Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
AÐ minnsta kosti
tveir palestínskir
flóttamenn biðu
bana þegar skot-
árás var gerð á
flutningabíla
sem sendir voru
á vegum Samein-
uðu þjóðanna
með hjálpargögn
í flóttamanna-
búðirnar Nahr
al-Bared í Líbanon í gær. Bílarnir
urðu að snúa við vegna árásarinn-
ar. A.m.k. 68 manns, þar af nítján
óbreyttir borgarar, hafa fallið í
þriggja daga átökum stjórnarhers
Líbanons og liðsmanna palestínsku
hreyfingarinnar Fatah al-Islam.
Um 31.000 flóttamenn eru í búð-
unum og ástandið er orðið mjög al-
varlegt.
Mannskæð
árás á bíla SÞ
Einn af bílum SÞ í
Nahr al-Bared.
ALLT útlit er fyrir að UMP –
íhaldsflokkur Nicolas Sarkozy, nýs
forseta Frakklands, sigri í þing-
kosningum sem fram fara 10. og 17.
júní. Kannanir benda til að UMP fái
40% atkvæða en sósíalistar 28%.
Sarkozy sterkur
25 TÝNDU lífi og sextíu særðust
þegar bílsprengja sprakk á útimark-
aði í Bagdad í gærmorgun. Talsvert
hefur verið um slíkar árásir þrátt
fyrir tilraunir Bandaríkjahers til að
bæta öryggisástandið í borginni.
25 féllu í Bagdad
AÐ minnsta kosti sex manns týndu
lífi og 80 særðust þegar sprengja
sprakk í verslunarhverfi í tyrk-
nesku höfuðborginni, Ankara, í
gær. Talið er að um sprengjutilræði
hafi verið að ræða.
Sex féllu í Ankara
London. AFP. | Þrjár vikur eru nú
liðnar síðan Madeleine McCann var
rænt af hóteli sínu í Portúgal. Bresk-
ir fjölmiðlar þykja hafa vakað svo
yfir málinu að nú eru ýmsir farnir að
spyrja hvort umfjöllun um þetta til-
tekna mál hafi farið út í öfgar.
McCann, sem er fjögurra ára, var
rænt að kvöldi 2. maí af hóteli í Alg-
arve þar sem hún lá sofandi ásamt
systkinum sínum, tveggja ára tví-
burum. Foreldrarnir, Kate og Gerry
McCann, höfðu fengið sér að borða á
veitingastað hótelsins í um 50 metra
fjarlægð. Kastljós breskra fjölmiðla
beindist strax að málinu, auðugir
Bretar lofuðu verðlaunafé fyrir
upplýsingar sem leiddu til þess að
Madeleine fyndist heil á húfi og opn-
uð var vefsíða sem milljónir manna,
víðsvegar um heim, hafa heimsótt.
Sjónvarpsstöðvarnar hafa sent
stjörnufréttamenn sína til Algarve
til að flytja fréttir heim og málið hef-
ur verið á forsíðum dagblaða dag eft-
ir dag, þrátt fyrir að nýjar upplýs-
ingar hafi verið af skornum
skammti.
Simon Jenkins, dálkahöfundur hjá
The Guardian, fór um þetta gagn-
rýnisorðum á föstudag, sagði um-
fjöllunina hafa verið „fáránlega yfir-
gengilega“, þreytandi með ein-
dæmum.
Vangaveltur þykja hafa leyst stað-
reyndir af hólmi – en vandi fjöl-
miðlanna í þeim efnum skýrist að
hluta til af reglum sem gilda í Portú-
gal um heimild lögreglunnar til að
tjá sig um rannsókn mála.
Mary Riddell sem skrifar í The
Observer er ósammála. Hún segir
fjölmiðla alls ekki hafa gerst of
hnýsna um einkalíf McCann-fjöl-
skyldunnar, sorg þeirra og angist.
Gerry og Kate McCann hefðu þvert
á móti beitt sér fyrir mikilli umfjöll-
un í þeirri von að það yrði til þess að
dóttir þeirra fyndist heil á húfi. Erf-
itt sé að fárast yfir slíku.
Nú þegar fréttaflutningur af mál-
inu hefur tekið að dvína spyrja menn
þó hvers konar fordæmi hafi hér ver-
ið sett. Bent er á að meira en 800
börn og ungmenni hafi horfið frá því
að Madeleine hvarf af hótelherbergi
sínu. Þá sé tilkynnt um u.þ.b. 210.000
mannshvörf á ári hverju í Bretlandi,
en um ungmenni er að ræða í tveim-
ur af hverjum þremur tilvikum. „Ég
sé ekki að það sé ástæða til að fara í
einhverja naflaskoðun og sjálfsgagn-
rýni þegar staðreyndin er sú að það
eina sem allir vilja er að þessi litla
stúlka finnist heil á húfi,“ segir hins
vegar Paul Horrocks, formaður sam-
taka ritstjóra í Bretlandi.
Eðlileg umfjöllun
eða út í öfgar?
Fá barnshvörf fá
viðlíka athygli og
mál litlu Madeleine
Reuters
Átak Leikmenn Liverpool lögðu lóð
á vogarskálar áður en þeir héldu til
Aþenu að spila úrslitaleik.
Varsjá. AP. | Forsætisráðherra Pól-
lands, Jaroslaw Kaczynski, segist
ekki eiga bankareikning og kýs þess
í stað að leggja sparifé sitt á reikn-
ing móður sinnar, að sögn vikublaðs-
ins Wprost. Haft er eftir forsætis-
ráðherranum að þetta fyrirkomulag
sé ekki til marks um „sérvisku“.
„Í fyrsta skipti á ævinni á ég
sparifé en ég á samt engan banka-
reikning,“ sagði Kaczynski, sem
varð forsætisráðherra í fyrra. „Ég
geymi peningana
mína á reikningi
mömmu minnar.“
Þau mæðginin
búa í sama húsi.
„Ég vil ekki lenda
í því að einhver
leggi peninga inn
á reikning minn
án þess að ég viti
af því og ég lesi
síðan um það í
blöðunum daginn eftir,“ hafði
Wprost eftir forsætisráðherranum.
Kaczynski sagði ekkert um hver
kynni að vilja lauma peningum inn á
reikning hans. Hann sagði að fyrr-
verandi fjármálaráðherra, sem hann
nafngreindi ekki, hefði boðist til að
stofna reikning fyrir hann árið 1991
en hann hefði afþakkað það. „Það at-
vik varð til þess að ég áttaði mig á
því hversu auðvelt það er að gera
menn að svikahröppum.“
Hættir ekki á að stofna reikning
Jaroslaw
Kaczynski
OSORIO Correa sést hér vinna að gerð brjóstmyndar af knattspyrnugoð-
inu Romario í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Romario skoraði mark númer
1.000 á löngum ferli sínum í leik með Vasco da Gama gegn Recife Sport sl.
sunnudag. Romario, sem er 41 árs, lék m.a. með PSV Eindhoven í Hollandi,
Barcelona á Spáni og Flamengo í Brasilíu. Hann skoraði 56 sinnum fyrir
brasilíska landsliðið og varð heimsmeistari með því 1994.
Reuters
Markheppinn maður
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
BRESKI ríkissaksóknarinn hefur
farið fram á að rússnesk stjórnvöld
framselji leyniþjónustumanninn
fyrrverandi, Andrei Lúgóvoj, til
Bretlands en embættið segir næg-
ar sannanir fyrir hendi til að hægt
sé að ákæra Lúgóvoj fyrir morðið á
Alexander Lítvínenkó í London á
síðasta ári. Lítvínenkó, sem einnig
var fyrrverandi leyniþjónustumað-
ur, lést 23. nóvember sl. eftir að
eitrað hafði verið fyrir hann með
geislavirku efni, pólóníum 210.
Margaret Beckett, utanríkisráð-
herra Bretlands, hefur tjáð sendi-
herra Rússlands í Bretlandi að hún
ætlist til þess að rússnesk stjórn-
völd verði samstarfsfús í þessu
máli. Rússar segjast hins vegar
ekki ætla að verða við beiðninni,
enda leyfi stjórnarskrá Rússlands
framsal ríkisborgara erlendis. Hafi
rússneskur ríkisborgari brotið lög
á erlendri grundu sé þó hægt að
sækja þá til saka í Rússlandi á
grundvelli þeirra gagna sem um-
rætt ríki leggi fram.
Eykur spennu í samskiptunum
Næsta öruggt þykir að ákæran á
hendur Lúgóvoj muni auka spennu
í samskiptum Breta og Rússa en
rússnesk stjórnvöld hafa alfarið
neitað aðild að morðinu á Lítv-
ínenkó.
Lítvínenkó hafði gagnrýnt stjórn
Vladímírs Pútíns harkalega og bjó í
Bretlandi, þar hafði hann fengið
pólitískt hæli. Vinir Lítvínenkós,
s.s. auðjöfurinn Borís Berezovskí,
fullyrða að stjórnvöld í Kreml hafi
skipað svo fyrir að Lítvínenkó
skyldi myrtur og í bréfi sem Lítv-
ínenkó skrifaði, og var birt eftir
andlát hans, tók hann undir slíkar
ásakanir.
Berezovskí hefur hvatt til upp-
reisnar í Rússlandi gegn Vladímír
Pútín og hafa rússnesk stjórnvöld
fyrir vikið viljað fá hann framseld-
an heim til Moskvu. Þeim óskum
hafa bresk stjórnvöld ávallt hafnað.
Vitað er að Andrei Lúgóvoj flaug
ásamt viðskiptafélaga sínum, Dím-
ítrí Kovtún, til London 1. nóvember
sl. til að eiga fund með Lítvínenkó
– en síðar þann sama dag fann
Lítvínenkó fyrst fyrir áhrifum eitr-
unarinnar. Lúgóvoj hefur neitað
aðild að morðinu og sagðist í gær
álíta að ákærurnar væru af póli-
tískum rótum runnar. Breska lög-
reglan hefur ekki sjálf yfirheyrt
Lúgóvoj eða Kovtún en fékk að
vera viðstödd þegar rússneskir lög-
reglumenn lögðu fyrir þá spurn-
ingar í Moskvu.
Vilja fá Lúgóvoj
framseldan
Mun sæta ákæru fyrir morðið á
Alexander Lítvínenkó í London í fyrra
Andrei
Lúgóvoj
Alexander
Lítvínenko
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjó›félagar og rétthafar séreignarsparna›ar
rétt til setu á fundinum.
fieim sjó›félögum sem hafa áhuga á a› kynna sér tillögur til breytinga á
samflykktum e›a ársreikning sjó›sins fyrir fundinn er bent á a› hægt er a›
nálgast flær á eftirfarandi hátt:
• Á skrifstofu sjó›sins í Borgartúni 30, Reykjavík
• Fá flær sendar me› flví a› hafa samband í síma 510 5000
• Fletta fleim upp á vefsí›u sjó›sins, www.lifeyrir.is
Reykjavík, 14. maí 2007.
Stjórn Sameina›a lífeyrissjó›sins
Ársfundur Sameina›a lífeyrissjó›sins ver›ur haldinn
fimmtudaginn 24. maí 2007, kl. 16.00, á Nordica hotel,
Su›urlandsbraut 2, Reykjavík.
Borgartún 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000
mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is
ÁRSFUNDUR 2007
DAGSKRÁ
1. Fundarsetning
2. Sk‡rsla stjórnar
Ábyrgar fjárfestingar:
Georg Páll Skúlason, stjórnarma›ur fjallar um stefnumörkun sjó›sins
3. Erindi fiór›ar Fri›jónssonar, forstjóra Nordic Exchange á Íslandi
um ábyrgar fjárfestingar
Kaffihlé
4. Almenn ársfundarstörf
5. Tillögur stjórnar um breytingar á samflykktum sjó›sins
6. Önnur mál löglega upp borin