Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 37
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÞAÐ hefur enginn fengið borguð
höfundarlaun frá því að Tónlist.is
opnaði. Ekki einn einasti maður.“
Þetta segir Birgir Örn Steinarsson
tónlistarmaður, sem hefur verið bú-
settur í London um árabil en kom til
landsins í dag, alfluttur. Segist hann
ætla að beita sér fyrir því að nú verði
gerður skurkur í málum vefjarins
tonlist.is, ekki verði lengur unað við
að tónlistarmenn sjái ekki krónu af
seldum plötum og lögum í gegnum
vefinn.
„Þetta hef ég meira að segja frá
yfirmönnum í Senu. Ég hringdi
þangað til að kanna þetta mál. Menn
voru skömmustulegir þar og vissu
um hvað þetta snerist.“ Birgir, eða
Biggi eins og hann er kallaður, segir
málið eitt allsherjarklúður, bæði hjá
Tónlist.is og svo hjá STEF (Sam-
band tónskálda og eigenda flutn-
ingsréttar) og FTT (Félag tónskálda
og textahöfunda).
„STEF og FTT gáfu leyfi fyrir því
á sínum tíma að Tónlist.is myndi
selja upp úr gagnagrunni, sem átti
upprunalega að vera líkt og bóka-
safn. Ég veit ekki hvernig sá samn-
ingur var byggður upp, enda var
hann ekki borinn undir okkur, lista-
mennina. Þegar allt kemur til alls þá
voru STEF og FTT að gefa fyr-
irtæki leyfi til að selja okkar hug-
verk án þess að við fengjum krónu
fyrir. Svona er þetta búið að ganga í
fjögur ár.“ Biggi segir að listamönn-
um beri nú að sækja sinn rétt. „Það
héldu allir að þeir væru að fá pen-
ingana í gegnum STEF-gjöldin en
svo þegar menn fóru að athuga þetta
þá kom í ljós að það voru engar
greiðslur frá tonlist.is. Þegar og ég
fleiri fórum að spyrja tonlist.is og
Senu út í þetta var okkur tjáð að það
ætti að borga þetta „bráðum“ og
þetta væri nú ekki jafn mikill pen-
ingur og við héldum. Ég fékk t.d. þá
fáránlegu afsökun að þetta væri svo
lítill peningur að það hefði ekki tekið
því að borga hann. Veltan á tonlist.is
er engu að síður 500.000 á viku. Og
reiknaðu nú. Er von að maður
spyrji: Hvar eru þessir peningar?“
Falskar forsendur
Biggi segist hafa kynnt sér þetta
mál vel, en hann var varamaður í
stjórn FTT þegar ákvörðunin um
áðurnefndan gagnagrunn var tek-
inn. „Svona er staðan bara. Það er
verið að selja tónlist fólks þarna og
enginn fær greidd höfundarlaun.
Það eitt og sér er lögbrot. Einhver
þarf að bera ábyrgðina. Eðlilega
ættu það að vera eigendur Tónlist.is.
Þannig sé ég það a.m.k.. Annað
hvort fái fólk borgað eða þá að síð-
unni verði einfaldlega lokað.“ Biggi
segir að STEF og FTT eigi að biðja
tónlistarfólk afsökunar á því að hafa
opnað gagnagrunninn á þennan
hátt.
„Mér finnst eins og þetta hafi ver-
ið gert á fölskum forsendum. Okkur
var sagt að þetta yrði allt mjög já-
kvætt, allir peningarnir myndu
renna í STEF o.s.frv., og svo er það
ekkert að gerast. STEF og FTT
eiga að byrja að vinna í því, ekki
seinna en núna, að þetta verði leið-
rétt. Þegar byrjað var á gagna-
grunninum kom hann Tónlist.is ekk-
ert við. Það er bara eins og menn
hafi gleymt að fylgjast með fram-
haldinu. Úr gagnagrunninum, sem
gekk út á það að koma íslenskri tón-
list í stafrænt form, vegna söfnunar-
og rannsóknargildis, hafa hlutir ver-
ið til sölu sem eiga ekkert að vera til
sölu. Við í Maus þurftum t.d. að láta
kippa út demói með okkur og þetta
er búið að vera stöðugt vesen.“ Biggi
furðar sig á því að tónlistarmenn
taki sig ekki saman og leggi fram
kæru. Óhjákvæmilega verði það gert
ef ekkert gerist í þessum málum.
„STEF og FTT hika við að gera
eitthvað í málunum þar sem þau eiga
sök á því að þetta fór svona. Þess
vegna humma stjórnarmenn þar
þetta fram af sér. Maður verður
pirraður þegar maður hugsar um
þetta, því allt átti þetta að vera svo
uppbyggilegt og jákvætt. Maður
varð voða glaður þegar þetta fór
fyrst af stað, netverslun með tónlist-
inni manns. Svo endar þetta alltaf
eins í þessum tónlistarbransa, ein-
hverjir gæjar sem komu ekki nálægt
því að búa til sjálfa tónlistina hirða
alla peningana.“
Allsherjarflækja
Biggi segir þetta mál vera eina
allsherjarflækju sem enginn skilji
neitt í lengur, ekki einu sinni þeir
sem með völdin fara. „Þetta er sorg-
legt, því að Tónlist.is er frábært fyr-
irbæri sem slíkt, býður upp á góða
leið til að koma tónlist á framfæri.
Það er algjör synd að þetta sé svona
en eðlilega vill fólk fá borgað fyrir
vinnuna sína. Þetta „meikar ekki
sens“, það erum við sem búum þessa
vöru til. Listamaðurinn á að fá borg-
að samkvæmt lögum.“ Stefán Hjör-
leifsson, framkvæmdastjóri D3 sem
rekur Tónlist.is, staðhæfir í blaði
gærdagsins að greiðslur frá Tónlist-
.is hafi borist ársfjórðungslega til
STEF frá upphafi. „Ég veit ekki
hvar þetta liggur,“ segir Biggi. „Það
eina sem ég veit er að það er verið að
brjóta á okkur. Ef peningarnir væru
hjá STEF þá væru þeir bókað
komnir til okkar. Ef þetta er eins og
Stefán segir þá vil ég vita hvar pen-
ingarnir eru.“
Morgunblaðið/Sverrir
Vonsvikinn Birgir Örn Steinarsson (t.v.) ásamt félögum sínum úr Maus.
Birgir Örn var í stjórn FTT þegar Tónlist.is var gangsett. Hann segir
margt vera að starfsemi Tónlist.is.
„Svona er þetta búið
að ganga í fjögur ár“
Birgir Örn Stein-
arsson tónlistar-
maður segir engar
greiðslur hafa bor-
ist frá Tónlist.is
» „Mér finnst eins ogþetta hafi verið gert
á fölskum forsendum.
Okkur var sagt að þetta
yrði allt mjög jákvætt,
allir peningarnir myndu
renna í STEF, og svo er
það ekkert að gerast.“
Fréttir á SMS
Morgunblaðinu hefur borist eftirfar-
andi frá Eiríki Tómassyni, fram-
kvæmdastjóra STEFs.
Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum
síðustu daga um tónlistarvefinn „ton-
list.is“ og greiðslum fyrir not á tónlist
á honum vill STEF taka fram eft-
irfarandi:
1. Samband tónskálda og eigenda
flutningsréttar (STEF) og sam-
norrænu höfundaréttarsamtökin
Nordisk Copyright Bureau (NCB)
annast hagsmunagæslu fyrir ís-
lenska sem erlenda tónhöfunda
hér á landi, þ.á m. gagnvart um-
ræddum tónlistarvef. Þessi samtök
hafa hins vegar ekki með höndum
réttindagæslu fyrir flytjendur, þ.e.
hljóðfæraleikara og söngvara, eða
hljómplötuútgefendur, heldur er
það Samband flytjenda og hljóm-
plötuframleiðenda (SFH).
2. Í gildi er samningur milli STEFs
og NCB annars vegar og fyrirtæk-
isins D3 hins vegar, þar sem fyr-
irtækinu er veitt heimild til að gera
tónlist aðgengilega fyrir notendur
á vefnum „tonlist.is“ gegn ákveð-
inni greiðslu. Þessi samningur hef-
ur verið í gildi frá árinu 2005 og er
að öllu leyti sama
efnis og sambæri-
legir samningar
sem gerðir hafa
verið á öðrum
Norðurlöndum
milli höfundarétt-
arsamtaka og
þeirra aðila er
selja aðgang að
tónlist á Netinu.
3. D3 hefur staðið skil til STEFs/
NCB á umsömdum höfundarétt-
argjöldum í samræmi við fyrr-
greindan samning. Samkvæmt
samkomulagi STEFs og syst-
ursamtaka þess á öðrum Norð-
urlöndum er það verkefni NCB að
úthluta höfundum og öðrum rétt-
höfum greiðslum fyrir þessi tón-
listarnot. Vegna þess að höf-
undagjöld fyrir þessi not eru
hvarvetna í heiminum tiltölulega
lág í samanburði við önnur höf-
undagjöld, t.d. af sölu tónlistar á
hljómplötum og hljómdiskum, eru
það því miður ekki háar fjárhæðir
sem hver höfundur fær í sinn hlut.
Virðingarfyllst,
Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri STEFs.
Yfirlýsing
Eiríkur Tómasson
DAGUR VONAR
Fim 24/5 kl. 20
Lau 2/6 kl. 20
Fös 8/6 kl. 20
Ekki er hleypt inní salinn eftir að sýning er hafin
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Fös 25/5 kl. 20.
Fim 31/5 kl. 20
Sýningar hefjast að nýju í september
LÍK Í ÓSKILUM
Þri 5/6 kl. 20 FORS.
Fim 7/6 kl. 20 FORS.
Fös 8/6 kl. 20 FORS.
Lau 9/6 kl. 20 FORS.
Miðaverð 1.500
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN
25 TÍMAR
Fim 7/6 FORS. Miðaverð 1.500
Fös 8/6 kl. 20
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
VILTU FINNA MILLJÓN?
Lau 26/5 AUKASÝNING
Síðasta sýning
LADDI 6-TUGUR
Þri 29/5 kl. 20 UPPS. Mið 30/5 kl. 20 UPPS.
Fös 1/6 kl. 20 UPPS. Lau 2/6 kl. 20 UPPS.
Lau 2/6 kl. 22:30 UPPS. Sun 3/6 kl. 14 UPPS.
Sun 3/6 kl. 20 Mán 4/6 kl. 20 UPPS.
Mið 20/6 kl. 20 Fim 21/6 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 25/5 kl. 20 UPPS. Lau 26/5 kl. 20 UPPS.
Fim 31/5 kl. 20 UPPS. Fös 1/6 kl. 20 UPPS.
Sun 3/6 kl. 20 Fim 7/6 kl. 20
Lau 9/6 kl. 20 Fös 15/6 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 30/5 kl. 20 UPPS.
Mið 6/6 kl. 20
Sun 10/6 kl. 20
Fim 14/6 kl. 20
Aðeins þessar 4 sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
1/6 Örfá sæti laus,
2/6 Nokkur sæti laus, 7/6 Nokkur sæti laus.
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Sýningar hefjast kl. 20.00
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Pabbinn – drepfyndinn einleikur Bjarna Hauks
Fim. 24/05 kl. 19 örfá sæti laus
Fös. 25/05 kl. 19 örfá sæti laus
Lau. 26/05 kl. 19 örfá sæti laus
Síðustu sýningar leikársins!
Sala áskriftarkorta fyrir nýtt og spennandi
leikár hefst í ágúst. Vertu með!
www.leikfelag.is
4 600 200
ATVINNULEIKHÚS
Í BORGARNESI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
fö 25/5 kl. 20 örfá sæti, fö. 1/6 uppselt,
lau. 2/6 uppselt, lau 9/6. kl. 15 uppselt,
lau 9/6 kl. 20 örfá sæti, fö 15/6 kl. 20,
mi 20/6 kl 20, fö 29/6 kl. 20
MÝRAMAÐURINN
- höf. og leikari Gísli Einarsson
mán. 28/5, fi. 7/6, fö 8/6 örfá sæti,
fi 14/6 - síðasta sýning
SVONA ERU MENN
- höf. og flytjendur KK og Einar Kárason
lau 26/5 síðasta sýning
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
SAMKVÆMT heimildum Morg-
unblaðsins fór fram stjórn-
arfundur hjá FTT í gærmorgun
þar sem málefni vefjarins Tónlist-
.is voru meðal annars rædd. Var
þar samþykkt að kanna málið
með tilliti til þeirrar gagnrýni
sem fram hefur komið af hálfu
tónlistarmanna og kalla til fundar
að viðstöddum Stefáni Hjörleifs-
syni og Eiríki Tómassyni fram-
kvæmdarstjóra STEFs. Mun
málið vera allflókið og lúta annars
vegar að höfundarrétti þar sem
STEF er milligönguaðili og hins
vegar að útgáfurétti þar sem til-
tekið útgáfufélag höfundar skal
koma greiðslum frá Tónlist.is til
skila til rétthafa. Mun sú skýring
hafa komið fram á fundi FTT að
ástæða þess að tónlistarmenn telji
sig ekki hafa fengið greitt frá
Tónlist.is í gegnum STEF sé sú
að þær greiðslur séu skráðar sem
sala á hringitón en ekki sala á tón-
list af Tónlist.is.
Skráð sem hringitónn