Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MATSNEFND Upplýsingar –
félags bókasafns- og upplýs-
ingafræða ákvað á aðalfundi
sínum í fyrradag að besta ís-
lenska fræðibók ársins í fyrra
væri Upp á sigurhæðir – Saga
Matthíasar Jochumssonar.
Höfundur hennar er Þórunn
Erla Valdimarsdóttir.
Ekki voru veitt verðlaun að
þessu sinni í flokki íslenskra
fræðibóka fyrir börn og ung-
linga, þar sem engin fræðibók í fyrra þótti stand-
ast þær lágmarkskröfur sem Upplýsing gerir til
slíkra bóka. Viðurkenningu hljóta bæði höfundur
og útgefandi.
Bókmenntir
Þórunn verðlaunuð
fyrir fræðibók
Þórunn E.
Valdimarsdóttir
KVARTETT Sigurðar Flosa-
sonar og Jóels Pálssonar held-
ur útgáfutónleika á Domo við
Þingholtsstræti annað kvöld
kl. 21 vegna útgáfu á disknum
Shanghai, China, sem kom út í
Kína í febrúar síðastliðnum.
Kvartettinn kom fram á átt-
undu listahátíðinni í Shanghai í
október í fyrra. Í þeirri ferð
var hljóðritaður á einum degi
geisladiskurinn fyrrnefndi, en
hann er fyrsti íslenski geisladiskurinn sem tekinn
er upp og gefinn út í Kína. Um 1.800 manns sóttu
tónleikana í Kína og var kvartettinum afar vel
tekið, að sögn tónlistarmannanna.
Tónleikar
Fagna útgáfu
geisladisks í Kína
Jóel
Pálsson
Í TÓNLEIKARÖÐINNI
Ungir einleikarar á Listahátíð í
Reykjavík koma fram ungir og
upprennandi tónlistarmenn
sem vakið hafa verðskuldaða
athygli að undanförnu. Í kvöld
leika Ari Vilhjálmsson fiðlu-
leikari og Ástríður Alda Sig-
urðardóttir píanóleikari á tón-
leikum. Þau eru bæði nýflutt
heim eftir langt framhaldsnám
við virta tónlistarháskóla á er-
lendri grund og munu flytja ýmsa þekkta konfekt-
mola og virtúósaverk tónbókmenntanna, m.a. eftir
Bartók og Strauss.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í kvöld í Ými.
Tónleikar
Ungir einleikarar
á Listahátíð
Ari Þór
Vilhjálmsson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ICELANDIC Sound Company
(ISC) heldur í kvöld tónleika í
Hallgrímskirkju með þýska orgel-
leikaranum Kirsten Galm og Agli
Ólafssyni barítónsöngvara. ISC
skipa þeir Ríkharður H. Frið-
riksson, sem leikur á rafgítar og
Gunnar Kristinsson tónskáld sem
leikur á slagverkssafn. Báðir sjá
um rafhljóð.
ISC hefur að þungamiðju hreint
hljóð. Hljóðið úr hljóðfærunum er
leitt í gegnum hljóðbreytitæki sem
móta hljóðið enn frekar. Tónlistin
sem flutt verður í kvöld er með
trúarlegum blæ og að mestu samin
fyrirfram.
„Þetta er meira eins og hljóð-
skúlptúrar, við erum komnir út á
jaðar tónlistarinnar þannig séð. En
þetta er lagrænt,“ segir Egill.
„Þetta byggist á messuforminu,
gamla messuforminu sem er sjö
þátta form eins og við erum með.
En ég kalla þetta veraldlega
messu, af því Guði er sleppt,“ seg-
ir Egill. Textinn við tónlistina sé
veraldlegur. Hann bætir því við
kíminn að þetta megi ekki segja of
hátt inni í kirkjunni.
Veraldleg messa
Gunnar segir hugsanlegt að and-
leg þörf manna sé að breytast
pínulítið, þar sem margt gangi á í
heiminum. „Við tókum inn líka,
fyrir utan veraldlegan texta eða
texta sem snúast um manneskjuna
á jörðinni, svokölluð frumefni. Við
erum að túlka jörðina, vatnið og
loftið. Vatnið er í okkur sem blóð,
loftið sem súrefni á hverri sek-
úndu, við erum þessi frumefni,“
segir Gunnar og Egill samsinnir
því.
„Ég held að það sé í raun bara
ein trú en margar útgáfur til af
henni. Ég held að allir mennskir
menn séu á einhvern hátt trúandi,“
segir Egill. Þeir ætli sér þó ekki
að færa mönnum neitt í kvöld sem
komi í stað hins gamla messu-
forms. Menn hafi alltaf verið að
endurskoða afstöðu sína til lífsins
og geri það á hverjum degi, endur-
skoði hin ýmsu gildi meðvitað eða
ómeðvitað. „Ég held að á öllum
tímum hafi menn gert það, húm-
anistarnir skoðuðu Biblíutextann
með það fyrir augum að komast
nær einhverju, getað útlistað hann
með nýjum hætti,“ segir Egill. Í
tónlist séu menn alltaf leitandi.
Allir þættir tónlistar
ISC héldu tónleika með þeim
Agli og Kirsten í Þýskalandi í
fyrra, í Freiburg, og fluttu þar
annað efni. Í kvöld verður frum-
flutt efni á ferð og má búast við
spuna að hluta til. „Það má alveg
segja að í verkinu verði allir þættir
tónlistar, við erum með laglínuna,
hljóminn, harmóníuna og líka hina
svokölluðu hljómliti. Ýmislegt get-
ur blandast saman og þá erum við
búnir að yfirgefa melódíu og harm-
óníu og komnir í hljóðstemningar
og hljómliti,“ segir Gunnar. Egill
segist alltaf hafa verið hrifinn af
tónlist sem sé ekki forskrifuð
nema upp að ákveðnu marki. „Það
sem ég hef gert með þeim er að
impróvísera og það gerir maður
líka í poppmúsík og rokki, auðvitað
innan þess þrönga ramma sem þar
er. En hér er víðáttan enn meiri,
akurinn miklu stærri, engin endi-
mörk, öll hljóð möguleg og leyfi-
leg,“ segir Egill. Hann hafi alltaf
verið tónal í hugsun í sinni tónlist
og þekki kirkjutóntegundirnar.
Icelandic Sound Company heldur tónleika í Hallgrímskirkju í kvöld
„Öll hljóð mögu-
leg og leyfileg“
Í HNOTSKURN
» ISC var stofnað fyrir þremurárum. Tvíeykið býður iðu-
lega öðrum tónlistarmönnum að
halda með sér tónleika.
» Á tónleikunum verða leiddsaman tvö af voldugustu
hljóðfærum landsins, Klais-orgel
og slagverkssafn sem er einkum
samsett úr gong og tam-tam-
hljóðfærum.
»Galm er orgelleikari og kór-stjóri í Universitätskirche í
Freiburg og hefur staðið að til-
raunakenndum tónleikum þar.
Morgunblaðið/RAX
ISC Ríkharður H. Friðriksson og Gunnar Kristinsson skipa Icelandic
Sound Company sem heldur í kvöld tónleika með þýska orgelleikaranum
Kirsten Galm og Agli Ólafssyni barítónsöngvara.
Leiktúr í
fyrsta skipti
í 400 ár
William Shakespeare
„MÉR finnst Bryn Terfel alveg frá-
bær söngvari og varð svo sannar-
lega ekki fyrir vonbrigðum. Það sat
ung söngkona við hliðina á mér á
tónleikunum og hún var andaktug
allan tímann. Terfel hefur ótrúleg-
an sjarma, er einlægur og hreinn,
hann tilheyrir vissum hópi tónlist-
armanna sem bregðast aldrei,“ seg-
ir Agnes sem sá hann einnig þegar
hann kom hingað til lands í fyrra
skiptið.
„Síðan var óskaplega gaman að
hafa samanburð frá kvöldinu áður
þegar ég fór að sjá Dimitri Hvor-
ostovsky sem ég hef alltaf haldið
óskaplega mikið upp á. Þótt þeir
séu báðir heimsbarítónar þá eru
þeir óskaplega ólíkir í persónu,
söngstíl og túlkun. Þannig að þessi
tvö kvöld urðu eins og ég átti von á,
ég varð alveg himinlifandi með
báða tónleikana.
Listahátíð er ómetanleg á hverju
ári en ég er svolítið óánægð með
tímasetningu hátíðarinnar því það
eru svo margir tónlistarnemendur í
prófum í framhalds- eða háskólum í
maí og komast því ekki á viðburði
og því væri betra að hafa hátíðina í
júní.“
Hvernig var?
Agnes Löve, skólastjóri og píanóleik-
ari, var mjög hrifin af Bryn Terfel
Agnes Löve
MYNDLISTARMENNIRNIR Ás-
laug Thorlacius og Finnur Arnar og
verktakinn Ólafur Jónsson hlutu
fyrstu verðlaun í samkeppni Orku-
veitu Reykjavíkur um frágang nið-
urrennslisæðar við Hellisheiðar-
virkjun. Tillaga þeirra, Lagnir flytja
ljóð, felur í sér að Völuspá verði rit-
uð eftir endilangri lögninni.
Dómnefnd þótti tillagan „frumleg
en um leið látlaus endurbót á útliti
lagnarinnar, sem liggur undir þjóð-
veg eitt rétt neðan við Hveradala-
brekkuna“.
Æðin er um 5 km löng og verður
þetta því að öllum líkindum lengsta
ljóð í heimi, þ.e. í kílómetrum talið. Í
Völuspá segir af sköpun heimsins og
endalokum, eða ragnarökum.
Auk sigurtillögunnar ákvað dóm-
nefnd að verðlauna Gunnar Óla Sig-
urðsson og Hjörleif Stefánsson.
Gunnar lagði til að listaverk í formi
dreka væri gert úr sjálfri lögninni.
Tillaga Hjörleifs gerir ráð fyrir að
fela lögnina og auka fræðslu- og
skemmtigildi hennar.
Dómnefnd telur sigurtillöguna
frumlega en um leið látlausa end-
urbót á útliti lagnarinnar þó svo að
hún feli ekki í sér að hún verði hulin.
Ábendingar höfðu borist Orkuveit-
unni um að betur mætti ganga frá
lögninni þar sem hún liggur undir
þjóðveg eitt, skammt vestan við
Skíðaskálann í Hveradölum. Var því
gripið til þess ráðs að halda sam-
keppni um frágang hennar.
Lagnir flytja ljóð
Völuspá Ljóðabálkurinn verður ritaður eftir endilangri lögninni.
BRESKI leikar-
inn Ewan Mc-
Gregor ætlar að
taka sér hlé frá
kvikmyndunum í
bili og snúa sér að
sviðsleik.
Hann hefur
tekið að sér hlut-
verk í uppsetn-
ingu Donmar
Warehouse-leikhússins í London á
Óþelló. Frumsýning verður 4. des-
ember í ár og er það Kelly Reilly sem
leikur Desdemonu en McGregor
mun deila titilhlutverkinu með öðr-
um leikara.
Það kemur á óvart, þar sem
McGregor er þekktur og mun eflaust
trekkja vel að leikhúsinu, að hann
skuli koma fram í verkinu fyrir ekki
meira en 400 pund á viku, eða sem
nemur 50.000 krónum, en hann fær
yfirleitt margar milljónir fyrir hvert
kvikmyndahlutverk.
Hinn 36 ára gamli leikari var ráð-
inn af listrænum stjórnanda Donmar
Warehouse, Michael Grandage, en
þeir hafa áður unnið saman að söng-
leiknum Guys And Dolls.
McGregor
fer á svið
Ewan McGregor
Dagskráin í dag
Icelandic Sound Company
Tónleikar í Hallgrímskirkju kl. 20.
Ungir einleikarar á Listahátíð Ari
Vilhjálmsson fiðluleikari og Ástríður Alda
Sigurðardóttir píanóleikari í Ými kl. 20.
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
.......................................
listir.blog.is
♦♦♦
ÞRÁTT fyrir að það sé ekki plága
að ganga í borginni eða að stjórn-
málamenn hafi lokað leikhúsinu
hefur Shakespeare-leikhúsið Globe
í London ákveðið að fara á túr um
Bretland með leikverk í fyrsta
skipti í 400 ár.
Frá júní til september munu
Globe-leikararnir, eins og menn
konungs gerðu frá Shakespeare-
leikhúsinu á 16. öld, koma fram við
kastalahlið, í höfðingjasetrum og í
almenningsgörðum með uppsetn-
ingu á Shakespeare-verkinu Rómeó
og Júlíu. Eini munurinn á túrnum
nú og fyrir 400 árum verður sá að
ekki verður ferðast í hestvögnum
heldur bílum og húsvögnum.
Globe hefur sniðið Rómeó og Júl-
íu að átta leikurum og ætla þeir að
leika í hvaða veðri sem er. „Við
munum fylgja í fótspor forfeðra
okkar áður en föst leikhús komu til
sögunnar. Að ferðast var þeim í
blóð borið, þeir ferðuðust fyrir pen-
inga og fyrir skemmtunina,“ sagði
leikstjóri Globe-leikhússins.
Hann vonast til að eigendur
herragarða og kastala muni fylgja
gömlu fordæmi og panta leikverkið
til sýningar fyrir gesti sína þegar
Globe er á ferðinni á þeirra slóðum.