Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÉG sækist auðvitað eftir því að
hafa áhrif í stjórnmálum og það að
gegna stöðu ráðherra er eitt af
því,“ sagði Guðlaugur Þór Þórð-
arson, Sjálfstæðisflokki, að loknum
þingflokksfundi Sjálfstæðismanna
í Valhöll í gærkvöldi, en hann tek-
ur við embætti heilbrigðisráðherra
í væntanlegri ríkisstjórn Geirs H.
Haarde. Guðlaugur Þór var að
vonum ánægður með ráðherraútn-
efningu sína og ýmsir fleiri gengu
glaðir í bragði af fundum sjálf-
stæðismanna í Valhöll og samfylk-
ingarfólks á Hótel Sögu í gær-
kvöldi. Gera má þó ráð fyrir að
mismikil ánægja hafi verið með
skiptingu ráðuneyta milli þing-
manna flokkanna og nefna má að
ýmsir sjálfstæðismenn sögðu að
þeir hefðu gjarnan viljað hafa veg
kvenna meiri í ráðherraembættum
flokksins.
Spurður hvort áherslubreytinga
væri að vænta svaraði Guðlaugur
Þór að nýjum mönnum fylgdu
ávallt nýjar áherslur. Um þá
ákvörðun að breyta störfum heil-
brigðisráðuneytisins með því að
færa stór verkefni úr ráðuneytinu
sagði Guðlaugur Þór að hann teldi
það mjög skynsamlegt. „Við höfum
talað fyrir því mjög lengi að gera
það,“ sagði hann. Gert væri ráð
fyrir því að almannatryggingar
færu úr ráðuneytinu en sjúkra-
tryggingar yrðu þar áfram.
Guðlaugur Þór var spurður um
hlut kvenna í ráðherraliði flokks-
ins og hvort sú staðreynd að þar
ætti aðeins ein kona sæti ætti ekki
eftir að valda flokknum óþæg-
indum. „Við eigum glæsilegan hóp
sjálfstæðiskvenna á þingi og þær
verða í forsvari í ýmsum málum
og munu standa sig frábærlega
eins og mun koma í ljós,“ sagði
hann. „Það eru bara sex ráðherra-
stólar og það er erfitt verkefni í
þessum hópi að velja í þá,“ bætti
hann við.
Viðurkenning formanns
og þingflokks og allra
Björn Bjarnason, dóms-
málaráðherra, var glaður í bragði
þegar hann yfirgaf Valhöll að
loknum þingflokksfundinum í gær-
kvöldi. Hann kvaðst ánægður með
að verða áfram í embættinu. Emb-
ættisveitingin væri viðurkenning
formanns flokksins, þingflokksins
og allra sem að málinu hefðu kom-
ið, á þeim störfum sem hann hefði
sinnt sem ráðherra.
Einar K. Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra, verður einnig
landbúnaðarráðherra. „Það er
mjög spennandi tilhugsun,“ sagði
Einar. Framundan væru breyt-
ingar og spennandi tímar í land-
búnaði
Einar sagði ekki liggja nákvæm-
lega fyrir hvort ráðuneytin tvö
yrðu sameinuð og ekki væri ljóst
hvernig málin þróuðust á næst-
unni. Spurður um áherslubreyt-
ingar í sjávarútvegsmálum sagði
Einar að fyrst og fremst yrði
áhersla á að standa vörð um hags-
muni sjávarútvegsins „en það er
líka kveðið á um það að sér-
staklega skuli skoða í því sam-
bandi mál sem snúa að byggð-
unum. Ég held líka að það sé mest
knýjandi og það er eitt af því sem
við munum vinda okkur í núna að
fara betur yfir,“ sagði hann.
Árni M. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, mun áfram gegna
því embætti í nýrri ríkisstjórn.
Hann kvaðst að þingflokksfund-
inum loknum ánægður með ráð-
herralistann og með að halda
áfram að starfa í ráðuneyti fjár-
mála.
Hefði viljað fleiri konur
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og menntamálaráð-
herra, sagðist ánægð með
niðurstöðuna þótt hún drægi ekki
dul á það að hún hefði viljað sjá
fleiri sjálfstæðiskonur gegna ráð-
herraembætti. „En þetta er nið-
urstaðan. Þetta er tillaga for-
mannsins og að sjálfsögðu styðjum
við hana. Það var mikil eindrægni
á fundinum,“ sagði Þorgerður
Katrín.
Hún sagði að nýja ríkisstjórnin
yrði greinilega mjög öflug. „Við
vorum að sjá ráðherralistann hjá
Samfylkingunni og ég hef trú á að
þetta verði mjög samhent rík-
isstjórn sem fer í þessi verk sem
framundan eru,“ sagði Þorgerður
Katrín.
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, eini ráðherra Sjálfstæð-
isflokksins, sem hverfur úr ráð-
herrastól, mun taka við embætti
forseta Alþingis. Hann kvaðst
ósáttur við að hverfa úr ráðuneyt-
inu enda væru þar mörg skemmti-
leg verkefni. „Það er auðvitað vont
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki
með það ráðuneyti að gera, en
svona gerast kaupin á eyrinni,“
sagði Sturla. Sturla sagði það
heiður fyrir sig að verða forseti
Alþingis. Hann hefði þó heldur
kosið að gegna embætti ráðherra
áfram. „En þetta er niðurstaðan
og ég virði hana að sjálfsögðu,“
sagði Sturla.
Sagði að hún kæmi aftur
Flokksstjórnarfundi Samfylking-
arinnar lauk skömmu fyrir kl. 22 í
gærkvöldi. „Ég sagði við starfsfólk
mitt að ég myndi koma aftur í
ráðuneytið, og nú er ég að standa
við það,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir en hún gegndi embætti
félagsmálaráðherra í sjö ár fram
til ársins 1994. Jóhanna mun nú
taka við ráðuneytinu að nýju en
því hefur verið gefið starfsheitið
velferðarráðuneyti. „Nú er þetta
orðið miklu umfangsmeira ráðu-
neyti. Innan félagsmálaráðu-
neytisins eru mörg brýn málefni.
Ég vil nú sérstaklega nefna á
þessari stundu jafnréttismálin, ég
mun taka þau mál föstum tökum,“
sagði Jóhanna.
Þórunn Sveinbjarnardóttir verð-
ur umhverfisráðherra í nýju
stjórninni. „Í stjórnarsáttmálanum
eru í raun og veru mjög skýr
markmið fyrir umhverfisráðu-
neytið til þess að starfa eftir á
næstu árum. Við munum þurfa að
vinna hratt og vel og það þarf að
ljúka við gerð rammaáætlunar.
Verkefnið er að ná sátt í samfélag-
inu um umhverfismál og ég mun
leggja mig alla fram við það,“
sagði Þórunn. Spurð um stóriðju í
stjórnarsáttmála sagði hún að gert
væri ráð fyrir tveggja ára stór-
iðjustoppi og samkomulag um að
ljúka gerð rammaáætlunar á
næstu tveimur árum, fyrir árslok
2009. „Þá hefur það orðið að sam-
komulagi milli flokkanna að það
verði ekki farið í nein óröskuð
svæði á þeim tíma.“
Björgvin G. Sigurðsson, sem
verður viðskiptaráðherra, var
spurður um skiptingu iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytis á milli tveggja
ráðherra. Svaraði hann því til að í
skiptingunni fælist stefnuyfirlýs-
ing út af fyrir sig. „Það er stefnu-
yfirlýsing í sjálfu sér að gera neyt-
endamálum, samkeppnismálum og
þessum almennu lífskjaramálum
sem snúa að fjármálalífi og al-
mennri afkomu fjölskyldnanna
mun hærra undir höfði heldur en
hefur verið gert áður. Við munum
sjá þess stað með öflugri sam-
keppnislöggjöf, öflugri neyt-
endavernd og á mörgum sviðum
samfélagsins,“ sagði Björgvin.
Kristján Möller verður sam-
gönguráðherra í ríkisstjórninni.
Kristján sagði samgöngumálin af-
ar spennandi málaflokk og mörg
verkefni biðu úrlausnar. Lagði
hann m.a. áherslu á að lokið yrði
við langtímasamgönguáætlunina.
„Ég er þeirrar skoðunar að
þetta sé ákaflega mikilvægur
málaflokkur sem ég er að taka við.
Ég er bara mjög ánægður með
það og vona að ég verði traustsins
verður,“ sagði Kristján. Hann
kvaðst vera ánægður með stjórn-
arsáttmálann og samstarf þessara
flokka. „Þetta er niðurstaða kosn-
inganna.“ Sagði hann að eindrægni
hefði ríkt á fundi samfylking-
arfólks í gærkvöldi og það sýndi
að flokksmenn væru allir mjög
ánægðir með stjórnarsam-
komulagið.
Bjartsýnn á framhaldið
Össur Skarphéðinsson tekur við
sem iðnaðarráðherra. Hann sagði
ljóst að miklar deilur hefðu tengst
iðnaðarráðuneytinu og þeim tökum
sem mál hefðu verið tekin þar í
valdatíð fráfarandi ríkisstjórnar.
„Við þurfum að skapa sátt um nýt-
ingu landsins, þannig að jafnvægis
sé gætt milli nýtingar og vernd-
unar og það verður mitt mikilvæg-
asta verkefni, í anda þeirrar
stefnu sem kemur mjög skýrt
fram í stjórnarsáttmálanum, þar
sem þessir tveir flokkar hafa orðið
sammála um ákveðna aðferðafræði
í málaflokknum,“ sagði Össur.
Hann telur það einnig forgangs-
verkefni að byggja upp þekkingar-
og hátækniiðnað hér á landi, með
áherslu á sprotafyrirtæki. „Við
ætlum í senn að skapa mjög hag-
fellt umhverfi fyrir þennan kima
atvinnulífsins með almennum að-
gerðum, og við munum jafnframt
beita, eftir því sem við á, sértæk-
um aðgerðum í hans þágu.“ Spurð-
ur um aðrar málefnaáherslur sagði
Össur að fjármálaþjónustan væri
okkar merkilegasti útrásariðnaður
og í örum vexti. ,,Það þarf að
skapa henni mjög traust umhverfi.
Þessi ríkisstjórn vill tryggja sem
besta umgjörð um það mál.“
Össur segist bjartsýnn á að
stjórnarsamstarfið með Sjálfstæð-
isflokknum eigi eftir að einkennast
af þeim góða anda sem fjölmiðla-
mönnum hafi verið tíðrætt um í
aðdraganda stjórnarmyndunar.
„Við Geir Haarde vorum saman
þingflokksformenn stjórnarflokka í
fyrri ríkisstjórn jafnaðarmanna og
Sjálfstæðisflokks. Við erum vanir
að starfa saman og ég þekki þetta
fólk út og inn og það fer því mjög
vel á með okkur,“ segir Össur og
bætir við að í stjórnarmynd-
unarviðræðunum hafi flokkunum
tveimur tekist vel til við að sam-
eina það besta úr stefnu beggja
flokka.
Ráðherrar boða breyttar áherslur
í stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar
„Hef trú á að þetta
verði mjög samhent
ríkisstjórn“
„Við þurfum
að skapa sátt um
nýtingu landsins“
Morgunblaðið/Sverrir
Glöð Guðlaugur Þór Þórðarson tekur við heilbrigðisráðuneytinu í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Morgunblaðið/Golli
Ánægð Össur Skarphéðinsson verður iðnaðarráðherra og Þórunn Sveinbjarnardóttir verður umhverfisráðherra.
Morgunblaðið/Sverrir
Úr ráðherrastól Sturla Böðvarsson lætur af embætti samgönguráðherra
en samþykkt hefur verið að hann verði forseti Alþingis.