Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 21
TAFLA sem eykur kynhvötina og
dregur um leið úr matarlyst hljóm-
ar líklega eins og draumasamsetn-
ing í huga sumra. Vísindamenn við
frjósemisdeild rannsóknarstofn-
unarinnar Medical Resarch Coucil í
Edinborg vinna þessa stundina að
þróun slíkrar töflu, að því er greint
var frá á fréttavef BBC fyrir
skemmstu. Til þessa hefur taflan
eingöngu verið prófuð á kvenkyns
öpum og snjáldurmúsum, en báðar
dýrategundirnar hafa sýnt mök-
unarleiknum aukinn áhuga, auk
þess að minnka matarneyslu sína
um þriðjung. Telja vísindamenn-
irnir að slík tafla sem hentaði kon-
um gæti verið komin á markað inn-
an áratugar, en um 40% kvenna
upplifa lága kynhvöt einhvern tím-
ann á lífsleiðinni.
Sálfræðingurinn Lesley Perman-
Kerr sem BBC ræddi við, virðist
hins vegar ekki jafn viss um að
lausnin liggi í töfluformi. „Sumar
konar búa við sértæk vandamál
tengd kynhvötinni, en oftast hefur
lægri kynhvöt meira að gera með
vandamál í sambandinu. Þegar pör
koma til mín sem ekki stunda kynlíf
þá vilja þau ekki skoða samband
sitt. Þau vilja trúa að kynlífsleysið
hafi ekki með sambandið að gera.“
Kynhvetj-
andi megr-
unartafla
barnslegri gleði yfir
þessu afreki sínu – að
komast óáreittur inn í
landið. Hringdi út um
allan bæ í sigurvím-
unni.
Í annað skiptið fór
hann að velta fyrir sér
hvort ásjóna hans væri
að mýkjast með ár-
unum.
Í þriðja skiptið var
þetta orðið hálfpartinn
sjálfgefið.
Í fjórða skiptið varð
Víkverji hins vegar
hálfmóðgaður. Hvers
vegna vilja tollverðirnir
ekki lengur gramsa í
fórum hans? Er hann ekki nægilega
merkilegur lengur? Hefur hann orð-
ið fjöldanum að bráð? Ótal spurn-
ingar leituðu á hugann.
x x x
Líklegasta skýringin á þessarivanlíðan Víkverja er aftur á
móti sú að hann er afbrigðilega
vanafastur. Eftir ára- og áratuga-
langa leit tollvarða í skjóðum hans
finnst honum hann ekki vera kominn
heim fyrr en farangurinn hefur í það
minnsta verið gegnumlýstur.
Víkverji biður því tollverði auð-
mjúklega að láta meinlausa ásjónu
hans ekki blekkja sig og kippa hon-
um héðan í frá afsíðis þegar hann
kemur til landsins – helst með þjósti.
Víkverji er grun-samlegur náungi.
Það þykir a.m.k. toll-
vörðunum í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar sem
hafa árum saman und-
antekningarlaust
stöðvað hann þegar
hann kemur til lands-
ins og leitað af sér all-
an grun í skjóðum
hans.
Þessi athöfn hefur
að vísu orðið mun
bærilegri í seinni tíð
eftir að gegnumlýsing-
argræjurnar komu til
sögunnar. Víkverji er
gamaldags og þótti
alltaf hálfundarlegt að horfa á blá-
ókunnuga menn róta í eigum sínum.
Varla þarf að taka fram að aldrei
hafa tollverðirnir fundið neitt óvið-
urkvæmilegt hjá Víkverja!
x x x
Nú hefur það gerst að þessi hefð-bundna leit hefur skyndilega
og án útskýringa verið lögð niður.
Víkverji hefur verið óvenjuflyginn
frá áramótum og í fjórgang snúið
heim heilu og höldnu frá útlöndum.
Skemmst er frá því að segja að toll-
verðirnir hafa ekki ónáðað hann í
eitt einasta skipti. Bjóða honum
bara kumpánlega góðan daginn –
með bros á vör.
Í fyrsta skiptið fylltist Víkverji
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
RANGLÆTI er ekki bara sorglegt
og pirrandi. Það eykur einnig hætt-
una á kransæðastíflu og hjartaáfalli
að mati vísindamanna.
Roberto De Vogli og samstarfs-
menn hans við University College í
London og Institute of Occupational
Health í Finnlandi hafa komist að
þessari niðurstöðu að því er for-
skning.no greinir frá.
Þeir rannsökuðu yfir 8.000 eldri
starfsmenn bresku ríkisstjórnar-
skrifstofanna í London. Þeir voru
beðnir um að svara spurningum um
hversu réttlátt þeim fannst þeir hafa
verið meðhöndlaðir í vinnunni, fjöl-
skyldunni og í samfélaginu almennt.
Næstu 11 ár á eftir fylgdust
vísindamennirnir með andlegri og lík-
amlegri heilsu hinna rosknu þátttak-
enda. Í ljós kom að hættan á að fá al-
varlegan hjartasjúkdóm var tvöföld
hjá þeim sem fannst þeir hafa orðið
fyrir mesta ranglætinu, samanborið
við þá sem upplifðu það sjaldan.
Réttlæti lykill að
heilbrigðu samfélagi
Konur, lágtekjufólk og þeir sem
höfðu lægri stéttarstöðu voru líklegri
til að finnast þeir hafa orðið fyrir
óréttlæti og þetta virtist tengjast
aukinni hættu á sálrænum og lík-
amlegum erfiðleikum. Vísindamenn-
irnir telja því að réttlæti sé einn af
lyklunum að heilbrigðara samfélagi.
Vísindamennirnir skiptu þátttak-
endum í þrjá hópa eftir því hvort þeir
töldu sig hafa oft, sjaldan eða í með-
allagi oft orðið fyrir ranglæti. Næstu
ellefu ár á eftir komu upp 528 tilfelli
kransæðastíflu eða hjartaáfalls hjá
þeim þátttakenda sem ekki höfðu
haft slík einkenni þegar rannsóknin
hófst. Vísindamennirnir tóku tillit til
hefðbundinna ástæðna hjarta-
sjúkdóma, s.s. kyns, aldurs, streitu og
skapgerðareinkenna. Engu að síður
virtist sem ranglæti í gegnum lífið
stuðlaði að hjartasjúkdómum.
Í þeim hópi sem upplifði minnsta
ranglætið fengu 64 af 966 krans-
æðastíflu eða hjartaáfall. Í miðju-
hópnum voru samsvarandi tölur 98 af
1.368 á meðan 51 af 567 fengu hjarta-
sjúkdóma í þeim hópi sem upplifði
mesta ranglætið.
Ranglætið ræðst á hjartað
Morgunblaðið/Þorkell
Hjartasjúkdómar Ranglæti er ekki gott fyrir heilsuna.
Hollusta Epli eru holl og góð og svo virðist sem að
konur sem borða mikið af eplum á meðgöngu vinni
gegn því að börn þeirra fái astma.
Óléttar borði epli
og fisk
Þungaðar konur sem borða mikið af eplum á með-
göngu vinna gegn því að börn þeirra fái astma. Ný
skosk rannsókn gefur vísbendingar um þetta.
Graham Devereux læknir er einn af vís-
indamönnunum við Aberdeen-háskóla í Skotlandi
sem stýrðu rannsókninni sem forskning.no segir
frá. „Það má vel vera að önnur atriði í lífsstíl
kvenna sem borða mikið af eplum hafi haft áhrif
á niðurstöður okkar,“ segir hann. „Hins vegar er
tengingin augljós og það er varla hægt að gagn-
rýna það að konur séu hvattar til að borða mikið
af ávöxtum á meðgöngu.“
Vísindamennirnir spurðu 2.000 verðandi mæður
um matarvenjur þeirra og fylgdust á eftir með
heilsu barna þeirra fimm fyrstu árin sem þau lifðu.
Niðurstöðurnar sýndu að börn kvenna, sem borðuðu
fjögur eða fleiri epli vikulega meðan á meðgöngunni
stóð, voru í helmingi minni hættu á að fá astma sam-
anborið við börn kvenna sem borðuðu eitt epli á viku
eða minna á meðgöngunni.
Í sömu rannsókn fundust vísbendingar um að neysla
á fiski á meðgöngu dragi úr hættu á að barnið þrói með
sér exem. Fimm fyrstu árin var hættan á exemi nærri
50 prósentum minni ef móðirin hafði borðað einn eða
fleiri skammta af fiski vikulega á meðgöngunni.
Einstætt á
heimsvísu
Miðasalan fer fram á www.listahatid.is og í síma 552 8588, alla virka
daga frá kl. 10 til 16. Miðasala á Partíland fer fram hjá Þjóðleikhúsinu í síma
551 1200 og á www.leikhusid.is. Miðasala við innganginn í Hallgríms-
kirkju hefst klukkustund fyrir viðburð.
Miðasala
Lýðræðið í landinu og þær öru breytingar sem hafa orðið og eru
enn að eiga sér stað í samfélaginu eru viðfangsefni nýs íslensks
verks, Partílands, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu á laugardag.
Í aðra röndina er verkið líka tilraun til að finna leikhúsinu nýjan stað
í þessu breytingaferli. Þær endurbætur sem nú er verið að gera á
Þjóðleikhúsinu urðu kveikjan að verkinu og er óhætt að segja að
hrun og endurbygging komi ríkulega við sögu í verkinu. Partíland er
samstarfsverkefni leikfélagsins Gilligogg og Þjóðleikhússins.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson. Meðal leikenda eru: Björn Thors,
Erlingur Gíslason, Laufey Elíasdóttir, Ólöf Arnalds og fleiri.
Partíland eftir Jón Atla Jónasson
Þjóðleikhúsið, Stóra sviðið laugardaginn 26. maí kl. 20.00
Miðaverð: 3.000
Í tilefni tónleika Icelandic Sound Company í Hallgrímskirkju mun
tónlist þeirra bera með sér trúarlegan blæ. Slagverkssafn Gunnars
Kristinssonar er víðfrægt og líklega einstætt á heimsvísu. Þegar
við bætist Klais-orgel Hallgrímskirkju mætast tvö af voldugustu
hljóðfærum Íslands. Því má ljóst vera að hér verður á ferð einstæð
og fjölbreytt tónlistarupplifun. Meðlimir hljómsveitarinnar eru auk
Gunnars, Ríkharður H. Friðriksson gítarleikari, Egill Ólafsson söngvari
og Kirsten Galm orgelleikari.
Icelandic Sound Company
Tvö af voldugustu hljóðfærum landsins
Hallgrímskirkja, í kvöld 23. maí kl. 20.00 Miðaverð: 2.700
Í kvöld