Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 17.05.2007, Qupperneq 56
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 137. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Reiðarslag fyrir Flateyri  Kambur hf. á Flateyri hefur hafið viðræður um að selja talsverðan hluta fiskveiðiheimilda sinna og ein- hver skipa sinna. Ljóst er að þetta er reiðarslag fyrir Flateyri þar sem Kambur er aðalvinnustaður bæj- arins. » Forsíða Ákærð fyrir netbankasvik  Fjórir viðskiptavinir Glitnis á Ak- ureyri hafa verið ákærðir fyrir um 30 milljóna króna umboðssvik með því að hafa nýtt sér kerfisvillu í gjaldeyrisviðskiptakerfi netbank- ans. » 2 Fjölbreytt afþreying  Fræðsla, listir, fjölbreytt af- þreying og útivist verður í fyrirrúmi í Viðey í sumar þegar starfsemin á eyjunni verður endurreist. Þar verða t.a.m. reiðhjól til afnota, gjald- frjáls fyrir gesti, og ferðum í Viðey verður fjölgað verulega. » Miðopna Vill semja um afsögn  Paul Wolfowitz, forstjóri Alþjóða- bankans, hefur reynt að ná sam- komulagi við framkvæmdastjórn bankans sem fæli í sér að hann segði af sér. » 17 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Bílar og breskur húmor Staksteinar: Tilveran á Fróni Forystugreinar: Lúðustofninn í hættu | Úlfur, úlfur UMRÆÐAN» Fullorðið fólk með framtíðarsýn Lyfjagleði og áhugaleysi Málefni Njálsgötu 74 Nú er mál að linni, Hjörleifur Óttast bólueinkenni í Kína Sókn í virðuleika ræður för Nýmarkaðir eru flaggskipið Frá skosku hálöndunum til ísl. lögm. VIÐSKIPTI» 0 9' - *   :  /  2" ! 2!" 2! 2"" ! 2! !2! "!2 ! 2 2" 2 !2" 2! !2" "!2 !2 " , 4 %7 ' !2 ! 2! 2! 2 ! 2!  "!2"" ;<==>?@ 'AB?=@5:'CD5; 4>5>;>;<==>?@ ;E5'44?F5> 5<?'44?F5> 'G5'44?F5> '8@''5/H?>54@ I>C>5'4AIB5 ';? B8?> :B5:@'8*'@A>=> Heitast 10° C | Kaldast 3° C Austan og NA 10– 20 m/s og rigning sunnan til. Hægari og þurrari fyrir austan. » 10 Anna Halldórsdóttir vinnur hjá MTV og samdi tónlist fyrir heimildarmynd um mongólskan arn- artemjara. » 47 TÓNLIST» Ekki til Hollywood LAGALISTINN» Heilinn orðinn vinsælli en lófinn. » 52 Birta segir í öðrum Cannes-pistli sínum frá kvikmynda- stjörnum á rauða dreglinum og grát- andi söngkonu. » 49 CANNES» Norah Jones grætur KVIKMYNDIR» Tinni og félagar í þremur kvikmyndum. » 53 FÓLK» Útrás Silvíu Nætur er á næsta leiti. » 51 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Björn lýs. áhyggjum af stj.m. 2. Ný kynslóð lágvöruverslana 3. Rúml. 2.500 strikuðu yfir Björn 4. Richards og Sambora slíta samb. Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is „TILGANGURINN var að hjálpa óákveðnum kjósendum að sjá hvað þeir vildu kjósa samkvæmt stefnuskrám flokkanna,“ segir Páll Ingi Kvaran um spurningalista á slóðinni xhvad.bifrost.is sem nokkra athygli vakti í að- draganda nýliðinna kosninga. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum spyrjenda en samkvæmt upplýsingum Inga Páls svöruðu allt að 73.000 manns spurningunum. „Nálægt 100.000 manns heimsóttu síðuna, þannig að þetta er nú ágæt- ishluti af íslensku þjóðinni,“ segir Páll Ingi og að viðbrögðin hafi verið mjög jákvæð. Aðdragandi málsins er sá að nemendur á Bif- röst unnu könnunina sem misserisverkefni á haustönn. Sex nema hópur í heimspeki, hag- fræði og stjórnmálafræði vann verkefnið. „Við rýndum í stefnuskrá flokkanna og bjuggum til spurningar í kringum það sem flokkana greinir á um. Þegar því var lokið stóðu eftir tíu spurningar en svo bættum við einni við þegar Íslandshreyfingin kom til sögunnar,“ seg- ir Páll Ingi og að hann hafi orðið þónokkuð var við að fólk hafi ætlað að kjósa samkvæmt nið- urstöðunum sem það fékk út úr xhvad.bifröst.is. Hann segir að það hafi komið mjög á óvart hversu margir tóku þátt í verkefninu. „Við vor- um að miða við að kannski svona 5.000 manns myndu heimsækja síðuna og þá hefðum við ver- ið mjög ánægð. Þetta fór þannig fram úr okkur björtustu vonum. Annað sem við tókum eftir, en kom ekkert endilega á óvart, var hvort flokk- arnir yfirhöfuð tækju afstöðu í ákveðnum mál- um. Við sáum það t.d. að Samfylkingin tók sjaldnast afstöðu en Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir tóku afstöðu til nánast allra mála. Miðjuflokkarnir voru sem sagt miklu lík- legri til að vera ekki með neina stefnu,“ segir Páll Ingi. Nemarnir báðu nokkra flokksbundna ein- staklinga að svara og eftir því sem Páll Ingi seg- ir kom stærstur hlutinn út í réttum flokki. Þrátt fyrir að kosningum sé lokið getur verið áhugavert fyrir þá sem ekki hafa þegar svarað spurningunum að gera það og athuga hvort þeir hafi í raun kosið samkvæmt sannfæringu sinni. 73.000 manns fengu hjálp við að taka afstöðu UNGVIÐINU, hvort sem það er tvífætt eða fjórfætt, þykir gaman og gott að vera í sveitinni og Sveinn Svav- ar fór nýlega í sveitaferð að Grjóteyri í Kjós. Hann var sérstaklega hrifinn af kálfunum og horfðist innilega í augu við þennan. Kannski þeir hafi skipst á hugsunum um lífsins gagn og nauðsynjar svona í upphafi sumars. Skipst á hugsunum? Sveinn Svavar fór í sveitaferð Morgunblaðið/Helgi Garðarsson INNFLUTNINGUR hefur verið takmarkaður að undanförnu á hnet- um og fíkjum vegna myglusveppa- eiturs, sem haft getur skaðleg áhrif á heilsu manna. Einkum er hér um að ræða pistasíur frá Íran, heslihnetur og aðrar hnetutegundir frá Tyrk- landi og jarðhnetur frá Kína. Að sama skapi hefur innflutningur á ýmsum kryddtegundum verið tak- markaður þar sem fundist hefur ólöglegt litarefni í þeim. Litarefni þetta kallast súdanlitur og er eink- um notað til að lita skó og klæði. Þá hefur miklu magni af spænskri papriku verið fargað hér á landi að undanförnu vegna ólöglegra efna sem fundist hafa í henni. | 24 Sveppaeitur og litarefni KOLBEINN Sigþórsson, knattspyrnumað- urinn ungi í HK, hefur fengið til- boð frá enska stórliðinu Arsen- al. Þar á bæ hef- ur verið fylgst með honum um langt skeið og Kolbeinn hefur farið nokkrum sinnum til æfinga hjá Ars- enal. Útsendarar frá Arsenal fylgd- ust síðast með Kolbeini í úrslita- keppni Evrópumótsins í Belgíu á dögunum. Arsenal hefur einnig boð- ið Kolbeini að fara með unglingaliði félagsins á alþjóðlegt mót í Hong Kong í næstu viku ef hann vilji fá lengri tíma til að íhuga boðið. | Íþróttir Arsenal vill fá Kolbein ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.