Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 13
ÚR VERINU
FRÉTTASKÝRING
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur sent til sveitarfélaganna úthlut-
un byggðakvóta fyrir yfirstandandi
fiskveiðiár. Samkvæmt því fær Flat-
eyri enga úthlutun. Þar sem aukning
hefur verið bæði í fiskvinnslu og út-
gerð á Flateyri, uppfyllir bærinn ekki
þau skilyrði, sem þarf til að fá úthlut-
un. Þeir atburðir sem nú eru að verða
lágu ekki fyrir við úthlutun.
Ísafjarðarbær fær 454 tonn
Hins vegar fellur sérstök úthlutun
til Ísafjarðarbæjar, ígildi 193 tonna af
þorski. Sú úthlutun kemur úr sér-
stökum „potti“ þeirra byggðarlaga er
nutu byggðakvóta Byggðastofnunar
síðastliðin sjö ár. Ísafjarðarbær getur
svo úthlutað þeim heimildum eftir
settum reglum til skipa á þeim stað
sem heimildirnar renna til. Þess
vegna gætu þær allar runnið til Flat-
eyrar. Auk þess fær Ísafjarðarbær
261 þorskígildistonn, sem skiptist á
milli Ísafjarðar, Hnífsdals og Þing-
eyrar. Samtals er Ísafjarðarbær því
með 454 tonn, sem er mesta úthlutun
á einstakt sveitarfélag. Næst á eftir
koma Norður-Þing með 381 tonn,
Vesturbyggð með 349 og Fjallabyggð
með 339 tonn.
Byggðakvótinn er hugsaður til
stuðnings fyrir byggðarlög, sem hafa
orðið fyrir tímabundnum áföllum eins
og samdrætti í veiðum og vinnslu. Áð-
ur fyrr hafði Byggðastofnun yfir sér-
stökum byggðakvóta að ráða og var
honum úthlutað til sveitarfélaga sam-
kvæmt ákveðnum reglum. Sú úthlut-
un var tímabundin og er henni nú lok-
ið. Auk þess hafði sjávarútvegsráðu-
neytið ákveðnar heimildir til sams-
konar úthlutunar og hefur enn, eða
allt að ígildum 4.385 tonna af þorski.
Verða að landa tvöfalt
meiru til vinnslu
Mjög misjafnt er hvernig þessar
heimildir hafa verið nýttar, en þau
skip sem fá úthlutun verða að landa
tvöföldu því magni til vinnslu í heima-
höfn. Yfirleitt kemur lítið í hlut hvers
byggðarlags eða byggðar og er út-
hlutun með ýmsum hætti. Stundum
hefur úthlutuninni verið jafnað niður
á báta í hverju plássi, stundum hafa
heimildir verið sameinaðar til að fá
aukinn styrkt og reynt að fá aðila,
annaðhvort á svæðinu eða utan þess,
til samstarfs og koma með veiðiheim-
ildir á móti. Sú leið var til dæmis farin
í Ísafjarðarbæ, þegar heimildir voru
sameinaðar á Þingeyri.
Það er því mjög misjafnt hvernig
þessar heimildir nýtast, en í fæstum
tilfellum hafa þær dugað til að byggja
upp öfluga útgerð og fiskvinnslu. Það
er því ólíklegt að einhver úthlutun
byggðakvóta nú til Flateyrar breyti
miklu.
„Þetta hefur ekki gert meira en svo
að við höfum sloppið skaðlaust frá
dæminu. Það er kannski að miklu
leyti fyrir ættarsöguna að við hófum
starfsemi á Þingeyri og erum þar
enn,“ segir Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis í Grindavík.
Vísir fór í samstarf með heima-
mönnum á Þingeyri, Byggðastofnun
og Burðarási fyrir um sjö árum. Þá
var úthlutað um 400 tonnum, mest
þorski til þriggja staða á norðanverð-
um Vestfjörðum, Flateyrar, Suður-
eyrar og Þingeyrar. Bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar ákvað að sameina
heimildirnar á Þingeyri og leita sam-
starfs við Vísi um framkvæmdina.
Vísir lagði jafnmiklar heimildir á móti
og og með kaupum á varanlegum
heimildum réð fyrirtækið yfir um
1.000 tonna kvóta. Síðan var samið við
Vísi um að hann landaði að auki um
2.000 tonnum á staðnum og sæi þar
um vinnslu aflans. Byggðakvótinn
gilti að fullu í fjögur ár, en fór svo
stiglækkandi og er enginn núna.
„Þetta dugði engan veginn til að
hafa eitthvað út úr rekstrinum. Við
tókum þarna mjög dýr hús og keypt-
um hlutabréf Byggðastofnunar og
Burðaráss í fyrirtækinu og samein-
uðum félagið inn í Vísi. Við erum að
vinna að alls konar tilraunastarfsemi
þarna og hefur tekizt að halda þessu
skaðlausu þennan tíma. Það má segja
að hagstæð kvótakaup á þessum ár-
um skipti þar miklu máli, en okkur
þótti reyndar kvótinn mjög dýr þá.
Við höldum þessu áfram meðan stætt
er og erum að vinna að nýrri fram-
leiðslu, sem byggist á minna magni,
en meira verðmæti. Flutningskostn-
aður til og frá Vestfjörðum er mjög
mikill og svæðið er mjög erfitt fyrir
starfsemi af þessu tagi,“ segir Pétur.
En hver er ættarsagan?
„Afi minn í föðurætt var Þingeyr-
ingur. Árið 1943 átti hann tvo stóra
útilegubáta á línu. Hann fórst því
miður 12 dögum fyrir fertugsafmælið
sitt og seinni báturinn var keyrður
niður einu og hálfu ári seinna, í seinni
heimsstyrjöldinni. Amma var sem
sagt í línuútgerð eftir að afli féll frá,
með fjögur börn. Þarna hóf pabbi út-
gerð með öðrum fyrir tvítugt, en flutti
svo til Grindavíkur með starfsemina.
Þessi saga heldur okkur dálítið við
efnið,“ segir Pétur.
Umdeilt en virkaði
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í
Ísafjarðarbæ, segir að ákvörðunin
um að sameina byggðakvótann á
Þingeyri hafi verið mjög umdeild.
„En hún virkaði. Vísir er enn að vinna
fisk á staðnum með nokkuð af fólki í
vinnu. Byggðakvótinn hefur ekki allt-
af skilað miklu og þetta eru tiltölulega
litlar heimildir. Það sem skiptir
mestu máli að fá til samstarfs öfluga
útgerðarmenn og fiskvinnslur,“ segir
Halldór.
Ekki liggur enn fyrir hvernig Ísa-
fjarðarbær hyggst úthluta áður-
nefndum 194 tonnum, sem ekki eru
eyrnamerkt ákveðnum byggðum.
Flateyri fær engan byggðakvóta
Staðurinn uppfyllir ekki skilyrði út-
hlutunar bæjarfélaga, þar sem útgerð
og fiskvinnsla hefur dregizt saman
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Kvótinn Vísir hf. hefur starfað á Þingeyri í nokkur ár. Sú starfsemi byggð-
ist að hluta til í upphafi á byggðakvóta sem úthlutað var til Þingeyrar.
Í HNOTSKURN
»Samtals er Ísafjarðarbærþví með 454 tonn, sem er
mesta úthlutun á einstakt
sveitarfélag. Næst á eftir
koma Norður-Þing með 381
tonn, Vesturbyggð með 349 og
Fjallabyggð með 339 tonn.
»Ekki liggur enn fyrirhvernig Ísafjarðarbær
hyggst úthluta áðurnefndum
194 tonnum, sem ekki eru
eyrnamerkt ákveðnum byggð-
um.
»Við höldum þessu áframmeðan stætt er og erum að
vinna að nýrri framleiðslu sem
byggist á minna magni en
meira verðmæti.
ÚTHLUTUN byggðakvótans nú
byggist á tveimur reglugerðum,
sem voru gefnar út um miðjan mán-
uðinn. Önnur fjallar um úthlutun til
fiskiskipa, hin til byggðarlaga. Til
skipta eru 4.385 þorskígildistonn.
Við úthlutun til byggðarlaga er í
raun miðað við þrjá meginþætti. Sá
fyrsti er eins konar punktakerfi.
Þar er farið yfir þætti er varða
samdrátt hjá byggðarlögum í veið-
um og vinnslu og gang mála á
landsvísu. Fyrirtækin fá þá nokk-
urs konar punkta eða stig, sem gefa
til kynna hvort eitthvað og þá hve
mikið kemur í þeirra hlut.
Annar þátturinn er eins konar
skyndihjálp, og er hugsaður til út-
hlutunar byggðarlaga sem hafa
orðið fyrir áföllum vegna stöðvun-
ar tiltekinna veiða.
Loks er sérstakur „pottur“ upp á
750 þorskígildistonn, sem rennur til
þeirra byggðarlaga, sem áður nutu
byggðakvóta Byggðastofnunar.
Byggðarlögin hafa tíma til 4. júní
til að óska eftir frávikum frá reglu-
gerð um úthlutun.
Heimildunum skal úthluta á skip
og báta innan viðkomandi byggð-
arlaga. Skilyrði er að skipin hafi
leyfi til veiða í atvinnuskyni, séu
skráð í byggðarlaginu 1. maí 2007
og séu í eigu aðila með heimilisfang
í viðkomandi byggðarlagi. þeim
skipum sem fá úthlutað byggða-
kvóta skylt að landa tvöföldum
þeim kvóta til vinnslu í viðkomandi
byggðarlagi. Að fengum tillögum
frá byggðarlögunum úthlutar fiski-
stofa síðan heimildunum á við kom-
andi báta. Úthlutunin er frekar
seint á ferðinni en það stafar af því
að gera þurfti breytingar á lögum
um stjórnfiskveiða, sem voru ekki
samþykktar fyrr en í þinglok.
Punktakerfi og skyndihjálp
)*+ ,- #
#
.//01.//2
J $"7
*
/ K - *&$ ,
,$
*L L M
9
& . ,
*7C
8 7$$,
8 .-L
8 .
8 9& &
6-. ,
$
9
%. , L
%. L K$7
%. L * , 7
%. L !9&
%. L %. ,
*N,
9
2 , . ,
E $
!C
9
!
$
& C
*$ &
*
*$. ,
*
*$.! C
*
*$.* ,-
. *$ . ,
. M. ,
E
9 J C$
E
9 ! $
7 ! 97
9
97
2+K$!N
9
2+K$'C
2+K$O $ KC $ 8 . ,
$ . , 7
*7,. ,
. , - N,.
. , *,
.
,&
9
E.N
$
*
Við erum leiðandi í
framleiðslu stjórn- og
gæslubúnaðar fyrir kæli-
og frystikerfi
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
Fiskiðjuver til sölu
Til sölu er fiskiðjuver í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í
vinnslu og sölu á frystum og ferskum bolfiski. Um er
að ræða vel staðsetta fasteign, u.þ.b. 1300 fm að
stærð sem skiptist í 1100 fm vinnslu- og geymslu-
rými og 200 fm starfsmanna- og skrifstofuaðstöðu.
Lóð er u.þ.b. 3000 fm og mögulegt að stækka fast-
eignina. Gott skipulag á framleiðsluferlum. Fiskiðjan
er í mjög góðu ástandi, vel búin tækjum, góð við-
skiptasambönd og fyrirliggjandi sölusamningar.
Umtalsverðir vaxtarmöguleikar.
Áhugsamir hafi samband við Hróbjart Jónatansson
hrl, AM Praxis lögfræðiþjónustu í síma 533 3333 til
að fá frekari upplýsingar.