Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8–16.30 handavinna. Kl. 9–16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 boccia. Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 myndlist. FEBÁ, Álftanesi | Munið handverkssýningu eldri borgara í Litlakoti laugardaginn 19. maí kl. 14–17. Nánar í síma 863 4225. Félag áhugamanna um tréskurð | Vorsýning í safn- aðarheimili Háteigskirkju á uppstigningardag. Einn- ig er opið 19. og 20. maí. Alla dagana er opið kl. 13– 17 og aðgangur er ókeypis. Á uppstigningardag verður Kvenfélag Háteigskirkju með kaffisölu. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Dagsferð eldri borgara með kirkjunni. Lokað í Garðabergi í dag. Félagsstarf Gerðubergs | Í dag fellur starfsemi nið- ur. Gerðubergskórinn syngur við útvarpsmessu kl. 11 í Háteigskirkju og kl. 14 við messu í Fella- og Hólakirkju. Stjórnandi Kári Friðriksson. Á morgun kl. 10 er Bragakaffi, á eftir er létt ganga um ná- grennið. S. 575 7720. Furugerði 1, félagsstarf | Furugerði 1, Norðurbrún 1 og Dalbraut 18–20. Fimmtudaginn 24. maí verður farið í Fræðasetrið í Sandgerði. Lagt verður af stað kl. 13 frá Norðurbrún og síðan teknir aðrir farþegar. Uppl. og skráning í Norðurbrún í s. 568 6960, í Furugerði í s. 553 6040 og á Dalbraut í s. 588 9533. Hvassaleiti 56–58 | Árleg handverkssýning verð- ur haldin dagana 20.–22. maí, sýndir verða munir sem unnir voru í félagsstarfinu í vetur. Kaffi og gott meðlæti, allir velkomnir. Opið kl. 13–17 alla dagana. Hæðargarður 31 | Listasmiðja, framsögn, trésmíð- ar, leikfimi, myndlist, skapandi skrif, félagsvist, bók- menntahópur, tölvuleiðbeiningar, gönguferðir, ljóðalestur, ljóðagerð, söngur, bútasaumur, morgunandakt og hugmyndabankinn alltaf opinn. Til hvers langar þig? Kíktu við. S. 568 3132. asdis- .skuladottir@reykjavik.is. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, föstudag, er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og lista- smiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Skál í kvöld kl. 19 í félagsheimili Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. All- ir velkomnir. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera. Kl. 13 opinn salurinn. Kl. 13.15–14 leikfimi. Kl. 14.15 félagsvist. Kirkjustarf Áskirkja | Á uppstigningardag verður guðsþjón- usta á Hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá sóknarprests og djákna heimilisins. Félagar úr kór Áskirkju leiða söng. Safnaðarfélag Áskirkju býður upp á kaffihlaðborð eftir guðsþjónustuna. Kirkju- bíllinn ekur. Digraneskirkja | Dagur aldraðra. Messa kl. 14. Sr. Sigurður Pálsson predikar, sr. Gunnar Sigurjónsson og sr. Magnús Björn Björnsson þjóna fyrir altari. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju syngur. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. www.digraneskirkja.is. Laugarneskirkja | Messa kl. 14. Dagur aldraðra. Sr. Hildur Eir Bolladóttir þjónar ásamt Sigurbirni Þor- kelssyni meðhjálpara, fulltrúum þjónustuhóps, Gunnari Gunnarssyni organista og kór Laugarnes- kirkju. Terta og kaffi eftir messu. Í kaffinu verða sungin íslensk sumarlög við undirleik Gunnars Gunnarssonar. Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 21. Tekið er við bænarefnum hjá prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundar- innar. 50ára. Ólafur HafsteinnJónsson húsasmíða- meistarari, Þóristúni 13, Sel- fossi, verður fimmtugur föstu- daginn 18. maí. Af því tilefni ætla hann og fjölskylda hans að taka á móti gestum laugar- daginn 19. maí á Hótel Sel- fossi milli kl. 20 og 23. dagbók Í dag er fimmtudagur 17. maí, 137. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið. (Lk. 12, 32.) Ámorgun, föstudag stendurHáskólinn á Bifröst fyrirkynningu á meistaranámi viðháskólann. Kynningin fer fram á Reykjavík Hótel Centrum í Aðalstræti, frá kl. 12.30 til 15. Eiríkur Bergmann Einarsson er dós- ent og forstöðumaður Evrópufræðaset- urs við Háskólann á Bifröst: „Boðið er upp á námsleiðir á meistarastigi í menningarstjórnun, lögfræði og í al- þjóðlegri bankastarfsemi og við- skiptum. Nú kynnum við einnig endur- bætt meistaranám í Evrópufræðum með áherslu á Austur-Evrópu,“ segir Eiríkur. „Samfélög Austur-Evrópu eru í ör- um vexti og fyrirsjáanlegt að svæðið verði mjög mikilvægt fyrir viðskipta- hagsmuni Íslendinga í náinni framtíð. Við þekkjum dæmi af íslenskum við- skiptamönnum sem hafa verið að hasla sér völl á þessum slóðum og gengið býsna vel, og eru áherslur viðskiptalífs- ins að færast æ austar í Evrópu,“ út- skýrir Eiríkur. „Hins vegar höfum við harla litla þekkingu á þessu svæði, menningu þjóðanna, efnahagskerfi og viðskiptalegu umhverfi og er mikilvægt að mennta fólk hér á landi til þess að skilja þessi samfélög og grípa þau stóru tækifæri sem þar er að finna.“ Evrópu- fræðanámið er þverfaglegt nám: „Í náminu mætast stjórnmálafræði, hag- fræði og sagnfræði. Meðal annars er farið ítarlega í efnahagskerfi Evrópu- ríkja, samrunaþróun Evrópu og sögu auk þess að skoða stöðu Íslands í evrópsku samstarfi. Markmið námsins er að búa nemendur undir þátttöku í evrópsku og öðru fjölþjóðlegu sam- starfi. Námið er mjög einstaklings- miðað og fjölbreyttar áherslur í boði, svo hægt er að sníða námið að mark- miðum nemandans,“ segir Eiríkur. „Námið er blanda af fjarnámi og stað- arnámi svo hægt er að stunda nám með vinnu. Á sumrin stunda nemendur staðarnám í 5 til 6 vikur á Bifröst en yfir vetrartímann eru haldnar vinnu- helgar í skólanum og fer kennsla þess á milli fram með fjarkennslu. Einnig er boðið upp á námsferðir erlendis: Farið er árlega til Brussel og heimsóttar meginstofnanir Evrópusambandsins, sendiskrifstofur Íslands og aðrar mikil- vægar alþjóðastofnanir á svæðinu.“ Nánar um námið á www.bifrost.is. Menntun | Endurbætt meistaranám í Evrópufræðum meðal námsleiða í boði á Bifröst Gríðarleg tækifæri í A-Evrópu  Eiríkur Berg- mann Einarsson fæddist í Reykja- vík 1969. Hann lauk BA í stjórn- málafræði frá HÍ 1995 og meistara- gráðu í alþjóða- stjórnmálum frá Kaupmannahafn- arháskóla 1998. Hann leggur nú stund á doktorsnám við HÍ. Eiríkur starfaði sem blaðamaður, framkvæmdastjóri Leikfélags Íslands og aðjúnkt og verk- efnastjóri Evrópumála hjá HÍ. Hann var yfirmaður Íslandsdeildar sendi- ráðs ESB í Ósló. Hann hefur verið dós- ent við Háskólann á Bifröst og for- stöðumaður Evrópufræðaseturs frá 2005. Eiríkur er í sambúð með Aino Freyju Jarvela leikara og eiga þau samanlagt þrjú börn. Tónlist Barinn | Arctic Wave Records (IS) & Heineken Music bjóða upp á Baroque Records á Íslandi þann 18. maí. Þar mun Keith Mcdonnell, eigandi Baroque Records, spila framsækna house-tónlist. Heine- ken Music, Barinn og Arctic Wave Records tryggja að frítt verður inn þetta kvöld. DOMO Bar | Kl. 21. Kvintett Andr- ésar Þórs leikur tónlist eftir trompetleikarann Dave Douglas, sem er einn af atkvæðamestu djasstónlistarmönnum samtím- ans. Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar, Sigurður Flosason, altó sax, Eiríkur Orri Ólafsson, trompet, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, kontrabassi, Scott McLemore, trommur. Seltjarnarneskirkja | Vortónleikar Kyrjanna í dag kl. 17. Yfirskrift tón- leikanna er „Ástir og rómantík“ og sungin verða íslensk og ensk lög í þeim anda undir stjórn Sigurbjargar Hv. Magnúsdóttur. Píanóleikari Kyrjanna er Halldóra Aradóttir og Daníel Friðrik Böðvarsson sér um gítarleik. Myndlist Keflavíkurkirkja | Myndlistarsýn- ing listakonunnar Sossu verður opnuð formlega í dag, uppstign- ingardag. Sýnd verða verk sem sérstaklega eru máluð í tilefni sýn- ingarinnar. Dagskráin hefst með guðsþjónustu kl. 14, sr. Björn Jóns- son þjónar fyrir altari. Eldeyjarkór- inn syngur við messuna. Að henni lokinni verður dagskrá þar sem dr. Gunnar Kristjánsson prófastur flytur erindi um myndlist og trú. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Nánar á keflavikurkirkja.is. Dans Hótel Borg | Í kvöld verður hægt að dansa argentínskan tangó í Gyllta salnum á Hótel Borg við argentínska tangótónlist, DJ Þórður. Dansleikurinn hefst kl. 21, aðgangseyrir 500 kr. Opinn tími fyrir byrjendur kl. 20–21, Daði og Dísa kenna. Uppákomur Saltfisksetrið í Grindavík | Grindavíkurbær og Saltfisksetrið bjóða upp á þjóðháttakynningu sem hefst með erindi og leiðsögn í Saltfisksetrinu 19. maí kl. 11. Kl. 13.15: rútuferð að Selatöngum, gengið um svæðið með leiðsögn og síðan gengið að Ísólfsskála. Heimkoma um kl. 17, sjá nánari kynningu á www.grindavik.is. Fréttir og tilkynningar Rauði krossinn | Garðabæjardeild Rauða kross Íslands auglýsir eftir garni eða garnafgöngum fyrir prjónahóp deildarinnar. Tökum á móti garni í Hrísmóum 4. Getum líka sótt. Sími 565–9494. Fyrirlestrar og fundir Oddi - stofa 101 | 18. maí kl. 12 í Odda 101. Alþjóðamálastofnun HÍ, Sagnfræðingafélagið og breska sendiráðið bjóða til fyrirlestrar Peters Hennessy, prófessors við University of London. Hann kallar erindi sitt „Britain and Europe: The Emotional Deficit“ og skoðar hvers vegna eyþjóðin hefur sér- stæða sýn á Evrópusamrunann. Rangárþing ytra | Árleg Odda- stefna Oddafélagsins verður í Heklusetri á Leirubakka í Land- sveit 19. maí nk. kl. 13–17. Fram- saga: Árni Daníel Júlíusson, Eirík- ur Þormóðsson, sr. Guðbjörg Arnardóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Hreinn Óskarsson, Sigurður Sig- urðarson, Valgerður Brynjólfs- dóttir og Þór Jakobsson. ReykjavíkurAkademían | Dr. Chung-ying Cheng, prófessor í heimspeki við University of Hawa- ii, heldur fyrirlestur (á ensku) á vegum Félags áhugamanna um heimspeki kl. 20.30. Hvernig ber- um við saman vestræna og kín- verska heimspeki og hver er ávinningurinn? Cheng segir þess- ar hefðir beina sjónum að ólíkum víddum veruleikans. Frístundir og námskeið Slysavarnarfélagið Mannbjörg | Unglingadeildin Strumpur, sem er deild innan slysavarnardeildar Mannbjargar í Þorlákshöfn, ætlar að fara í áheitagöngu til söfnunar fyrir námskeið sem verður haldið í Gufuskálum í júlí. Gangan hefst klukkan 9 að morgni þann 19. maí. Gengið verður frá skýli slysa- varnardeildarinnar í Þorlákshöfn. Slysavarnardeildin biður alla þá, sem hafa ráð á, um liðveislu. Reikningsnúmer slysavarnardeild- arinnar er 015–26–2003 og kenni- talan 460387–2569. KVENNAKÓRINN Kyrj- urnar fagnar 10 ára afmæli sínu í dag með veglegum af- mælistónleikum í Seltjarn- arneskirkju kl 17. Stjórn- andi er Sigurbjörg Hvann- dal Magnúsdóttir en yfirskrift tónleikanna er „Ástir og rómantík“ og á efnisskránni er fjölbreytt blanda af íslenskum og er- lendum lögum. Syngja um ástir með ljúfum hreim Morgunblaðið/Ómar Stop! - in the name of love syngja Kyrjurnar í hér með viðeigandi látbragði. Þær syngja líka lög sem Ellý Vilhjálms gerði þjóðkunn og góðkunningja eins og Besame Mucho. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda til- kynningu og mynd á net- fangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. FRÉTTIR STOFNUN stjórnsýslufræða og stjórnmála stendur fyrir málstofu um ríkisstjórnir föstudaginn 18. maí nk. kl. 14-16. Málstofan fer fram á ensku og fer fram í stofu 202 í Odda. Þrjú erindi verða flutt á málstofunni. Indriði H. Indriðason, dósent við Háskóla Íslands og fellow við Oxford-háskóla, fjallar um það með hvaða hætti ríkisstjórnir geta haft taumhald á ráðherrum sínum og kynnir nýjar rannsóknir á því efni. Christopher Kam, lektor við University of British Columbia fjallar um það með hvaða hætti forsætisráðherrar geta beitt völd- um sínum í ríkisstjórnum og hvernig sé líklegt að þeir tímasetji uppstokkun á ráðherraliði. Loks fjallar Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við Háskóla Ís- lands, um nokkur sérkenni íslenskra ríkisstjórna samanborið við önnur lönd og mögulegar skýringar á þeim. Að loknum erindum verða umræður. Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarson, deildarforseti félagsvísindadeildar Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heimill. Málstofa um ríkisstjórnir -hágæðaheimilistæki Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Baldursnes 6, Akureyri Sími 588 0200 -www.eirvik.is Beint á borðið Cristel, einstakir pottar, pönn- ur og eldhúsáhöld frá Frakk- landi. Framúrskarandi hönn- un, úr hágæða stáli. Cristel pottarnir mæta ströngustu kröfum um þægindi, gæði og glæsileika og á þeim er lífs- tíðarábyrgð. vi lb or ga @ ce nt ru m .is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.