Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Leik- fimi kl. 8.30. Postulínsmálun kl. 9. Gönguhópur kl. 11. Postulínsmálun kl. 13. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8-16.30 handavinna, kl. 9-16.30 smíði/útskurður, kl. 10-11.30 heilsu- gæsla. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há- degisverður, spiladagur, brids/vist, kaffi. Upplýs- ingar í síma 535 2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30, s. 554 1226, en í Gjábakka miðvikudaga kl. 13-14, s. 554 3438. Félagsvist í Gullsmára á mánu- dögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar ganga kl. 10. Söngfélag FEB æfing kl. 17. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 10, leið- beinandi verður til kl. 17. Félagsvist kl. 13. Bobb kl. 17. Samkvæmisdans kl. 19, línudans kl. 20, Sigvaldi kennir. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 ganga, kl. 11.40 leikfimi og hádegisverður, kl. 13 kvennabrids. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvenna- leikfimi í Kirkjuhvoli kl. 9, 9.50 og 10.45. Vatns- leikfimi í Mýri kl. 9.50. Brids í Garðabergi kl. 13, opið til kl. 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Kl. 9.20 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug. Kl. 10.30 gamlir leikir og þjóðdansar. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 13.30 leggur Gerðu- bergskór í heimsókn á Hjúkrunarheimilið Skjól. Uppl. á staðnum og s. 575 7720. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Furugerði 1, félagsstarf | Norðurbrún 1, Furugerði 1 og Dalbraut 18-20. Farið verður í Fræðasetrið í Sandgerði, kaffiv. í Vitanum, fimmtudaginn 24. maí. Lagt verður af stað kl. 13 frá Norðurbrún og síðan teknir aðrir farþegar. Skráning og uppl. í Norð- urbrún í s. 568 6960, í Furugerði í s. 553 6040 og á Dalbraut í s. 5889533. Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 postulín, kl. 12-12.30 hádegismatur, kl. 13-16.30 brids, kl. 15 kaffi. Mið- vikudaginn 31 .maí. Staðarskoðun á Laugarvatni og í Skálholti tekur séra Egill Hallgrímsson dóm- kirkjuprestur á móti okkur. Kaffiveitingar í Skál- holtsskóla. Leiðsögumaður: Gylfi Guðmundsson. Verð 2.000 kr. Skráning í síma 587 2888. Brottför kl. 13 frá Hraunbæ. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Línudans kl. 11. Glerbræðsla kl. 13. Saumar kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gaflarakórinn kl. 16.15. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Fóta- aðgerðir, hársnyrting. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, fimmtudag, er pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10 og Listasmiðjan opnar kl. 13. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslunni kl. 10. Leikfimi fyrir byrjendur kl.10.30, leikfimi í salnum kl. 11. Verslunarferð í Bón- us kl. 12. Handverks- og bókastofa opin kl. 13. Kaffi- veitingar kl. 14.30. Uppl. í s. 552 4161. Allir vel- komnir. Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborgarsvæð- inu | Hátúni 12. Brids kl. 13. Félagsvist í kvöld kl. 19. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla, fótaaðgerðir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 10-12 spænska – byrj- endur. Kl. 9.15-16 myndmennt-postulín. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunarferð í Bónus. Kl. 13-14 spurt og spjallað. Kl. 13-16 tréskurður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja fyrir hádegi, handavinnustofan opin allan daginn, leikfimi kl. 10, bókband kl. 9, verslunarferð kl. 12.30. Söngur og dans undir stjórn hljómsveitarinnar Vitatorgs- bandsins kl. 14, allir velkomnir. Félagsmiðstöðin er opin fyrir alla óháð aldri. Uppl. í síma 411 9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 9 handavinna. Kl. 13 salurinn opin. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl. 9.30-11.30. Kaffi og spjall, safi handa börnunum. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn er í Holtakoti frá kl. 10-12, allir foreldrar ungra barna á Álftanesi velkomnir. Opið hús eldri borgara er í Litlakoti frá kl. 13-16, spilað, púttað og spjallað. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hug- vekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58-60. Sam- koma í kvöld kl. 20. „Alvæpni Guðs“. Ræðumaður er Karl Jónas Gíslason. Mínar hugsanir: Halldór Konráðsson. Kaffi eftir samkomuna. Allir velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 10. Mömmumorgunn. Umsjón Gerður Bolladóttir. Kaffispjall fyrir mæður, notaleg upplifun fyrir börn. Kl. 10.30 heldur gönguhópurinn Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum. Fararstjóri Örn Sigurgeirsson. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Beðið er fyrir sjúkum og hverjum þeim sem þurfa á fyrirbæn að halda og getur fólk komið óskum þar um til prestanna eða starfsfólks kirkjunnar. Einnig er altarisganga. Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgunn kl. 10-12.30. Fyrirlestur mánaðarlega, kynntir sér- staklega. Allir velkomnir, pabbar og mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt á könnunni. 40ára afmæli. Einar Ás-geirsson, fram- kvæmdastjóri Hringrásar, Sunnuvegi 11, Reykjavík, er fertugur í dag, miðvikudaginn 23. maí. Hann fagnar þessum tímamótum með fjölskyldu og vinum. Hlutavelta | Arndís Eva Er- lingsdóttir gekk í hús og safn- aði peningum, sem hún síðan færði Rauða krossinum. Hún safnaði alls 1.372 krónum. dagbók Í dag er miðvikudagur 23. maí, 143. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð. (Ok. 10, 32.) Forvarnir eru besta leiðin er yf-irskrift ráðstefnu sem Bláttáfram stendur fyrir 24. og 25.maí í samstarfi við Barna- verndarstofu, Háskólann í Reykjavík, Félag heyrnarlausra, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Þroskahjálp, Stíga- mót og Neyðarlínuna 112. Svava Björnsdóttir er varaformaður stjórnar Blátt áfram og einn af skipu- leggjendum ráðstefnunnar: „Á ráð- stefnunni fræðumst við um það nýjasta sem er að gerast í fræðslu og forvörnum gegn kynferðisofbeldi á börnum, og höf- um við fengið hingað til lands fjóra færa sérfræðinga frá Bandaríkjunum,“ segir Svava. „Mikil áhersla hefur verið á fæling- armátt refsinga þegar leitað hefur verið leiða til að koma í veg fyrir kynferð- islegt ofbeldi á börnum. Nú viljum við beina sjónum að krafti forvarna og fræðslu, og ræða um ábyrgð allra full- orðinna á að vernda og fræða börnin sín,“ útskýrir Sara. „Fólki hættir til að leita að blórabögglum, en ef að er gáð hefur samfélagið oft brugðist bæði börnunum og þeim sem brjóta af sér. Með því að fræðast um allar hliðar málsins tekst okkur kannski að rjúfa þennan vítahring.“ Svava segir að fólk sýni sterk við- brögð þegar jafnviðkvæmt efni er til umfjöllunar: „Við eigum það til að fest- ast í reiði, ótta og afneitun. Þetta eru eðlileg viðbrögð en við verðum að yf- irstíga þau til að geta fræðst og fyr- irbyggt. Á ráðstefnunni skoðum við sér- staklega hlutskipti ungra gerenda og úrræði fyrir þá sem þurfa að vera önnur en þegar gerandi er fullorðinn. Þegar gerandi er ungur er oft ekki síður þörf á stuðningi og leiðsögn fyrir gerandann en fórnarlambið. Robert E. Longo er sérfræðingur í kynferðisbrotum ungra gerenda og flytur erindi á ráðstefnunni en mikil bylting hefur orðið vestanhafs á síðustu árum í meðferð þeirra,“ segir Svava. „Shirley Paceley er sérhæfir sig í vinnu með fötluðum og greind- arskertum börnum, en rannsóknir hafa sýnt að sá hópur er í 50% meiri hættu á að verða fórnarlömb kynferðisofbeldis. Skoðar hún í erindi sínu leiðir til að vinna bug á þessum vanda, bæði fræða börnin og hafa eftirlit með þeim sem annast þau.“ John C. Patterson er sérfræðingur í áhættumati fyrir stofnanir þar sem unnið er með börnum og ungmennum. „Hann leggur fram leiðir til að tryggja öryggi barna og starfsfólks og David Burton flytur erindi um mikilvægi þess að fræðasamfélagið sé ófeimið við að rannsaka þennan málaflokk og kynnir jafnframt eigin samanburðarrann- sóknir á meðferðarúrræðum.“ Finna má nánari upplýsingar um ráð- stefnuna á www.blattafram.is. Ráð- stefnan er ætluð almenningi jafnt sem fagfólki og er þátttökugjaldi stillt mjög í hóf. Forvarnir | Ráðstefna um kynferðislegt ofbeldi á börnum 24. og 25. maí Fræðsla rýfur vítahringinn  Svava Björns- dóttir fæddist í Reykjavík 1966. Hún lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum við Sund og BS-gráðu í hót- el- og veitinga- rekstri í Kali- forníu. Hún hefur fengist við sölu- og markaðsstörf og stóð að stofnun Blátt áfram 2004. Svava er gift David Brooks og eiga þau þrjú börn. Tónlist Árbæjarkirkja | Gospelkór Árbæjarkirkju og söngkvartett- inn Opus halda tónleika í kvöld kl. 20.30. Í Opus eru Val- gerður Guðnadóttir, Rósalind Gísladóttir, Einar Ö. Ein- arsson og Gunnar Kristmannsson. Hljómsveitina skipa Vignir Stefánsson, Jón Rafnsson, Páll Sveinsson og Sig- urjón Alexandersson. Myndlist Listasafn ASÍ | Fimm norrænir textíllistamenn og eitt ítalskt tónskáld stilla saman strengi sína. Þau heita Ag- neta Hobin, Anna Þóra Karlsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Kristiina Wiherheimo, Marianne Mannsaker og Paola Li- vorsi. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 13-17 og aðgangur er ókeypis. Frístundir og námskeið www.ljosmyndari.is | Ljósmyndanámskeið. Egilsstaðir, 4.-5. júní kl. 18-22, Austrasalurinn. Farið í helstu stilling- aratriðin á stafrænni myndavél, ýmis góð ráð gefin til að ná betri myndum. Tölvumálin eru tekin fyrir o.fl. Nám- skeiðið kostar 12.900 kr. Skráning á www.ljosmyndari.is. Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson. Útivist og íþróttir Mosfellsbær | Kirkjuganga í Mosfellsbæ 26. maí, kl. 10-13. Lagt af stað frá Lágafelli, gengið að Varmá og Hrísbrú og endað á Mosfelli. Sagt frá fornum og nýjum kirkjustöðum sveitarfélagsins. Leiðsögumaður er Magnús Guðmundsson sagnfræðingur. Í KVÖLD kl. 20:30 verða haldnir sameiginlegir vortónleikar gosp- elkórs Árbæjarkirkju og söngkvartettsins Opus í Árbæjarkirkju. Kórinn mun flytja þekkt og minna þekkt gospel (lofgjörða) lög en Opus mest þekktar dægurlagaperlur úr söngleikjum og kvikmyndum, meðal annars Summertime, Blue moon og Aińt misbehavin. Stjórnandi gospelkórsins er Rósalind Gísladóttir. Kórinn Í kvöld verða haldnir sameiginlegir vortónleikar gospelkórs Árbæjarkirkju og söngkvartettsins Opus. Kórinn skipa um 20 konur. Gospelkór og söngkvartett með vortónleika MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Sam-þykki af- mælisbarns þarf að fylgja af-mælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið rit- stjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2110 Reykjavík. FRÉTTIR KLÚBBURINN Geysir verður með opið hús fyrir aðstandendur félaga Klúbbsins, fagaðila og aðra sem vilja kynna sér starfsemina fimmtu- daginn 24. maí frá kl. 13 til kl. 18 í Skipholti 29 í Reykjavík. Klúbburinn Geysir starfar eftir hugmyndafræði Fountain House sem miðar að því að styrkja félaga sem hafa átt eða eiga við geðræn veikindi að stríða til að þeir nái fót- festu í lífi og starfi. Í Geysi er lögð áheyrsla á jákvæði og horft á styrk- leika hvers og eins. Félagar og starfsfólk bera sam- eiginlega ábyrgð á rekstrinum og ákveða í sameiningu hvaða störf þarf að inna af hendi. Öll vinna fé- laga í Klúbbnum er sjálfboðavinna. Hjálp og aðstoð við aðra felur í sér sjálfshjálp. Starfsfólk og félagar munu sýna gestum klúbbhúsið og kynna starfsemina. Kaffi og kökur til styrktar Klúbbnum Geysi verða seldar á staðnum. Klúbbar sem starfa samkvæmt hugmyndafræði Fountain House eru 400 í 30 löndum og í þeim eru 55.000 félagar. Aðstandenda- og kynning- ardagur í Klúbbnum Geysi Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.