Morgunblaðið - 23.05.2007, Side 23

Morgunblaðið - 23.05.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 23 FRÉTTASKÝRING Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Bandarískir fjölmiðlar hafaverið með vangaveltur umað Michael Bloomberg,borgarstjóri New York, hafi í hyggju að bjóða sig fram í for- setakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári. Hermt er að Bloomberg ætli að nota u.þ.b. milljarð dollara, sem svarar 64 milljörðum króna, af auðæfum sínum í kosningabarátt- unni ef af framboðinu verður. Bloomberg hefur neitað því að hann hafi augastað á Hvíta húsinu og kveðst ætla að gegna borgar- stjóraembættinu út kjörtímabilið, en því lýkur seint á árinu 2009. Það hef- ur þó ekki dregið úr vangaveltunum. Bloomberg var frambjóðandi repúblikana þegar hann var kjörinn borgarstjóri New York árið 2001 og endurkjörinn 2005. Hann nýtur þó mikils stuðnings meðal demókrata vegna frjálslyndrar afstöðu sinnar til fóstureyðinga og hjónabanda para af sama kyni og stuðnings hans við takmarkanir á byssueign. Hann er hins vegar íhaldssamur í fjármál- um og líklegt er að hann bjóði sig fram sem óháður stjórnmálamaður. „Ross Perot á sterum“ Nokkrir fjölmiðlanna segja að Bloomberg bjóði sig aðeins fram komist hann að þeirri niðurstöðu að hann eigi góða möguleika á að sigra forsetaefni repúblikana og demó- krata. Gefi hann kost á sér er hugs- anlegt að öll forsetaefnin komi frá New York, þ.e. ef repúblikanar tefla fram Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York, og demó- kratar Hillary Clinton, öldunga- deildarþingmanni New York-ríkis. Dagblaðið The Washington Times sagði þó í vikunni sem leið að Bloom- berg léði jafnvel máls á því að bjóða sig fram til þess eins að hafa áhrif á pólitísku umræðuna í kosningabar- áttunni. Blaðið hafði eftir ónafn- greindum ráðgjafa Bloombergs að hann væri tilbúinn að verja um millj- arði dollara í kosningabaráttuna. Bloomberg er í 142. sæti á lista tíma- ritsins Forbes yfir auðugustu menn heims. Auður hans er talinn nema um 5,5 milljörðum dollara, sem svar- ar rúmum 350 milljörðum króna. Talið er að hann hafi eytt rúmum 150 milljónum dollara, eða 9,6 millj- örðum króna, af eigin peningum í borgarstjórakosningunum 2001 og aftur sömu fjárhæð fjórum árum síðar. „Hann gæti gerbreytt pólitíska landslaginu í kosningunum,“ hafði The Washington Times eftir Michael Toner, fyrrverandi formanni yfir- kjörstjórnar Bandaríkjanna. „Bloomberg er Ross Perot á ster- um.“ Auðkýfingurinn Ross Perot var óháður frambjóðandi í forsetakosn- ingunum 1992 og fékk þá 18% at- kvæðanna. Margir repúblikanar telja að framboð Perot hafi tryggt Bill Clinton sigur í kosningunum og spillt fyrir George Bush eldri með því að kljúfa stuðningsmenn repúblikana. Repúblikanar eru því sagðir taka hugsanlegt framboð Bloombergs mjög alvarlega. Talið er einnig að Ralph Nader, frambjóðandi Græna flokksins, hafi stuðlað að naumum sigri George W. Bush forseta í kosningunum árið 2000 með því að taka fylgi af Al Gore, fyrrverandi varaforseta. Bloomberg átti nýlega fund með repúblikananum og öldungadeildar- þingmanninum Chuck Hagel, sem virtist ljá máls á því að hann yrði varaforsetaefni borgarstjórans. Stuðningsmenn Bloombergs hafa einnig hafið baráttu fyrir því að hann sækist eftir embætti ríkisstjóra New York árið 2010. „Hvers vegna ætti hann að vilja verða ríkisstjóri? Bjóði hann sig fram til einhvers verður það til forsetaembættisins,“ hafði þó tímaritið Time eftir ónafngreindum vini Bloombergs. Time hafði einnig eftir pólitískum ráðgjafa borgarstjórans, Kevin Sheeky, að hann ætti að íhuga for- setaframboð. Aðrir stuðningsmenn Bloombergs hafa komið upp sér- stöku vefsetri, draftmichael.com, til að hvetja hann til forsetaframboðs. Bloomberg hefur velt því fyrir sér opinberlega hvort lágvaxinn, fráskil- inn auðkýfingur af gyðingaættum geti orðið forseti Bandaríkjanna en lítið gert til að kveða orðróminn nið- ur. Nýlegar ferðir hans til Okla- homa, Houston og Mexíkó hafa þótt minna á kosningaferðalög. Í ræðum sínum hefur hann lagt áherslu á landsmálin, meðal annars baráttuna gegn loftslagsbreytingum, takmark- anir á byssueign og innflytjendamál. Bloomberg frá Manhattan í Hvíta húsið? Reuters Forsetaefni? Michael Bloomberg á ráðstefnu borgarstjóra stærstu borga heims þar sem fjallað var um baráttuna gegn loftslagsbreytingum. »Michael Bloomberg getur gerbreytt póli- tíska landslaginu í Bandaríkjunum gefi hann kost á sér í for- setaembættið. menn hafi að áfram- Framsókn segir hins styrkleika nnsstól, að að ef það rmannsins mstarfi við lokkurinn af heilum möguleik- ríkisstjórn amsóknar- n styrkja að laða o fyrrum n í þing- þá Guð- nn Frjáls- agnússon, álslyndra. drei neitt sjálfstæð- hún ekki hafi ekki erf. st fregnir uppstign- ngflokkur a saman á ræðunum Eftir það ratt, því á ramsókn- ar ráðstaf- stakk bú- rðu næstu , eftir að æru búnir í stjórnar- mtudag og . eindi fjöl- annafund- efði tekist okkur og rmyndun- stefnt að inum. o, að full- komin samstaða og eining ríki innan Sjálfstæðisflokksins um þá niður- stöðu að ganga til samninga við Samfylkinguna. Ýmsir tortryggja Samfylkinguna og efast um að heil- indi og hreinskiptni verði ríkjandi þættir í stjórnarsamstarfinu. Þeir hafa horn í síðu Ingibjargar Sólrún- ar Gísladóttur, formanns Samfylk- ingarinnar, og telja það alls ekki í verkahring Sjálfstæðisflokksins að blása nýju pólitísku lífi í formanninn, sem hefði fjarað hratt og örugglega út, ef henni hefði verið haldið frá stjórnarþátttöku. Þeir sem hafa tortryggt Ingi- björgu Sólrúnu og efast um að hún hefði pólitískan vilja til þess að sitja heilt kjörtímabil í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, hafa bent á það sama og orðað var í Reykjavík- urbréfi Morgunblaðsins nú á sunnu- dag. Að hún gæti á miðju kjörtíma- bili efnt til ágreinings við Sjálfstæð- isflokkinn og slitið stjórnarsam- starfinu. Ef það gerðist, væri auð- velt fyrir hana að mynda vinstri stjórn með Vinstri grænum og Framsóknarflokki, sem telji sig eiga harma að hefna gagnvart Sjálfstæð- isflokki. Þessum efasemdarmönnum hefur þó yfirsést eitt veigamikið at- riði, samkvæmt skilningi annarra sjálfstæðismanna, en það er sú stað- reynd, að þingrofsrétturinn er í höndum forsætisráðherra. Því hefði Geir H. Haarde það í höndum sér að rjúfa þing og efna til kosninga, ef leikar færu á þann veg, sem efa- semdarmenn og höfundur Reykja- víkurbréfs virðast telja að geti gerst. Enn aðrir vantreysta og hafa horn í síðu Össurar Skarphéðinsson- ar, svila Ingibjargar Sólrúnar og formanns þingflokks Samfylkingar- innar. Þeir sem, vegna persónulegr- ar tortryggni og óvildar í garð þeirra svilsystkina, vildu síst ganga til sam- starfs við Samfylkingu, eru kannski ekki svo ýkja háværir í andúð sinni, en þess öflugri eru þeir í að dreifa hálfkveðnum, og oft og tíðum, rætn- um vísum, hér og þar. Það er ljóst af máli þeirra sem rætt var við, að and- staðan við samstarf við Samfylkingu er fyrst og fremst af persónulegum toga, ekki málefnalegum. Tengslanet kvenna Frá því í vetur hefur það verið ljóst, að gott samstarf hefur tekist á milli ákveðinna kvenna á Alþingi, þvert á stjórnmálaflokka. Þannig kom það fram hér í Morgunblaðinu snemma árs, að samstaða og sam- starf væri gott á milli ákveðinna þingkvenna, og voru m.a. í þeim efn- um nefndar þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálf- stæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar- innar. Fullyrt er, að þetta nýja, þver- pólitíska tengslanet kvenna hafi ekki átt lítinn þátt í því, að úr varð að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking náðu saman um að hefja stjórnar- myndunarviðræður. Þar eru þær Þorgerður Katrín og Ingibjörg Sól- rún sagðar hafa gegnt lykilhlutverk- um og talið að samtöl þeirra í millum hafi hafist, vel fyrir kosningar. Þetta framtak kvennanna hefur ekki hlotið einróma lof allra sjálf- stæðismanna. „Hvers vegna stofna kerlingarnar á þingi ekki bara með sér saumaklúbb þvert á flokka og eru svo í pólitík í sínum flokki?“ spurði einn þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. Konurnar gefa lítið fyrir svona at- hugasemdir, og segja að þær séu bara enn ein vísbendingin um óör- yggi sumra karla, gagnvart öðruvísi nálgun og vinnubrögðum kvenna. Samkvæmt upplýsingum sem afl- að hefur verið, þá virðist sem mest frumkvæði að samstarfi Samfylking- ar við Sjálfstæðisflokkinn, hafi kom- ið frá ákveðnum þingmönnum Sam- fylkingarinnar og fleira samfylking- arfólki. Þannig hafa fjölmargir þingmenn Sjálfstæðisflokksins upp- lýst að Össur Skarphéðinsson hafi hringt í þá og verið ötull við brúar- smíð yfir til Sjálfstæðisflokksins. Sama er sagt um Margréti S. Björnsdóttur, sem hefur opinber- lega verið ötull stuðningsmaður samstarfs Samfylkingar og Sjálf- stæðisflokks. En vissulega var ákveðinn hljóm- grunnur í Sjálfstæðisflokknum fyrir samstarfi við Samfylkingu. SUS-ar- ar hafa verið eindregnir talsmenn slíks samstarfs, einnig ráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Einar K. Guð- finnsson og þingmennirnir Einar Oddur Kristjánsson, Guðfinna Bjarnadóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson og fleiri. Tímabil Geirs hafið Þótt tæp tvö ár séu frá því að Geir tók við formennsku af Davíð Odds- syni og tæpt ár frá því að hann varð forsætisráðherra, má segja að hans formennska til síðasta landsfundar og seta á forsætisráðherrastól, hafi verið arfleifð frá valdatíma Davíðs Oddssonar. Hann hefur því, þar til nú, verið að stjórna lokum Davíðs tímabilsins í íslenskum stjórnmál- um, bæði hjá Sjálfstæðisflokki og í landsmálum. Nýr framkvæmdastjóri hefur tek- ið við stjórn í Valhöll, flestir ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins úr fyrr- um ríkisstjórnum Davíðs eru horfnir af pólítíska sjónarsviðinu. Það má því með sanni segja, að Geir H. Haarde og Sjálfstæðisflokkurinn standi á ákveðnum tímamótum nú, þar sem tímabil Geirs H. Haarde hefst og tímabili Davíðs Oddssonar lýkur endanlega. Það mun því vænt- anlega reyna mjög á forystuhæfi- leika Geirs á komandi mánuðum og misserum. Hans styrkur er ekki síst í því fólginn, að hann er óumdeildur foringi Sjálfstæðisflokksins, og nýt- ur gríðarlegs trausts meðal mjög stórs hluta þjóðarinnar. ingrofsréttinn Morgunblaðið/Golli g Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður voru sigurreif á landsfundi am á nýja tíma á traustum grunni, í stjórnarsamstarfi við Samfylkinguna. Í HNOTSKURN » Geir kynnti þrjá kosti semSjálfstæðisflokkurinn hafði úr að velja á þingflokks- fundi 14. maí og fékk fullt um- boð þingflokksins til að velja raunhæfasta kostinn. »Valið stóð á milli stjórn-arsamstarfs við Fram- sókn, Vinstri græn eða Sam- fylkingu. »Naumur þingmeirihlutifráfarandi ríkisstjórnar var aðalástæða þess, að þing- menn Sjálfstæðisflokksins töldu áframhaldandi samstarf við Framsókn sísta kostinn. »Margir sjálfstæðismennvantreysta forystu Sam- fylkingarinnar, einkum þeim Ingibjörgu Sólrúnu og Össuri. »Þótt ýmsir hefðu frekarhug á samstarfi við Vinstri græn, þótti nánast útilokað að hægt yrði að ná samningum um málefni við VG. on a sem Sjálf- færi í » Illugi GunnarssonVar á því að semja bæri við vinstri græn, en hvarf svo frá þeirri skoðun vegna málefna. » Árni M. MathiesenTaldi frá upphafi að hægt væri að ná mál- efnasamningi við Sam- fylkinguna. » Einar K. GuðfinnssonVildi að stjórnarsam- starf Sjálfstæðisflokks við Samfylkingu yrði niðurstaðan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.