Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 139. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is HLÝTT Á TOPPNUM ÞORVALDUR FJALLAGEIT KLÍFUR HUNDRAÐ HÆSTU TINDA LANDSINS Á EINU ÁRI >> 19 ISC, EGILL ÓLAFS OG GALM Á LISTAHÁTÍÐ ÖLL HLJÓÐ VERALDLEG MESSA >> 16 FLOKKSSTOFNANIR Sjálfstæð- isflokksins samþykktu í gærkvöldi myndun nýrrar ríkisstjórnar Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar, sem Geir H. Haarde verður í forsvari fyrir. Miklar tilfæringar eru á verkefnum einstakra ráðuneyta og stórir málaflokkar færðir á milli þeirra. Þannig verða m.a. sveitar- stjórnarmál færð frá félagsmála- ráðuneyti til samgönguráðuneytis og lífeyrishluti almannatrygginga fer til félagsmálaráðuneytis. Flokksráð og þingflokkur Sjálf- stæðisflokks funduðu í Valhöll í gærkvöldi. „Flokksráð samþykkti hér með lófataki fyrir stuttu síðan að ganga til þessa samstarfs á grundvelli stefnuyfirlýsingar sem við formaður Samfylkingarinnar höfum undirbúið og lagt fram hvort í sínum flokki,“ sagði Geir H. Haarde við blaðamenn að fundun- um loknum. Hann sagði jafnframt að skipting ráðuneyta milli flokks- manna hefði verið samþykkt sam- hljóða á fundi þingflokksins. Þingflokkur og flokksstjórn Samfylkingarinnar funduðu á Hót- el Sögu þar sem samkomulag flokkanna og ráðherralisti voru samþykkt. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingarinn- ar, sagði eftir fundina síðar um kvöldið að flokksfólk liti björtum augum á samstarfið við sjálfstæð- ismenn. Geir mun fyrir hádegi í dag fara á fund forseta Íslands og greina honum frá myndun ríkisstjórnar- innar. Geir og Ingibjörg Sólrún ætla að kynna stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á blaðamanna- fundi á Þingvöllum klukkan ellefu í dag. Ríkisstjórnarskipti fara svo fram á ríkisráðsfundi á morgun. Ráðherralistar samþykktir af þingmönnum og flokksstofnunum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í gærkvöldi Ráðuneyti stokkuð upp Menntamálaráðherra Þorgerður K. Gunnarsdóttir Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir Iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson Forsætisráðherra Geir H. Haarde Utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Fjármálaráðherra Árni M. Mathiesen Heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þ. Þórðarson Sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra Einar K. Guðfinnsson Félags- og tryggingaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir Samgönguráðherra Kristján L. Möller Viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson  Stefnuyfirlýsing stjórnarinnar verður kynnt í dag  Ný ríkisstjórn tekur við á ríkis- ráðsfundi á morgun RÁÐHERRAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS RÁÐHERRAR SAMFYLKINGARINNAR FRÉTTASKÝRING Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is FÁTT kemur á óvart, þegar ráð- herralisti Sjálfstæðisflokks í nýrri ríkisstjórn er skoðaður, og þó. Viðbúið var, að aðeins ein kona, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, yrði ráðherra, hún verður áfram mennta- málaráðherra. Aðrar konur í þingliði Sjálfstæðisflokksins eru einfaldlega of neðarlega á listum til þess að hafa átt möguleika á ráðherrastól. Konurnar í þingliði Sjálfstæðis- flokksins eru ósáttar við hlut kvenna í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins, en segjast ánægðar með málefnasamn- ing flokkanna og munu una niðurstöð- unni. Þingvallastjórnin, eins og viðmæl- endur kölluðu hana, tók á sig mynd í gærkvöldi, þegar formenn Sjálfstæð- isflokks og Samfylkingar tilkynntu verkaskiptingu og ráðherraskipan. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins flutti Geir H. Haarde ítar- lega ræðu á flokksráðsfundi í Valhöll og uppskar dúndrandi lófatak, eftir að hann hafði kynnt stefnuyfirlýsingu hinnar nýju ríkisstjórnar. Salóme Þorkelsdóttir og Hjálmar Jónsson voru þau einu sem kvöddu sér hljóðs á fundinum og fögnuðu bæði stefnuyfir- lýsingunni. Á þingflokksfundinum bar Geir upp tillögu sína að ráðherra- skipan Sjálfstæðisflokksins og var til- lagan samþykkt samhljóða. Guðlaugur Þór nýr ráðherra Eini nýi ráðherrann frá Sjálfstæð- isflokki í ríkisstjórninni er Guðlaugur Þór Þórðarson, sem verður heilbrigð- isráðherra. Hans bíða stór og krefj- andi verkefni, en í stefnuyfirlýsing- unni er m.a. kveðið á um það að leitað verði nýrra rekstrarforma í heilbrigð- iskerfinu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að almennu tryggingarnar og málefni aldraðra færist frá heilbrigðisráðu- neyti yfir í félagsmálaráðuneyti, en sjúkratryggingar verði áfram hjá heilbrigðisráðuneyti. Talið er að óánægjuradda um ráðherraskipan muni helst gæta frá keppinautum Guðlaugs um ráðherrastól, fólki eins og Kristjáni Þór Júlíussyni, Guðfinnu Bjarnadóttur og Bjarna Benedikts- syni. Sturla Böðvarsson er bersýni- lega mjög óhress með sitt hlutskipti, að hverfa úr stól samgönguráðherra, en fær þó sæmdarembætti forseta Al- þingis. Björn Bjarnason verður áfram dómsmálaráðherra, en óvissa var um það hvort hann fengi ráðherraemb- ætti í þessari ríkisstjórn. Heimildir Morgunblaðsins herma að líkur séu á því að Björn Bjarnason hætti sem ráðherra á miðju þessu kjörtímabili og hverfi til annarra starfa. Sömu heimildir herma, að líklegur arftaki hans á dómsmálaráðherrastól verði Bjarni Benediktsson. Það mun þó alls ekki frágengið. Fátt kemur á óvart, og þó  Þingkonur Sjálfstæðisflokks ekki glaðar með sinn hlut en ánægðar með stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar  Búist við að Björn Bjarnason hætti eftir 2 ár Morgunblaðið/Sverrir Fagnar Guðlaugur Þór Þórðarson er nýr ráðherra Sjálfstæðisflokks. Morgunblaðið/Sverrir 20.35 Geir H. Haarde kynnir ráðherralista Sjálfstæðisflokksins eftir þingflokksfund í Valhöll. Morgunblaðið/Golli 21.36 Ingibjörg Sólrún kynnir ráðherralista Samfylkingar eftir fundi flokksins á Hótel Sögu.  Ný stjórn | 2, 4 og miðopna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.