Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 46
Hún bað mig um nokkrar mínútur til undirbúnings, mætti svo til leiks og grét eins og hetja… » 49 » reykjavíkreykjavík Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG VINN hjá MTV tónlistarstöðinni í New York og er hlutverk mitt þar að semja tónlist og skipuleggja allskonar uppákomur,“ segir tónlistarmaðurinn Anna Halldórsdóttir. „Þegar MTV bauð mér vinnuna fyrir um mánuði ákvað ég að prófa þetta í a.m.k ár og sjá hvernig mér líkar. Það er góður andi hjá stöðinni og skemmtilegur hópur sem starfar þar.“ Anna, sem er fædd og uppalin á Akranesi, flutti til New York árið 2003 þegar henni var boðið að vinna tónlist fyrir heimildamyndina Kiran over Mongolia. „Ég var búsett í Staðarsveit á Snæfellsnesi og var að semja tónlist fyrir sjálfa mig og SagaFilm og bróðir minn kemur þangað í heimsókn með bandarískan vin sinn, Joseph Spaid, sem er kvikmyndagerðarmaður. Hann heyrði það sem ég var að gera og hafði sam- band við mig viku seinna og spurði hvort ég vildi koma til New York og vinna með honum að heimildamyndinni. Síðan vildi svo skemmtilega til að þessi kvikmyndaleikstjóri og ég urðum ástfangin og erum núna gift. Svona er heimurinn skrítinn,“ segir Anna og hlær en henni fannst svolítið sérstakt að stökkva úr kyrrðinni í Staðarsveit og í öng- þveitið og hávaðann í New York. Um mongólskan arnartemjara Heimildarmyndin sem um ræðir, Kiran over Mongolia, fjallar um Kasaka af hirð- ingjaætt í Mongólíu. Sjónin beinist að ungum manni sem ákveður að feta í fótspor afa síns og gerast arnarveiðimaður. Hann fer á flakk til að leita sér að meistara sem kennir honum að temja og veiða eftirsóttasta örninn sem kallast Kiran. „Það var mikið ævintýri að koma að þess- ari mynd, við heimsóttum Mið-Austurlönd og flökkuðum víða um Evrópu til að sýna mynd- ina en við höfum farið með hana á yfir þrjátíu kvikmyndahátíðir og unnið til tvennra verð- launa. Myndin var frumsýnd 2005 og hefur vakið mikla athygli enda falleg saga sem snertir fólk djúpt. Núna í vor var okkur boðið að sýna í hinu stórkostlega Ruben safni í New York. Við sýndum hana sjö sinnum þar, alltaf fyrir fullu húsi. Bæði Wim Wenders og Martin Scorsese voru þar með eigin uppá- komur og náðum við að kynna myndina okk- ar fyrir þeim báðum.“ Valin bjartasta vonin Árið 1996 gaf Anna út geisladiskinn Villtir morgnar og var í kjölfarið valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 1997. Ári síðar kom frá henni diskurinn Undravef- urinn en síðan þá hefur hún ekki gefið út neitt efni. „Eftir Undravefinn flutti ég til Hollands og fór að vinna aðra tónlist svo það kom aldrei upp hjá mér að gefa út aðra plötu á þessum tíma. Nú er ég örugglega búin að semja tón- list á nokkrar plötur en það var ekki fyrr en nýlega sem ég fann aftur löngun hjá mér til að gefa hana út. Tilfinningin til að skapa hef- ur aldrei yfirgefið mig, ég er með upptökuver heima og get því samið þegar mér líður þannig. Það gæti vel komið diskur frá mér á næstu árum,“ segir Anna sem á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana því afi hennar var Theódór Einarsson sem samdi m.a hið þjóð- þekkta lag „Kata rokkar“. Suðupottur hæfileika Spurð hvort það sé ekki harður heimur að vinna í tónlist í New York segir Anna það svo vera. „Það er mikil samkeppni og þetta er suðu- pottur af hæfileikafólki. Þegar ég kom hingað fyrst varð ég fyrir smá menningarsjokki því þrátt fyrir allan glamúrinn er eymdin líka töluverð. Ég vaknaði upp fyrir eymd annarra og ákvað að stofna prjónasamtökin All We Knit Is Love, sem prjónar föt fyrir mun- aðarleysingjahæli í Mongólíu, Afganistan, Indlandi og Nepal.“ Anna og eiginmaður hennar koma reglu- lega í heimsókn til Íslands og segir hún það draum þeirra að geta dvalist meira hér en það sé erfitt vinnunnar vegna. „Ég reikna með að vera í New York í ein- hvern tíma, við hjónin erum uppfull af hug- myndum og Joseph er núna að vinna að handriti að leikinni mynd sem tökur hefjast á eftir rúmt hálft ár í Bandaríkjunum,“ segir Anna sem ætlar að halda sig við sjálfstæða kvikmyndaheiminn og rennir ekki hýru auga til Hollywood. „Það er skrítinn og erfiður heimur, tónlistin í Hollywood-myndunum er líka oft svo yfirdrifin, það er eins og áhorf- andanum sé ekki treystandi til að fá sín eigin hughrif og allar tilfinningar verður að segja með tónlist, svo ég tel það ekki vera minn te- bolla.“ Arnarveiðimaður Kasakinn af hirðingjaætt sem fjallað er um í Kiran over Mongolia. RENNIR EKKI HÝRU AUGA TIL HOLLYWOOD ANNA HALLDÓRSDÓTTIR TÓNLISTARMAÐUR VINNUR HJÁ MTV Í NEW YORK OG SEMUR TÓNLIST FYRIR KVIKMYNDIR Farsæl Anna Halldórsdóttir tónlistarmaður var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlist- arverðlaununum fyrir tíu árum síðan. WWW.KIRANOVERMONGOLIA.COM WWW.ALLWEKNITISLOVE.COM Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is EINS og fram kom í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag höfðu þær fregnir borist frá Bandaríkjunum að Íslendingur væri á meðal þeirra sem komust í 50 manna hóp sem taka mun þátt í nýjum raunveru- leikaþætti, On the Lot. Þessar fregn- ir hafa nú verið dregnar til baka. „Það er enginn Íslendingur í þessum 50 manna hópi þrátt fyrir að við höf- um fengið ákveðnar tilkynningar um að svo yrði,“ segir Björn Þórir Sig- urðsson, dagskrárstjóri hjá Skjá ein- um. Fréttatilkynning um þátttöku Íslendingsins barst frá Skjá einum í síðustu viku, auk þess sem auglýs- ingar þar að lútandi hafa verið sýnd- ar á stöðinni að undanförnu. „Það var mín ákvörðun að fara af stað með þetta áður en þetta yrði tilkynnt á blaðamannafundinum í gær [í fyrra- dag]. Mistökin liggja hjá mér, að hafa hlaupið til,“ segir Björn, en bæt- ir við að Íslendingur hafi vissulega komið til greina, upplýsingar frá framleiðendum þáttarins hafi hins vegar verið nokkuð misvísandi. „Ég nenni ekki að fara að standa í ein- hverju stríði við þá þarna úti, þetta er búið og gert og við sitjum uppi með þetta. Maður var kannski svona bjartsýnn af því að Rock Star gekk vel í fyrra, og treysti á að þetta myndi virka aftur.“ On the Lot er raunveruleikaþáttur sem þeir Mark Burnett og Steven Spielberg framleiða, en hann snýst um keppni milli kvikmyndagerð- armanna. Að sögn Björns stóð til að reyna að sýna þættina í beinni út- sendingu, en ekkert verður af því úr því sem komið er. Þættirnir verða þó sýndir eins og upphaflega stóð til. „Svona lærir maður lexíurnar,“ segir Björn að lokum. Matthías Árni Ingimarsson Raunveruleiki Mark Burnett, annar af framleiðendum On the Lot, stillir sér upp á blaðamannafundi í Los Angeles á þriðjudaginn var. Enginn Íslendingur í On the Lot

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.