Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 12

Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉF héldu áfram að hækka í verði í OMX kauphöllinni í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,57% og var 8.101 stig við lokun markaða. Bréf Atlantic Petroleum hækkuðu um 10,05% í dag, bréf Teymis um 2,28% og bréf Bakkavar- ar um 1,7%. Krónan styrktist talsvert í gær, eða um 1,1%, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Gengi bandaríkjadollars er 62,08 krónur, breska pundsins 122,66 og evrunnar 83,54. Vísitala yfir 8.100 stig ● BAUGUR Group hefur aukið hlut sinn í fjölmiðlafyrirtækinu 365 með kaupum á 81,2 milljónum hluta á genginu 3,75. Andvirði viðskiptanna er því um 305 milljónir króna. Til- kynnt var um kaupin til kauphallar OMX á Íslandi en Jón Ásgeir Jóhann- esson, forstjóri Baugs, er jafnframt stjórnarformaður 365. Með viðskipt- unum fer hlutur Baugs í 365 úr 29,40% í 31,76% af heildarhlutafé. Ekki var tilkynnt hver seldi bréfin. Tap á rekstri 365 hf. nam 35 millj- ónum króna á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 440 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Sölutekjur fyr- irtækisins námu 2,7 milljörðum króna og jukust um 83 milljónir frá sama tímabili 2006. Baugur Group eykur við sig í 365 hf. ● EIGNASTÝRINGARFYRIRTÆKIÐ Boussard & Gavaudan hefur keypt þrjú hundruð þúsund B-hluti í sænska fjármálafyrirtækinu Invik samkvæmt flöggunartilkynningu til kauphallarinnar í Stokkhólmi. Kaup- verðið er 229 sænskar krónur á hlut. Þar með á Boussard & Gavaud- an 5,84% hlut í félaginu en Mile- stone hefur sem kunnugt er gert yfir- tökutilboð í Invik. Tilboð Milestone hljóðar upp á tvö hundruð og þrjátíu krónur á hlut þannig að taki Boussard & Gavaud- an því mun félagið hagnast um eina sænska krónu á hlut vegna þeirra hluta sem fyrirtækið keypti nú, alls þrjú hundruð þúsund sænskar krón- ur. Boussard & Gavaudan kaupir hlut í sænska fyrirtækinu Invik ÞRIÐJI fjórðungur fjárhagsárs Al- fesca var fyrirtækinu hagfelldur, en nettósala jókst um tæp 13% og hagn- aður jókst um 50% milli ára. Hagnaður Alfesca á þriðja árs- fjórðungi nam 1,3 milljónum evra (um 110 milljónum króna), sem er 50% hækkun frá sama tímabili í fyrra, eins og áður segir. Á fyrstu níu mánuðum fjárhagsársins nam hagn- aðurinn hins vegar 18,9 milljónum evra, sem er 51% hækkun milli ára. Hagnaður fyrir skatta og fjár- magnsliði (EBITDA) nam 7,2 millj- ónum evra sem er 28,6% aukning milli ára, og 45,5 milljónum evra fyr- ir fyrstu 9 mánuði ársins sem er 21,7% hækkun milli ára. Nettósala nam 125,7 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi, sem er aukning um 12,8%. Nettósala nam 472,6 milljón- um evra fyrstu níu mánuði ársins, sem er 8% hækkun frá sama tíma í fyrra. Alfesca hefur samið um kaup á franska fyrirtækinu Le Traiteur Grec, sem framleiðir smurrétti úr grænmeti. Kaupverðið nemur 19,7 milljónum evra, jafnvirði um 1,7 milljarða króna. Nettósala franska fyrirtækisins árið 2006 nam 12 milljónum evra og hefur hún aukist um meira en 10% á ári síðastliðin þrjú ár. Hagnaður Alfesca eykst um 50% enn við þjónustuframboð bankans og gera okkur kleift að ná fótfestu á lyk- ilmarkaði, sem býður hvort tveggja í senn upp á ört vaxandi efnahagslíf og stöðugt rekstrarumhverfi.“ Segir hann að með því að bæta eQ í sam- stæðu Straums geti bankinn náð því markmiði sínu að verða leiðandi nor- rænn fjárfestingarbanki fyrr en ella. Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums, segist trúa því að rúm sé fyrir framsækinn fjárfestingabanka á finnskum fjár- málamarkaði. „Samstilltur kraftur eQ og Straums-Burðaráss mun gera þeim kleift að nýta þau tækifæri sem þar gefast.“ Þungi starfsemi Straums erlendis Straumur kaupir finnska eQ-bankann fyrir 22 milljarða Morgunblaðið/ÞÖK Kaup Antti Mäkinen, forstjóri eQ, segist ánægður með kaup Straums á eQ. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Í KJÖLFAR kaupa Straums-Burð- aráss fjárfestingabanka á finnska bankanum eQ Corporation verður svo komið að 70-80% tekna fyrirtæk- isins koma frá öðrum löndum en Ís- landi, auk þess sem hlutfall þóknana- og hreinna vaxtatekna eykst úr 43% í 50% af hreinum rekstrartekjum. Straumur-Burðarás hefur keypt meirihluta í eQ, sem sérhæfir sig í eignastýringu, verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf. Gert verður yfir- tökutilboð í allt hlutafé og kauprétti í eQ. Tilboðsverðið verður 7,60 evrur á hlut og er samanlagt virði kaup- anna og tilboðsins 260 milljónir evra, eða um 22,2 milljarðar króna. Bæta við eignastýringu Meðal þess sem kaupin færa Straumi-Burðarási er eignarstýring- ardeild eQ, með um 1,7 milljarða evra í umsýslu, en fyrir kaupin hafði Straumur enga slíka deild. Finnski bankinn sérhæfir sig m.a. í verðbréfamiðlun, eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Straums, segir kaupin gera bankan- um kleift að bæta eignastýringu við þjónustuframboð bankans og stækka efnahagsreikning hans. Seg- ir hann kaupin vera mikilvægt skref í átt að þeim markmiðum sem Straumur hafi sett sér. „Þau auka Í HNOTSKURN » Gert er ráð fyrir að eQmuni halda áfram sem sjálfstætt fyrirtæki innan samstæðunnar, undir eigin nafni. » Markmið Straums er aðbankinn verði með starfs- stöðvar í a.m.k. 8 löndum árið 2009. Eftir kaupin er Straum- ur þegar í 6 löndum. » Eignir Straums nema nú6,2 milljörðum evra, en markmiðið er að þær nemi 7,9 milljörðum eftir tvö ár. FORSTJÓRI danska lágfargjalda- flugfélagsins Sterling, Almar Örn Hilmarsson, segir félagið ekki hafa notið sannmælis í dönskum fjölmiðl- um hvað varðar fréttaflutning af deilum stjórnar félagsins við stétt- arfélag flugmanna þess, en fyrirhug- uðu verkfalli flugmanna Sterling var nýlega frestað. Sem dæmi segir Almar að rangt hafi verið haft eftir Stefan Vilner, upplýsingafulltrúa Sterling, í danska blaðinu Berlingske Tidende fyrir rúmri viku, en þar var haft eftir Viln- er að Sterling þyldi í mesta falli tveggja til þriggja daga verkfall, enda sjóðir félagsins upp urnir. „Við höfum það fyrir reglu í við- ræðum sem þessum að upplýsa starfsmenn um áhrif hugsanlegs verkfalls á starfsemi fyrirtækisins og hvað verkfallið muni kosta fyr- irtækið. Svo fór að einhver flug- mannanna fór með þær upplýsingar í fjölmiðla og þær voru blásnar upp með þeim hætti sem raun bar vitni. Vilner sagði hins vegar aldrei að Sterling þyldi verkfall ekki nema í tvo daga,“ segir Almar. Inngrip neytendasamtaka Almar segir verkfallsboðunina ekki hafa haft merkjanleg áhrif á bókanir hjá flugfélaginu, þrátt fyrir að talsmaður neytendasamtakanna hefði séð ástæðu til að vekja athygli almennings á ástandinu hjá Sterling á þeim tíma. „Á þeim tíma sem ég hef verið hér þá hefur SAS þurft að takast á við verkföll og verkfallsboð- anir, en neytendasamtökin hins veg- ar ekki séð sig knúin til að tjá sig um þau.“ Segir hann að erfitt sé að meta raunveruleg áhrif boðunarinnar á bókanir. „Bókanir voru í samræmi við þróun undanfarinna mánaða þar sem miðasala hefur aukist og hlut- deild okkar á markaði sömuleiðis. Auðvitað getur verið að salan hefði orðið enn meiri hefði verkfalls- boðunin ekki komið til, en það er ómögulegt að segja til um það,“ segir Almar. Ósáttur við fréttaflutning Forstjóri Sterling segir verkfallsboðun ekki hafa haft áhrif á bókanir Pressan Almar Örn Hilmarsson er óánægður með danska fjölmiðla. FL GROUP hefur fjárfest í fjórum fasteignaverkefnum í Bandaríkj- unum fyrir 50 milljónir bandaríkja- dala, um þrjá milljarða króna, í samstarfi við Bayrock Group, sem er alþjóðlegt fasteignafélag í Bandaríkjunum. Um er að ræða tvö fimm stjörnu hótel í samstarfi við auðkýfinginn Donald Trump og fleiri aðila, annað hótelið í Soho- hverfinu í New York og hitt á strönd Fort Lauderdale í Flórída. Einnig verður ráðist í byggingu hótels í Phoenix í samstarfi við Bay- rock og þróun 13 ekru landsvæðis í Whitestone í Queens og byggingu lúxusíbúða þar. Áætlað er að verk- efnunum verði lokið innan þriggja ára. Bayrock Group hefur fjárfest í fjölda þróunarverkefna og andvirði þessara fasteigna er í dag rúmlega fimm milljarðar dollara, um 425 milljarðar króna. Haft er eftir Hannesi Smárasyni í tilkynningu FL Group að um sé að ræða spennandi verkefni sem falli vel að stefnu félagsins um að leita eftir nýjum ögrandi og álitlegum verkefnum. Fasteignamarkaðurinn sé spennandi vettvangur. FL Group í samstarf við Trump Hannes Smárason Donald Trump             !!"                         !" # $% & ' ($   & % & )  )      *  + , -.-   /       "0  $  1  &   ! &$ 1  &  23 . 4)5 67 6 7$$$ , , 8  ,      *- # $* ,  &      ! & !  ,.   ! " #                                                        !& + ,  & $ 6 ,9 & $: ' *  ;;<=>?= @>A>@ =>?=<; <<;?? A=;= >@AA<A >A?;@ @=<?= >@@>=@A; @ >;=<@ >;>@<A= >>?>A< @AA?==<= A>@ >><@@;?? + @<?@ === + >@<@>== ;?;=@== @A>=@ + + B?; < ;BAA >=;=B== ?BA ?>B;= @AB>= @BA <B >>=;B== ?B== <B<= >B;= @>B@ >>=B  @B@; @?BA= B? >?B ?BA= <B B?< < B=; >=@B== <B== ?>B?= @AB@ @?B== <B?= >>=B== ?B>= <;B >BA @>B >>@B== B?= @B@? @<B== B?< >AB?= <B@= >@B BA= 8, 9 C  6!D  $    .& , @ >@ ? @@ ;? @; ?= > >>> ? A  >@@ ; + >; > + ; > @ + + E $ $ ,  , @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@@==? @>@==? @@@==? @@@==? @>@==? @>@==? @@@==? @@@==? @@@==? @@==? ><@==? >@==? 4)5 4)5   F F 4)5 '5    F F E GH  2 & I       F F 6*" E       F F 4)5(> 4)5;=     F F MOODY’S lánshæfismatsfyrirtækið staðfesti í gær að allar lánshæfis- matseinkunnir Landsbankans og Glitnis séu óbreyttar. Fylgir þessi tilkynning Moody’s í kjölfar kaupa Landsbankans á verðbréfafyrirtæk- inu Bridgewell og Glitnis á sænska fyrirtækinu Tamm & Partners Fondkommision. Segir í rökstuðningi Moody’s að kaup Landsbankans á Bridgewell séu smá í sniðum fyrir bankann, en kaupverðið nemi um 0,3% af heildar- eignum Landsbankans og krefjist því ekki mikils fjár. Hvað varðar Glitni segir Moody’s að starfsemi Tamm & Partners eigi vel við starfsemi Glitnis og ætti að styrkja fyrirtækjasvið bankans. Óbreytt lánshæfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.