Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 53

Morgunblaðið - 17.05.2007, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 53 THE REAPING kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára GOAL 2 kl. 6 - 8 B.i. 7 ára BLADES OF GLORY kl. 10:10 B.i. 12 ára MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRI / KEFLAVÍK SPIDER MAN 3 kl. 5 - 8 - 10 B.i. 10 ára NEXT kl. 8 B.i. 16 ára BLADES OF GLORY kl. 6 LEYFÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is WWW.SAMBIO.IS eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is STÓRSTJÖRNUR ÚR Hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý... Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður? REAL MADRID... 25.000 MANNS Á AÐEINS 10 DÖGUM! eee S.V. - MBL A.F.B - Blaðið eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee S.V. FORSALA HAFIN - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA ! Ég tók strætó í vinnuna umdaginn. Það þykir mönnumkannski ekkert sérstaklega merkilegt en fyrir mér er það stór- merkilegt, því ég hef ekki tekið strætó á Íslandi í mörg ár. Og það sem meira er, mér tókst að klára jólabókina mína! Um það bil fimm mánuðum eftir að ég opnaði hana. Og hvers vegna var ég svona lengi að klára jólabókina? Það eru ýmsar ástæður fyrir því en í stuttu máli þá gaf ég mér aldrei tíma í að klára hana. Las nokkrar blaðsíður í einu með löngu millibili. Þannig á maður ekki að lesa bækur, ég veit það og fussumsvei! En það var bara alltaf eitthvað annað sem þurfti að gera, til dæmis að horfa á skemmti- legan sjónvarpsþátt eða setja upp loftljós. Ekki svo að skilja að ég njóti þess ekki að lesa góða bók, fátt er betra. En maður geymir það oft þar til maður er háttaður og bóklestur undir sæng er afar svæfandi. Besti staðurinn og stundin til bóklesturs er nefnilega í strætó á morgnana.    Þetta rifjaðist upp fyrir mér ífyrrnefndri strætóferð. Fyrir ekki svo löngu síðan bjó ég í stór- borg og þurfti að fara allra minna ferða í strætó eða með lest. Ég kaus heldur strætó en að ferðast neð- anjarðar. Morguninn hófst á því að ég keypti mér kaffi og smjördeigshorn á Starbuck’s (af því kaffið er af- greitt með ótrúlegum hraða þar og hornin eru bragðgóð). Þá tók við bóklestur í strætó sem gat orðið allt að klukkustundar langur, ef um- ferð var þung. En maður fann ekkert fyrir ferð- inni á áfangastað, nærði líkama og sál, sáttur við Guð og menn á með- an ökumenn flautuðu og görguðu fyrir utan og fengu magasár.    Á Íslandi eiga allir bíl og fáirtaka strætó. Þar sem ég sat í strætó um daginn, ásamt einum öðrum, á leið upp í Hádegismóa við Rauðavatn, velti ég því fyrir mér hvernig bókaþjóðin mikla hefði svona mikinn tíma til að lesa allar bækurnar sem hún kaupir. Kannski liggja þær hálflesnar á náttborðum þjóðarinnar. Er þetta kannski allt í plati, erum við ekki bara sjónvarps- þjóð? Væri ekki nær að taka strætó og klára allar ólesnu jólabækurnar í stað þess að leiðast á rauðu ĺjósi? Margir kvarta undan leiðakerf- inu á höfuðborgarsvæðinu og víst er að það er ekki það besta í heimi. En er ekki allt í lagi að vera 10 eða 20 mínútum lengur á leið í vinnu, ef maður getur setið í rólegheitum, lesið góða bók, borðað smjördeigs- horn, drukkið kaffi (mæli með Kaffitári) og haft það huggulegt? Fækkað bílum í þungri umferðinni um einn og þar af leiðandi dregið úr útblæstri? Maður er heldur ekk- ert að pirra sig á öðrum ökumönn- um í strætó, strætó hefur róandi áhrif á mann. Strætó er góður.    Nú er þessi listapistill orðin stórog mikil auglýsing fyrir Strætó, sem var alls ekki ætlunin. Stjórnendur þar á bæ mættu alveg lækka fargjöldin, þau eru fullhá. Þá gætu farþegar eytt meiru í bækur, smjördeigshorn og kaffi. Tilgangur pistilsins var sá að benda á tengsl almennings- samgangna og listar. Strætóferðir eru andlega nærandi. Allir í strætó með góða bók! Lesið í strætó Morgunblaðið/Kristinn Strætó Að lesa í strætó er góð skemmtun. Þar geta menn klárað allar ólesnu jólabækurnar. AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson » Stjórnendur þar ábæ mættu alveg lækka fargjöldin, þau eru fullhá. Þá gætu far- þegar eytt meiru í bæk- ur, smjördeigshorn og kaffi. helgisnaer@mbl.is STEVEN Spielberg og Peter Jack- son ætla að vinna saman að gerð þriggja kvikmynda um hina ástsælu teiknimyndapersónu Tinna, sem er Íslendingum að góðu kunn. Tinni er sköpunarverk belgíska teiknarans Hergé, sem hét réttu nafni George Remi. Þeir Spielberg og Jackson eru báðir heimskunnir og virtir kvik- myndaleikstjórar og geta aðdáendur Tinna því farið að hlakka til. Hergé gerði 23 teiknimyndabæk- ur um blaðamanninn unga og vini hans, sem lentu í ýmsum stórkost- legum ævintýrum. Leikstjórarnir munu hafa umsjón með að minnsta kosti einni mynd hvor, en þær verða unnar með staf- rænni þrívíddartækni. Spielberg hefur unnið að því í aldarfjórðung að fá leyfi til að kvikmynda Tinna, en það tókst loks á þessu ári. Bækur Hergé um Tinna urðu 23 og unnar á árunum 1929 til 1976. Þær hafa verið þýddar á 50 tungu- mál og yfir 200 milljónir eintaka hafa verið seldar víða um heim. Fyrirtæki Jacksons, WETA Digi- tal, sem sá um tölvuvinnslu og teikn- ingar fyrir kvikmyndirnar um Hringadróttinssögu, bjó til 20 mín- útna prufumynd fyrir Tinna- verkefnið og voru þar allar persónur sögunnar sjáanlegar, m.a. Kolbeinn kafteinn, Skapti og Skafti, Vandr- áður prófessor og hundurinn Tobbi. Tinni á hvíta tjaldið Ástsælir Tinni og félagar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.