Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 7
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ANDRÚMSLOFTIÐ á Flateyri
þessa dagana einkennist af þeim
tíðindum að útgerðafélagið
Kambur hyggist selja allar sínar
aflaheimildir. Þegar íbúar eru
spurðir um stöðu mála vilja marg-
ir ekki ræða málið og starfsfólk
vinnslunnar, sem flest er af er-
lendu bergi brotið, hleypur í
burtu frá blaðamanni og ljós-
myndara.
Nokkrir staldra þó við og lýsa
yfir áhyggjum af ástandinu. Stan-
islaw Kordek hefur búið hér á
landi síðan árið 1991 og á Flat-
eyri síðan 1995. Þessi skeggvaxni
íslenski ríkisborgari ypptir öxlum
og hlær þegar hann er spurður
um hvað taki við. Nýverið keypti
hann sér hús í bænum þar sem
hann býr ásamt konu og þremur
dætrum. „Ég veit ekki hvað ég
geri. Hér er gott að búa og vil
ekki fara.“ Randi, Filippseyingur
sem búið hefur hér í tæpt ár, seg-
ist trúa því að einhver taki við út-
gerðinni og vinnslunni. Hann seg-
ist ekki ætla að fara úr plássinu.
Reið stjórnvöldum en halda
í vonina um að byggðin lifi
Starfsmaður fiskmarkaðarins
sem hvorki vildi tala undir nafni
né láta taka af sér mynd kallar
eftir stefnu stjórnvalda í málum
sjávarbyggðanna. „Við viljum
ekki eitthvað sértækt, það fer þá
bara líka, það sem vantar er að
stjórnvöld ákveði hvað þau ætla
að gera varðandi okkur í þessum
litlu byggðum sem lifa á sjávar-
útvegi.“
Fleiri eru sama sinnis. Á leik-
skólanum Grænagarði starfar
Elín Björg Þorvarðardóttir. Á
leikskólanum eru 15 börn en fimm
konur starfa við að gæta þeirra.
Elín Björg segir að hverfi útgerð
og fiskvinnsla sé alveg á hreinu
að lítið verði eftir. „Mér finnst að
stjórnvöld hafi ekki staðið sig.
Ekki miðað við að ég flutti hingað
fyrir einu ári síðan og þá var okk-
ur lofað öllu fögru.“ Mikil reiði sé
meðal íbúa og mörgum finnist
stjórnmálamenn hafa gengið á
bak orða sinna. Margir sjái eftir
því hvernig þeir greiddu atkvæði
á kjördag.
Elín Björg segir íbúa Flateyrar
hafa þurft að berjast fyrir því að
fá að halda þeim þjónustustofn-
unum sem í bænum eru. Því sé
það reiðarslag að grundvöllur
byggðarinnar sé nú e.t.v. á leið
frá henni. „Mér finnst eins og það
eigi bara allt að vera á Ísafirði.
Samt vantar leikskólapláss þar og
þá kemur ekki til greina að senda
börn hingað þar sem nægt er
plássið.“
Elín flutti til Flateyrar ásamt
eiginmanni sínum fyrir ári síðan.
Eins og margir hefur hún nýlega
fjárfest í húsi á staðnum. „Við vilj-
um bara vera á Flateyri því hér
hefur okkur liðið vel. Hér er rosa-
lega gott mannlíf og mig langar
alls ekki að flytja aftur suður.“
Hún segist ekki halda að íbúarnir
séu nú þegar farnir að hugsa sér
til hreyfings. „Fólk ætlar að bíða
og sjá til. Margir eiga húsnæði
hér og vonast til að stjórnvöld
geri eitthvað. Af þeim sem ég hef
heyrt í ætlar enginn að gefast
upp. Við verðum að vera bjartsýn
og vonast til að eitthvað gerist.“
Óvissa hjá Flateyringum um framhaldið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Áhyggjulaus Börnin á Flateyri þurftu ekki að hafa áhyggjur af atvinnumálum staðarins. Hinir eldri eru hins vegar ekki vissir um hvað taki við.
Allir vona að út-
gerðin og vinnslan
verði keypt
Stanislaw
Kordek
Elín Björg
Þorvarðardóttir