Prestar: sr. Þórhallur Heimisson og sr. Gunnþór Þ. Ingason sem prédikar. Organisti: Guðmundur Sigurðs- son kantór. Einsöngvari: Þóra Björnsdóttir bæði í kirkju og í kaffisamsæti í Hásölum. Kór: Kór Hafnarfjarðarkirkju. Kaffisam- sæti eftir messu í Hásölum Strandbergs. Þórunn Björnsdóttir syngur einsöng og Hjörtur Howser leikur tónlist og sumarlög á Friðriksflygilinn. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Gerðu- bergskórinn syngur undir stjórn Kára Frið- rikssonar. Barnastarf á sama tíma undir stjórn Erlu Guðrúnar Arnmundardóttur og Þóru Marteinsdóttur. Veitingar eftir messu. Organisti Douglas Brotchie. Helga Soffía Konráðsdóttir. HÁTEIGSKIRKJA: Uppstigningardagur, dagur aldraðra. Messa kl. 11. Veitingar eftir messu. Organisti Douglas A. Brotc- hie. Prestur Tómas Sveinsson HJALLATÚN, dvalar og hjúkrunarheimili: Helgistund verður á Hjallatúni á uppstign- ingardag, kl. 15. HRAFNISTA: Hrafnista í Reykjavík. Guðs- þjónusta verður haldin á uppstigningardag kl. 15.30 í samkomusalnum Helgafelli. Organisti Kári Þormar. Félagar úr kór Ás- kirkju syngja ásamt kór Hrafnistu. Einsöng syngur Oddný Sigurðardóttir. Prestur sr. Svanhildur Blöndal. ÍSLENSKA KIRKJAN Í SVÍÞJÓÐ: Malmö/ Lundur. Guðsþjónusta verður í Arlövkirkju á uppst. 17. maí kl. 14. Íslenski kórinn í Lundi syngur undir stjórn Huldu Birnu Guð- mundsdóttur. Örn Arason leikur einleik á gítar. Stefán Arason leikur á orgel. Þórir Jökull Þorsteinsson predikar. Ágúst Ein- arsson þjónar fyrir altari. Kirkjukaffi. KEFLAVÍKURKIRKJA: Á uppstigingadag, kl. 14 verður guðsþjónusta í Keflavíkur- kirkju. Sr. Björn Jónsson predikar og sr. Skúli S. Ólafsson þjónar fyrir altari. Eldeyj- arkórinn syngur. Að athöfn lokinni verður myndlistarsýning Sossu opnuð. Dr. Gunn- ar Kristjánsson flytur erindi. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á uppstigningardegi, kirkjudegi aldraðra. Sr. Stefán Lárusson predikar og sóknar- prestur þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðar- söng. Organisti Julian Hewlett. Kaffi í Borgum eftir guðsþjónustu. LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14, ath tímann. Einsöngur og upplestur eldri borgara. Guðfreður Hjörvar Jóhann- esson syngur og segir nokkur orð. Kaffi- veitingar og handavinnusýning úr starfi eldri borgara eftir stundina. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefáns- son. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta verður fyrir allt prestakallið í Möðruvalla- kirkju á uppstigningardag kl. 14. Eldri borgarar boðnir sérstaklega velkomnir með fjölskyldum sínum. Messukaffi á prestssetrinu á eftir með söng við píanóið. NESKIRKJA: Guðsþjónusta á uppstigning- ardag kl. 14. Litli kórinn – kór eldri borgara í Neskirkju syngur undir stjórn Ingu J. Backman. Organisti Reynir Jónasson. Sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur, prédik- ar. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir alt- ari. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á kaffiveitingar. NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): Guðsþjónusta á uppstigningardag kl. 11. Sr. Kjartan Jónsson, héraðsprestur, þjón- ar og Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesj- um, syngur undir stjórn Alexöndru Pitak. Organisti er Dagmar Kuánková og með- hjálpari Kristjana Gísladóttir. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11 á upp- stigningardag. Ágústa Skúladóttir, Kjartan T. Ólafsson, Ólafur Ólafsson og Hjörtur Þórarinsson lesa ritningarorð. Kirkjukórinn syngur undir stjórn organistans, Jörgs E. Sondermanns. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson, fyrrum prófast- ur, prédikar. Sr. Valgeir Ástráðsson þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir sönginn. Org- anisti Jón Bjarnason. Aldraðir boðnir sér- staklega velkomnir. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs- þjónusta fyrir eldri borgara á uppstigning- ardag kl. 14. Prédikun: Eysteinn Orri Gunn- arsson, guðfræðinemi. Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þ. Ásgeirs- dóttur. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Rúta: Frá Hjallabraut 33, kl. 13.40 og frá Hrafnistu kl. 13.50. Guðpspjall dagsins: Biðjið í Jesú nafni. Jóh. 16 Morgunblaðið/KristjánAkureyrarkirkja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.